Bændablaðið - 14.12.2017, Side 80

Bændablaðið - 14.12.2017, Side 80
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 201780 Sveinn Aðalsteinsson og Sif Jóhannesdóttir eru leiguliðar á bænum Ærlæk til tveggja ára frá nóvember 2016. Býli: Ærlækur. Staðsett í sveit: Öxarfirði í Norður- Þingeyjarsýslu. Ábúendur: Við hjónin Sveinn Aðalsteinsson og Sif Jóhannesdóttir erum leiguliðar á bænum til tveggja ára frá nóvember 2016 Fjölskyldustærð (og gæludýra): Fjölskyldan og búseta hennar er fremur venju flókin. Fjölskyldan býr á tveimur stöðum, Sveinn og Þorsteinn sonur hans búa á Ærlæk í vetur ásamt föður Sifjar, Jóhannesi Óla. Sif og sonur okkar, Jóhannes Óli yngri, búa að jafnaði á Húsavík, en koma í sveitina hvenær sem færi gefst. Bræður hafa haft vistaskipti en síðasta vetur bjó Þorsteinn á Húsavík en Jóhannes Óli á Ærlæk. Þar að auki eigum við þrjú uppkomin börn sem öll búa á Akureyri og stunda þar nám. Gæludýrin eru tvö; kötturinn Kolur á Húsavík og eins árs gömul gömul Border Collie-tík sem býr á Ærlæk og heitir Píla. Stærð jarðar? Um 700 ha. Gerð bús? Sauðfjárbú. Fjöldi búfjár og tegundir? 530 vetrarfóðraðar ær, 15 endur og 7 hross. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Hefðbundinn dagur í desember þegar allt er komið á hús og fengitíð ekki byrjuð er frekar einfaldur og þægilegur. Morgungjöf kl. 8, bæta á eldinn í reykhúsinu og svo stússast við frágang eftir rúning og undirbúning fyrir fengitíð. Seinnipartsgjöf eftir kl. 16. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Vorverk á sauðburði eru alla jafna skemmtilegust þegar vel gengur og veðrið er þokkalegt. Smölun og réttir eru líka frábær skemmtun í góðu veðri og góðum félagsskap. Leiðinlegast er að þurfa að berjast um í slyddu og djöfulskap, sama á hvaða árstíma. Það gerir öll bústörf leiðinleg. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Ærlækur er jörð sem hefur allt til að bera sem hægt væri að hugsa sér til að stunda búskap. Af því leiðir að þeim sem býr þar eru allir vegir færir. Hvaða skoðun hafið þið á félagsmálum bænda? Við þekkjum of lítið til félagsmála bænda til að hafa mótað sterkar skoðanir á þeim. Hvernig mun íslenskum landbúnaði vegna í framtíðinni? Einfalda svarið er vel. Það liggur fyrir að starfsumhverfi er að breytast og óvissa er um framhald og það hvernig raunveruleika landbúnaður mun búa við, sérstaklega í sauðfjárrækt. Þeim sem ná að laga sig að breyttum aðstæðum og starfsumhverfi með hökuna uppi og hugmyndaflug til að nýta möguleikana á eftir að vegna vel. Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Ef útflutningur á að vera mögulegur, verður hann að vera á mörkuðum þar sem kúnninn er til í að borga fyrir vöru vegna uppruna og aðferða við framleiðslu. Sérvara í „litlu magni“ á háu verði. Magnútflutningur á lágvörumarkað er glórulaus hugmynd. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Nýmjólk, án hennar er hungursneyð yfirvofandi. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Heimagerð bjúgu Sveins bónda hafa gengið hvað best í mannskapinn. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Á okkar stutta búskapartíma hefur margt eftirminnilegt gerst og vafalítið á hver fjölskyldumeðlimur sitt eigið eftirminnilegasta atvik. Sveinn fær að eiga svarið við þessari spurningu: „Þegar við Sif unnum verkefni í fæðingarhjálp saman sem kröfðust lagni og afls. Sif lagði til lagni, ég afl. Eftirminnilegust eru slík tilvik þar sem lömb og mæður lifðu og döfnuðu.“ Líf og lyst BÆRINN OKKAR Jólamarkaður í Ásgarði í Álafosskvosinni: Hápunktur ársins á handverkstæðinu Hápunktur hvers árs í Ásgarði, handverkstæðisins í Álafosskvosinni í Mosfellsbæ, er jólamarkaðurinn sem jafnan er haldinn fyrstu helgina í desember. Ásgarður er verndaður vinnustaður, en þar vinna 22 starfsmenn að smíðum og listmunagerð allan ársins hring, undir handleiðslu níu starfsmanna. Jólamarkaðurinn var haldinn laugardaginn 2. desember síðastliðinn og var fjöldi manns kominn í Braggann, smiðjuna þar sem munirnir voru sýndir, fljótlega eftir opnun á hádegi. Kaffihlaðborð var svo í sjálfum Ásgarð inum, steinsnar frá. Hjörtur Garð arsson, einn leiðbeinendanna í Bragganum, sagði gestum frá því sem fyrir augu bar á markaðnum. „Á trésmíðaverkstæðinu smíðum við alls konar tréleikföng og listmuni af ýmsum gerðum. Við erum með ákveðna línu í barnaleikföngum sem við erum alltaf með í framleiðslu og svo fyrir þennan hátíðardag okkar smíðum við líka sérstaka jólamuni. Svo erum við líka með listasmiðju og þar er unnið úr hornum, leðri og kopar til dæmis – auk þess sem þar er mikið ofið. Við höldum okkur mest við íslenskt hráefni, en koparinn og nautgripahornin þurfum við reyndar að flytja inn þar sem fátt er yfirleitt af slíku í boði hér á landi. Við vinnum samt talsvert úr íslenskum hreindýrahornum og eitthvað úr hrútshornum.“ Þetta er aðaldagurinn en verslunin opin flesta daga „Þetta er aðaldagurinn okkar en verslunin, sem stendur fyrir ofan Ásgarð, er þó opin flesta daga,“ segir Hjörtur Garðarsson. /smh Góð aðsókn var á jólamarkaðinn í Ásgarði, enda margt fallegt og forvitnilegt þar að skoða. Myndir / smh Ærlækur

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.