Bændablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 79
79Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2017
Síðasta mánuðinn fyrir jól þyngist
umferðin og virðist eins og allir
séu að flýta sér á einn eða annan
hátt.
Þetta sé ég vel á minni vinnu
sem felst í að aðstoða þá óheppnu
aðila sem lenda í að dæla röngu
eldsneyti á bílana sína, en í desember
tvö- til þrefaldast þessar beiðnir
um afdælingar á röngu eldsneyti.
Fyrir utan kostnaðinn, sem er á
bilinu 19 til 30 þúsund krónur, þá
tekur það oftast nokkurn tíma að
eldsneytistæma bíla. Oft hef ég
notað þann tíma til að reyna að fá
skýringu á mistökunum hjá þeim
sem dældi ranga eldsneytinu.
Algengasta svarið er að viðkomandi
hafi verið annars hugar eða að flýta
sér. Flýtum okkur hægt, það borgar
sig í flestum tilfellum.
Góð vísa er aldrei of oft kveðin
Þessi pistill er nú birtur í fjórða
sinn að mestu orðréttur frá jólablaði
Bændablaðsins síðustu ár sem
áminning um ýmislegt sem huga
þarf að fyrir jólin:
Fátt gleður augað meira en sú
hefð Íslendinga að skreyta úti í sínu
næsta nágrenni hús, vélar og fleira
með fallegum litskrúðugum ljósum
í desember.
Kunningi minn er einn af þessum
sem skreyta meira en aðrir og vekur
alltaf athygli. Þegar hann byrjaði að
skreyta svona mikið gerði hann mörg
mistök, setti of margar ljósaseríur á
of lítið rafmagn, ekki allir tenglar
og fjöltengi voru vatnsheld og í
rigningu sló allt út. Fjöltengi og
framlengingarsnúrur þurfa að þola
álagið og íslenskt veðurfar.
Margar framlengingarsnúrur eru
ekki ætlaðar fyrir mikið rafmagn og
hitna við mikið álag. Að kaupa ódýr
fjöltengi og framlengingarsnúrur
getur verið kostnaðarsamt, en
ein algengasta orsök bruna sem
orsakast af rafmagni er út af því
að of mikið er tekið af rafmagni af
einum stað.
Slökkvitæki, reykskynjarar og
eldvarnarteppi er skyldueign
Kertanotkun eykst hjá flestum um
jól og áramót, en að mörgu er að
hyggja þegar kerti eru annars vegar.
Dæmi eru um kertaskreytingar sem
hafa fuðrað upp og valdið miklum
eldsvoða, heimilisdýr rekið sig í
kerti og kveikt í, vindgustur í
gardínum yfir kerti og gardínan
fuðrað upp, svona má eflaust lengi
upp telja. Mörgum eldsvoða hafa
reykskynjarar bjargað, en í þeim
þarf að skipta um rafhlöðu einu
sinni á ári.
Ágætis regla er að hafa
ákveðinn dag til að skipta um
rafhlöðuna og mæli ég með að nota
Þorláksmessu sem „reykskynjara-
rafhlöðudaginn“.
Slökkvitæki eiga að vera til á
öllum heimilum og ef hæðir eru
margar í íbúðarhúsi ætti að vera eitt
slökkvitæki á hverri hæð, þau þarf
að yfirfæra reglulega (sjá merkingar
á tækjunum). Eldvarnarteppi á að
vera staðsett nálægt eldavélinni á
hverju heimili.
Njótum jólanna í kærleik og
verum vinir
Jól og áramót er sá tími ársins er
ættingjar og vinir hittast og er
flestum mjög kær og töluvert er um
ferðalög á milli landshluta. Það getur
verið gaman að ferðast og sjá landið
í skammdeginu í allt öðru ljósi en á
hefðbundnum „ferðalagamánuðum“,
en á þessum hátíðisdögum leynist
líka hætta.
Síðustu ár hefur mátt lesa greinar
í fjölmiðlum um óhöpp, kvíða og
stress sem tengist jólaundirbúningi
vegna þess að það er svo mikið sem
þarf að gera fyrir jólin. Það eru bæði
börn og fullorðið fólk sem líður illa
og kvíðir fyrir jólunum af ýmsum
ástæðum. Sýnum kærleika um
jólin, verum góð hvert við annað,
ferðumst með æðruleysi og jákvæðni
í umferðinni, elskum nágrannann
eins og við elskum okkur sjálf. Ég
vil þakka þeim sem hafa gefið sér
tíma til að lesa þessa stuttu pistla
síðustu ár og vona að þeir hafi komið
einhverjum að gagni. Gleðileg jól og
farsælt komandi ár.
Desember með öllu sínu „stressi”
Njarðarnesi 1 sími 460 4350
Hjólbarðaþjónusta - Smurþjónusta - Þrif á bílum - vönduð handverkfæri og fl.
Úrval hjólbarða á betra verði
Fólksbíla-, traktora-, vinnuvéla-, vagna-,
jeppa,- og vörubíladekk í úrvali.
Smurþjónusta
(Jason ehf.)
20%
afsláttur af öllum dekkjum
Ármann sími 896 8462 og Tryggvi 896 412
Jeppadekk
35x12,5x15
Double Star
vörbíladekk
Double Star
Vinnu- og
dráttarvéladekk
ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
HALLMÆLA SMÁ BLUNDUR SULL LASLEIKI BOX AFSPURN FLAN
ABASÍSKUR L K A L Í S K U R
KTÁGARÍLÁT A R F A
DREPA
NIÐUR
SAGGI L A M A
ASAMTÖK S Í P R E S T S
T A G GEGNAÁGÆTIS A N S A OFTAR
KIPRA
SIGTI
FÆDDI S Í A ALDURHARMUR R E K LYKTSKÓFLA I L M
FRÁTRÉ
SSTAGLJÁRNA
KLERKS
SPAUG
S P Ó K A AÐ LOKUMSPIL S Í Ð I R SÁLDA SPIL ELABBA
K Í L Ó MANGORTAR K O N A ASKURTUNGUMÁL E S K IMÆLI-EINING
Æ R TEMURGÖLTUR A G A R TITILLINNIHALD L E K T O RÓÐ
L A G AFKVÆMIANDVARP U N G I KROPPSPILLA N A R T STÍFAHÁTTUR
B KAFMÆÐISÓT A S M I TANGISAMKVÆMI N E S TÍMABILSHÓFDÝR Á R S
R Ö L T A MJAKA H N I K A ÓLÆTIBLEKKING A TLALLA
O S T U R HRÆÐASTPOT Ó T T A S T RÓMVERSK TALA OMJÓLKUR-AFURÐ
S
A
K
U
I
K
N
A
HÆRRA
S
O
T
F
KRYDD
A
K
R
A
NÁKOMIÐ
N
N
I
Á
L
I
L
ÐBIRTA
VAXA
74
Lausn á krossgátu í síðasta blaði
Víkurvagnar ehf. – Hyrjarhöfði 8. – 110 Reykjavík
Sími 577-1090 – www.vikurvagnar.is – sala@vikurvagnar.is
HESTAKERRUR - GRIPAVAGNAR
VÍKURVAGNAR EHF.
STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI
HESTAKERRA
HB 610 - FYRIR 5-6 HESTA
VERÐ
2.190.000 með vsk.
GRIPAFLUTNINGAKERRA
TA 510 - FYRIR 4-5 HESTA
VERÐ - 1.570.000 með vsk.
TA 510 – FYRIR 4-5 HESTA MEÐ MILLIGÓLFI
VERÐ – 1.850.000 með vsk.
TA 5 – FYRIR 2-3 HESTA
VERÐ – 1.200.000 með vsk
KROSSGÁTA
Bændablaðsins
Glerárgata 34b v/ Hvannavelli · 600 Akureyri
Sími: 461 1092 · E-mail: asco@asco.is ÁSCO
Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing
og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020
eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Vegna aukinnar eftirspurnar óskum
við eftir bújörðum á söluskrá