Bændablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2017
Söfnunarátakið „Bleikar og
bláar heyrúllur“ sem bændur,
dreifingaraðilar og framleiðandi
heyrúlluplasts standa að,
skilaði 1,2 milljónum króna til
Krabbameinsfélagsins í ár.
Á síðasta ári slógu „Bleikar
heyrúllur“ í gegn og var ætlað
að vekja athygli á árvekni um
brjóstakrabbamein. Í sumar bættust
bláar heyrúllur við og skreyttu tún
bænda víða um land með það að
markmiði að minna á árvekni um
blöðruhálskrabbamein.
Sænski framleiðandinn
Tr i o p l a s t , i n n l e n d i r
dreifingaraðilar og bændur, lögðu
samtals fram andvirði þriggja
evra af hverri seldri bleikri eða
blárri plastrúllu sem hver dugir
á 26 bleikar heyrúllur á túni ef
vafið er sexfalt. Afraksturinn
rennur til Vísindasjóðs
Krabbameinsfélagsins og
rannsókna á brjóstakrabbameini
og blöðruhálskirtilskrabbameini
sem eru algengustu krabbamein
kvenna og karla.
Hugmyndin að átakinu er komin
frá viðskiptavini Trioplast á Nýja-
Sjálandi og í framhaldinu tryggði
fyrirtækið að bleiki liturinn stæðist
ítrustu kröfur bænda. Nú hafa
bleiku heyrúllurnar einnig hafið
innreið sína í Noregi, Svíþjóð,
Þýskalandi, Sviss, Bretlandi og
Írlandi, auk fleiri landa og vekja
alls staðar mikla athygli.
Umboðsaðili Trioplast á Íslandi,
Plastco hf., hefur umsjón með
verkefninu og dreifingaraðilar
eru Sláturfélag Suðurlands,
Kaupfélag Skagfirðinga, Bústólpi,
Kaupfélag Vestur-Húnvetninga,
Kaupfélag Borgfirðinga,
Kaupfélag Steingrímsfjarðar og
KM þjónustan Búðardal.
Krabbameinsfélagið þakkar
öllum sem staðið hafa að þessu
skemmtilega söfnunarátaki fyrir
stuðninginn. Félagið fagnar
samstöðu bænda, söluaðila og
umboðsaðila í að vekja athygli
á árvekni gagnvart algengustu
krabbameinum íslenskra karla
og kvenna. Krabbameinsfélagið
hvetur bændur og almenning
áfram til þess að birta myndir á
samfélagsmiðlum og merkja þær
#bleikrulla eða #blarulla og vekja
þannig athygli á verkefninu. Fjölda
skemmtilegra mynda má nú þegar
sjá á samfélagsmiðlum.
Bleikar og bláar heyrúllur safna 1,2 milljónum króna
– Styrkurinn rennur til rannsókna Vísindasjóðs Krabbameinsfélagsins á brjóstakrabbameini og blöðruhálskirtilskrabbameini
Vinningsmynd í samkeppni um skemmtilegustu myndina af bleikum heyrúll-
um. Myndin heitir „Fortíðin og framtíðin” og er eftir Sunnu Mjöll Bjarnadóttur.
LESENDABÁS
Allt of stór hluti beingreiðslna
fer í að fæða fjármálakerfið
Undanfarin misseri hafa íslenskir
bændur ekki farið varhluta af
hækkandi rómi þeirra sem krefjast
niðurfellingar tolla á öllum
innfluttum landbúnaðarafurðum
og þess að innflutningur verði að
stærstu, ef ekki öllu, leyti frjáls og
án skilyrða og takmarkana.
Það verður forvitnilegt að sjá
hvaða áhrif nýfallinn dómur um
að hingað megi flytja hrátt kjöt
hefur á hvort tveggja neytendur og
framleiðendur á Íslandi.
Engan veginn samanburðarhæf
við okkar framleiðsluaðstæður
Innflutningstollar á mjólkurafurðir
hafa gegnt afar mikilvægu hlutverki
og verndað okkur fyrir því að hingað
flæði mjólkurvörur frá löndum sem
eru engan veginn samanburðarhæf
við okkar framleiðsluaðstæður. Það
er sama hvort bornar eru saman
reglur um dýravelferð, lyfjanotkun
eða laun og almenn réttindi
starfsfólks í landbúnaði. Fyrir utan
svo augljósar staðreyndir eins og
ólík ræktunarskilyrði og nauðsyn
þess að halda búpeningi á húsi hér
meirihluta ársins.
Tryggja ber framboð á
heilnæmum og fjölbreyttum
mjólkurvörum
Þessi vernd sem greinin býr við er
ekki að ástæðulausu en henni fylgja
líka skyldur. Ein af skyldunum er
að uppfylla þarfir markaðarins
um framboð á heilnæmum og
fjölbreyttum mjólkurvörum. Til
þessa fá mjólkurframleiðendur
einnig greiddar beingreiðslur sem
ýmist fara eftir greiðslumarkseign,
framleiðslu eða fjölda lifandi gripa.
Þannig má vel færa rök fyrir því að
þeir greiðslumarkshafar sem ekki
framleiða að minnsta kosti upp í
sitt greiðslumark, séu að bregðast
skyldum sínum, skyldum sem eru
einmitt forsendur þess að vernda
þeirra starfsumhverfi. Auðvitað
eru dæmi þess að ófyrirséð áföll
verði til þess að bændur ná ekki
markmiðum sínum í framleiðslu
en þess eru einnig dæmi að menn
vanræki þessa skyldu sína ítrekað
og varpi með því ábyrgðinni á þá
framleiðendur sem hingað til hafa
framleitt umfram sitt greiðslumark
fyrir ótryggt verð. Það er ljóst að
til langframa er ekki hægt að bjóða
þessum bændum upp á óvissuna sem
fylgir því að vita ekki nema nokkra
mánuði fram í tímann hvaða verði
mjólkin er keypt, að ekki sé minnst
á þegar gengið er á bak áður gefinna
loforða.
Jafnvægi á milli framleiðslu og
sölu mjólkurafurða
Í mörg ár hafa mjólkurframleiðendur
og vinnsluaðilar markvisst unnið
að því að finna jafnvægi á milli
framleiðslu og sölu mjólkurafurða,
enda mikilvægi þess afar mikið fyrir
íslenska kúabændur.
Verkfæri til stýringarinnar
hafa verið greiðslumark og
innvigtunargjald.
Greiðslumarkskerfið var sett
á fyrir rúmlega 30 árum þegar
offramleiðsla ógnaði afkomu
bænda og afurðarstöðva og það er
óumdeilanlegt að það kerfi gerði
sitt gagn þegar brýnt var að draga
úr framleiðslu. Undanfarinn áratug
hefur hins vegar ítrekað stefnt í
óefni þegar framleiðsla hefur ekki
svarað eftirspurn. Öllum má vera
ljós sú staðreynd, að verði einu sinni
opnað fyrir tollfrjálsan innflutning á
mjólkurvörum, þó ekki sé nema til
skamms tíma, mun aldrei takast að
stoppa í það gat aftur. Slíkt hefði í
för með sér gríðarleg keðjuverkandi
áhrif; afurðaverð, sem er að
meðaltali tvöfalt það afurðaverð
sem greitt er í Evrópu, gæti ekki
staðið óbreytt, markaðshlutdeild
innlendrar framleiðslu minnkaði,
framleiðendum fækkaði og sú
framleiðsla sem eftir stæði yrði
óhagkvæmari.
Greiðslumarkskerfið ónothæft
þegar auka þarf framleiðsluna
Flestir hafa áttað sig á því hvaða
kostnað greiðslumarkskerfið hefur
í för með sér fyrir hvern og einn
bónda og greinina í heild. Að
auki hefur komið í ljós að það er
algjörlega ónothæft stjórntæki
til þess að hvetja til aukinnar
framleiðslu þegar hennar er þörf.
Það voru því skýr rök og augljósar
ástæður fyrir því að útvötnun
greiðslumarkskerfisins var skrifuð
inn í núverandi búvörusamning.
Að hanga eins og hundar á roði
Landssamband kúa bænda lét gera
skoðanakönnun meðal bænda um
afstöðu til greiðslumarks kerfisins.
Niður staðan könnunarinnar var að
77% þátttakenda styddu óbreytt
kerfi. Sú niðurstaða var eðlileg og
skiljanleg í því ljósi að enginn annar
kostur var var kynntur sem möguleg
önnur leið. Væri ekki nær að stjórn
og starfsfólk sem situr fyrir okkur í
forsvari byrji að leita leiða sem bæði
bændur og almenningur í landinu
geta sætt sig við til framtíðar en að
hanga eins og hundar á roði á kerfi
sem þjónar fáum útvöldum?
Að ofangreindu samanlögðu
er eðlilegt að menn spyrji hvað sé
hægt að gera til þess að ábyrgjast
að ávallt sé nægt hráefni til vinnslu
á innlendan markað og á sama
tíma að tryggja bændum lágmarks
tekjuöryggi.
Ekki hægt að framleiða
nákvæmlega í takt við eftirspurn
Núllstilling framleiðslunnar er
ekki möguleg. Til þess er varan
sem við framleiðum einfaldlega
of vandmeðfarin. Geymsluþol
hennar er stutt, árstíðarbundnar
sveiflur bæði í framleiðslu og sölu
auk líffræðilegra þátta, veðurfar
og önnur utanaðkomandi áhrif
sem við höfum engin völd yfir eru
það mikil. Það verður því aldrei
hjá því komist að framleiða meira
en sem nemur innlendri neyslu.
Eftir stendur spurningin um
hversu mikla áherslu skuli leggja á
útflutning og hvaða áhrif sú áhersla
megi hafa á framleiðslu umfram
innanlandsmarkað í hvert sinn.
10% umframframleiðsla talin
nauðsynleg
Á fulltrúaráðsfundi Auðhumlu í
nóvember 2016, þar sem þessi mál
voru unnin í vinnuhópum, komust
fulltrúar að þeirri niðurstöðu að allt
að 10% umframframleiðsla væri
nauðsynleg til þess að tryggja öruggt
framboð hér á landi á ársgrundvelli.
Til samanburðar má benda á
að í annarri grein landbúnaðar,
sauðfjárræktinni, fer um þriðjungur
framleiðslunnar á erlenda markaði.
Sauðfjárbændum sem horfa til
framtíðar finnst samt of mikið að
draga úr framleiðslu um fimmtung,
jafnvel þó að sú grein framleiði
vöru með mun lengri geymslutíma
og búi ekki við tollvernd sem er
jafn mikilvæg og er hjá okkur í
mjólkurframleiðslu.
Að greiðslumarki framleiðenda
verði deilt niður á 12 tímabil
Ein hugmynd sem vinna mætti
með er að deila greiðslumarki
framleiðenda niður á 12 tímabil.
Þannig myndu allir stefna að því
að framleiða 8,33% greiðslumarks
í hverjum mánuði og afurðarstöðvar
myndu greiða bændum fullt
afurðarstöðvarverð fyrir þá
framleiðslu. Það sem umfram væri
fengist greitt í samræmi við það
verð sem fæst fyrir útflutning á
mjólkurvörum.
Með þessu væri tekjuflæði
mjólkurframleiðenda jafnara yfir
árið og þeir myndu síður lenda í
því að einn eða fleiri mánuðir í lok
árs skiluðu mjög litlum tekjum, eins
og raunin er núna. Þetta myndi líka
hjálpa samvinnufélagi bænda sem
á hverju ári glímir við neikvætt
tekjuflæði fyrri hluta árs þegar
framleiðslan er mest en sem svo
jafnast út þegar salan eykst seinni
hluta árs. Til viðbótar hefði þetta
þau áhrif að mjólkurframleiðsla yrði
jafnari yfir árið og allir flutningar og
birgðahald yrði hagkvæmara sem
skilar sér bæði til afurðarstöðva
og til bænda. Í lok árs eða þegar
uppgjör á framleiðsluári fer
fram, kæmi í ljós hvort nýta hafi
þurft einhverja mjólk umfram
greiðslumark á innanlandsmarkað
og hvaða verð hefur fengist fyrir
útfluttar afurðir. Þá uppbót myndu
þeir sem framleiða það sem gjarnan
er kallað öryggismjólk fá greidda,
enda hafa þeir einir staðið vörð um
framleiðslukerfið.
Að afurðastöðvar semji við hvern
bónda
Önnur leið væri að afurðastöð sem
taka þarf við allri mjólk frá bændum,
semji við bændur um magn og það
verð sem hún treystir sér til að greiða
fyrir umframframleiðslu hvers árs.
Þannig gætu afurðarstöðvar samið
um að hver bóndi framleiddi á bilinu
5-10% umfram sitt greiðslumark
og fengi greitt fyrir hluta sinnar
framleiðslu í hverjum mánuði
eins og um mjólk til útflutnings
væri að ræða. Það hefur sýnt sig
undanfarin ár að töluverður hluti
mjólkurframleiðenda er reiðubúinn
að framleiða hluta sinnar mjólkur
gegn lægri greiðslu en lögbundið
lágmarksverð segir til um.
Það gefur til kynna að annað
hvort hafa þeir náð betri árangri í
kostnaðarstýringu á sínum búum,
eða að tekjumissirinn sem fylgir
minni framleiðslu kemur ver út
en að framleiða mjólk án þess að
raunveruleg framlegð sitji eftir
heima á búunum.
Það að þessi hluti framleiðenda
skuli þurfa að sætta sig við ótryggt
verð og ákvarðanir um tekjuafgang
þeirra með skömmum fyrirvara og
í hverjum mánuði, hlýtur að ýta
undir vilja þeirra til að gera samning
við afurðarstöð sem tryggir þeim
ákveðið lágmarksverð af fyrirfram
ákveðnu magni.
Að auka verulega við
greiðslumark ársins
Þriðja leiðin, sem að vísu var reynd
fyrir nokkrum árum, er að auka
verulega við greiðslumark ársins
og að innan þess væri gert ráð fyrir
að hluti framleiðslunnar yrði að fara
til útflutnings. Greiðslumarkseign
allra myndi þannig aukast og
forsendur sköpuðust fyrir þá sem
ekki hafa möguleika á að uppfylla
framleiðsluskyldu sína til að selja
greiðslumark þeim sem geta og vilja
framleiða meira. Þessi aðferð er þó
líkleg til þess að skapa óánægju
og óeiningu meðal bænda þar sem
virði beingreiðslna á hvern lítra mun
lækka og valda tekjumissi þeirra sem
innleysa greiðslumark sitt.
Það er deginum ljósara að kaup og
sala á greiðslumarki er fyrst og fremst
til þess fallin að breyta fjármunum
greinarinnar í vexti og afborganir
af lánum. Fram að þessu hefur allt
of stór hluti beingreiðslnanna sem
eiga að nýtast til þess að lækka hér
verð á matvælum, farið í það að fæða
fjármálakerfið.
Sæmundur Jón Jónsson
Höfundur er kúabóndi á Árbæ
í Hornafirði og stjórnarmaður
í Auðhumlu samvinnufélagi í
eigu mjólkurframleiðenda.
Sæmundur Jón Jónsson.