Bændablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2017
Feldur verkstæði við
Snorrabraut í Reykjavík er
skinnaverkstæði, saumastofa
og verslun sem selur alls kyns
loðskinns- og skinnavörur.
Íslensk gæruskinn og vörur
unnar ú íslenskum lambaskinnum
njóta sívaxandi vinsælda. Heiðar
Sigurðsson feldskeri og Kristín
Birgisdóttir eiga og reka Feld
verkstæði.
Heiðar lærði feldskurð í Svíþjóð
sem ungur maður og hefur verið
viðloðandi skinnavinnslu síðan þá
en með hléum. Kristín er menntaður
skrúðgarðyrkjufræðingur en saman
stofnuðu þau Feld verkstæði árið
2006.
Skinnin keypt á markaði
„Við höfum lengi haft áhuga á
að vinna vörur úr sauðfjárskinni
og framleiðum í dag ýmiss konar
smávörur eins og púða, stólsetur,
mottur, vesti, gestabækur og
fleira,“ segir Kristín.
Heiðar segir að í dag framleiði
Feldur vörur úr margs konar
loðskinnum meðal annars refa-,
minka- og selskinni og íslenskum
gærum.
„Við kaupum skinnin á markaði
í Finnlandi eða í Kaupmannahöfn
en við erum einnig í viðskiptum við
fyrirtæki í Póllandi sem sútar fyrir
okkur íslenskar gærur.“
Að sögn Kristínar og Heiðars
seljast vandaðar skinnavörur vel.
„Fatnaður úr skinni er allra
besti skjólfatnaður sem hægt er að
hugsa sér og þeir sem einu sinni
hafa átt góða skinnflík skipta ekki
svo auðveldlega yfir í annað efni,“
segir Heiðar.
Kristín segir að þau hanni hluta
af vörunni sem Feldur framleiðir
og selur en fái einnig aðstoð við
hönnunina en kaupi einnig vörur
á sýningum erlendis.
„Dóttir okkar er fatahönnuður
og hefur verið að vinna með
okkur og spennandi að sjá hvaða
hugmyndir hún kemur með
varðandi lambaskinnslínuna.“
Samvinna við Icelandic lamb
Icelandic Lamb og Feldur hófu
nýlega samvinnu sem mun styrkja
framleiðslu og hönnun á vörum
úr íslenskum lambaskinnum.
„Fyrirtækið í Póllandi sem við
fáum gærurnar frá kaupir líklega
um 50% af öllum gærum á Íslandi
og sérhæfir sig í sútun á gærum.
Á næsta ári ætlum við að
setja á markað nýja vörulínu
sem unnin verður úr íslenskum
gærum í viðbót við þær vörur
sem við bjóðum í dag. Þetta
verða ýmiss konar smávörur eins
og húfur, lúffur, skór, kerrupokar,
gólfmottur og pullur svo dæmi séu
nefnd.“
Heiðar segir að íslenskar
gærur séu mjög vinsælar og hafi
í raun alltaf verið það. „Íslenska
gæran gerir heimilið hlýlegra
og í dag opnar maður varla
heimilishönnunarblað án þess að
það sé skinn á stól eða sem motta
á gólfi.“
Skinnavinnsla er langt ferli
„Vinnsla á skinnum er langt ferli og
það tekur nokkra mánuði að súta
og lita skinn áður en hægt er að
vinna fullunna vöru úr því. Vandinn
við íslensk skinn er að það er erfitt
að sortera þau. Þykktin á þeim er
mikil og oft ekki nema 30% af
þeim sem er hægt að nota í flíkur,“
segir Heiðar. „Jakkar og kápur úr
Toscana lambaskinni hafa verið
vinsælar hjá okkur þar sem þessi
skinn eru einstaklega létt en við
höfum fullan áhuga á að endurvekja
íslensku mokkakápuna.“
Ullin verðmæt
„Reyndar telja margir að ullin
sé það allra verðmætasta sem
íslenskt sauðfé gefur af sér.
Erlendir ferðamenn sem koma til
Íslands kolfalla fyrir íslenskum
ullarvörum, peysum, vettlingum,
sokkum og treflum þrátt fyrir að þá
klæi stundum í fyrstu undan henni.
Ég hef lengi verið á þeirri skoðun
að við verðum að finna leið til að
gera hana mýkri,“ segir Heiðar.
Samvinna við Grænland
Kristín segir að nýlega sé
hafið samstarf milli Felds
og skinnafyrirtækisins Great
Greenland sem vinnur silkimjúk
selskinn á Grænlandi og selja frá
þeim fallega línu, til dæmis fallegar
kápur og selskinnsjakka.
Auk þess að selja sjálf eigin
framleiðslu eru vörur frá Feldi
einnig til sölu í fjölda annarra
verslana og í netverslun á heimsíðu
fyrirtækisins.
Mikilvægt að fá stuðning
Heiðar og Kristín segja að lokum
að samvinnan við Icelandic Lamb
sé þeim mjög mikilvæg. „Það tekur
langan tíma og er dýrt að hanna og
koma nýrri vöru á markað og því
mikilvægt að finna fyrir stuðningi
við það sem maður er að gera og
eiga sér bakland.“
FÓLK&FYRIRTÆKI
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Feldur verkstæði vinnur úr íslenskum gærum:
Nýjungar úr gærum
Heiðar Sigurðsson feldskeri og Kristín Birgisdóttir eiga og reka Feld verkstæði. Myndir / Kristinn Magnússon
Vinnsla á skinnum er langt ferli og
það tekur nokkra mánuði að súta og
lita skinn áður en hægt er að vinna
fullunna vöru úr því.Fatnaður úr skinni er allra besti skjólfatnaður sem hægt er að hugsa sér.
Heiðar lærði feldskurð í Svíþjóð og
hefur verið viðloðandi skinnavinnslu
síðan þá en með hléum.
Icelandic Lamb og Feldur hófu
nýlega samvinnu sem mun styrkja
framleiðslu og hönnun á vörum úr
íslenskum lambaskinnum.