Bændablaðið - 14.12.2017, Síða 40

Bændablaðið - 14.12.2017, Síða 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2017 Feldur verkstæði við Snorrabraut í Reykjavík er skinnaverkstæði, saumastofa og verslun sem selur alls kyns loðskinns- og skinnavörur. Íslensk gæruskinn og vörur unnar ú íslenskum lambaskinnum njóta sívaxandi vinsælda. Heiðar Sigurðsson feldskeri og Kristín Birgisdóttir eiga og reka Feld verkstæði. Heiðar lærði feldskurð í Svíþjóð sem ungur maður og hefur verið viðloðandi skinnavinnslu síðan þá en með hléum. Kristín er menntaður skrúðgarðyrkjufræðingur en saman stofnuðu þau Feld verkstæði árið 2006. Skinnin keypt á markaði „Við höfum lengi haft áhuga á að vinna vörur úr sauðfjárskinni og framleiðum í dag ýmiss konar smávörur eins og púða, stólsetur, mottur, vesti, gestabækur og fleira,“ segir Kristín. Heiðar segir að í dag framleiði Feldur vörur úr margs konar loðskinnum meðal annars refa-, minka- og selskinni og íslenskum gærum. „Við kaupum skinnin á markaði í Finnlandi eða í Kaupmannahöfn en við erum einnig í viðskiptum við fyrirtæki í Póllandi sem sútar fyrir okkur íslenskar gærur.“ Að sögn Kristínar og Heiðars seljast vandaðar skinnavörur vel. „Fatnaður úr skinni er allra besti skjólfatnaður sem hægt er að hugsa sér og þeir sem einu sinni hafa átt góða skinnflík skipta ekki svo auðveldlega yfir í annað efni,“ segir Heiðar. Kristín segir að þau hanni hluta af vörunni sem Feldur framleiðir og selur en fái einnig aðstoð við hönnunina en kaupi einnig vörur á sýningum erlendis. „Dóttir okkar er fatahönnuður og hefur verið að vinna með okkur og spennandi að sjá hvaða hugmyndir hún kemur með varðandi lambaskinnslínuna.“ Samvinna við Icelandic lamb Icelandic Lamb og Feldur hófu nýlega samvinnu sem mun styrkja framleiðslu og hönnun á vörum úr íslenskum lambaskinnum. „Fyrirtækið í Póllandi sem við fáum gærurnar frá kaupir líklega um 50% af öllum gærum á Íslandi og sérhæfir sig í sútun á gærum. Á næsta ári ætlum við að setja á markað nýja vörulínu sem unnin verður úr íslenskum gærum í viðbót við þær vörur sem við bjóðum í dag. Þetta verða ýmiss konar smávörur eins og húfur, lúffur, skór, kerrupokar, gólfmottur og pullur svo dæmi séu nefnd.“ Heiðar segir að íslenskar gærur séu mjög vinsælar og hafi í raun alltaf verið það. „Íslenska gæran gerir heimilið hlýlegra og í dag opnar maður varla heimilishönnunarblað án þess að það sé skinn á stól eða sem motta á gólfi.“ Skinnavinnsla er langt ferli „Vinnsla á skinnum er langt ferli og það tekur nokkra mánuði að súta og lita skinn áður en hægt er að vinna fullunna vöru úr því. Vandinn við íslensk skinn er að það er erfitt að sortera þau. Þykktin á þeim er mikil og oft ekki nema 30% af þeim sem er hægt að nota í flíkur,“ segir Heiðar. „Jakkar og kápur úr Toscana lambaskinni hafa verið vinsælar hjá okkur þar sem þessi skinn eru einstaklega létt en við höfum fullan áhuga á að endurvekja íslensku mokkakápuna.“ Ullin verðmæt „Reyndar telja margir að ullin sé það allra verðmætasta sem íslenskt sauðfé gefur af sér. Erlendir ferðamenn sem koma til Íslands kolfalla fyrir íslenskum ullarvörum, peysum, vettlingum, sokkum og treflum þrátt fyrir að þá klæi stundum í fyrstu undan henni. Ég hef lengi verið á þeirri skoðun að við verðum að finna leið til að gera hana mýkri,“ segir Heiðar. Samvinna við Grænland Kristín segir að nýlega sé hafið samstarf milli Felds og skinnafyrirtækisins Great Greenland sem vinnur silkimjúk selskinn á Grænlandi og selja frá þeim fallega línu, til dæmis fallegar kápur og selskinnsjakka. Auk þess að selja sjálf eigin framleiðslu eru vörur frá Feldi einnig til sölu í fjölda annarra verslana og í netverslun á heimsíðu fyrirtækisins. Mikilvægt að fá stuðning Heiðar og Kristín segja að lokum að samvinnan við Icelandic Lamb sé þeim mjög mikilvæg. „Það tekur langan tíma og er dýrt að hanna og koma nýrri vöru á markað og því mikilvægt að finna fyrir stuðningi við það sem maður er að gera og eiga sér bakland.“ FÓLK&FYRIRTÆKI Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is Feldur verkstæði vinnur úr íslenskum gærum: Nýjungar úr gærum Heiðar Sigurðsson feldskeri og Kristín Birgisdóttir eiga og reka Feld verkstæði. Myndir / Kristinn Magnússon Vinnsla á skinnum er langt ferli og það tekur nokkra mánuði að súta og lita skinn áður en hægt er að vinna fullunna vöru úr því.Fatnaður úr skinni er allra besti skjólfatnaður sem hægt er að hugsa sér. Heiðar lærði feldskurð í Svíþjóð og hefur verið viðloðandi skinnavinnslu síðan þá en með hléum. Icelandic Lamb og Feldur hófu nýlega samvinnu sem mun styrkja framleiðslu og hönnun á vörum úr íslenskum lambaskinnum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.