Bændablaðið - 14.12.2017, Side 63

Bændablaðið - 14.12.2017, Side 63
63Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2017 skordýr um frjóvgun þeirra. Sítrusar eru sjálffrjóvgandi og eiga ólíkar tegundir, afbrigði og yrki auðvelt með að frjóvgast innbyrðis. Aldinið er safaríkt ber með þykkri húð, hnattlaga eða ílangt auk þess sem til eru sítrusaldin sem er fingruð, 4 til 30 löng og 4 til 20 sentímetra að ummáli. Húðin leðurkennd í þremur lögum, ytra-, mið- og innralagi. Ystalagið mis hrufótt eftir tegundum, gult, grænt, appelsínugult og allt þar á milli. Fjöldi fræja mismunandi eftir tegundum, afbrigðum og sum yrki eru frælaus. Flestar tegundir sítrusa þrífast best í hitabeltinu en eru ræktaðir milli 40° suðrænnar og 40° norð- lægrar breiddar og að 1000 metrum yfir sjávarmáli. Sítrónur eru hluti af helgi- haldi gyðinga og kallast etrog og finnast myndir af þeim víða í skreytingum gamalla synagóga við botn Miðjarðarhafsins. Líkt og í annarri stórræktun er mikið notað af eiturefnum til að varna sveppasýkingum og afföllum vegna meindýra við ræktun sítrusávaxta og ætti því alltaf að þvo aldinin vel ef nota á börkinn af þeim í matargerð. Mandarínur eru upprunnar í Asíu Mandarínur eru upprunnar í Suðaustur-Asíu og Filippseyjum og hafa verið ræktaðar í Asíu í að minnsta kosti þrjú þúsund ár en í dag eru þær ræktaðar víða um heim. Elsta heimild um ræktun mandarína eru frá því um 900 fyrir upphaf okkar tímatals og segir frá aldinberandi mandarínutrjám í hálfyfirbyggðum garði valdsmanns. Fimm öldum síðar er talað um rauðar og gular mandarínur í ræktun í Kína. Talið er að ræktun á mandarínum hefjist á Indlandi við upphaf júlíanska tímatalsins og hafi borist þaðan frá Yunnan-héraði í Kína. Mandarína er getið í Japan milli 1300 og 1200 fyrir Krist og er talið að þær hafi borist þangað frá Kína. Talið er að mandarínur hafi borist til Vesturlanda eftir nokkrum leiðum í mismiklu magni og á mismunandi tíma. Vitað er að tvö yrki bárust til Englands árið 1805 frá Kína og þaðan til Ítalíu og landanna sunnan, norðan og við botn Miðjarðarhafs þar sem ræktun þeirra var almenn eftir miðja nítjándu öld. Ávöxturinn er stundum kallaður Miðjarðarhafsmandarínur vegna mikillar ræktunar hennar þar. Ítalski konsúllinn í Nýju Orleans við Mexíkóflóa var fyrstur til að rækta mandarínur í Norður- Ameríku skömmu fyrir 1850. Þaðan bárust mandarínur til Flórída og Kaliforníu þar sem þær eru mikið ræktaðar í dag. Auk þess sem japanskar mandarínur sem kallast satsúma bárust til Norður-Ameríku 1878 og skömmu eftir 1900 var búið að planta nærri milljón slíkum trjám í suðurríkjunum í kringum Mexíkóflóa, Texas, Louisiana, Missisippi, Alabama og Flórída. Mandarínu-grasafræði Nokkur breytileiki er í hæð mandarínutrjáa efir yrkjum en yfirleitt verða þau ekki meira en sjö metrar að hæð en oftast er króna þeirra umfangsmikil. Greinarnar eru grannar, blöðin sígræn, breiðlensulaga, smátennt og stundum með þrengingu og eins og tveimur minni blöðum við blaðstilkinn. Blöðin hvít, eitt eða fleiri saman í hnapp. Aldinið hnattlaga, grænt eða appelsínugult, fræin lítil og oddmjó í annan endann. Mandarínur eru þurrkþolnar en miklar kuldaskræfur og þola alls ekki frost nema í stuttan tíma. Helstu ættingjar mandarínunnar eru klementínur, satsúmas, tangerínur og reyndar mörg önnur ræktunarafbrigði auk þess sem til er fjöldi yrkja af hverju afbrigði fyrir sig og ekki skrýtið að þessum blendingum sé iðulega ruglað saman. Öll afbrigðin eiga það sameiginlegt að auðvelt er að flysja börkinn af þeim. Einfaldast er að líta mandarínur sem yfirheiti á öllum afbrigðunum. Munurinn á mandarínum og klementínum Samkvæmt þriðju útgáfu Íslensku orðabókarinnar eru klementínur steinlaust afbrigði af mandarínum. Sem þýðir að mandarínur og klementínur eru mandarínur en mandarínur ekki klementínur. Sumir segja að auðveldara sé að flysja klementínur en mandarínur og að þær séu sætari á bragðið. Klementínur eru nefndar eftir franska trúboðanum, Marie- Clément Rodier, sem starfaði á munaðarleysingjaheimili í Alsír. Clément ræktaði meðal annars mandarínur í garði við heimilið. Árið 1902 fann hann frælausa mandarínu og hóf fjölgun hennar með ágræðslu. Munaðarleysingjarnir á heimilinu fóru að kalla ávöxtinn klementínu í höfuðið á trúboðanum og festist það við ávöxtinn. Reyndar segja heimildir að frælausar mandarínur hafi verið ræktaðar í Kína í margar aldir undir heitinu kantón- mandarínur. Satsúmas eru mandarínur sem koma frá Japan. Þær eru safaríkar og ekki eins súrar og margar aðrar mandarínur. Til eru nokkur yrki af satsúmum en algengust þeirra eru okitsu og mihovase. Satsúmur hafa takmarkað geymsluþol. Innflutningur á satsúmum til Bandaríkjanna Norður-Ameríku frá Japan var talsverður á fyrstu áratugum síðustu aldar. Innflutningur var stöðvaður eftir loftárásir Japana á Perluhöfn 1941. Eftir að viðskiptasamband komst aftur á milli Bandaríkjanna og Japan eftir lok síðari heimsstyrjaldarinnar voru satsúmur einn fyrsti varningurinn sem leyft var að flytja til Bandaríkjanna. Tangerínur er heiti á manda- rínum sem upphaflega voru ræktaðar í Marokkó og kenndar við hafnarborgina Dar Shams Tangier. Að öðru leyti eru þær eins og mandarínur. Nafnaspeki Heitið mandarína er dregið af mandarí sem var tungumál yfir- og menntastéttarinnar í norðurhluta Kína og appelsínugulrar yfirhafnar og hatta sem embættismenn í Kína klæddust og kölluðust mandarín. Um 70% Kínverja tala mandarín í dag og er það opinbert tungumál landsins. Ræktun og umhirða innandyra Mandarínutré þrífast í margs konar jarðvegi en best í stórum potti með næringarríkum og vel framræstum moldarjarðvegi með pH 5,5 til 6,5. Þær þola þurrt loft og kjósa góðan stofuhita og henta því ágætlega til ræktunar innandyra hér á landi. Auðvelt er að taka fræ úr aldininu og stinga því í mold og fá upp fallega plöntu. Mandarínutré þurfa bjartan stað en ekki endilega beina sól og þau þola illa að standa í vatni. Gott er því að rennbleyta moldina og láta renna vel af henni og láta hana þorna milli vökvana. Ekki er víst að fræplöntur gefi af sér ávöxt innandyra, en þess eru samt mýmörg dæmi, en í góðu ári geta mandarínutré erlendis gefið af sér milli sex og sjö þúsund ávexti. Nytjar Algengast er að borða mandarínur og skylda ávexti ferska og hráa beint innan úr berkinum eða sem hluta af salati eða í marmelaði. Auk þess sem bragðefni sem unnin eru úr þeim eru notuð í sælgæti, gosdrykki, ís, tyggigúmmí, safa og bökunarvörur. Mandarínuolía er notuð í baðolíur, ilmvatn og ýmiss konar snyrtivörur og ferskur börkurinn er gott krydd. Kínverjar nota börkinn og aldinið til lækninga á innanmeinum, meltingartruflunum og til slím- losunar í öndunarfærum. Mandarínur tengjast kínverska nýárinu sem tákn um allsnægtir og gæfu og sjálfsagt þykir þar að hafa þær á borðum sem skraut og færa vinum og samstarfsmönnum sem gjafir í kringum nýja árið. Í Bandaríkjum Norður-Ameríku, Kanada, Rússlandi og Japan tengjast mandarínur jólunum. Í Norður-Ameríku er algengt að gefa mandarínur í sokkinn um jólin, siður sem tengist upphaflega japönskum innflytjendum til Bandaríkjanna. Mandarínur á Íslandi Mandarínur eru meðal þeirra ávaxta sem verslunin Liverpool auglýsir til sölu í Vísi og Ísafold snemma í febrúar árið 1913. Næstu ár á eftir heldur verslunin áfram að auglýsa mandarínur til sölu. Árið 1926 eru mandarínur kallaðar gullaldin í Lesbók Morgunblaðsins í greininni Orð úr viðskiptamáli sem er að stórum hluta orðasafn sem Orðanefnd verkfræðingafélagsins tók saman. Orðasafnið er á margan hátt skemmtilegt og þar er meðal annars lagt til að appelsínur verði kallaðar glóaldin, bananar bjúgaldin, sítróna gulaldin, brjóstahaldari brjóstalindi og lakkrís svertingi. Um miðja síðustu öld er farið að tengja mandarínur jólunum hér á landi og auglýsa jólamandarínur til sölu og smám saman hafa mandarínur tekið við af eplum sem jólaávöxturinn og ekki er talað um jólalykt af eplum lengur. Þau eru einnig ófá börnin á Íslandi sem hafa fengið mandarínu í skóinn um jólin. Mandarínur og í seinni tíð klementínur eru í huga margra tengdar jólunum og margir sem kaupa mandarínu- eða klementínukassa eða tvo fyrir jólin en líta ekki við þeim á öðrum árstímum. Ástæða þessa er ekki að mandarínur og klementínur séu ekki á markaði allt árið heldur að fyrstu mandarínurnar og klementínurnar frá Spáni, þaðan sem mest er flutt inn frá, koma á markað í nóvember og verð á þeim hagstætt og þær fluttar inn í hundruða tonnavís.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.