Bændablaðið - 06.04.2017, Síða 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. apríl 2017
Hafísinn á Norðurheimskautinu
er nú sagður sá minnsti síðan
reglulegar gervihnattamælingar
NASA hófust árið 1978. Þegar
ástandið frá árinu 1999 til 2016
er borið saman kemur samt í ljós
að töluverðar sveiflur hafa verið í
ísmynduninni fyrir veturinn á milli
ára. Eins hefur septemberísþekjan
oft verið minni en nú.
Þegar rætt er um hafísinn á norð-
urslóðum snýst umræðan gjarnan
um hafsvæðið norður af Noregi.
Það segir þó alls ekki alla söguna
því miklar sveiflur hafa oft verið á
öðrum svæðum og þá gjarnan í gagn-
stæða átt.
Opin siglingaleið í september allt
frá 2007
Mælingar NASA virðast sýna að
væntingar manna um að mögulegt
verði að hefja siglingar yfir pólsvæð-
ið, allavega hluta úr ári, muni líklega
rætast innan fárra ára. Slíkt hefur
reyndar verið mögulegt sum árin að
hausti til, en þar hefur ekki verið á
vísan að róa á siglingaleiðinn norðan
við Síberíu. Ekki er þó annað að sjá
á myndum NASA en að í september
hafi verið greið leið um þessar slóðir
öll árin frá 2007. Rekin er sérstök
upplýsingaþjónusta um ferðir yfir
pólinn en hún heitir Northern Sea
Rout Information Office.
Rúm hundrað ár eru síðan land-
könnuðurinn Roald Amundsen sigldi
um norðvesturleiðina yfir pólsvæðið
meðfram Kanada. Síða hafa verið
farnar að minnsta kosti 184 ferðir
yfir pólsvæðið. Sumarið 2012 fór
t.d. 21 skip yfir pólsvæðið, þar af
18 einkaskútur, tvö flutningaskip
og eitt olíuskip að ótöldum fjölda
ísbrjóta. Eitt þessara flutningaskipa
var 196 metra langt sem var jafnframt
stærsta flutningaskip sem nokkru
sinni hafði siglt yfir Norðuríshafið,
samkvæmt tölum R.K. Headland hjá
Scott Polar Research-stofnuninni hjá
Cambridge-háskóla.
Mikil aukning á skipaferðum
og flutningum
Mikil aukning hefur verið á
skipaferðum yfir pólsvæðið á liðn-
um árum. Þannig voru flutt tæplega
1,3 milljónir tonna af fragt á árinu
2012 með 46 skipum. Var það 53%
aukning frá 2011. Af þessum 46 skip-
um fóru 25 norðausturleiðina fyrir
norðan Síberíu ýmist frá Murmansk,
Arkhangelsk eða Baydaratskaya-
flóa. Þá fór 21 skip um norðvestur-
leiðina samkvæmt upplýsingum sem
Rosatomflot sendi Barents Observer
hjá alþjóðlegri miðstöð norðurslóða-
flutinga „High North Logistics“.
Umfangsmestu flutningarnir yfir
pólsvæðið 2012 voru með jarðefna-
eldsneyti af ýmsum toga, eða samtals
894.079 tonn árið 2012. Alls var þetta
flutt með 26 skipum. Af þeim fóru 18
skip frá austri til vesturs, en 8 í öfuga
átt yfir pólinn. Stærsta skipið var
norska olíuskipið Marika sem sigldi
með 66.552 tonn af þotueldsneyti
frá Kóreu til Finnlands í ágúst 2012.
Næststærsta skipið flutti járngrýti og
kol og fór það sex ferðir þetta haust.
Til að aðstoða skipin um norðurslóðir
voru m.a. notaðir finnsku ísbrjótarn-
ir Nordica og Fennica sem voru þó
aðallega á norðvesturleiðinni.
Fyrsta gasflutningaskipið (LNG)
fór yfir pólsvæðið 2012. Það var
tankskipið Ob River sem flutti
66.342 tonn, eða 134.738 rúmmetra,
af gasi fyrir Statoil frá Hammerfest í
Noregi til Tobata í Japan. Var skipið
níu daga á leiðinni frá því það fór
um Kara-hliðið svokallaða 9. nóv-
ember og kom að Dezhnev-höfða
18. nóvember. Er nú talað um að
Hammerfest geti orðið mikilvæg
eldsneytisflutningahöfn fyrir elds-
neytisþyrstar þjóðir Asíu í framtíð-
inni. Sigling þaðan yfir pólinn til
Japans sparar um 20 daga í siglingu
miðað við suðurleiðina.
Á vefsíðu Northern Sea Rout
Information Office 2. febrúar sl.
er greint frá því að reiknað sé með
að flutningar vaxi stórlega um
Norðuríshafið á komandi árum.
Þannig er búist við að á árinu 2025
verði árlegir flutningar komnir í 75
milljón tonn um norðausturleiðina.
Er þar vitnað í Mikhail Grigoryev
sem starfar hjá vísindaráði rússnesku
vísindaakademíunnar.
Sagði hann að á síðasta ári hafi
verið áætlað að flutningarnir færu
yfir 7 milljónir tonna á norðvestur-
leiðinni og yfir 18 milljónir tonna á
norðausturleiðinni. Flutningar milli
þessara tveggja leiða hafa verið mjög
breytilegir milli ára í takt við hafís.
Þannig fóru 73% flutninganna um
norðurslóðir á árinu 2015 um norð-
vesturleiðina, en einungis 43% árið
2016.
Verulegar breytingar á ísþekjunni
Í september 1999 var mun meiri
ís á norðurslóðum í kjölfar sumar-
bráðnunar en á síðastliðnu hausti.
Ísmyndunin þá um veturinn, eða í
mars 2000, var samt töluvert minni
en öll árin allt fram til 2005. Mest
var hún þó veturinn 2003, þegar
vetrarísinn náði niður með strönd-
um Nýfundnalands. Eftir 2003 tók
að draga nokkuð úr ísmynduninni
sem var samt nokkuð misjöfn milli
svæða. Veturinn 2008 fór vetrarísinn
að aukast á nýjan leik og var ísmynd-
unin mest í mars 2010 og meiri en
veturinn 2000, en samt minni en
2003.
Veturinn 2011 var ísmyndunin
ekki eins mikil og árið áður og enn
dró úr henni um veturinn 2012. Síðan
jókst hún verulega á ný árið 2013,
sérstaklega á milli Grænlands og
Kanada og jókst þar enn veturinn
2014, þó myndun íss hafi minnkað
austur af Svalbarða.
Veturinn 2015 var ísmynd vestan
við Grænland svipuð og árið áður en
jókst nokkuð austan við Svalbarða.
Nú í mars mælist mun minni ís á
hafsvæðinu austan Svalbarða og
líka heldur minni við Nýfundnaland
miðað við árið á undan. Ísinn er hins
vegar meiri við austanverða Síberíu
en árið á undan.
Gervihnattamælingarnar
hófust 1978
Ef einungis er horft á stöðu hafíssins
í september eftir sumarbráðnunina
allar götur síðan 1999, þá virð-
ist hann hafa verið langminnstur
haustið 2012. Þá var mun minni ís
á norðurhveli jarðar en á síðastliðnu
hausti. Það virðist því vera varasamt
að alhæfa um að þróunin sé öll í
sömu átt, þegar mælingar sýna að
miklar sveiflur hafa verið í myndun
hafíss allt frá síðustu aldamótum.
Samfelldar mælingar NASA frá
1978 sýna þó að meðaltals útbreiðsla
íss á norðurslóðum hefur verið að
minnka.
Hafísinn á norðurslóðum bráðnar
mjög hratt yfir sumartímann og er
hann að jafnaði minnstur í septem-
berlok. Síðan er ísmyndunin mikil
yfir veturinn og nær jafnan hámarki
í mars. Þetta má greinilega sjá í mæl-
ingum NASA. Sveiflur í ísmyndun-
inni hafa staðið í þúsundir ára. Eigi
að síður segja vísindamenn NASA
að síðustu áratugi hafi sumarísinn
verið að minnka að meðaltali frá því
sem áður var.
NASA byrjaði að fylgjast með
hafísnum með aðstoð gervihnatta
árið 1978. Frá þeim tíma sést að ísinn
hefur að meðaltali hörfað, þó sveiflur
hafi verið á milli ára. Mælingar sýna
einnig að minna er um stöðugan snjó
og ís á norðurhveli ár frá ári og meira
um ársbundnar sveiflur í snjó- og
ísmyndun en áður var.
Samkvæmt útlistun NASA hefur
hraði hnignunar íssins aukist það
sem af er 21. öldinni. Þannig var
septemberísinn haustið 2002 sá
minnsti sem sést hafði frá 1979, þó
ekki munaði þar verulegu frá árunum
á undan. Segir NASA að síðan hafi
þróunin að jafnaði verið á sömu braut
minnkandi hafíss.
Spáð íslausum Norðurpól
hluta úr ári fyrir lok aldarinnar
Segir þar að minnkun hafíss sé ekki
hægt að skýra með náttúrulegum
sveiflum eingöngu. Þar spili inn í
hlýnun loftslags. Þar hafi sumir sér-
fræðingar verið að spá því að norð-
urheimskautið muni verða íslaust
að minnsta kosti hluta árs undir lok
þessarar aldar. /HKr.
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
FRÉTTASKÝRING
Örbylgjumælingar úr gervihnöttum NASA gerðar á Norðurpólnum síðustu 30 ár:
Ísþekjan hefur rýrnað síðan 1987
– Í fyrra fóru 25 milljón tonna með skipum yfir pólsvæðið og búist við að skipaflutningar verði komnir í 75 milljónir tonna árið 2025
September 1999 Mars 2000
Á þessum myndum NASA sjást breytingar á ísnum á norðurhveli jarðar,
annars vegar í sinni lægstu stöðu í september og síðan í mestu stöðu í
gervihnattamælingum allt frá árinu 1978. Hvíti hringurinn er Norðurpóllinn
September 2015 Mars 2016
September 2007 Mars 2008
-
á norðvesturleiðinni. Mynd / portnews.ru
heitir 50 Let Pobedy, eða Sigur í 50 ár.
Mynd / BarentsObserver
M
ælingarnar sem NASA
byggir á eru gerðar með
sérstökum örbylgju-
skynjurum (Sensor Microwave/
Imagers - SSM/Is). Þeir eru um
borð í gervihnöttum sem flogið er
yfir Norðurheimskautið í loftslags-
eftirliti bandaríska varnarmála-
ráðuneytisins. Skynjararnir nema
mismun á örbylgjugeislum frá
jörðinni, en sjór, ís og land endur-
kasta örbylgjum á mismunandi
hátt. Sú staðreynd gerir mönnum
kleift að búa til kort af breytingum
á stöðu íss á norðurhveli jarðar.