Bændablaðið - 06.04.2017, Blaðsíða 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. apríl 2017
Bílabúð Benna hefur lækkað
nánast alla nýja bíla töluvert
vegna sterkrar stöðu íslensku
krónunnar. Einhvern veginn hefur
mér fundist Bílabúð Benna alltaf
aðeins á undan öðrum að lækka
verð ef gengi krónunnar styrkist
miðað við aðra innflytjendur á
bílum.
Nú fæst ódýrasti beinskipti
Rexton jeppinn á 4.790.000 (til
samanburðar kostaði Rexton frá
6.890.000 fyrir tveim árum). Ég
prufukeyrði fyrir nokkru báða 33
tommu breyttu Rexton jeppana sem
eru í sýningarsal Bílabúð Benna.
Misdýrar breytingar í sömu hæð
dekkja, en munurinn mikill
Ég byrjaði á ódýrari bílnum sem er
með upphækkunina í klossum undir
gormunum og á 275/70/18 dekkjum,
en svona breyting kostar 550.000
og hækkar veghæð bílsins um 90
mm. Að keyra þennan bíl er fínt.
Sérstaklega á malbiki þar sem 18
tommu dekkin eru ekkert með of
háan prófíl og því svarar bíllinn vel
á malbikuðum vegum.
Á möl og í snjó gera dekkin á 18
tommu felgunum bílinn frekar stífan
og fjöðrun verður ekki mikil. Þrátt
fyrir þetta fannst mér merkilegt hvað
bíllinn komst í snjó án þess að hleypa
neinu lofti úr dekkjunum.
Seinni bíllinn er mun meira
breyttur og hækkar veghæðina um
115 mm. Hann er á 16 tommu felg-
um. Dekkjastærðin er 285/75/16
og er sá bíll hækkaður á boddí og
með brettaköntum, en þessi breyting
kostar 1.890.000. Mun betra er að
keyra þennan bíl á möl og í snjó. Þar
gefa 16 tommu dekkin miklu betri
fjöðrun og eru aðeins breiðari og
flotið á snjó verður mun meira. Það
ætti að vera hægt að hleypa töluvert
úr þessum dekkjum til að fá enn betra
flot þar sem að belghæð dekkjanna
er mikil. Lastið við þennan bíl er að
hann er aðeins „svagari“ í beygjum á
malbiki samanber í hringtorgum , þar
sem manni fannst hann halla mikið.
Verðmismunurinn töluverður, en
dýrari kosturinn er mun álitlegri
Verðmunurinn er mikill á þessum
tveim breytingum, en ódýrari bíllinn
sem ég ók kostar með breytingu
6.040.000 og sá dýrari kostar
7.380.000. Fyrir mér er það ekki
spurning að dýrari bíllinn er mun
betri kostur. Svo finnst mér hann
miklu flottari.
Í bílnum er 2,2 lítra dísilvél. Og
með sjö þrepa sjálfskiptingu skilar
vélin 178 hestöflum. Kraftur vélar-
innar ræður vel við svona stór dekk.
Vissulega er bíllinn þó að eyða tölu-
vert meira eldsneyti á svona stórum
dekkjum miðað við uppgefna eyðslu
sem er 7,4 lítrar á hundraðið. Gæti
trúað að eyðsla í meðalakstri á þess-
um bílum sé á bilinu 9–10 lítrar á
hundraðið í blönduðum akstri).
Dráttargeta bílsins er uppgefin
2.600 kg, sama og á eldri bílnum
sem var með 23 hestöflum minni
vél og prófaður var hér í blaðinu í
febrúar 2015.
Mikið um nýjungar frá eldri
árgerðinni
Að keyra báða bílana fannst mér
gott, sæti fín og nú er miðsætaröðin
með hita í sætunum. Fremstu sætin
eru með bæði valmöguleika að hafa
sætin heit eða köld, en öftustu sætin
tvö eru ekki fyrir mjög stóra. Myndi
segja 40 kg og 150 á hæð sé í lagi,
en óþægilegt til lengdar fyrir þá sem
eru þyngri og hærri.
Sjálfskiptingin er 7 þrepa og
virkar nánast eins og stiglaus skipt-
ing. Allavega finnur maður lítið fyrir
því þegar bíllinn skiptir sér. Hægt
að stilla hana á sumar- og vetrar-
stillingu, en vetrarstillingin er mun
mýkri í átaki sem minnkar líkur á
óþarfa spóli.
Hiti er í stýrinu, bakkmyndavél
og tölvustýrð loftkæling.
Það eina sem ég get lastað við
bílinn er varadekkið sem er það sem
ég kalla aumingi og að dráttargetan
er ekki nema 2600 kg. Hefði líka vilj-
að sjá a.m.k. 3.000 kg dráttargetu á
svona kraftmiklum bíl. Að öllu öðru
leyti var ég ánægður með bílinn.
Alvöru jeppi á frábæru verði
Ef ég ætti að velja á milli þessara
tveggja bíla, þá myndi ég velja dýr-
ari bílinn þar sem hann hentar mér
og mínum þörfum betur, þrátt fyrir
að vera rúmlega milljón dýrari. Þá
er 7.380.000 krónur fyrir fullbúinn
fjallabíl, nánast sama verð eða minna
en verð á öðrum óbreyttum jeppum
sem eru sambærilegir og flokkast í
sama flokk og Ssang Yong Rexton.
Hægt er að nálgast nánari
upplýsingar um SsangYong Rexton
á vefslóðinni www.benni.is. Mitt mat
er að þarna er á ferðinni mjög góður
alvöru jeppi á frábæru verði.
Þyngd 2.049 kg
Hæð 1.840 mm
Breidd 1.900 mm
Lengd 4.755 mm
Verð frá 4.790.000
Helstu mál og upplýsingar
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Ssang Young Rexton. Ódýrari breytingin hækkar veghæðina um 90 mm. Ssang Yong Rexton hækkaður um 115 mm. Myndir / HLJ
Aftasta sætaröðin er ekki fyrir mjög stóra, en þar vantar aðallega meira
fótapláss.
Dekkin á 18 tommu felgunum svara betur á malbiki, en eru síðri á möl.
16 tommu dekkin eru svagari í akstri, en gefa mun betri fjöðrun.