Bændablaðið - 06.04.2017, Qupperneq 54

Bændablaðið - 06.04.2017, Qupperneq 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. apríl 2017 Bílabúð Benna hefur lækkað nánast alla nýja bíla töluvert vegna sterkrar stöðu íslensku krónunnar. Einhvern veginn hefur mér fundist Bílabúð Benna alltaf aðeins á undan öðrum að lækka verð ef gengi krónunnar styrkist miðað við aðra innflytjendur á bílum. Nú fæst ódýrasti beinskipti Rexton jeppinn á 4.790.000 (til samanburðar kostaði Rexton frá 6.890.000 fyrir tveim árum). Ég prufukeyrði fyrir nokkru báða 33 tommu breyttu Rexton jeppana sem eru í sýningarsal Bílabúð Benna. Misdýrar breytingar í sömu hæð dekkja, en munurinn mikill Ég byrjaði á ódýrari bílnum sem er með upphækkunina í klossum undir gormunum og á 275/70/18 dekkjum, en svona breyting kostar 550.000 og hækkar veghæð bílsins um 90 mm. Að keyra þennan bíl er fínt. Sérstaklega á malbiki þar sem 18 tommu dekkin eru ekkert með of háan prófíl og því svarar bíllinn vel á malbikuðum vegum. Á möl og í snjó gera dekkin á 18 tommu felgunum bílinn frekar stífan og fjöðrun verður ekki mikil. Þrátt fyrir þetta fannst mér merkilegt hvað bíllinn komst í snjó án þess að hleypa neinu lofti úr dekkjunum. Seinni bíllinn er mun meira breyttur og hækkar veghæðina um 115 mm. Hann er á 16 tommu felg- um. Dekkjastærðin er 285/75/16 og er sá bíll hækkaður á boddí og með brettaköntum, en þessi breyting kostar 1.890.000. Mun betra er að keyra þennan bíl á möl og í snjó. Þar gefa 16 tommu dekkin miklu betri fjöðrun og eru aðeins breiðari og flotið á snjó verður mun meira. Það ætti að vera hægt að hleypa töluvert úr þessum dekkjum til að fá enn betra flot þar sem að belghæð dekkjanna er mikil. Lastið við þennan bíl er að hann er aðeins „svagari“ í beygjum á malbiki samanber í hringtorgum , þar sem manni fannst hann halla mikið. Verðmismunurinn töluverður, en dýrari kosturinn er mun álitlegri Verðmunurinn er mikill á þessum tveim breytingum, en ódýrari bíllinn sem ég ók kostar með breytingu 6.040.000 og sá dýrari kostar 7.380.000. Fyrir mér er það ekki spurning að dýrari bíllinn er mun betri kostur. Svo finnst mér hann miklu flottari. Í bílnum er 2,2 lítra dísilvél. Og með sjö þrepa sjálfskiptingu skilar vélin 178 hestöflum. Kraftur vélar- innar ræður vel við svona stór dekk. Vissulega er bíllinn þó að eyða tölu- vert meira eldsneyti á svona stórum dekkjum miðað við uppgefna eyðslu sem er 7,4 lítrar á hundraðið. Gæti trúað að eyðsla í meðalakstri á þess- um bílum sé á bilinu 9–10 lítrar á hundraðið í blönduðum akstri). Dráttargeta bílsins er uppgefin 2.600 kg, sama og á eldri bílnum sem var með 23 hestöflum minni vél og prófaður var hér í blaðinu í febrúar 2015. Mikið um nýjungar frá eldri árgerðinni Að keyra báða bílana fannst mér gott, sæti fín og nú er miðsætaröðin með hita í sætunum. Fremstu sætin eru með bæði valmöguleika að hafa sætin heit eða köld, en öftustu sætin tvö eru ekki fyrir mjög stóra. Myndi segja 40 kg og 150 á hæð sé í lagi, en óþægilegt til lengdar fyrir þá sem eru þyngri og hærri. Sjálfskiptingin er 7 þrepa og virkar nánast eins og stiglaus skipt- ing. Allavega finnur maður lítið fyrir því þegar bíllinn skiptir sér. Hægt að stilla hana á sumar- og vetrar- stillingu, en vetrarstillingin er mun mýkri í átaki sem minnkar líkur á óþarfa spóli. Hiti er í stýrinu, bakkmyndavél og tölvustýrð loftkæling. Það eina sem ég get lastað við bílinn er varadekkið sem er það sem ég kalla aumingi og að dráttargetan er ekki nema 2600 kg. Hefði líka vilj- að sjá a.m.k. 3.000 kg dráttargetu á svona kraftmiklum bíl. Að öllu öðru leyti var ég ánægður með bílinn. Alvöru jeppi á frábæru verði Ef ég ætti að velja á milli þessara tveggja bíla, þá myndi ég velja dýr- ari bílinn þar sem hann hentar mér og mínum þörfum betur, þrátt fyrir að vera rúmlega milljón dýrari. Þá er 7.380.000 krónur fyrir fullbúinn fjallabíl, nánast sama verð eða minna en verð á öðrum óbreyttum jeppum sem eru sambærilegir og flokkast í sama flokk og Ssang Yong Rexton. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um SsangYong Rexton á vefslóðinni www.benni.is. Mitt mat er að þarna er á ferðinni mjög góður alvöru jeppi á frábæru verði. Þyngd 2.049 kg Hæð 1.840 mm Breidd 1.900 mm Lengd 4.755 mm Verð frá 4.790.000 Helstu mál og upplýsingar VÉLABÁSINN Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Ssang Young Rexton. Ódýrari breytingin hækkar veghæðina um 90 mm. Ssang Yong Rexton hækkaður um 115 mm. Myndir / HLJ Aftasta sætaröðin er ekki fyrir mjög stóra, en þar vantar aðallega meira fótapláss. Dekkin á 18 tommu felgunum svara betur á malbiki, en eru síðri á möl. 16 tommu dekkin eru svagari í akstri, en gefa mun betri fjöðrun.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.