Bændablaðið - 06.04.2017, Síða 4

Bændablaðið - 06.04.2017, Síða 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. apríl 2017 FRÉTTIR Lítið um landverði að störfum yfir veturinn: Viðkvæm svæði liggja undir skemmdum Landvarsla að vetri er erfiðari en á sumrin vegna tíðarfars. Svæðin eru viðkvæmari fyrir miklum fjölda ferðamanna þegar ekki er frost í jörðu eða hún snævi þakin. Gróður verður berskjaldaður fyrir traðki þegar hann er í dvala og jörð ekki frosin eða undir snjó. Í mildu vetrarárferði eins og nú gæti tjón af völdum ágangs ferðamanna orðið meira en ella. Ýmis svæði liggja undir skemmdum. Þetta kemur fram í máli Hákonar Ásgeirssonar, sérfræðings Umhverfisstofnunar á Suðurlandi, á vefsíðu stofnunarinnar. Hann telur einsýnt að spjöll gætu víða komið í ljós í vor, sem kalli á frekari verndun og uppbyggingu vegna ferðamannastraums. Einnig að huga þurfi betur að öryggi ferða- manna. Grasflötin við Skógafoss illa farin Dæmi um svæði sem hafa farið illa í vetur vegna bleytu og þíðu er við Skógafoss. Grasflötin fyrir framan fossinn er mjög illa farin, að sögn Hákonar, þar sem gróðurinn gat ekki varið sig með frosinni jörð eða snjó. Mesta fjölgun ferðamanna er yfir vetrarmánuðina og er vart núorðið mikill munur á aðsókn milli sumars og vetrar. Tímabært að huga að landvörslu árið um kring Landverðir eru þó að sögn Hákonar vart sjáanlegir þar sem þeir starfa að mestu bara yfir sumarmánuðina. Ferðamannatímabilið stendur nú yfir allt árið og nauðsynlegt að landvarsla sé í takt við þá breytingu. Nefnir hann sem dæmi að þúsundir leggi leið sína að Skógafossi og Dyrhólaey en þar starfi ekki land- verðir yfir veturinn. Hákon segir löngu tímabært að hafa landvörslu allt árið um kring, einkum á fjölmennustu ferða- mannastöðunum. Sem dæmi nefnir hann Gullfoss, Geysi, Skógafoss og Dyrhólaey, vetrarlandvarsla væri einnig brýn í Þjóðgarði Snæfellsjökuls, á friðlýst svæði í Borgarfirði og nágrenni og í Mývatnssveit. /MÞÞ Ferðaþjónustubændur, BÍ og Orkusetur: „Hleðsla í hlaði“ – Bændur bjóði rafbílanotendum upp á hleðslu Ferðaþjónustubændur, Bænda- samtökin og Orkusetur hafa á síðustu vikum rætt mögulegt samstarf sem lýtur að því að bjóða rafbílaeigendum upp á hleðslu á sveitabæjum. Hugmyndin er að byggja upp þjónustunet á meðal bænda og styrkja þannig innviði fyrir notkun rafbíla úti á lands- byggðinni. Á dögunum sendi Hey Iceland, sem áður hét Ferðaþjónusta bænda, bréf til sinna félagsmanna þar sem óskað var eftir áhugasömum ferða- þjónustubændum í verkefnið en vinnuheiti þess er „Hleðsla í hlaði“. Berglind Viktorsdóttir, gæðastjóri hjá Hey Iceland, segir að víða leyn- ist tækifæri til aðgerða í umhverfis- málum og fyrirtækið vilji leggja sitt af mörkum við að bæta lífsgæði og vernda náttúruna fyrir komandi kynslóðir. „Rafbílavæðingin hér á landi hefur verið lengi í umræðunni sem mikilvægt framlag til að draga úr gróðurhúsaáhrifum. Það er ekki spurning um hvort heldur hvenær rafbílavæðingin hefst af fullum krafti og því mikilvægt að við undirbúum farveginn fyrir þessa breytingu sem lið í aukinni þjónustu við gesti og sýnum gott fordæmi með því að taka þátt í að styðja við aukna notkun rafbíla á landsvísu,“ sagði í bréfinu til ferðaþjónustubænda. Margs konar ávinningur Ýmsir telja að rafhleðslustöðvar verði jafn sjálfsagðar á ferðaþjón- ustubæjum og þráðlaust net er í dag fyrir gesti. Fyrir ferðaþjónustubænd- ur er því um nauðsynlega þjónustu að ræða ef menn vilja ekki dragast aftur úr í samkeppninni. Ávinningurinn er fyrst og fremst aukin þjónusta við gestina en ferðalangurinn á fjölbreytt viðskipti við bóndann; kaupir áfyll- ingu á rafbíl, gistingu, veitingar og jafnvel afþreyingu. Rafbílaeigandinn finnur fyrir auknu öryggi, vitandi af því að hann getur ekið lengri vegalengdir á rafmagni með við- komu á bændastöðvum eða stærri hleðslustöðvum. Kanna áhuga hjá bændum Næstu skref eru að kanna áhuga bænda á að taka þátt í verkefninu. Ennþá á eftir að meta umfang og kostnað við að þétta net rafhleðslu- stöðva um landið. Tæknin er í örri þróun og nokkrar mismunandi tegundir af hleðsluþjónustu eru fyrir hendi, allt frá einföldum fram- lengingarsnúrum til fullkominna hraðhleðslustöðva. Ef áhugi reynist fyrir hendi hjá bændum og verkefnið er raunhæft út frá fjárhagslegum forsendum verður haldið áfram. Hugmyndin er sú að þátttakendur setji upp skilti sem vísi á hleðslustöðvar og staðirnir verði merktir inn á helstu kort og vefsíður. Hey Iceland hefur óskað eftir því að ferðaþjónustubændur sem vilji stíga fyrstu skrefin hafi samband við skrifstofuna fyrir lok fimmtu- dagsins 27. apríl. Aðrir bændur, sem kunna að hafa áhuga á að setja upp hleðsluþjónustu, er bent á að hafa samband við Bændasamtökin í netfangið bondi@bondi.is. Nánar verður fjallað um rafbílavæðingu og hleðslumöguleika í Bændablaðinu í næstu tölublöðum. /TB Stjórnkerfið fær falleinkunn í fæðuöryggismálum – sagði landgræðslustjóri á aðalfundi Landssamtaka sauðfjárbænda Árni Bragason landgræðslustjóri þakkaði bændum sérstaklega fyrir vel unnin störf í þágu upp- græðslu í ræðu sinni á aðalfundi Landssamtaka sauðfjárbænda. Kom hann víða við í ræðu sinni og vék m.a. að mikilvægi þess að Íslendingar hugi að fæðuöryggis- málum. „Við búum í landi elda og íss. Forfeður okkar komu til Íslands með búskaparhætti sem nefnast sviðn- ingsræktun, búskaparhætti sem tíðk- uðust á Norðurlöndunum fyrir 1000 árum og tíðkast enn meðal frum- stæðra samfélaga – menn brenna skóga og sá korni í volga öskuna og í framhaldinu vex upp gras sem verð- ur beitiland búfjár og síðar vex skóg- urinn aftur. Þessir búskaparhættir hentuðu ekki á Íslandi því hér erum við með öðruvísi jarðveg og gróður og því hrundu vistkerfi okkar með tilheyrandi jarðvegseyðingu,“ sagði Árni í ræðu sinni. Mikið hefur áunnist „Gríðarlega mikið hefur áunnist í gróðurvernd á undanförnum ára- tugum – upprekstur hrossa á afrétti heyrir nú að mestu sögunni til og beitartími sauðfjár á illa förnum afréttum hefur verið styttur mikið. Sauðfjárbændur hafa um langt árabil unnið frábær uppgræðslustörf á illa förnum afréttum og sínum heima- löndum og leggja mikið af mörk- um og ómælda vinnu við að græða landið, með frábærum árangri. Fyrir það ber að þakka.” Samningur um vöktun gróðurauðlindarinnar „Þann 14. mars skrifuðu Landssamtök sauðfjárbænda, Landgræðslan, Bændasamtökin og atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti undir samning um vöktun gróður- auðlindarinnar. Aðdragandi samn- ingsins var nokkur því við hófum samtal í október á síðasta ári en eftir að áætlun um verkefnið var sett á blað gengu hlutirnir hratt fyrir sig. Verkefninu, sem hugsað er til næstu 10 ára, og vonandi enn lengri tíma, er ætlað að styrkja þekk- ingu okkar á gróðurauðlindinni. Markmið verkefnisins eru að: (a) skila með reglubundnum hætti heildarmati á ástandi gróður- og jarðvegsauðlinda landsins og gera grein fyrir breytingum þar á (b) þróa sjálfbærnivísa fyrir nýtingu gróður- og jarðvegsauðlinda landsins. Við ætlum okkur að vinna með bændum og landeigendum að þessu mati. Við byggjum á góðum grunni – matsaðferðum sem Landgræðslan hefur verið að þróa til að meta hvort land sé tilbúið til afhendingar eftir uppgræðslu. Við byggjum einnig á rannsóknum LbhÍ og vistgerða- flokkun NÍ. Þekking og tækni er að aukast – hægt er að nýta GPS- tækni ásamt gervitunglamyndum, loftmyndum og drónamyndum. Þróun á myndgreiningum hefur fleygt fram og mögulegt er að greina af myndum þroskastig plantna og ástand gróðurs.” Frumskilyrði að menn tali sama tungumál „Það er algjört frumskilyrði að við tölum sama tungumálið þegar við fjöllum um nýtingu lands og ég vona að verkefnið hjálpi okkar við það. Gæðastýring í sauðfjárrækt hefur verið gagnrýnd af ýmsum sem segja hana hvítþvott og í einhverjum til- vikum til þess að viðhalda beit á landi sem ekki þolir beit. Þeir hinir sömu gleyma því að vegna gæðastýringarinnar voru 300 þúsund hektarar friðaðir og ástand margra beitilanda hefur batnað, við eru þó enn með stór landsvæði sem hrópa á uppgræðsluaðgerðir eða friðun. Ekkert kerfi er fullkomið og samstarfsverkefninu Mat á gróður- auðlindinni er m.a. ætlað að styrkja gæðastýringuna og þróa sjálfbærni- vísa. Fólki fjölgar hratt á jörðinni okkar, íbúafjöldinn er nú að nálgast 7,5 milljarða. Fjölgunin nú er um 1,1 % á ári en talið er að draga muni úr fjölgun á næstu áratugum og að um 2050 verði fjölgunin tæplega 0,6 % en að á þeim tíma þurfi allt að 70% meiri mat en nú því meðalaldur hækkar.“ Stjórnkerfið fær falleinkunn í fæðuöryggismálum „Hvernig stöndum við Íslendingar okkur í fæðuöryggismálum? Stjórnkerfið okkar fær falleinkunn því miður, því við höfum ekki greint stöðu okkar sem skyldi. Allar vélar til fiskveiða, fiskeldis og landbúnað- ar eru knúnar olíu. Við erum einnig algjörlega háð innflutningi á korn- vörum. Ef innflutningur stöðvast þá hrynur mjólkur-, eggja- og kjúklingaframleiðslan og svína- ræktin.“ Bændum oftast svarað með skætingi um fæðuöryggismál „Bændur hafa stöku sinnum vakið máls á fæðuöryggismálum en þeim er oftast svarað með því að þeir séu að reka áróður fyrir óhagkvæmum landbúnaði. Við getum ræktað olíuplöntur og bygg á Íslandi og framleitt miklu meira af fóðrinu sem við þurfum. Stjórnvöld þurfa að styðja við kyn- bætur og jarðræktarrannsóknir á Íslandi því það er enginn á jörðinni okkar sem býr við sömu hita- og birtuskilyrði og við. Staða sauðfjárræktarinnar er erfið eins og fram hefur komið. Það er alveg ljóst að sá mikli meirihluti bænda sem er með sín beitarmál í lagi er ekki sáttur við þá sem eru að nýta illa farið land til beit- ar. Landgræðslan fær ábendingar um svæði þar sem beit er meiri en landið þolir og starfsmenn okkar meta hvort slíkar ábendingar eigi við rök að styðjast. Ef fé er að koma í miklum mæli í réttir í næstu sveitum ber okkur að leggja mat á það hvort orsökin sé of mikil beit í heimalöndunum og svo virðist vera á ákveðnum svæðum.“ Lítum til uppbyggingar skógarauðlindarinnar „Hvernig getum við stuðlað að því að fyrirsjáanlegur niðurskurður í greininni verði þar sem ástand beiti- landa er verst? Ég tel að við eigum að líta til þess sem gert er varðandi uppbyggingu skógarauðlindarinnar. Stjórnvöld styrkja verkefnið Nytjaskógrækt á lögbýlum. Skógræktarráðgjafi heimsækir jörð – Að loknum athugunum gerir skógræktarráðgjafi tillögu þar sem m.a. eru tilgreind mörk væntanlegs samningssvæðis. Hvers vegna gerum við ekki samninga um uppgræðslu og beitar- stýringu á lögbýlum þar sem bændur yrðu styrktir til að fækka fé og bæta land sitt og gera það betur hæft til beitar í framtíðinni? Ég óska sauðfjárbændum alls hins besta í sínum verkefnum og vona að ykkur gangi allt í haginn hér í ykkar þýðingarmiklu störfum á aðalfundinum.“ Sjálfbær landnýting hagur okkar og afkomenda okkar „Ég bind miklar vonir við þann sam- starfssamning sem við undirrituðum nýlega og ég vona að allir leggist á eitt með að reyna að færa landnýt- inguna nær því að verða með sjálf- bærum hætti – það er hagur okkar en ekki síst hagur afkomenda okkar,“ sagði Árni Bragason landgræðslu- stjóri. /HKr. Árni Bragason landgræðslustjóri í ræðustól á aðalfundi Landssamtaka sauðfjárbænda. Mynd / HKr. Rafbíll bóndans í Fagradal fyrir utan fjárhúsin. Mynd / Jónas Erlendsson

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.