Bændablaðið - 06.04.2017, Blaðsíða 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. apríl 2017
Finnski garðyrkjumaðurinn og rithöfundurinn Leif Blomqvist hélt fyrirlestur á málþingi í berjarækt sem haldið var á Hótel Sögu:
Bláberjatoppur er framtíðin í berjarækt
Áhugi á ávaxta- og berjarækt
hefur aukist talsvert undanfarin
ár og úrval ávaxtatrjáa og berja-
runna sem hægt er að rækta á
Íslandi eykst með hverju ári.
Finnski garðyrkjumaðurinn og
rithöfundurinn Leif Blomqvist hélt
fyrir skömmu fyrirlestur á málþingi
um berjarækt sem haldið var á Hótel
Sögu í samvinnu Bændasamtakanna,
Garðyrkjufélagsins og LbhÍ.
Fyrirlestur Blomqvist fjallaði um
möguleika á berjarækt sem búgrein-
ar hér á landi. Auk Blomqvist
héldu Jón Kr. Arnarson, garð-
yrkjufræðingur og kennari við
Landbúnaðarháskóla Íslands, og
Jón Guðmundsson garðyrkju-
fræðingur erindi um hérlenda
reynslu af berja- og ávaxtarækt. Um
120 manns mættu á fyrirlesturinn.
Blomqvist er einn helsti sér-
fræðingur á Norðurlöndum og þótt
víðar væri leitað í ræktun ávaxta-
trjáa og berja á norðurslóðum. Auk
Norðurlandanna hefur hann ferðast
um Rússland, Síberíu austanverða,
Kína, Kanada og víðar til að kynna
sér ávaxta- og berjarækt og safna
nýjum tegundum og kvæmum
sem hann ræktar í garðyrkjustöð
sinni í Lepplax í Finnlandi. Leif er
einnig höfundur bóka um ávaxta- og
berjarækt, Tradgardens bar og Vara
fruktsorter, og bókar um rósir sem
heitir Rosor í norr.
Lærði að rækta ber
hjá ömmu sinni
Blaðamaður Bændablaðsins tók
Blomqvist tali þegar hann var
staddur á landinu og forvitnaðist
um starfsemi hans í Finnlandi, flakk
hans um heiminn í leit að nýjum
tegundum og möguleika Íslendinga
til að rækta berjaplöntur í atvinnu-
skyni.
„Berjarækt er mér mjög hug-
leikin þar sem ég hef stundað hana
alla mína ævi auk þess sem ég
hef mikinn áhuga á að finna nýjar
tegundir og kvæmi til ræktunar. Ég
kynntist berjarækt þegar ég var barn
hjá ömmu minni sem ræktaði ber.
Hjá henni smakkaði ég fjölda ólíkra
tegunda og kvæma og ég held að
áhugi minn á berjum hafi byrjað
þar.“
Leif starfaði sem ljósmyndari
á veturna í mörg ár en á sumrin
ræktaði hann ávexti og ber sem
hann seldi á mörkuðum. Seinna
stofnaði hann garðyrkjustöð sem
til að byrja með ræktaði aðallega
sólber sem hann seldi úr skottinu á
bílnum sínum á mörkuðum. Í dag
er stöðin aðallega þekkt fyrir mikið
úrval af ávaxtatrjám, berjaplöntum
og rósum.
Yfir háannatímann starfa um
35 manns við stöðina og þar eru
á boðstólum um 180 mismunandi
yrki af ávaxtatrjám og berjunum
fer fjölgandi. Ársframleiðslan af
ávaxtatrjám er um 18 þúsund tré
sem bæði eru seld innanlands og
flutt út. Ávaxtatré, epli, kirsuber,
perur og plómur frá Blomqvist
plantskola hafa verið flutt til Íslands
í nokkur ár og reynst vel.
Hvít kirsuber frá Kína
Leif segir að á ferðalögum sínum
um heiminn í leit að nýjum tegund-
um hafi hann kynnst mörgum
spennandi yrkjum og kvæmum
ávaxta og berja.
„Í heimsókn minni til norðurhér-
aða Kína kynntist ég kirsuberjayrki
sem ber hvít ber. Berin eru sæt og
plantan harðgerð og lofa því góðu
fyrir okkur. Ég hef einnig fundið
mikið af yrkjum í Kanada sem eru
óþekkt á Norðurlöndum. Í mínum
huga er Rússland og Síbería samt
áhugaverðast enda komið í ljós eftir
að landið opnaðist að þar er að finna
mikið af áhugaverðum nýjungum
fyrir okkur.“
Meðal tegunda sem Leif nefn-
ir sérstaklega og hann talaði um á
fyrirlestri sínum er bláberjatoppur,
Lonicera caeulea var. kamtschatica.
Leif er með tuttugu mismunandi
yrki á bláberjatoppi í ræktun og um
75% þeirra eru yrki sem blómstra
snemma og lofa góðu sem ræktun-
arafbrigði á norðurslóðum.
Kostir Íslands til berjaræktar
Þegar Leif er inntur eftir möguleik-
um framtakssamra Íslendinga til að
rækta ber í atvinnuskyni tekur hann
fram að hann sé ekki sérfróður um
veðurfar á Íslandi.
„Ég hef komið til Íslands nokkuð
oft og heimsótt ræktendur víða um
land. Ég tel mig því geta gert mér
einhverja grein fyrir hver helstu
vandamálin og kostirnir í berjarækt
á Íslandi séu.
Helsta vandamálið er hversu
sumrin hér eru stutt og því nauðsyn-
legt að finna tegundir og yrki sem
vaxa hratt og þroskast snemma.
Bláberjatoppur er dæmi um plöntu
sem þroskar aldin snemma og að
jafnaði tveimur vikum fyrr en
jarðarber, svo dæmi sé tekið.
Annar kostur við bláberjatopp-
inn er að hann er mun bragðbetri
en mörg af yrkjunum sem við erum
að fá frá Rússlandi og hafa verið í
ræktun á Norðurlöndunum til þessa.
Ég tel því að bláberjatoppur eigi
eftir að vera vænlegur kostur fyrir
Íslendinga í framtíðinni, bæði fyrir
heimilisgarða og til framleiðslu á
berjum á markað.
Meðal þess sem er Íslandi til
góða þegar kemur að berjarækt
er Golfstraumurinn. Hér er bjart
allan sólarhringinn yfir hásumarið
og það veldur því að ber fá sterk-
ari ilm. Svalar sumarnætur gera
berin sætari og bragðbetri. Mikið
magn af útfjólubláum geislum í
sólarljósi gerir það að verkum að
magn andoxunarefna er hátt í þeim.
Á Íslandi er lítið af meindýrum
og plöntusjúkdómum sem herja á
plönturnar sem dregur úr notkun
eiturefna við ræktun.
Jarðarber og hafþyrnir
Auk bláberjatopps telur Leif að
Bláberjatoppur – Lonicera caeulea var. kamtschatica. Mynd / Leif Blomqvist
Leif Blomqvist er einn helsti sérfræðingur á Norðurlöndum og þótt víðar
væri leitað í ræktun ávaxtatrjáa og berja á norðurslóðum. Myndir / TB
María E. Ingvadóttir, Arndís Finnsson og Hrafn Jóhannesson.
Súkkulaðikirsuber. Mynd / Leif Blomqvist.
Fullt var út úr dyrum á málþinginu um berjarækt á Hótel Sögu.