Bændablaðið - 06.04.2017, Blaðsíða 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 6. apríl 2017
ÞÓR FH
REYKJAVÍK:
Krókháls 16
Sími 568-1500
AKUREYRI:
Lónsbakka
Sími 568-1555
Vefsíða:
www.thor.is
á ótrúlegu verði!
Vönduð hlið
Bændur, gerið verð- og gæðasamanburð!
BESTU
K
A
UPIN
Heiti Lengd Verð án vsk
1,52 m 11.890,-
2,13 m 13.382,-
2,74 m 15.478,-
3,66 m 17.369,-
3.92 m 18.638,-
4,27 m 20.214,-
4,57 m 21.384,-
3.996,-
10.809,-
Bændablaðið kemur næst út 27. apríl
LESENDABÁS
Eflum skógrækt á Íslandi
Síðastliðið sumar skrifaði ég
grein sem birtist í seinna tölublaði
Skógræktarritsins 2016: Hvers
vegna fjárfesta lífeyrissjóðir ekki
í skógrækt?
Mér skilst að þegar hafi stjórn-
endur a.m.k. eins lífeyrissjóðs,
Almenna lífeyrissjóðsins, ígrundað
gaumgæfilega fjárfestingar í skóg-
rækt. Hann er talinn vera einn best
rekni lífeyrissjóður landsmanna.
Hingað til hafa lífeyrissjóðir
einkum fjárfest í hlutabréfum sem
og skuldabréfum, þar á meðal lánum
til sjóðfélaga. Lífeyrissjóðir töpuðu
mjög miklu fé í bankahruninu (um
480 milljörðum) sem og smærri fjár-
festar, einkum eldri borgarar. Þeir
glöptust af að leggja fé sitt í hlutabréf
en verðgildi þeirra varð að engu. Það
er nefnilega svo að lífeyrissjóðum
er skylt eftir landslögum að ávaxta
sitt fé að lágmarki 3,5%. Þeir sem
sennilega hafa mesta þekkingu á
þessum málum, hafa bent á að þarna
sé meginástæðan fyrir mjög háum
útlánavöxtum hér á landi. Er líklegt
að svo sé.
Fjárfesting í skógrækt er til fram-
tíðar. Sá sem leggur fé sitt í skógrækt
getur fengið tekjur eftir 15–20 ár og
jafnvel fyrr. Hann getur ekki vænst
þess að fá arð á morgun eða í næstu
viku eins og gerist oft á tíðum í spá-
kaupmennsku hlutabréfamarkaða.
En fjárfesting í hlutabréfum getur
einnig orðið að engu vegna rangs
mats á innra virði viðkomandi félags.
Þannig máttu hluthafar í Flugleiðum
horfa fram á lækkun um 35% á hluta-
bréfum í byrjun þessa árs og óvíst
er hvort og hvenær verð hlutabréfa
félagsins nær aftur fyrra gildi. Og
það sannaðist einnig í bankahruninu
þegar athafnamennirnir „átu“ fyrir-
tækin að innan og skildu allt eftir í
óreiðu og gjaldþrotum.
Ísland er skammt norðan við miðju
barrskógabeltisins sem er að mestu
leyti milli 50 og 60 breiddargráðu.
Barrskógabeltið teygir sig töluvert
norður fyrir heimskautsbaug þannig
að við megum vel við una hvað skóg-
ræktarmöguleika varðar og heppileg-
um tegundum er plantað. Hér á landi
er talið að CO2 binding sé nálægt því
að vera tæp 8 tonn á hektara miðað
við árið. Þessar upplýsingar eru frá
Aðalsteini Sigurgeirssyni, fagstjóra
Skógræktarinnar.
Þegar Hákon Bjarnason skóg-
ræktarstjóri hóf sín störf fyrir rúmum
80 árum gerði hann sér grein fyrir
því að mjög árangursríka skógrækt
mætti stunda hér á landi að tveim
forsendum fullnægðum. Við gætum
reiknað með sams konar árangri í
skógrækt eins og í löndum á sömu
breiddargráðum og við svipað veður-
far. Hugur Hákonar var bundinn við
vesturströnd Norður-Ameríku, eink-
um syðri hluta Alaska. Hann vann
mjög merkt brautryðjendastarf ásamt
nokkrum starfsfélögum sínum vestan
hafs sem austan. Kappkostaði hann
að fá fræ úr könglum frá þessum
slóðum. Einnig voru fengin fræ frá
Noregi og Rússlandi. Fyrsta plöntun
skógartrjáa varð 1938 og má víða sjá
frábæran árangur á nokkrum stöðum
hér á landi.
Vegna stríðsins var tekið fyrir alla
fræsöfnun og sendingar til Íslands.
Varð því langt hlé á plöntueldi en
hugað þess betur að ungviðinu sem
þegar var að festa rætur í íslenskri
jörð. En eftir stríðið var tekinn upp
þráðurinn og hefur verið nánast
óslitin sigurganga erlendra trjá-
tegunda á Íslandi. Vorið 1963 telst
til undantekninga þegar mjög slæmt
hret gerði nær útaf við allar aspir
á höfuðborgarsvæðinu og jafnvel
víðar. Teljast slík hret fremur til
undantekninga þó ætíð megi búast
við öllu mildari vorhretum. Eftir er
tekið hversu barrtré hafa náð góðum
vexti og þroska hér á landi og gefur
lítið eftir hvað önnur lönd varðar.
Hér á landi höfum við eldfjallaösku
sem er ígildi áburðar. Hún er mjög
snefilefnarík sem er nauðsynleg
flestum plöntum í vexti.
Er fjárfesting raunhæf?
Ein hindrunin við fjárfestingu í
skógrækt er tekjuleysið fyrstu
árin og mikil vinna. Það þarf að
friða væntanlegt skóglendi jafn-
vel með fremur dýrum girðingum
sem eru það traustar að þær haldi
búsmala utan við. Þá er nauðsyn
á lagningu vinnuvega um landið
áður en gróðursetning á sér stað.
En þegar trjáplönturnar eru komn-
ar í um 4–5 metra þá þarf að fara
að huga að grisjun. Fram að þessu
hefur grisjunarviður ekki verið
talinn mikils virði en nú er svo
komið að Járnblendiverksmiðjan
á Grundartanga notar hreinan við
í stað kola. Hefur verksmiðjan
keypt trjáboli sem ekki eru nægj-
anlega stórir til flettingar í borð-
við. Það hefur jafnvel borgað
sig að flytja grisjunarvið austan
af Héraði um 700 km alla leið á
Grundartanga. Kemur þetta fram
í ársskýrslum Skógræktarinnar
undanfarinna ára. Um 5% af þörfum
Járnblendiverksmiðjunnar kemur
innanlands frá en 95% þarf verk-
smiðjan að flytja inn, einkum frá
Kanada. Þannig að það verður að
öllu óbreyttu nægur markaður fyrir
grisjunarvið næstu áratugina til
hagsbóta fyrir íslenska skógrækt.
Spurning er með verð en eins og
staðan er í dag þá er innlendi viður-
inn eftirsóknarverðari enda reikn-
ast hann sem 0 í kolefnisbókhaldi
landsins. Binding CO 2 helst í hend-
ur við brennslu. Innflutti viðurinn
kemur fram sem – mínus í sama
bókhaldi þar sem verksmiðjan þarf
að greiða sérstaklega fyrir CO2
kvóta vegna alþjóðlegra samninga
um umhverfismál sem Ísland er
aðili að.
Annað mikilsvert atriði og ekki
síðra er að með aukinni skógrækt
eykst verðmæti landsins umtalsvert.
Öll ræktun í skjóli skóga verður auð-
veldari og hagkvæmari sem ekki
veitir af nú á tímum. Skógana mætti
jafnvel nýta sem beitarskóga þegar
fram líða tímar. Skógurinn veitir
mörgum í sveitum landsins atvinnu.
En hvernig má hugsa sér aðkomu
lífeyrissjóða að aukinni skógrækt á
Íslandi?
Ein leið væri stofnun hlutafé-
lags. Strax í upphafi yrði að semja
um æskilegasta fyrirkomulag byggt
á skynsemi og hagsýni. Framlag
bænda væri landið en lífeyrissjóð-
irnir leggðu fram starfsfé. Unnið
væri eftir mjög nákvæmlegum og
faglegum forsendum til að tryggja
sem bestan árangur. Fagleg þekk-
ing í skógrækt er orðin mjög góð
hérlendis. Bændur væru eftir sem
áður vörslumenn landsins sem hafa
eftirlit með skóginum.
Við skulum hafa í huga að hér er
dæmi um mjög gott samvinnuverk-
efni bænda, lífeyrissjóða og fagaðila.
Eg sé fyrir mér að þarna gæti orðið
mjög farsælt og heillaríkt starf.
Góðar stundir!
Guðjón Jensson
leiðsögumaður í Mosfellsbæ