Bændablaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 2

Bændablaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. september 20182 Nú eru allar ellefu kýrnar bornar sem Angus fósturvísar frá Noregi voru settir upp í undir lok síðasta árs. Ein kýrin var tvíkelfd og hafa þær því skilað tólf lifandi kálfum; sjö kvígum og fimm nautum. Burðirnir hafa almennt gengið mjög vel fyrir sig og án aðstoðar, þó hefur bústjóri veitt nokkra burðarhjálp í eitt skipti og næstsíðasti kálfurinn kom aftur á bak og þurfti aðstoð dýralæknis til að koma honum í heiminn. Sá var einnig þeirra þyngstur, 48 kg, sá léttasti var 29 kg (annar tvíkelfingurinn). Tveir feður og fjórir móðurfeður Eins og sjá má í töflunni hér að neðan eru allir kálfarnir, utan einn, undan nautinu 74039 Li‘s Great Tigre, eitt naut er undan 74033 First Boyd fra Li, Draumur 0009. Móðurfeðurnir eru fjórir. Þar sem Draumur er óskyldur öllum kvíguhópnum, opnar það fyrir möguleika á að búa til fósturvísa á stöðinni og dreifa þeim til bænda á næstu misserum. Þá er gert ráð fyrir að tekið verði sæði úr nautunum, því dreift með hefðbundnum hætti og þau síðan seld til bænda. Fyrirkomulag sölunnar hefur ekki verið ákveðið en í Noregi eru kynbótanautin seld bændum á uppboði. Allt byggir þetta á því að gripirnir standist þær heilbrigðiskröfur sem gerðar eru. Stefnt er að því að halda kvígunum eftir og nýta þær til að byggja upp hreinræktaða Angus hjörð á stöðinni. Í fyllingu tímans verði þær sæddar með innfluttu sæði úr reyndum úrvalsnautum, sem er margfalt ódýrara en að flytja inn fósturvísa; sæðisskammtur kostar 4–5.000 kr en fósturvísir 160.000 kr. Sett upp í 38 kýr á næstu dögum Fósturvísar undan nautinu 74029 Horgen Erie misfórust allir í síðustu uppsetningu, en gerð verður önnur tilraun með hann í haust en í ágúst sl. komu 12 nýir fósturvísar undan honum hingað til lands. Þá komu einnig 13 fósturvísar undan 74043 Hovin Hauk, sem er nýr. Í sendingunni voru einnig 13 fósturvísar undan 74029 Li‘s Great Tigre sem teknir voru í fyrra en ein kvígan sem skoluð var þá og hann var notaður á, 1614 Lara av Høystad, gaf 20 nothæfa fósturvísa, 9 voru fluttir hingað í fyrra og skiluðu þeir fimm lifandi fæddum kálfum. Keyptar hafa verið 38 kýr og verða fósturvísar settir upp í fyrri hluta hópsins á allra næstu dögum og síðari hlutann um næstu mánaðamót. Gangi allt að óskum, koma 15-20 kálfar í heiminn í stöðinni næsta sumar. /BHB FRÉTTIR Dallilja 374 frá Kálfafelli 1 með fósturdætur sínar, Steinu 0003 og Sveinu 0004. Mynd / Sveinn Sigurmundsson. Allar ellefu kýrnar bornar sem Angus fósturvísar frá Noregi voru settir upp í: Tólf Angus kálfar fæddir á Stóra-Ármóti í einangrunarstöð NautÍs Ætterni Angus kálfanna á Stóra Ármóti Fylgiblað um líf ræna ræktun Með Bændablaðinu fylgir átta síðna kynningarrit um lífrænt vottaða landbúnaðarframleiðslu á Íslandi. Útgefandi eru samtökin VOR – verndun og ræktun en í kálfinum eru fjölbreyttar upplýsingar um lífræna ræktun. Rætt er við bændur sem stunda lífrænan búskap, meðal annars mjólkur- og kjötframleiðslu, kornrækt, grænmetisrækt, þörunga- vinnslu og vinnslu ýmissa afurða úr jurtaríkinu. Sjá nánar í miðju Bændablaðsins. Kynningarrit um lífrænt vottaða landbúnaðarframleiðslu á Íslandi Lífræn ræktun Veðrið lék við sauðkindur og menn í Hrunaréttum föstudaginn 14. september þegar bændur og búalið komu saman til að heimta fé sitt af fjalli og draga Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson Hagvöxtur 7,2% á 2. ársfjórðungi 2018 Landsframleiðslan á 2. árs fjórð- ungi 2018 jókst að raungildi um 7,2% frá sama árs fjórðungi fyrra árs samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, um 6,6%. Einkaneysla jókst um 5,1%, samneysla um 2,8% og fjárfesting um 7,5%. Útflutningur jókst um 0,8% og á sama tíma dróst innflutningur saman um 0,4%. Helstu drifkraftar hagvaxtar eru einkaneysla og fjármunamyndun. Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla jókst að raungildi um 1,8% frá 1. ársfjórðungi 2018. Landsframleiðslan á fyrstu sex mánuðum ársins 2018 jókst um 6,4% að raungildi borið saman við fyrstu sex mánuði ársins 2017. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld um 6,2%. Einkaneysla jókst um 5,3%, samneysla um 3,1% og fjárfesting um 7,6%. Útflutningur jókst um 4,5% og innflutningur um 4,1%. Tekjuafkoman jákvæð Áætluð tekjuafkoma hins opinbera var jákvæð um 1,5 milljarða króna á 2. ársfjórðungi 2018 eða sem nemur 0,2% af landsframleiðslu ársfjórðungsins. Á sama tíma árið 2017 var afkoman neikvæð um 28,4 milljarða króna. Þessi neikvæða afkoma á 2. ársfjórðungi 2017, skýrist öðru fremur af 35,0 milljarða króna fjármagnstilfærslu sveitarfélaga til Brúar lífeyrissjóðs, sem tilkomin er vegna breytinga á A deild sjóðsins. Heildartekjur hins opinbera jukust um 2,5% milli 2. ársfjórðungs 2017 og 2018 á sama tíma og heildarútgjöld drógust saman um 7,6%. Vegna tafa á útgáfu Ríkisreiknings fyrir árið 2017, eru tölur fyrir 2017 enn bráðabirgðatölur. Útgáfan Fjármál hins opinbera 2017 – endurskoðun, sem fyrirhuguð var samhliða ársfjórðungsútgáfunni í dag, hefur verið frestað til 13. desember næstkomandi. Vegna breytinga á gagnaskilum sem átt hafa sér stað í tengslum við innleiðingu laga um opinber fjármál er óvissa í uppgjöri fjármála hins opinbera. Niðurstöður um fjármál hins opinbera á 2. ársfjórðungi eru því settar fram með fyrirvara um breytingar sem kunna að verða vegna fyllri upplýsinga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.