Bændablaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 55
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. september 2018 55
Varla kemur sá dagur að ekki er
talað um lélegt vegakerfi um allt
land. Háværust er þessi umræða
á tímabilinu febrúar, mars þegar
frost er að fara úr jörðu og undan
malbikinu og frostskemmdar
götur höfuðborgarsvæðisins
verða að ótal holum sem höggva
dekk, brjóta felgur, gorma og
fjöðrunarbúnað undan bílum.
Margar af þessum skemmdum
má rekja til þess að bílar eru á of
stórum felgum með hjólbarða
sem eru með svo lágan prófíl í
dekkjunum að nánast engin fjöðrun
kemur frá hjólbarða við að keyra
í holur. Sökum þess að við búum
við nánast ónýtt vegakerfi og að
enn er um helmingur vegakerfis
Íslands malarvegir þurfum við meiri
fjöðrun út úr fjöðrunarkerfi bíla en í
flestum öðrum löndum. Þess vegna
vil ég halda því fram að með því að
minnka felgustærð undir bílum eins
mikið og hægt er til að geta verið
með hærri prófíl í dekkjunum til að
gefa meiri fjöðrun þegar kemur að
holukafla ársins og þegar ekið er á
malarvegum.
Bílasalar ættu að skoða betur
hvert bílar eru að fara og í hvað
á að nota þá
Margir bílasalar og bílasölur leggja
sig fram við að selja mönnum
aukafelgur undir bæði nýja og
notaða bíla. Í nánast öllum tilfellum
er verið að bjóða stærri felgur sem
óneitanlega gera útlit bíla flottari,
en í sumum tilfellum er hreinlega
verið að eyðileggja aksturseiginleika
bíla með þessu. Þetta hef ég rekið
mig á í nokkur skipti þegar ég hef
verið að prófa nýja bíla og þessu
til staðfestingar get ég nefnt nokkra
bíla sem ég hef eftir prófun ekið á
minni felgum.
Best þekki ég tvo af mínum eigin
bílum sem ég minnkaði felgurnar
á vetrardekkjunum, SsangYong
Korando úr 17 tommu álfelgum
í 16 og VW UP úr 15 tommu
álfelgum í 14 tommu stálfelgur. Á
vetrardekkjunum eru báðir bílarnir
mikið mýkri í akstri vegna meira
gúmmís sem gefur auka fjöðrun í
holum og klakahröngli. Sérstaklega
finnur maður muninn á VW UP
bílnum frá álfelgunum í stálfelgurnar
sem fjaðra mun betur.
Að prófa nýjan bíl fyrir
landsbyggðarblað vilja lesendur
lesa það sem hentar þeim
Í þrígang hef ég prófað bíl sem ég
bað um frá umboði með nokkrum
fyrirvara. Fyrirvarinn var notaður
til að stækka felgur og setja grófari
dekk undir bílinn í öll skiptin
sem gerði bara eitt. Bíllinn kom
skelfilega út í malarakstri og fékk
falleinkunn hjá mér í mínum dómi,
en ég neita því ekki að þetta kemur
flott út á mynd.
Of stórar felgur er eyðilegging
á aksturseiginleikum
Fyrst var þetta VW Amorak sem
í huga var prófaður sem vinnubíll
og átti að geta keyrt við ýmsar
aðstæður. Á möl var prufubíllinn
á 18 tommu felgunum næstum
ókeyrandi, en nokkrum dögum
seinna var ég í landgræðsluferð í
Hekluskógum á eins bíl á 16 tommu
dekkjum og það var allt annað líf.
Jepplingur sem ég prófaði fyrir
nokkrum árum og var á 16 tommu
felgum og dekkjum á hraðametið
sem er 55 km hraði í einni
malarbeygju sem ég nota oft til að
skoða hvenær skriðvörnin færi á.
Seinna þegar ný og uppfærð útgáfa
kom af bílnum var þessi sami bíll
að setja skriðvörnina í beygjunni á
undir 50 km hraða þegar hann var
kominn á 19 tommu felgur.
Síðasti bíll sem ég prófaði er
sagður í boði með 15, 16 og 17
tommu felgum í sölubæklingi og
hvergi minnst á 18 tommu felgur.
Ég sneri við á malarveginum, þetta
var ekki boðlegt á möl og ég ætlaði
ekki að fara að eyðileggja þessar
flottu 18 tommu felgur og nýju
dekk sem undir honum voru. Það
er alltaf spurning hvað á að nota
ökutækið í og hvað notandinn vill
fá fram í sínu tæki, ég skrifa mína
pistla eins og mér finnst að hlutirnir
eigi að vera.
Lesendur Bændablaðsins búa
fæstir í 101 Reykjavík, en þekkja
flestir vel malarvegi og þennan hóp
lesenda tel ég mig vera að þjónusta.
Ég tek það fram að þetta eru mínar
skoðanir skrifaðar út frá reynslu
manns sem hefur unnið við sölu og
viðgerðir á dekkjum og felgum í
yfir 10 ár.
Mótorar og varahlutir á lager
Hröð og góð þjónusta
Dreifingaraðili BRIGGS & STRATTON
á ÍSLANDI
MHG VERSLUN EHF 544-4656 - MHG.IS
ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
KROSSGÁTA Bændablaðsins
Lausn á krossgátu í síðasta blaði
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
TIPL RÓTA FÍKNI-EFNI HALD SNJÁLDUR YFIRRÁÐ BLÓMI
HÖFUÐ-
FAT
SLAGA
HANDA
SKYLDI
HÆKKAR
HVÍLD
Í VAFA
STARF
ÓSKIPTAN
EINRÆKTA
TEYMA
Í RÖÐ
HÆÐFLYSJA
RÁÐGERA
KEYRA
SJÁVAR-
SPENDÝR
ÓBEIT
DRÓS
FJÚK
MÁLMUR
GÆLU-
NAFN MILDA TIL
SMÁ-
MJAKA
DRYKKUR
HLJÓM
LIÐORMUR
ANDI
TIGNA
RÆNU-
LEYSI
MIKILL
FLAGA
ÓSOÐINN
SÆ
HÆLSIN
LYKT
SÁLDRADANSARI
ÓLÆTI
SKYLDA
NARSL
EINING
FLJÓT-
FÆRNI
FJALLSNÖF
RJÚKA
ERGJA
KOMAST
ANNRÍKI
EKKI
ÞEI
SKIPÍ RÖÐ
STORKUN
HAF
MJÖÐUR
PÍLA
ÓVILJANDI
ÁNA
SLYNGUR
KORR
NÁLEGA
HJÖR
SVELGUR
92
RÁÐAGERÐ VOÐ GRAS KRAFTUR DÚTLA ÍSHROÐI ÓLÆTI
SRÍKI Á D Í A R A B Í A
ÓTRAUÐUR F Ú S VEFENGJAGEIT E F A S T
LHLEMMUR O K H Y L U R AFTUR-KALLA
R U N U R STAMPURKVIÐSLIT K E R
B ORÐSTÍR NAFAR YFIRRÁÐEINNIG U M R Á Ð VERKFÆRI H A K I
KLAKIRA
GÁGISKUN
LYGNA
NÁ-
SKYLDUR
O F B O Ð DANS
FRAM-
KVÆMA
ÁSTÆÐA I N N A SEFAST FYRIR HÖND FÓÐAGOT
T R O G ÞRÁAÐGÆTA V O N A ÖRVERPIÁSAMT U R P TÍLÁT
N Æ R BANDHAGGA G A R N
HANGSA
DULAR-
BLÆR S L Ó R ANÁLÆGT
F G ELDSLÆGST B Á L S LÆKKAVAGN D A L A MILDUN ÁMÆLASKÓLI
I Ð N I
VEGNA
SNÖGG
SJÓÐA S Ö K U M BERJA S L Á
S
BÓK-
STAFUR
ÁI E F F
KNÚSAST
MÓÐURLÍF K E L A AÐMJÖG T I L
K A Ð A L L TÁKNASPRIKL R Ú N A ÁTTSAMTÖK N AREIPI
U
R
F
I
S
T
ÓRÓI
FLAT-
ORMUR
Ó
A
E
G
I
Ð
R
A
Ð
ÁLPAST
ÓBUNDINN
F
L
L
A
A
U
N
S
A
ÞAKBRÚN
BÓK
DUGNAÐUR
91
Það borgar sig að hafa minni felgur undir bílunum:
Of stórar felgur eyðileggja aksturseiginleika
á slæmum vegum og geta valdið miklu tjóni
Svona dekk á álfelgu gefur ekki mikla fjöðrun á malarvegi eða í malbiks-
skemmdri götu.