Bændablaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 35

Bændablaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. september 2018 35Lífræn ræktun á Íslandi 7 Kjartan Ágústsson bóndi og kennari segist kenna vegna félagsskapar, vera í rabarbararækt fyrir mögulegan aur og með sauðfé til að fá hreyfingu. „Ef ég vildi græða peninga væri ég örugglega ekki með sauðfé og ekki heldur kennari en rabarbaraútgerðin gæti gefið af sér. En störfin eru öll skemmtileg. Kennslan hentar mér ágætlega með rabarbararæktinni og sauðféð er mér til ánægju. „Það eru ekki margir sem selja ferskan rabarbara í dag. Ég er með rúman hálfan hektara undir rababararæktina sem hefur verið í ræktun á Löngumýri síðan 1932. Eiríkur afi minn seldi rabarbara til Sölufélagsins í 5 kg pokum og fyrsta launaða starfið mitt var þegar ég tók við rabarbararæktinni 1971 þá 16 ára. Ég seldi líka til Sölufélagsins og sölulaunin notaði ég til að borga hluta af skólagöngu minni og átti vasapening yfir veturinn. Uppskeran nærri 10 tonn á ári Öll jörðin, túnin og rabarbarinn eru lífrænt vottuð. Rabarbaraakurinn er rúmlega 5000 fermetrar og tvisvar yfir sumarið er uppskorið, í júní og í september. Kjartan notar jarðgerðan sauðfjáráburð. Blöðin á rabarbaranum eru skilin eftir á akrinum þegar rabarbarinn er uppskorinn til að hylja moldina og halda illgresinu niðri. Uppskeran er eilítið misjöfn á milli ára en allt að 10 tonnum þegar búið er að hreinsa leggina, saxa þá í bita og pakka í frystinn. Rabarbía þekkt vörumerki Dóra fyrrverandi kona Kjartans og hann unnu að lífrænni þróun og vöruþróunarverkefni í samvinnu við Listaháskólann og var sú vinna farsæl og gaf af sér vörulínu sem starfsemin byggir á í dag. „Vörumerkið okkar Rabarbía er orðið nokkuð þekkt. Við framleiðum undir því fjórar gerðir af sultum, rabarbarakaramellur, fílfa- og grenisíróp. Í sultunum er uppistaðan rabarbari og í þremur þeirra eru til íblöndunar hvönn, aðalbláber og svo jarðarber og engifer,“ segir Kjartan og þegar við ræðum sykurmagnið þá segir hann að það sé ekki til siðs lengur að vera með kíló á móti kílói eins og var áður fyrr. „Nú er notað lágmarks sykurmagn til að ná bragðgæðum og endingu.“ Afurðin seld í sérverslunum Vörudreifinguna sér Kjartan sjálfur um og nýtir hann ferðirnar þegar hann á leið í bæinn og sendir svo út á land. Sölustaðir eru ýmsar sérverslanir út um allt land. Hann selur m.a. í sælkeraverslanir, ostabúðir, Vínberið á Laugaveginum, Melabúðina, Frú Laugu og á Suðurlandi í Guðna bakarí og Almarsbakarí. Í Borgarfirði er Rabarína fáanleg í Landnámssetrinu, Gamla bakaríinu á Ísafirði og á Akureyri í Flóru og í Icewear í Vík. Auður I. Ottesen Friðrik Jóhannsson, bóndi og bóndasonur á Brekkulæk í Húnavatnssýslu hefur verið með lífræna sauðfjárræktun siðan 2002. Hann segir að lífræna ræktunin hafi verið fikt í byrjun en eftir nám í Järna í Svíþjóð árið 1991 tileinkaði hann sér lífræna ræktunarlífstílinn. „Ég var ekki í búskap um tíma ekki fyrr en árið 2002 en það ár sótti ég um lífræna vottun og þá fór boltinn að rúlla. Túnin höfðu verið í hvíld síðan 1997 þannig að ekki þurfti að aðlaga þau.“ Friðrik er með vottun á sauðfjárræktina, hann er með 130 ær og notar skítinn frá þeim á túnin. Hann er þokkalega ánægður með sprettuna en segir að hann gæti verið að gera miklu meira til að auka frjósemina í túnunum en það kostar bæði pening og tíma. „Bændur í lífrænni ræktun glíma við að fá sanngjarnt verð fyrir vöruna og njóta sanngirni. Ég sel mitt kjöt sjálfur í áskrift beint frá býli til að hafa eitthvað út úr þessu,“ segir Friðrik sem að auki selur kjötið í nokkrum verslunum. „Ég er með kjöt hjá „í Bændum í bænum“ og hjá söluaðilum hér á heimaslóðum. Ég sel heila skrokka, beint í áskrift, sem ég læt saga eftir ósk neytandans. Læri, kótellettur, ribeye, framhryggur og hakkið er vinsælast.“ Auk fjábúskaparins er Friðrik er mikilvirkur í skógrækt. Í skógræktinni vaxa sveppir og íslenskar jurtir og er hann með vottun á vinnslu sveppanna og jurtanna. Hann þurrkar sveppina og blóðbergið í te sem hann notar til eigin brúks og er með til sölu í neytendapakkningum. Áður en Friðrik er kvaddur þá er tilheyrandi að spyrja bóndasoninn hvernig hann vilji fá lambið sitt matreitt. „Uppáhaldsuppskriftin mín er hægeldað lambalæri. Set ofninn á mjög mikinn hita í byrjun en svo lækka ég hann og læt kjötið malla í nokkra tíma. Best þykir mér að krydda lærið með pínu salti, pipar, hvítlauk og blóðbergi úr skóginum og sveppirnir þaðan fara í sósuna.“ Áhugasamir geta sent Friðrik línu og pantað beint frá bónda á rik@simnet.is. Auður I. Ottesen Lambakjöt beint frá býli RABARBÍA SLÆR Í GEGN Afurðirnar frá Vallanesi á Fljótsdalshéraði eru vel þekktar en þaðan hafa bygg, grænmeti og fullunnar vörur borist til verslana á Íslandi um árabil. Eymund Magnússon í Vallanesi þekkja flestir fyrir frumkvöðlastarf á sviði kornræktar en Vallanesbúið var eitt það fyrsta á Íslandi til að endurvekja kornrækt á Íslandi þegar skilyrði tóku að batna á níunda áratugnum. Í byggi og heilhveiti er ræktunin nú stöðug og nýverið bættist ræktun á repju við akuryrkjuna sem fer fram í stórum stíl á um 50 hektara ræktarlandi. Eymundur og kona hans Eygló Björk Ólafsdóttir rækta og nýta hátt í 100 ólíkar tegundir af plöntum sem ýmist eru seldar ferskar til veitingahúsa og sérverslana eða til að fullvinna vörur sem markaðssettar eru undir vörumerkinu Móðir Jörð. Markmið þeirra hjóna er að auka verðmætasköpun úr lífrænt ræktuðu hráefni sem upprunnið er á Íslandi. „Megin hráefnið í vörum okkar þarf að vera hægt að rækta hér en ef verðum við lens þá leitum við til annarra lífrænna ræktenda hér á landi og höfum keypt á hverju ári rótargrænmeti frá öðrum. Með vaxandi sölu á byggi og öðrum kornvörum sjáum við fyrir okkur að við þurfum að stofna til samstarfs við aðra til að anna eftirspurn,“ segir Eymundur. Hann segir þau, enn sem komið er, vera eini lífrænt vottaði kornræktandinn á landinu“ Hringnum lokað Vöruþróun er þeim hjónum hugleikin og hafa þau farið ýmsar leiðir til að fullvinna grænmeti en undanfarin 5 ár hafa þau til að mynda framleitt ýmsar tegundir af gerjuðu grænmeti, súrkáli, sem selt er í matvöruverslunum víða um landið en auk þess hafa þau stundað útflutning til Bretlands. „Það er mjög umhverfisvænt módel að hafa ræktun og fullvinnslu á sama stað, því þannig nýtist hráefnið betur auk þess sem afskurður og plöntuleifar skila sér klárlega aftur í jarðveginn og þannig nýtist allt að fullu. Fullvinnslan er auk þess mikilvæg til að tryggja vinnu allan ársins hring og skapa störf því útiræktun er mjög óútreiknanleg á Íslandi og árstíðabundin. Vörulína okkar telur nú um 50 vörur í ýmsum vöruflokkum, kornvörur, bökunarvörur, sultur, súrkál, chutney og grænmetisréttir“ segir Eymundur. Verslun og veitingastofa í Vallanesi Nýja viðfangsefnið þeirra er nýleg opnun verslunar og veitingastofu í Vallanesi í Asparhúsinu sem er sérstaklega byggt sem hjarta staðarins úr viði úr skógrækt staðarins. Þar er boðið upp á grænmetisrétti frá morgni fram eftir degi og hádegishlaðborð sem tekur mið af árstíðunum. „Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt verkefni og það má segja að með opnun Asparhússins komi allt saman á einum stað, saga starfseminnar, afurðirnar og fólkið. Húsið er afurð skógræktarinnar og vettvangur til að njóta matarins sem ræktaður er á býlinu. Þetta er auk þess vettvangur til frekari vöruþróunar og kynningar á starfsemi Móður Jarðar auk þess að þjóna ferðaþjónustunni á staðnum“ segir Eygló. Móðir Jörð – Vallanesi Lífrænir ræktendur dreifast um allt land. Einn af fulltrúum Austurlands er Björn Guðmundsson á Bakkafirði. Hann er stórtækur í kartöflurækt og ræktar ýmsar grænmetistegundir á sex hekturum lands. Kartöflurnar hefur hann ræktað í fjögur ár og er með þrjú svæði í skiptiræktun. Í tvö ár kartöflur og svo grænmeti. „Ég er byrjaði að rækta skarlottulauk og vorlauk og bætti svo við hvítlauk sem gengur mjög vel að rækta utandyra. Ég er sólginn í hann en uppskeran varð svo góð í fyrra að ég seldi í Frú Laugu um 15 kíló af hvítlauk. Ég rækta töluvert af kryddi, mest af dilli og gulrætur á nokkuð stóru svæði,“ segir Björn sem hefur verið að gera tilraunir með ræktun á tómötum, agúrku og í sumar seldi hann heimamönnum um 5000 sumarblóm. „Ég á 400 fm gróðurhús sem ég stefni á reisa fyrir veturinn og ef að það tekst vel fer allt á fullt. Ég hef verið að prófa að rækta sætar kartöflur úti í beði undir dúk, það er ekki að ganga þannig að ég ætla með þá ræktun inn í gróðurhúsið og rækta vor- og skarlottulauk á móti.“ Björn lauk aðlögun fyrir kartöfluræktina hjá Vottunarstöðinni Túni haustið 2017 og fékk þá leyfi til að nota vottunarmerki Túns. „Úttektin var svo í mars 2018. Ég er líka með vottun fyrir pökkun og stefni á að fá vottun fyrir alla mína framleiðslu,“ segir hann og upplýsir að sérstaða hans sé sú að hann verkar fiskislor í 100 lítra kerjum með sérhæfðri aðferð og býr til þrumu góðan áburð. „Áburðurinn er ægilega sterkur og ég nota hann til íblöndunnar í kartöflu og matjurtabeðin.“ Afurðirnar selur hann heima við og til heildsala, Bananar og Krónan kaupa af honum kartöflur og grænmeti selur hann í Frú Laugu í Reykjavík. Auður I. Ottesen STÓRTÆKUR KARTÖFLU- BÓNDI Á AUSTURLANDI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.