Bændablaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 41

Bændablaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. september 2018 41 – Hvað með karla, af hverju er þeim ekki hleypt inn í félögin í meira mæli? „Sums staðar eru karlafélög og karlaklúbbar þar sem konum er ekki hleypt inn. Ég veit að í gegnum tíðina hafa eiginmenn félagskvenna og aðrir karlar unnið sjálfboðnir og stutt starf kvenfélaganna á ýmsan hátt. Hvert kvenfélag ræður sinni starfsemi en ég held að körlum væri ekki meinuð innganga í kvenfélag ef þeir vildu ganga í það og taka þátt í starfsemi þess. Það eru að því er ég best veit tveir karlar í kvenfélögum innan SSK.“ – SSK lætur gott af sér leiða, þið hafið styrkt Heilbrigðisstofnun Suðurlands mikið í gegnum árin. Hefur þú einhverja hugmynd um hvað þessi upphæð er orðin há og af hverju leggið þið svona mikla áherslu á HSU? „Frá árinu 1999 og til þessa dags hefur Samband sunnlenskra kvenna gefið til HSU gjafir úr Sjúkrahússjóði SSK fyrir um 25 milljónir króna (ekki framreiknað til núvirðis). Þá eru algjörlega ótaldar allar þær gjafir sem kvenfélögin hvert og eitt hafa gefið til heilsugæslustöðva, öldrunarheimila og sjúkrahússins. Sjúkrahússjóðurinn var stofnaður árið 1952 og í hann er árlega aflað fjár með jólakortasölu og nú hin síðustu ár hafa einnig verið seldir litlir glerenglar sem nefndir eru Kærleiksenglar.“ Sjúkrahúsið er óskabarn SSK Elinborg segir að sjúkrahúsið hafi verið óskabarn SSK alveg frá stofnun þess og öllum kvenfélagskonum er ljóst mikilvægi þess að geta haldið uppi góðu þjónustustigi í heilbrigðismálum á Suðurlandi. „Kvenfélagskonur létu t.d. vel til sín heyra fyrir nokkrum árum með fundarhöldum, bréfaskriftum og undirskriftasöfnun þegar til stóð að draga verulega saman í málefnum sjúkrahússins og flytja starfsemi til Reykjavíkur. Við reynum m.a. að standa vörð um málefni kvenna og leggja fram fjármuni til tækjakaupa svo konur með eðlilega meðgöngu geti óhræddar fætt börn sín hér á sjúkrahúsinu og notið hér bestu aðhlynningar. Kvenfélagskonur hafa líka í nokkur ár prjónað húfur o.fl. til að gefa öllum nýburum á svæðinu. Með fjármagni úr Sjúkrahússjóðnum hefur líka verið stutt við ýmis tækjakaup, bæði á göngu- og bráðadeild sjúkrahússins, ásamt því að gefin hafa verð meðferðarstóll, sjúkrarúm o.fl.“ – Hvernig ætlið þið að fagna 90 ára afmælinu? „Yfirskrift afmælisársins er „Forvarnir – lykill að bættri lýðheilsu“. Við vitum að lýðheilsa snýst um að rækta vel bæði huga og líkama ásamt því að huga vel að umhverfi sínu. Við höfum hvatt til að kvenfélagskonur eigi saman bæði gleði- og gæðastundir og meti vel auðlegðina sem felst í samstarfi í öllu félagsstarfinu. Í tilefni af afmælisárinu efndum við til fjögurra daga hópferðar til Hollands í byrjun maí. Við fórum 49 kvenfélagskonur úr 13 kvenfélögum í algjörlega ógleymanlega ferð. Þar heimsóttum við m.a. hollenskar kvenfélagskonur sem hafa komið tvisvar sinnum hingað til okkar á Suðurlandið. Þær hollensku tóku mjög vel á móti okkur á herragarði og voru þar í þjóðbúningum. Síðan fylgdu tvær þeirra með okkur í rútunni um svæði þar sem voru blómstrandi túlípanaakrar í öllum regnbogans litum. Haldið upp á afmælið 30. september „Við gefum nú í september gjöf úr Sjúkrahússjóðnum frá öllum kvenfélögunum til fæðingardeildar HSu fyrir um 3,5 milljónir í tilefni af afmælisárinu. Þetta eru þrjú tæki, þ.e. Monitor, glaðloftstæki og POX mælir. Síðan ætlum við að halda upp á sjálfan afmælisdaginn sunnudaginn 30. september með samkomu í Haukadalsskógi og á Hótel Geysir. Við vonumst eftir því að allar kvenfélagskonur á sambandssvæðinu taki sér tíma til að mæta í afmælið. Við ætlum að byrja afmælishátíðina í bálhúsinu og halda síðan í létta skógargöngu og flytja okkur síðan inn á hótelið í meiri formlegheit. Ef næg þátttaka fæst ætlum við að efna til rútuferða sem hefjast á Hvolsvelli og í Þorlákshöfn og taka upp farþega á ákveðnum stöðum á leiðinni í Haukadal. Bréf um þetta hefur verið sent út til allra formanna kvenfélaganna.“ – Hvernig sérðu SSK þróast næstu 90 árin? „Ég sé Samband sunnlenskra kvenna halda áfram að þroskast eins vel og hingað til. Ég held að gömlu rótgrónu gildin verði áfram við lýði, þ.e. að láta til sín taka og láta sig varða málefni sem vantar stuðning, hvort heldur það er í líknar-, umhverfis- eða menningarmálum. Lýðheilsurannsóknir sýna að það að starfa í kvenfélagi hefur jákvæð áhrif á heilsu,“ segir Elinborg, formaður SSK. /MHH Hjá okkur færðu allt fyrir háþrýstiþvottinn Skeifunni 3h Sími: 588 5080 ll dynjandi.is Mynd tekin af nokkrum fyrrverandi formönnum SSK 30. september 2008, frá vinstri: Guðrún, Drífa, Rosmarie, Sigurhanna, Halla og Þórunn Drífa. SSK styrkti lögregluna í Árnessýslu um kaup á fíkniefnahundi í apríl 2007 en það var hundurinn Bea, sem er hér með umsjónarmanni sínum, Jóhönnu Eivinsdóttur Christiansen. Fram undan er Landssamband- s þing KÍ sem verður haldið á Húsavík dagana 12.–14. október nk. Yfirskrift þingsins er „Fylgdu hjartanu“ og þar verða fluttir margir áhugaverðir fyrirlestrar á víðum grunni um það málefni. Kvenfélagasamband Íslands hefur aðsetur og er einn eigenda að Kvennaheimilinu á Hallveigarstöðum. Ánægjulegt er að geta þess að núverandi forseti KÍ, Guðrún Þórðardóttir, er félagi í Kvf. Grímsneshrepps og kemur því úr röðum Sambands sunnlenskra kvenna. KÍ lætur til sín taka í ýmsum málefnum og má þar nefna umhverfismál, matarsóun, fatasóun, hagsmunagæslu um hag heimilanna, umsagnir um frumvörp er varða málefni kvenna, barna og heimila, stuðning við beinverndarmál, almannaheill o.fl. Innan KÍ eru starfandi alls 17 héraðssambönd með um 154 kvenfélög. BS ritgerð sem unnin var árið 2016 af Rebekku Helgu Pálsdóttur nefndist Kvenfélögin og samfélagið. Þar vinnur hún upplýsingar úr ársskýrslum kvenfélaga og fjallar um gjafir kvenfélaga á landinu á 10 ára tímabili (2006- 2016). Aðeins höfðu 57% félaga skilað ársskýrslum þessara ára en heildarverðmæti þeirra gjafa var um hálfur milljarður króna svo eflaust er hægt að tvöfalda þessa upphæð. Langstærstur hluti þessara gjafa rann til líknarmála og næst komu menntamálin. Hægt er að spyrja sig; hvar væru heilbrigðisþjónusta og skólakerfi landsins stödd ef gjafir kvenfélaganna nyti ekki við? Landssamband KÍ á Húsavík í október adnæB
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.