Bændablaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 28

Bændablaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. september 201828 Aðalfundur Hvanneyrarbúsins ehf. var haldinn þann 29. ágúst sl. Í stjórn félagsins eru Baldur Helgi Benjamínsson búfjár- erfðafræðingur en hann tók við stjórnarformennsku af Þóroddi Sveinssyni lektor í apríl síðast- liðnum. Ólöf Ósk Guðmundsdóttir, námsbrautarstjóri Búfræðibrautar, kom þá einnig í stjórn í stað Auðar Magnúsdóttur sem hefur látið af störfum hjá Landbúnaðar- háskólanum. Auk þeirra sem þegar eru taldir situr Pétur Diðriksson, bóndi á Helgavatni í Þverárhlíð, í stjórn félagsins. Bústjóri er Egill Gunnarsson og fjósameistari er Hafþór Finnbogason. Hafsteinn Ingi Gunnarsson er sumarstarfsmaður og sér um afleysingar á búinu. Félagið er í eigu Landbúnaðarháskólans og fer rektor með atkvæðisrétt í því. Fundargerðir og ársreikningur félagsins eru birtar á heimasíðu Landbúnaðar háskólans, lbhi.is. Eitt afurðahæsta bú landsins Tilgangur félagsins er að reka á hagkvæman hátt kúabú á Hvanneyri í þágu kennslu og rannsóknastarfs Landbúnaðarháskóla Íslands. Innlögð mjólk árið 2017 var 540.994 lítrar með 3,85% fitu og 3,18% próteini, mfm líftölu var 19 og mfm frumutölu 169. Árskýr á búinu voru 73,1 sem að meðaltali skiluðu 8.180 kg mjólkur, með 3,79% fitu og 3,23% próteini. Undanfarin ár hefur verið lögð rík áhersla á að auka afurðasemi með hagkvæmum hætti og bæta fóðurnýtingu. Árið 2017 var kjarnfóðurnotkun 284 g pr. innlagðan lítra mjólkur, árið áður var notkunin 310 g pr. innlagðan lítra. Tún, engjar og grænfóðurakrar búsins eru um 170 ha. Hagnaður 3,1 m.kr. árið 2017 Rekstur félagsins gekk vel á árinu 2017 og var í samræmi við áætlanir sem stjórnendur þess lögðu upp með. Heildartekjur félagsins voru 83,7 m.kr. og jukust lítillega frá fyrra ári og hagnaður þess var 3,1 m.kr. Áætlun þessa árs gerir ráð fyrir áframhaldandi góðu jafnvægi í rekstri félagsins og auknum fjárhagslegum styrk þess. Eigið fé félagsins jókst talsvert á árinu og var það 21,2 m.kr. í árslok 2017. Frá því að rekstur félagsins var færður í núverandi horf árið 2015 hefur afkoma og eiginfjárstaða þess þróast með jákvæðum hætti, eins og sjá má á myndunum hér að neðan. Talsverð endurnýjun og viðhald Félagið lagði í talsverðar fjár fest- ingar á árinu, aðal- dráttarvél búsins var endurnýjuð og önnur notuð dráttarvél var keypt, ásamt afrúllara og ýmsum öðrum tækjum, notuðum og nýjum. Áfram var unnið af krafti í jarðabótum og endurræktun Hvann- eyrar jarðarinnar. Á undan förnum tveimur árum hefur verið hreinsað upp úr 6,1 km af skurðum, 14,5 ha hafa verið kýfðir og annað eins verið kílplægt. Legubásamottur í fjósi hafa verið endurnýjaðar. Félagið uppfyllir áfram skilyrði Auðhumlu svf. um Fyrirmyndarbú. Á fagþingi nautgriparæktarinnar sem haldið var sl. vor, veitti fagráð í nautgriparækt Hvanneyrarbúinu ehf viðurkenningu fyrir besta kynbótanautið í árgangi 2010. Var það nautið Úranus 10081, sem fæddur var á Hvanneyri 21. nóvember 2010, undan Urði 1229, Laskadóttur og Síríus 02032. Nýr mykjutankur reistur Á árinu 2017 var hafinn undir- búningur að endurnýjun á mykju- geymslu við fjósið á Hvann eyri og var nýr 2.300 rúmmetra mykjutankur reistur þann 4. september sl. Landbúnaðarháskólinn greiðir stofnkostnað við tankinn og er tilkoma hans mikið framfaraskref í umhverfismálum sem stuðlar að betri nýtingu næringarefna, bættri vinnuaðstöðu starfsmanna og jákvæðri ásýnd búsins. Stjórnin vill þakka starfsmönnum félagsins og skólans samstarfið á árinu og óska þeim til hamingju með góðan árangur í rekstri búsins. Jafnframt er fráfarandi stjórnarmönnum þökkuð góð og ötul störf í þágu félagsins. /BHB Stjórn og bústjóri Hvanneyrarbúsins ehf., ásamt Sæmundi Sveinssyni rektor og Theodóru Ragnarsdóttur rekstrarstjóra og Þóroddi Sveinssyni, lektor og fyrrverandi stjórnarformanni félagsins, á aðalfundi þess 2018. Rekstur Hvanneyrarbúsins gengur vel: Áhersla á að auka afurðasemi á hagkvæman hátt og að bæta fóðurnýtingu FÓLK&FYRIRTÆKI Á Hvanneyrarengjum. Meindýraeyðir Hvanneyrarbúsins, fjóskötturinn Rjómi. Styrkir þróunarverkefna í nautgriparækt, sauðfjárrækt og garðyrkju Framleiðnisjóður landbúnaðarins Hvanneyri – 311 Borgarnes Sími 430-4300 Framleiðnisjóður landbúnaðarins auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki til rannsókna og þróunarverkefna í nautgriparækt, sauðfjárrækt og garðyrkju samkvæmt reglugerð um almennan stuðning við landbúnað nr. 1180/2017. Í nautgriparækt eru þau verkefni styrkhæf sem talin eru styrkja íslenska nautgriparækt og fela í sér rannsóknir og þróunarverkefni. Í sauðfjárrækt eru hver þau verkefni styrkhæf sem talin eru styrkja íslenska sauðfjárrækt og falla undir það að vera kennsla, rannsóknir, leiðbeiningar og/eða þróun í sauðfjárrækt. Í garðyrkju eru styrkhæf ráðgjafarverkefni, kynningarverkefni, rannsókna- eða tilraunaverkefni, vöruþróunarverkefni og endurmenntunarverkefni. Reglur um styrkina og umsóknareyðublöð er að finna á www. fl.is/þróunarfé. Aðeins er tekið við umsóknum á eyðublöðunum sem þar er að finna Umsóknum skal skilað til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, Hvanneyrargötu 3, 311 Borgarnesi merktum: Umsókn um þróunarfé. Umsóknarfrestur er til 1. október n.k. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu sjóðsins í síma 430 4300 og á netfangið fl@fl.is.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.