Bændablaðið - 20.09.2018, Page 19
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. september 2018 19
fagurskapaðar og geðprúðar eiga nú
sóma síns vegna og í þágu íslenska
hrossastofnsins hér á landi að hugsa
vel sinn gang og koma merum
undir Ellert. Þannig er best tryggt
að þessi eiginleiki festist og nýtist
í stofninum.
Nú liggur þegar fyrir í grófum
dráttum hvaða áhrif Ellert hefur í
samspili við einlitar hryssur. Seinna
kemur í ljós hvaða áhrif hann hefur
þegar hann fer að blanda þessum
einstöku erfðum sínum við genasafn
hryssa sem bera önnur litmynstur.
Það eru margir möguleikar í spilinu.
Ellert hefur þegar þetta er ritað
eignast átta afkvæmi og fjögur
þeirra eru einlit á hefðbundinn hátt,
en hin fjögur eru ýruskjótt, eins
og Ellert og bera mynstrið með
brúnum, móálóttum og bleikálóttum
grunnlit. Eiginleikinn virðist því
erfast svokölluðum ríkjandi erfðum,
eins og grátt, litförótt og skjótt
gera. Þegar hann fyljar eru sem
sagt helmings líkur á því að fylið
fái ýruskjótt mynstur. Sömuleiðis
bendir grunnlitasafnið í folöldum
hans til þess að ýruskjótt mynstur
geti komið fyrir með hvaða grunnlit
sem vera skal.
Frábær sem reiðhestur og
skapgæðingur
Baldur Eiðsson, eigandi Ellerts,
og hans fólk hafa tekið ákaflega
skynsamlega á uppeldi og notkun
hestsins og eiga hrós skilið fyrir. Þau
hafa séð til þess að hann var ekki
seldur úr landi eða settur í gróðabrall,
heldur taminn vandaðri tamningu og
notaður heima og af skynsemi. Það
hefur leitt til þess að við vitum nú í
grófum dráttum, að hann er frábær
sem reiðhestur og skapgæðingur
og einnig hvernig hann nýtist best
til undaneldis með tilliti til þess
hvernig hann skilar litum og hinu
nýja litmynstri sínu. Nú er komið
að okkur hinum öllum, sem erum
gæslumenn íslenska hrossastofnsins
í samráði við eigendur Ellerts, að
sjá til þess að litmynstur hans
festist í stofninum og verði þar
til frambúðarnota. Það auðgar
erfðamengi stofnsins og er gull að
verðgildi. Nú ríður á að eigendur
úrvalsgóðra hryssa sæki sér fyl til
Ellerts og spili vel úr því sem þeir fá.
Einkum liggur sú siðferðilega skylda
á þeim sem mikið hafa sótt í stofninn
að undanförnu að nota þetta tækifæri
til að skila stofninum örlitlu til baka,
greiða vextina, ef svo má segja.
Páll Imsland
Vantar þig:
•
•
•
•
Sturla s. 899-3004
PIPA
R\TBW
A
• SÍA
•
183
0
89
ELKA fæst í verslun Rekstrarlands, Vatnagörðum 10, og hjá útibúum Olís um land allt.
VEL BÚINN MANNSKAPUR
VINNUR BETUR
Elka vinnu- og hlífðarfatnaður er lipur og þægilegur og tryggir
góðan hreyfanleika. Vertu viss um að velja rétta fatnaðinn fyrir
starfsfólkið þitt.
Söluráðgjafar Olís svara fyrirspurnum í síma 515 1100 og á pontun@olis.is.
SENDUM
HVERT Á LAND
SEM ER.