Bændablaðið - 20.09.2018, Page 20

Bændablaðið - 20.09.2018, Page 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. september 201820 „Engan þarf að undra að borgir og landsvæði þar sem bílafjöldinn er hvað mestur þurfi að upplifa mikla mengun frá ökutækjum. Ökutæki sem knúin eru af jarðefnaeldsneyti eru einn af stærri loftmengunarvöldunum í heiminum. Það kann því að koma einhverjum á óvart að því hægari sem umferðin er, því mun meiri er mengunin. Umferðarteppur eru því beinn orsakavaldur meiri mengunar.“ Þetta er ekki einhver íslensk bullspeki, heldur bein tilvitnun í nokkurra ára gamla grein Paul Sanders, sem skrifaði m.a. greinar fyrir Trans-Supply sem sér um að útvega ýmsan öryggisbúnað fyrir umferðarmannvirki, flugvelli og járnbrautir. Greinin birtist á vefsíðu Environmental Leader sem gefur sig út fyrir að birta fréttir af því sem best er gert í umhverfismálum í atvinnulífinu. Eins hafa margar umferðarannsóknir virtra stofnana, eins og York-háskóla og Imperial College í Bretlandi, á síðustu árum sýnt fram á skaðsemi hraðahindrana með tilliti til loftmengunar. Þar sem þetta eru alls ekki nýjar staðreyndir, þá hefði íslenskum umferðaryfirvöldum átt að vera fullkunnugt um þær. Samt mætti ætla annað af hönnun umferðarmannvirkja og framkvæmdaleysi við úrbætur á umferðarflæði á liðnum misserum og árum í mesta þéttbýli landsins. Bresk yfirvöld hafa nú valið þá leið að reyna að greiða fyrir umferð fremur en að draga úr hraða með hindrunum. Þann 7. september síðastliðinn tilkynntu bresk yfirvöld t.d. um þriggja milljarða punda verkefni til að liðka fyrir umferð í norðanverðu Englandi. Fínu hraðahindranirnar ekki góðar fyrir loftgæðin Í mars 1906 var í fyrsta sinn að talið er settar upp hraðahindranir til að hægja á umferð forhertra hestvagnaökumanna. Var það í bænum Chatham Borough í Bandaríkjunum. Hraðahindranir í líkingu við það sem við þekkjum í dag, sem liggja þvert yfir vegi, eru hins vegar uppfinning eðlisfræðingsins og nóbelsverðlaunahafans Arthur Holy Comton. Voru þessar hindranir kallaðar „Holly bump“. Síðar hafa þær oft verið kallaðar sofandi lögregluþjónar. Í kjölfarið var farið að setja slíkar hindranir upp um allan heim. Fyrsta hraðahindrunin í Evrópu er sögð hafa verið sett upp í bænum Delft í Hollandi árið 1970. Í rannsóknum York-háskóla og Imperial College, sem m.a. var greint var frá í The Telegraph sumarið 2016, kom fram að hraðahindrun sem dregur úr hraða framkallar óhjákvæmilega hraðaaukningu ökutækja í kjölfarið. Það veldur verulega aukinni mengun lofttegunda eins og CO2 og NO2 sem og skaðlegra agna en yrðu ef umferðarflæði væri jafnara. Því bæri að fjarlægja slíkar hraðahindranir, ekki síst við skóla og leiksvæði barna, enda væri mengun af þessu tagi sérlega skaðleg börnum. Þar kemur líka fram að auk þess sem hraðabreytingar bifreiða valda aukinni loftmengun, þá losa bílar sem bremsa vegna hindrananna frá sér skaðlegar agnir úr bremsu- borðum. Alastair Lewis, prófessor í efnafræði andrúmsloftsins við York- háskóla, sagði að rannsóknirnar hafi sannað að sú aðferð að neyða ökumenn til að hægja á sér og auka síðan hraðann að nýju á stuttum vegalengdum leiddi til aukinnar loftmengunar. „Það voru öryggissjónarmið sem leiddu til þess að hraðahindranir voru settar upp, en þá höfðu menn loftgæðin ekki í huga,“ sagði Lewis. Rannsóknir sýna allt að 98% aukna mengun nituroxíðs í hraðahindrunargötum Í rannsókninni sáu rannsakendur gríðarlegan mun á mengun eftir aðstæðum. Á götu í London sem var með hefðbundnar harðar hraðahindranir, jókst losun nituroxíðs (NO2) í bensínknúnum bíl um 64%. Þá jókst útblástur sótagna um 47% og koltvísýrings (CO2) um 60%, miðað við akstur í sambærilegri götu með því sem kallað er mjúkar hraðahindranir, „hraðapúðar“ eða „Speed Cushions“. Mjúku hindranirnar eru oft úr gúmmíi eða lítt upphleyptir flekar úr plasti. Einnig hafa menn notast við skynvilluhindranir, sem eru einfaldlega málaðar á götuna líkt og þrívíddargangbrautin fræga á Ísafirði. Þessum mjúku lausnum er fyrst og fremst ætlað að vara ökumenn við án þess að neyða þá til að hemla og draga um of á umferðarflæði sem veldur síðan aukinni mengun. Varðandi dísilbíla þá sýndu niðurstöður rannsóknarinnar enn meira sláandi tölur. Í þeim jókst útblástur nituroxíðs (NO2) um heil 98% í hefðbundinni hraðahindrunargötu. Þá jókst losun sótagna um 47% og koltvísýrings eða CO2 um 64%. Með hliðsjón af eyðslutölum og aukningu mengunar gæti þetta samsvarað því að 50 til 110 þúsund bensín- og dísilknúnum bílum hafi verið bætt á götur höfuðborgarsvæðisins. Bensíneyðslan jókst úr 7,3 lítrum á hundraðið í 11,7 Samtök bifreiðaeigenda í Bretlandi, The Automobile Association (AA), komust að mjög svipaðri niðurstöðu í sínum athugunum. Þar kom fram að bifreið sem eyddi 7,31 lítra á hundraðið á vegi sem var ekki með neinar hraðahindranir, jók eyðsluna í 11,74 L/100 km, eða um 60% á vegi sem var með hraðahindrunum. Benda samtökin líka á opinberar rannsóknir sem sýna að eldsneytiseyðslan tvöfaldaðist í bílum við að aka þar sem hraðahindranir eru. Milljónir dauðsfalla raktar til loftmengunar „Í mörgum löndum eru reknar sérstakar heilsuverndaráætlanir. Mengun í þéttbýli hefur verið að aukast á ógnvænlegum hraða samfara fólksfjölgun með tilheyrandi skaða fyrir heilsu fólks. Þetta er umfangsmikið mál og einn stærsti vandi sem við blasir um allan heim og tilheyrandi hræðilega háum kostnaði fyrir þjóðfélögin,“ sagði dr. Maria Neira á ráðstefnu Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar, WHO, sem haldin var í Genf 2016. Sagði hún að þrjár milljónir dauðsfalla utanhúss í heiminum mætti rekja til loftmengunar. Talið er að rekja megi um 5% dauðsfalla í Bretlandi, eða dauða um 25.000 einstaklinga, til loftmengunar á ári hverju. Sífelldar hraðabreytingar stórauka eldsneytisbruna Í fyrrnefndri grein Sanders segir einnig að það virðist vera rökrétt að ímynda sér að bíllinn þinn eyði þeim mun meira eldsneyti eftir því sem maður ekur hraðar. Staðreyndin er hins vegar að bifreiðar brenna mestu eldsneyti við að auka hraðann eða þegar tekið er af stað úr kyrrstöðu. Aftur á móti þegar haldið er jöfnum hraða til að vega upp vindmótstöðu, þá verður brennsla eldsneytis mjög stöðug. Það er fyrst þegar ökumaður þarf að aka í gegnum hindranir sem bifreiðin fer virkilega að svolgra á eldsneytinu. Þegar stöðugt er verið að hemla og taka af stað að nýju eykst eldsneytisnotkunin verulega og loftmengunin líka. Kolröng nálgun á Íslandi Þetta er mjög áhugavert með tilliti til hönnunar umferðarmannvirkja á Íslandi og hvað menn hafa verið að gera í þeim efnum á undanförnum árum, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu. Í Reykjavík hafa menn á nokkrum stöðum sett upp mjög ýktar stælingar úr stáli og steypu á því sem Bretar kalla mjúkar hraðahindranir eða hraðapúða. Þá hefur þeim líka verið komið fyrir á kolrangan hátt og oft með gatnaþrengingum að auki. Þar að auki eru þær stórhættulegar fyrir vélhjólamenn. Of lítill og of mikill hraði auka loftmengun Sambandið milli ökuhraða og mengunar er nokkurn veginn línuleg. Hins vegar hafa rannsóknir sýnt að þegar umferðarhraði á þjóðvegum fer niður fyrir 70 km hraða, þá eykst mengunin umtalsvert. Sömuleiðis eykst mengunin verulega þegar meðalhraðinn fer upp fyrir um 105 km hraða. Ekki er óalgengt FRÉTTASKÝRING Hörður Kristjánsson hk@bondi.is Hönnun umferðarmannvirkja á Íslandi með tilliti til umferðarflæðis og minni loftmengunar er verulega ábótavant: Hraðahindranir geta aukið mengun bíla um 47–98% – Gæti samsvarað áhrifum þess að bætt hafi verið 50 til 100 þúsund bensín- og dísilknúnum bifreiðum á götur höfuðborgarsvæðisins Þegar horft er á höfuðborgar- svæðið virðist augljóst að aðgerðar leysi varðandi endur- bætur á gatnakerfinu með tilliti til umferðarflæðis hefur stór- skaðað loftgæði. Umferð hefur aukist ár frá ári og stærstu aðgerðirnar í umferðarmálum á leiðum inn að borgarmiðju hafa að verulegu leyti falist í þrengingum gatna. Á hverjum virkum degi má sjá óslitna lest ökutækja flæða að háskólahverfinu í Vatnsmýri, Landspítalanum og að miðborg Reykjavíkur. Þessi óslitna bílaröð nær alla leið í Hafnarfjörð og upp í Mosfellsbæ. Tíminn sem þessar óslitnu hægfara bílalestir malla og spúa mun meiri mengun en annars þyrfti lengist stöðugt. Bæði á morgnana og eftir hádegi. Þannig stendur mesti umferðarþunginn í um tvo til þrjá klukkutíma bæði kvölds og morgna. Lítið heyrist hins vegar frá þeim sem ráða skipulagsmálum um að liðka eigi fyrir þessari umferð til að draga úr loftmengun. Þvert á móti hefur verið barist gegn endurbótum á gatnamótum eins og á mótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar, svo ekki sé talað um gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar. Töfralausnin virðist hins vegar vera að ríkið hækki kolefnisskatt á sumar tegundir bifreiða. Stórskaðlegt aðgerðarleysi Hér er ansi vel í lagt við gerð hraðahindrana í austurhluta Reykjavíkur með tilheyrandi aukinni mengun. Tvöfaldar háar hraðahindranir á báðum akstursstefnum. Spurning hvort hraðamyndavél og „mjúk“ hraðavörn væri ekki heppilegri. Rannsóknir sýna að útblástur og loftmengun frá bifreiðum getur hæglega tvöfaldast á götum þar sem mikið er um hraðahindranir.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.