Bændablaðið - 20.09.2018, Page 26

Bændablaðið - 20.09.2018, Page 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. september 201826 Bændablaðið birtir yfirlit um fjár- og stóðréttir. Listinn er unninn með þeim hætti að leitað er til sveitarfélaga um upplýsingar. Víða hafa bændur og ráðunautar lagt hönd á plóginn. Á örfáum stöðum eru gloppur í listanum þar sem umbeðnar upplýsingar hafa ekki borist. Á listanum er að finna upplýsingar um réttardaga og sumum tilvikum tímasetningar. Víða eru fyrri og seinni réttir og eru dagsetningar tilteknar í listanum þar sem við á. Heildarlista yfir fjár- og stóðréttir á landinu – auk Íslandskorts með staðsetningum þeirra – má finna á vef Bændablaðsins, bbl.is. Leitið til heimamanna Rétt er að minna á að villur geta slæðst inn í lista af þessu tagi og eins geta náttúruöflin orðið til þess að breyta þarf tímasetningum á smalamennsku og þar með réttarhaldi. Eru lesendur því hvattir til að hafa samband við heimamenn á hverjum stað til að fullvissa sig um réttar dag- og tímasetningar. Upplýsingar um viðbætur og leiðréttingar sendist á netfangið tb@bondi.is. Uppfærslur á listanum eru gerðar jafnóðum og eru aðgengilegar á vef Bændablaðsins, bbl.is. /TB Fjárréttir haustið 2018 Suðvesturland Hraðastaðarétt í Mosfellsdal seinni réttir sun. 30. sept. Kjósarrétt í Kjós seinni réttir sun. 7. okt. kl. 15.00 Krýsuvíkurrétt v. Suðurstrandarveg, Gullbr. laugardaginn 22. sept. kl. 13.00 Vesturland Bláfeldarrétt í Staðarsveit, Snæf. laugardaginn 22. sept. Brekkurétt í Norðurárdal, Mýr. seinni réttir sun. 23. sept. Fljótstungurétt á Hvítársíðu, Mýr. seinni réttir lau. 22. sept. Fróðárrétt í Fróðárhreppi Ekki réttað lengur. Grafarrétt í Breiðuvík, Snæf. laugardaginn 22. sept. Grímsstaðarétt á Mýrum, Mýr. seinni réttir mán. 24. sept. og mán. 1. okt. Hellnarétt í Breiðuvík, Snæf. laugardaginn 22. sept. Hítardalsrétt í Hítardal, Mýr. seinni réttir sun. 23. sept. og mán. 1. okt. Hólmarétt í Hörðudal, Dalabyggð mánudaginn 24. sept. Klofningsrétt í Beruvík, Snæf. sunnudaginn 23. sept. Langholtsrétt í Eyja- og Miklaholtshr. seinni réttir lau. 29. sept. Mýrdalsrétt í Hnappadal seinni réttir sun. 7. okt. Núparétt í Melasveit, Borg. seinni réttir lau. 22. sept. Oddsstaðarétt í Lundarreykjadal, Borg. miðvikudaginn 5. sept. kl. 9.00, seinni réttir sun. 30. sept. Ósrétt á Skógarströnd, Dal. föstudaginn 28. sept. Rauðsgilsrétt í Hálsasveit, Borg. seinni réttir sun. 30. sept. Reynisrétt undir Akrafjalli, Borg. seinni réttir lau. 29. sept. Svarthamarsrétt á Hvalfj.str., Borg. seinni réttir sun. 30. sept. Svignaskarðsrétt, Svignaskarði, Mýr. seinni réttir mán. 24. sept. Þverárrétt Eyja- og Miklaholtshr, Snæf. seinni réttir lau. 29. sept. kl. 16.00 Þverárrétt í Þverárhlíð, Mýr. seinni réttir mán. 24. sept. og mán. 1. okt. Ölkeldurétt í Staðarsveit, Snæf. laugardaginn 22. sept. Vestfirðir Arnardalsrétt í Arnardal í Skutulsfirði laugardaginn 22. sept. Grundarrétt í Reykhólahreppi, A-Barð. föstudaginn 21. sept. Hjarðardalsrétt í Hjarðardal í Dýrafirði laugardaginn 22. sept. Hraunsrétt við Hraun í Hnífsdal í Skutulsfirði laugardaginn 22. sept. Innri-Múlarétt á Barðaströnd, V.-Barð. sunnudaginn 23. sept. kl. 14.00 Kinnarstaðarrétt í Reykhólahr., A-Barð. sunnudaginn 23. sept. kl. 11.00 Kirkjubólsrétt í Steingrímsfirði, Strand. seinni réttir sun. 30. sept. Kirkjubólsrétt við Kirkjuból í Engidal í Skutulsfirði laugardaginn 22. sept. Kjósarrétt í Árneshreppi, Strand. laugardaginn 22. sept., kl. 12.00 Króksfjarðarnesrétt í Reykhólasv., A-Barð. laugardaginn 22. sept. Skarðsrétt í Bjarnarfirði, Strand. laugardaginn 22. sept. kl. 14.00 Skeljavíkurrétt í Steingrímsfirði, Strand. seinni réttir lau. 22. sept. Staðarrétt í Reykhólahreppi, A-Barð. föstudaginn 21. sept. Staðarrétt í Steingrímsfirði, Strand. seinni réttir sun. 23. sept. Stóra-Fjarðarhorn, Kollafirði í Strandabyggð seinni réttir lau. 29. sept. Traðarrétt við Tröð í Bjarnardal í Önundarfirði laugardaginn 22. sept. Norðvesturland Hvalsárrétt í Hrútafirði, Strand. seinni réttir sun. 30. sept., kl. 13.00 Norðausturland Miðfjarðarrétt föstudaginn 21. sept. Austurland Melarétt í Fljótsdal, N.-Múl. laugardaginn 22. sept. kl. 13.00 Ormarsstaðarétt í Fellum, Fljótsdalshéraði sunnudaginn 23. sept. kl. 13.00 Suðurland Hraðastaðarétt í Mosfellsdal seinni réttir sun. 30. sept. Húsmúlarétt við Kolviðarhól, Árn. seinni réttir lau. 29. sept. kl. 14.00 Kjósarrétt í Kjós seinni réttir sun. 7. okt. kl. 15.00 Krýsuvíkurrétt v. Suðurstrandarveg, Gullbr. laugardaginn 22. sept. kl. 13.00 Landréttir við Áfangagil, Rang. fimmtudaginn 20. sept. Seljalandsréttir undir Eyjafjöllum, Rang. seinni smölun lau. 6. okt. Brúsastaðarétt í Þingvallasveit sunnudaginn 16. sept., kl. 17.00 Fossvallarétt við Lækjarbotna sunnudaginn 16. sept., kl. 11.00 Heiðarbæjarrétt í Þingvallasveit laugardaginn 15. sept. kl. 15.00 Hraðastaðarétt í Mosfellsdal sunnudaginn 16. sept. kl. 13.00, seinni réttir sun. 30. sept. Húsmúlarétt við Kolviðarhól laugardaginn 15. sept. kl. 14.00, seinni réttir lau. 29. sept. kl. 14.00 Kjósarrétt í Kjós sunnudaginn 16. sept. kl. 15.00, seinni réttir sun. 7. okt. kl. 15.00 Krýsuvíkurrétt v. Suðurstrandarveg, Gullbr. laugardaginn 22. sept. kl. 13.00 Selflatarétt í Grafningi mánudaginn 17. sept. kl. 10.00 Selvogsrétt í Selvogi, Árn. sunnudaginn 16. sept. kl. 9.00 Þórkötlustaðarétt í Grindavík laugardaginn 15. sept. kl. 14.00 Ölfusrétt í Reykjadal, Ölfusi sunnudaginn 16. sept. kl. 16.00 Samkvæmt fjallskilasamþykkt fyrir Landnám Ingólfs Arnarsonar nr.733/2012 eru seinni leitir tveim vikum síðar og er því réttað aftur í flestum framangreindum réttum dagana 29. sept.–1. október. Hafa skal í huga að tímasetningar leita og rétta geta breyst, einkum vegna veðurs. Helstu réttir í Landnámi Ingólfs Arnarsonar Auðkúlurétt við Svínavatn, A.-Hún. laugardaginn 22. sept. kl. 16.00 Árhólarétt í Unadal, Skag. föstudaginn 28. sept. Deildardalsrétt í Deildardal, Skag. föstudaginn 28. sept. Laufskálarétt í Hjaltadal, Skag. laugardaginn 29. sept. Melgerðismelarétt í Eyjafjarðarsveit laugardaginn 6. okt. kl. 13.00 Tungurétt í Svarfaðardal, Eyf. laugardaginn 6. okt. kl. 12.00 Unadalsrétt í Unadal við Hofsós, Skag. föstudaginn 28. sept. Undirfellsrétt í Vatnsdal, A.-Hún. laugardaginn 22. sept. kl. 9.00 Víðidalstungurétt í Víðidal, V.-Hún. laugardaginn 6. okt. kl. 11.00 Þverárrétt í Eyjafjarðarsveit laugardaginn 6. okt. kl. 10.00 Þverárrétt í Vesturhópi, V.-Hún. laugardaginn 29. sept. kl. 12.30 Stóðréttir haustið 2018 Mikill áhugi er fyrir stóðréttum ekki síður en fjárréttum. Hér er listi yfir þær stóðréttir sem upplýsingar lágu fyrir um þegar blaðið fór í prentun. Fyrirvari er gerður á að einhverjar villur kunni að hafa slæðst inn og verður þá reynt að bæta úr því í næsta blaði eftir því sem kostur er. Sömuleiðis eru ábendingar vel þegnar ef einhverjar réttir hafa orðið útundan í upptalningu blaðsins. /TB Hundur þessi var ættaður að norðan, en kom ungur að Hlíð í Gnúpverjahreppi til þeirra hjóna Lýðs hreppstjóra Guðmundssonar og Aldísar konu hans, og lifði þar til elli, virtur af meðhundum sínum fyrir afls sakir og vaxtar, og vel metinn af mennskum samsveitungum sínum sakir þess frábæra andlega atgervis, sem snemma bar á hjá honum. Þykir hlýða að hans sé hér að nokkru getið ef verða mætti að einhverju leyti til skemmtunar þeim sem opin hafa augun fyrir háttsemi dýranna en hinum til fróðleiks er hættir um of við að tala um „skynlausar skepnur“, og þá auðvitað tilfinningasljóar. Það er haft til marks um vit Hrings að hann þekkti nöfn manna á heimilinu. Væri honum t.a.m. sagt að vitja matar síns hjá einhverri af stúlkunum sem nafngreind var kom honum aldrei til hugar að snúa sér að neinni annarri. Hann var mannblendinn og hafði gaman af kirkjuferðum, og hafði því verið lokaður inni þegar fólkið fór til kirkju. Tók hann þá það ráð að hverfa brott af bænum þegar hann sá kirkjuferðasnið á fólkinu, en kom svo til þess einhvers staðar á leiðinni. Ef svo bar við að hann færi á bæ með manni og týndi honum, og væri maðurinn ókominn þegar Hringur kom heim aftur, þá lagðist hann á hlaðið, horfði í áttina er mannsins var von úr, og vildi ekki éta fyrr en maðurinn var heim kominn. Smalamennska er örðug frá Hlíð og smalaði Lýður bóndi stundum og Hringur með honum; var hann ófús að fylgja öðrum en Lýð, en fékkst þó til þess ef honum var skipað það. Einhverju sinni, er menn voru önnum kafnir við hirðingu, fór Lýður ekki að smala, og smalaði þá telpa þar á bænum er Anna hét; átti Hringur að fara meðhenni. Góðri stundu eftir að þau voru farin kemur Hringur til okkar þar sem við vorum að hlaða úr, leggst fram á lappir sér og er mjög makindalegur. Segir þá Lýður við hann og nokkuð snöggt: „Þú hefur svikið hana Önnu, Hringur. Þú verður að fara til hennar aftur!“ Eftir nokkra stund var Hringur horfinn, en kom svo um kvöldið með ærnar og Önnu. Hafði hann þá komið hlaupandi til hennar inni á miðju fjalli. Atvik þetta, sem nú var sagt frá, virðist mér greinilega lýsa því sem nefnt er hugsun þegar um menn er að ræða. Allir hundar skilja þegar þeir eru sneyptir, en afburðir Hrings lýsa sér í því að honum hugsast fyrir hvað hann er sneyptur, og að hann geti bætt aftur það sem hann hafði brotið. Enn má nefna til eitt dæmi sem sýnir að Hringur skildi mannamál. Það bar stundum við að Lýður sat á rúmi sínu og mælti: „Það er þá orðið mál fyrir mig að fara að smala,“ og þó að hann gætti þess að sýna ekki á sér neitt fararsnið, þá labbaði Hringur út og upp fyrir tún, og beið þar húsbónda síns. Ýmislegt fleira mætti telja til að sýna hver vithundur Hringur var, en verður það þó ekki gert hér. Þó að ekki verði því neitað að skepnur eins og Hringur séu nokkuð viti bornar, þá væri samt af tvennu illu í rauninni réttara að tala um vitlausar skepnur en skynlausar. Því að skynjun, það er eins og kunnugt er sjón, heyrn o.s.frv., og skynsemi það þýðir eiginlega: að geta séð, heyrt, kennt þef o.s.frv. En jafnvel sá maður sem best sér er þó sjóndapur sé farið í jöfnuð við örn eða gamm, og allra þefvísustu menn eru þeflausir að heita má hjá hverjum meðalhundi. Mundu því þessi dýr, ef þau hefðu málið til þess, að öllum líkindum kalla oss mennina skynlausar skepnur. /Úr bókinni Forustu Flekkur SÖGUR &SAGNIR ÚR SVEITINNI Hringur Félag sauðfjárbænda í Strandasýslu stendur fyrir héraðssýningu á lambhrútum laugardaginn 6. október nk. Sýningarhald verður á tveimur stöðum vegna varnarlínu sauðfjárveikivarna. Norðan varnarlínu hjá Ragnari og Sigríði á Heydalsá en sunnan varnarlínu hjá Gunnari og Þorgerði í Bæ. Sýndir verða dæmdir lambhrútar í flokkum hyrndra, kollóttra og mislitra. Hverju búi er heimilt að koma með allt að 5 hrúta sem bóndi velur sjálfur til þáttöku. Skrá þarf þátttöku hjá Samson á netfangið samsonastro@gmail.com eða í síma 690-0475 fyrir fimmtudaginn 4. október. Skrá þarf ætterni og stigun grips. Dómar hefjast kl. 11 að norðan og kl. 15 fyrir sunnan. Veittar verða viðurkenningar og verðlaun þegar dómnefnd lýkur störfum sunnan varnarlínu. Einnig verður veittur farandbikar í lok sýningar. Heimilt er að koma fallegar gimbrar á sýninguna. Best væri að börn 14 ára og yngri sýndu þær. Veittar verða viðurkenningar í gimbrarflokki í lok sýningar á hvorum stað. Bændur eru hvattir til að mæta til þáttöku svo sýningin verði sem veglegust. Nefndin Héraðssýning laugardaginn 6. október bbl.is F bace ook

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.