Bændablaðið - 20.09.2018, Page 34
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. september 201834 Lífræn ræktun á Íslandi6
Í Hænuvík við Patreksfjörð er friðsælt og einstakt að koma. Utan bæjarhúsanna og túnanna í kring er útsýni til fjalla og
niður í hvíta fjöruna þar sem selir velta sér í
sólinni. Í þessu mikilfenglega umhverfi reka
þau Guðjón Bjarnason og María Ólafsdóttir
fjárbú ásamt dætrum sínum, sem og
ferðaþjónustu sem notið hefur vinsælda.
Launin ekki há en hlunnindin nokkur
Guðjón er sauðfjárbóndi með 250 hausa á
veturna. Hann segir að afurðirnar gefi þeim
120.000 króna mánaðarlaun samkvæmt
framtalinu. „Launin eru ekki há en
hlunnindin á jörðinni nokkur eru nokkur. Við
erum sjálfbær með kjöt og fisk ofan í okkur
og erum með rafstöð sem sér okkur fyrir
rafmagni. Hún getur framleitt 40 kílówött
en við höfum ekki not fyrir það allt,” segir
Guðjón og þegar hann er spurður um hvað
hann fái fyrir skrokkinn þá dæsir hann. „Ég
fæ 6000-7000 krónur fyrir lambsskrokkinn
sem vegur um 17 kíló í Sláturhúsinu á
Blönduósi. Þetta er varla nokkuð, kjötverðið
til bænda lækkaði um 35% haustið 2017 og
hitt árið var lækkunin um 8-12%. Ég er orðin
rosalega þreyttur á þessum verðhringlanda
og mér sýnist hagur okkar ekki vera að
batna. Sauðfjárrækt borgar sig ekki, maður
er með féð til að skreyta náttúruna.“
Féð heilbrigðara í lífrænni ræktun
Um 4-5 ár eru síðan sauðfjárbúskapurinn
í Hænuvík var vottaður. Guðjóni finnst féð
hraustara eftir að hann fór yfir í lífræna
ræktun. Áður notaði hann ormalyf 2-3 á
ári en í dag dugar ein gjöf. Féð hreyfir sig
meira og kemst út ef vel viðrar á veturna. Í
lífrænni ræktun má nota ormalyf einu sinni
á ári. Það kom honum á óvart að frjósemin
fór ekki niður þótt hann gæfi fénu engan
fóðurbæti en það er mælt með því. Eins
og kveðið er á um í vottuðum lífrænum
búskap ber Guðjón lífrænan áburð á túnin.
„Ég ber skít á túnin og sprettan er í engu
frábrugðin því sem var áður en við fengum
vottun. Ég slæ mín tún, nýti tún við Kollsvík
og túnin á Geitagili. Uppskeran af túnunum
er svipuð milli ára og svipaður rúllufjöldi
og var áður en hann fór í vottaðan lífrænan
búskap. Það kom mér á óvart.“
Auður I. Ottesen
SAUÐFÉÐ GEFUR
MESTAN ARÐ SEM
SKRAUT Í NÁTTÚRUNNI
Þau Berglind Häsler og Svavar Pétur Eysteinsson búa og reka gistihús, kaffihús og viðburðarsetur á
Karlsstöðum í Berufirði. Hún er alin upp
í veitingar- og hótelbransanum, starfaði
lengi í blaðamennsku og er nú komin í
sveitarstjórn í Djúpavogshreppi. Svavar er
grafískur hönnuður og gerir tónlist undir
nafninu Prins Póló.
Síðan þau fluttu á Karlsstaði árið
2014 hefur mikil uppbygging verið á
jörðinni í kringum ferðaþjónustu og
matvælaframleiðslu. Í hlöðunni halda þau
reglulega menningarviðburðir og þar er
einstakt kaffihús þar sem lagað er lífrænt
kaffi. Berglind og Svavar leggja sig fram um
að hafa á boðstólum lífrænt hráefni og bera
stolt á borð lífrænar kartöflur úr eigin ræktun.
Berglind segir að það væri ánægjulegt
að vera með kaffihúsið vottað lífrænt
en verðið spilar inní. ,,En við erum
með vottaða grænmetisrækt og nýtum
kartöflurnar á kaffihúsinu og notum eigið
hráefni í snakk sem við byrjuðum að
gera tilraunir með árið 2013 og standa
tilraunir enn yfir,“ segir hún. Auk snakksins
framleiða þau hinar frægu Bulsur en þær
eru unnar að mestu úr lífrænu hráefni.
„Það tók um ár að þróa Bulsurnar en þá
voru við ekki í eins mörgum verkefnum
og nú og höfðum góðan tíma. Við höfum
ferðast víða og spáum mikið í mat,
uppruna hans og hvernig hann er útbúinn
og hvað við setjum ofan í okkur. Við erum
með sjö stöðugildi yfir sumarið og fínt
væri að bæta við fleirum því verkefnin eru
mörg,“ segir hún. Berglind segist vera
bjartsýn á framtíð íslensks landbúnaðar.
Ljóst sé hins vegar að gera þurfi róttækar
breytingar á regluverkinu. ,,Það eru
allstaðar tækifæri.“
Berglind segir að það hafi verið svolítil
fyrirhöfn að fá vottun en henni finnst
ferlið mega vera pínu flókið til að halda
trúverðugleika. „En þetta er fín lína, þetta
má ekki heldur vera fráhrindandi,“ segir
hún og fullyrðir að lífrænn, umhverfisvænn
og sjálfbær landbúnaður sé framtíðin.
Með Bulsurnar og
grænmetissnakkið
Biobú er fyrirtæki sem er sérhæft til vinnslu á lífrænum mjólkurafurðum en það var stofnað í júlí 2002 af
þeim Dóru Ruf og Kristjáni Oddssyni
sem stunda lífræna mjólkurframleiðslu
að Neðra Hálsi í Kjós. Biobú vinnur úr
allri mjólk frá Neðra Hálsi, frá Búlandi í
Austur Landeyjum og að hluta úr mjólk
frá Skaftholti í Gnúpverjahreppi. Biobú
framleiðir drykkjarmjólk, skyr, ost, jógúrt
og gríska jógúrt. Engin mjólk í vörum
Biobús er fitusprengnd, og það er í anda
þeirra stefnu að vinna mjólkina sem
minnst.
Með því að velja lífrænar mjólkurvörur
ert þú að forðast sjálfkrafa mörg
hættuleg aukefni í matvælum – eins og
gervi sætuefni (aspartam, súkralósa)
og gervi matvælafitur, rotvarnarefni og
fleira sem er bannað að nota í lífrænni
matvinnslu. Öll aukefni notuð í matvinnslu
verða að vera af lífrænum uppruna og allt
sem er genabreytt er bannað.
Bændurnir á Neðri Hálsi fengu
lífræna vottun 1996. Kristján var sem
unglingur í búskap með foreldrum
sínum og tók við búinu þegar faðir
hans féll frá. Hann hefur alltaf haft góða
tilfinningu fyrir ræktun og segir að hún
sé líklega meðfædd. „Ég hef hins vegar
neikvæða tilfinningu fyrir tilbúnum
áburði. Ég ólst upp við það að hræra
áburðarefnunum saman í bílskúrnum
þegar ég var unglingur áður honum var
dreift á túnin. Maður andaði rykinu að
sér og mér fannst þetta alltaf vera dálítil
einföldun á veruleikanum. Grasið brann
undan áburðinum ef hann fór á blautt
grasið. Hjartað í mér sagði að þarna
værum við á rangri braut. Þegar ég fór
að heyra um lífræna ræktun sperrti ég
upp eyrun,“ segir hann sem setur skítinn
á túnið beint í ginið á gróandanum,
þegar grasið er að byrja að grænka
í maí. „Maður á að forðast að bera
búfjáráburð á frosið land, því þá er hætt
við að hann skolist burt og komi ekki að
gagni. Öll ræktun snýst að mörgu leyti
um eltingarleikinn við köfnunarefnið. Við
þurfum að læra að fanga það. Maður
þarf að fella skítinn niður í jarðveginn,
ekki sprauta upp í loftið, heldur sprauta
niður í svörðinn og þá finnst varla
lykt eftir að borið er á túnið. Það er
vísbending um minna köfnunarefnistap.
Með skítnum er ekki verið að tjalda
til einnar náttar eins og gert er með
notkun á tilbúnum áburði sem skolast
auðveldlega burt í rigningum. Ef við
berum þessar áburðategundir saman,
þá er búfjáráburður með langtímavirkni
líkt og molta. Þú ert alltaf að byggja
upp frjósemina, öfugt við það sem
gerist með tilbúinn áburð. Þar rýrir
þú frjósemina með tímanum, fælir í
burt lífverur og jarðvegurinn tapar
eiginleikum sínum til að gefa góða
uppskeru og um leið eiginleikanum
til að vinna kolefni úr andrúmsloftinu.
Rannsóknir hafa sýnt að lífræn ræktun
bindur allt að helmingi meira kolefni
í jörðu en hefðbundin ræktun með
tilbúnum áburði.
Lífræn mjólk er rík af Omega 3
fitusýrum sem getur verndað okkur
fyrir læknisfræðilegum vandamálum.
Rannsóknarstofnun landbúnaðararins
í Danmörku (Danmarks Jordbrugs
Forskning 2004), rannsakað innihald
andoxunarefna og vítamína í lífrænni
og hefðbundinni mjólk og sýna þær
rannsóknir að lífræn mjólk í níu af
hverjum tíu sýnum inniheldur mun meira
náttúrlegra E-vítamína en hefðbundin
mjólk. Hefur það m.a. í för með sér að
geymsluþol hennar er betra. Mjólkin
er auk þess rík af próteini, kalki, og
steinefnum. Til viðbótar við E vítamínið
fylgja fitunni einnig fituleysanlegu
vítamínin A og D. Auk þessa er að
jafnaði minni mjólkursykur í lífrænni
mjólk sem er jákvætt fyrir fólk með
mjólkuróþol.
Auður I. Ottesen
Brautryðjendur í lífrænni
mjólkurframleiðslu
Segja má að það sé mjög í anda lífrænnar ræktunar að fjölbreytnin og litlar sérverslanir dafni sem hjálpa til
við að upplýsa og fræða almenning um gildi
lífrænnar ræktunar. Margir lífrænir bændur
eru auk þess þátttakendur í þeirri hreyfingu
að opna landbúnaðinn og gefa neytendum
kost á að versla beint af bónda, jafnvel í
gegnum áskriftarkerfi eða njóta afurðanna
á staðnum. Flestar verslanakeðjur á
Íslandi hafa tekið lífrænt vottuðum vörum
fagnandi, í mismiklum mæli þó. Brauðhúsið
Grímsbæ, Bændur í Bænum, Frú Lauga
og Melabúðin eru líklega þær verslanir sem
hafa mest úrval á höfuðborgarsvæðinu.
Einnig má nefna Heilsuhúsið og
Jurtaapótekið. Á Akranesi er rekið lífrænt
kaffihús, Kaffi Kaja sem býður uppá lífrænar
veitingar og ýmsar heilsuvörur og þar má fá
ýmislegt umbúðarlaust eftir vigt.
Rós í hnappagatið fá þau Þórður G.
Halldórsson og Karólína Gunnarsdóttir sem
hafa verið í áratugi ódrepandi drifkraftur
í framboði á lífrænu hráefni. Þau reka
matarmarkaðinn Bændur í bænum og selja
matarkassa í áskrift allt sem þig langar að
versla lífrænt og fá sent á bensínstöð Olís á
Höfuðborgarsvæðinu og á Selfossi eða með
flutningarbílum búi kaupandinn úti á landi.
Í dag er val um að kaupa matvörur sem
ræktaðar hafa verið án allra aukaefna og í
sátt við umhverfið um land allt.
Auður I. Ottesen
Lífrænt aðgengilegt um land allt