Bændablaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 42
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. september 201842
Undir lok þar síðustu aldar
voru Bandaríkjamennirnir
Benjamin Holt og Daniel
Best að gera, hvor í
sínu lagi, tilraunir með
gufuvélar til notkunar í
landbúnaði. Báðir urðu
þeir síðar frumkvöðlar í
hönnun og smíði bensín-
dísilknúinna dráttarvéla.
Á þeim árum sem Holt og Best
voru að ströggla við gufuvélar
voru slík tæki allt í senn stór,
þung og klunnaleg. Iðulega
kom fyrir að þunglamalegir og
gufuknúnir traktorar festust
og stóðu fastir í blautum
jarðvegi í marga daga áður
en tókst að ná þeim upp.
Til að leysa þetta vandamál
stakk Holt upp á að í stað
dekkja yrðu sett belti
undir dráttarvélarnar og
yfirborðssnerting þeirra við
jarðveginn aukin verulega.
Fyrsta beltagufudráttarvélin
var reynd 1904 og þótti
standa hefðbundnum
hjólavélum mun framar
í blautum og lausum jarðvegi.
Nokkrum árum seinna var fyrsti
bensínknúni traktorinn á beltum
framleiddur og fékk hann nafnið
Caterpillar.
Um svipað leyti stofnaði
C. L. Best, sonur Daniels
Best, fyrirtæki sem ætlað var
að framleiða bensínknúnar
dráttarvélar á hjólum en hóf
þegar að prófa sig áfram með
beltavélar. Fyrsta beltavélin frá
fyrirtæki Best-feðga var
75 hestöfl og fékk heitið
CLB Tracklayer og þótti á
ýmsan hátt nýstárleg og var
meðal annars útfærð sem
skriðdreki.
Samruni Best Tractor Co.
og Caterpillar Tractor Co.
Árið 1925 runnu Best Tractor
Co. og Caterpillar Tractor Co. í
eina sæng undir heiti Caterpillar
og hóf fljótlega framleiðslu á
dísilknúnum dráttarvélum í stærri
kantinum.
Challanger á
markað
Undir lok
níunda áratugar
setti fyrirtækið
á markað
d r á t t a r v é l a r
undir heitinu
C h a l l a n g e r .
Dráttar vélin var
hönnuð með það í huga að fljóta
sem mest á jarðveginum. Næstu
árin setti fyrirtækið á markað sífellt
stærri og tæknilega endurbættari
útgáfur af Challanger dráttar vélum
og var Challenger MT875B þeirra
öflugastur, 570 hestöfl.
AGCO kaupir Challander
Árið 2002 keypti AGCO framleiðslu-
réttinn að Challenger dráttarvélum.
Fyrstu árin eftir kaupin framleiddi
fyrirtækið nokkra týpur af stórum
Challanger dráttarvélum, eins og
MT600C, MT500B, MT400B,
MT500B, MT600C og MT900C
auk Spra-Coupe 4000, Terra-Gator
2244 og 3244 sem allar seldust vel
bæði innan og utan Bandaríkjanna.
Árið 2007 setti týpan MT875B,
sem framleidd var að AGCO, nýtt
heimsmet í herfingu á flatarmáli
lands á einum sólarhring. Alls 644
hektara og eyddi að meðaltali 4,42
lítrum af dísil á hektara.
X-Edition MT800E Limited er
öflugasta týpan af Challanger til
þessa 600 hestöfl.
Í dag framleiðir AGCO
Challanger stórar og öflugar
dráttarvélar sem eru fáanlegar
annaðhvort á hjólum eða beltum,
allt eftir ósk kaupandans. /VH
UTAN ÚR HEIMI
Challenger á heimsmetið
í herfingu
Eftir útgöngu Breta úr Evrópusambandinu standa Bretar í samningaviðræðum við Evrópusambandið um áframhaldandi
Brexit og innflutningur á landbúnaðarvörum til Bretlands:
Áhyggjufullir vegna sýklalyfjanotkunar
í landbúnaði í Bandaríkjunum
Einn af möguleikum Breta eftir
að úrsögn þeirra úr Evrópu-
sambandinu tekur að fullu gildi
er að flytja inn landbúnaðarvörur
frá Bandaríkjunum. Margir
hafa lýst yfir áhyggjum af
slíkum innflutningi út frá
lýðheilsusjónarmiðum.
Notkun á sýklalyfjum sem
vaxtarhormóns í Bandaríkjum
Norður-Ameríku er mun meiri
í Evrópu og á Bretlandseyjum.
Að öllu jöfnu er talið að notkun á
sýklalyfjum sem vaxtarhormóns sé
fimm sinnum meiri í Bandaríkjunum
en á Bretlandseyjum. Notkunin er
misjöfn milli búfjárstofna og mest
er hún í nautgriparækt, eða sextán
sinnum meiri og dæmi um að hún
hafi verið þrjátíu sinnum meiri í
Bandaríkjunum en á Bretlandseyjum.
Notkun sýklalyfja í kjúklingarækt er
þrisvar sinnum meiri, sex sinnum
meiri í svínarækt og fimm sinnum
meiri í kalkúnaeldi í Bandaríkjunum
en í Bretlandi. Notkun á sýklalyfjum
sem vaxtarhormóns er bönnuð á
Íslandi.
Innflutningur á nautakjöti frá
Bandaríkjunum er bannaður víðast
í Evrópu vegna þessa.
Mikil notkun á sýklalyfjum í
landbúnaði sem vaxtarhormóns og
hættan á útbreiðslu á sýklalyfjaónæmum
bakteríum er eitt af stærstu yfirvofandi
heilbrigðisvandamálum heimsins
í dag, að sögn Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunarinnar og fleiri aðila sem láta
sig lýðheilsumál varða.
Eftir útgöngu Breta úr
Evrópusambandinu standa
Bretar í samningaviðræðum við
Evrópusambandið um áframhaldandi
innflutning á matvælum til landsins.
Einnig eru Bretar að skoða möguleika
á því að flytja inn landbúnaðarvörur
frá Bandaríkjunum.
Ekki eru allir á eitt sáttir við að
gerðir verði samningar við Bandaríkin
um innflutning landbúnaðarvara og
bera fyrir sig lýðheilsusjónarmiðum
og segja hættuna á sýkingu og jafnvel
faraldri af völdum sýklalyfjaónæmra
baktería vera of mikla. /VH
Veðrabreytingar:
Hlýnun Atlantshafsins
og aukið regn í Amason
Nýlegar kannanir sýna að
jafnhliða hlýnum Atlantshafsins
vegna hlýnunar jarðar er
veðurfar í Amason að breytast
og regn að aukast.
Afleiðingar hlýnunar jarðar
eru margvíslegar og má þar nefna
hlýnun sjávar, bráðnun jökla og
hækkun sjávar, fárviðri eru tíðari
og þurrkar algengari og standa
lengur yfir. Áhrifa hlýnunarinnar
gæta víða og eru ekki staðbundin,
því eins og stundum er sagt
þá breytist veðrið á Íslandi
þegar fiðrildi í Ástralíu blakar
vængjunum. Breytingar á veðri
á einum stað geta því haft áhrif
á veðurfar annars staðar með
ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Kínverskir og brasilískir
vísinda menn birtu nýlega niður-
stöðu könnunnar á breytingum á
úrkomu í Amason-frumskóginum í
tímariti sem nefnist Environmental
Researsch Letters.
Í greininni segir meðal annars að
árinu í Amason sé skipt í regn- og
þurrkatímabil og að samanburður
á veðurfarsupplýsingum undan-
farinna áratuga sýni að regntímabilið
hafi verið að lengjast í báða enda.
Auk þess sem úrkoma hefur aukist
um 180 til 600 millimetra á ári.
Samkvæmt könnun greinar-
höfunda helst aukin úrkoma í
Amason í hendur við hlýnun
sjávar í Atlantshafinu. Um 20% af
ferskvatni heimsins á uppruna sinn
í Amason-skógunum og uppgufun
frá þeim á þurrkatímabilum er
gríðarleg og hefur áhrif á veðurfar
víða um heim. Allar breytingar á
veðurfari í Amason munu því hafa
ófyrirsjáanleg áhrif á veðurfar
annars staðar í heiminum því slíkt
er hið dásamlega samhengi alls í
veröldinni. /VH
Mynd / NOAA Environmental Visualization Laboratory.