Bændablaðið - 20.09.2018, Síða 43
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. september 2018 43
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Höfuðlausnir
Voss-Helme hjálmar og hjálmhúfur
Þýsk gæðavara framleidd í samræmi við
EN 397 og EN 812.
Til í öllum regnbogans litum.
Allir koma þeir með 6-punkta höfuðneti, með svitabandi og
stillihnapp til að tryggja örugga setu á höfði.
Hægt að fá með eða án hökubands.
Vertu klár í kollinum
Gluggar og hurðir fyrir
íslenskar aðstæður
Gluggar og hurðir með eða
-8 vikur
Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing
og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020
eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Vegna aukinnar eftirspurnar óskum
við eftir bújörðum á söluskrá
bbl.is Fa obce ok
Kínaklúbbur Unnar:
Gamla og nýja Kína skoðað
Unnur Guðjónsdóttir býður í
byrjun júní á næsta ári upp á nítján
daga fróðleiks- og skemmtiferð til
Kína, á ári gríssins, 2019. Þetta
verður fertugasta hópferðin sem
Unnur skipuleggur og leiðir um
Kína.
Unnur, sem hefur áralanga
reynslu af Kínaferðum, segir að þrátt
fyrir að ferðadagskráin sé digur sé
ferðin ekki erfið. „Þetta er ferð sem
hentar fólki á öllum aldri og meira
að segja börn hafa gagn og gaman af
þessari ferð. Kína breytist óðfluga,
svo ef fólk vill sjá eitthvað af gamla
Kína, þá er um að gera að bíða ekki
með að fara þangað.“
Meðal staða sem heimsóttir verða
í ferðinni eru Shjanghaí, Suzhou,
Tongli, Guilin, Yangshuo, Xian og
Beijing. Auk skemmtiferðasiglingar
á Lifljótinu og göngu á Kínamúrnum.
Að sögn Unnar er verð á mann
660 þúsund krónur og er þá allt
innifalið. Það er að segja full dagskrá
samkvæmt ferðaskrá, gisting í
tvíbýli á fjögurra til fimm stjörnu
hótelum, 100.000 krónur bætast
við vilji fólk einbýli, fullt fæði með
máltíðardrykkjum, skattar og gjöld,
staðarleiðsögumenn og fararstjórn
hennar. /VH
Flugleiðir í fertugustu ferð Kínaklúbbs Unnar til Kína.