Bændablaðið - 20.09.2018, Page 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. september 2018 45
og vestanverðu Azerbaijan og fyrst
verið ræktuð þar og aðlagast út í
náttúruna.
Í náttúrulegum heimkynnum
sínum ná möndlutré allt að tíu
metra hæð og með stofni sem er 30
sentímetrar í þvermál. Í ræktun eru
trén yfirleitt lægri og með grennri
stofni sem vex upp að grunnt
liggjandi trefjarót. Greinar ungra
trjáa grænar en verða rauðbleikar
með aldrinum. Laufblöðin löng, 7 til
18 sentímetrar, á stuttum blaðstilk.
Blómin þrír til fimm sentímetrar
í þvermál með fimm hvítum eða
fölbleikum krónublöðum sem
blómstra fyrir laufgun trjánna á
vorin.
Möndlutré þrífast best í loftslagi
Miðjarðarhafsins við hlý og þurr
sumur og raka og milda vetur.
Kjörhiti í vexti er 15 til 30° á Celsíus
og rétt undir 7,2° í hvíld. Við góðar
aðstæður bera trén aldin á þriðja ári
og ná fullri uppskeru á fimmta til
sjötta ár og tekur það aldinið að ná
fullum þroska sjö til átta mánuði frá
blómgun.
Heitið möndlutré er dregið af
hnetunni eða öllu heldur fræi trésins.
Aldinið kallast steinaldin og er með
einu, þriggja til sex sentímetra löngu,
og einstaka sinnum tveimur fræjum.
Aldinið sem umliggur fræið er
yfirleitt fjarlægt með heitu vatni en
einnig er hægt að fá möndlur í aldini
á uppskerutíma á ræktunarsvæðum
þeirra.
Margs konar yrki
Eins og á við flestar nytjaplöntur
er til fjöldi ólíkra afbrigða og
yrkja af möndlum sem eru ólíkar
að lögun, stærð og bragði eftir
ræktunarsvæðum. Í grófum dráttum
er möndlum skipt eftir bragði í sætar
og beiskar möndlur og eru sætar
mun eftirsóttari og meira ræktaðar
en beiskar.
Dæmi um ólík yrki eru Nonpareil
sem er ræktað víða um heim vegna
mikillar uppskeru og bragðs,
mandlan ljósbrún og í millistærð.
Neplus ber stóra og dökkbrúna
möndlu, Peerless eru stórar og
ljósbrúnar að lit, harðar og með
hnetubragði en Ferralies litlar og
þykkar möndlur.
Útbreiðsla og saga
Fornleifarannsóknir sýna að
möndlur voru ræktaðar í Egyptalandi
og við botn Miðjarðarhafsins um
4000 árum fyrir Krist og því með
elstu ræktunarplöntum. Talið er að
möndlur hafi borist til landanna
umhverfis Miðjarðarhafið, Norður-
Afríku og sunnanverðrar Evrópu,
með úlfaldalestum og kaupskipum
kaupmanna og trúarhópum kristinna
og múslina. Fornleifar í Kína og
lundir með möndlutrjám meðfram
Silkileiðinni sýna einnig að þær hafi
borist til Asíu með kaupmönnum.
Möndlur eru nefndar í hebreskum
ritum sem eru talin vera 4000 ára
gömul, auk þess sem þær eru nefndar
í gömlum ritum frá Tyrklandi og
löndunum á Balkanskaga.
Möndlur eru nefndar til
sögunnar tíu sinnum í Biblíunni. Í
sköpunarsögu Fyrstu Mósebókar
43:11 segir Ísrael, faðir Júda, við son
sinn þegar illa gengur að kaupa korn
í Egyptalandi vegna hungursneyðar:
„Sé það óhjákvæmilegt gerið þá
þetta: Takið af því besta sem landið
hefur upp á að bjóða og setjið í
sekki ykkar og færið manninum
að gjöf lítið eitt af balsami og lítið
eitt af hunangi, reykelsi og myrru,
pistasíuhnetur og möndlur.“ Í þessu
tilfelli má líta á gjafirnar, þar með
taldar möndlurnar, sem tákn um von
og gjaldmiðil til að kaupin gangi
betur fyrir sig.
Í Fjórðu Mósebók, kafla 17:23,
segir svo um staf Arons. „Þegar
Móse kom til sáttmálstjaldsins
daginn eftir var stafur Arons, stafur
Leví ættar, laufgaður. Á honum
höfðu sprottið blöð og blóm og hann
bar þroskaðar möndlur.“
Möndlur fundust í grafhýsi
Tutankhamun faraó í Egyptalandi
frá 1352 fyrir Krist. Talið er að
möndlurnar hafi verið þar svo að
faraó hafi eitthvað til að narta í á
leiðinni yfir í lífið eftir lífið. Í Persíu
og Arabíulöndum þótti og þykir enn
drykkur úr muldum möndlum og
vatni góð hressing.
Rómverjar kölluðu möndlur
grískar hnetur sem bendir til að þær
hafi borist til Rómar frá Grikklandi.
Rómverjar köstuðu möndlum yfir
nýgift hjón til að auka frjósemi
þeirra og gæfu á sama hátt og er
til siðs í mörgum löndum að kasta
hrísgrjónum yfir brúðhjón víða
um heim í dag. Hugmyndin um að
möndlur auki gæfu leynist einnig í
sænskum jólasið sem margir kannast
við og þekkist á Íslandi og felst í
möndlugjöfinni í jólagrautnum.
Möndlur bárust til Bandaríkja
Norður-Ameríku frá Evrópu með
fransisku-munkum um miðja 17.
öld en fyrsta tilraunin til að rækta
þær í stórum stíl var ekki gerð fyrr
en 1840. Tilraunin misheppnaðist
vegna þess að blómin féllu vegna
vorfrosta. Tíu árum seinna var gerð
önnur tilraun með ræktun þeirra í
Kaliforníu og er ríkið í dag stærsti
framleiðandi mandlna í heiminum.
Í Kína eru möndlur tákn um sorg
og fallegar konur sem er skiljanlegt
því hvað er sorglegra en minningin
um konuna með möndlulaga augu
sem yfirgaf þig?
Listir
Möndluformið og möndlutré eru
algeng í listum. Olíulampar frá
Arabalöndunum eru oft möndlulaga
og myndir af blómstrandi
möndlutrjám eru ofnar í persnesk
teppi. Van Gogh málaði myndir af
blómum möndlutrjánna í Arles og
Saint-Rémy í Suður-Frakklandi á
sínum tíma.
Nafnaspeki
Heitið mandla eða almond á ensku er
komið úr gamalli frönsku, almande
eða alemanden. Í frönku er heitið
líklega komið úr latínu amandula
og í latínu úr amygdala sem er grískt
heiti á möndlum. Á þýsku kallast
möndlur mandel eða knackmandel,
mandorlo og mandorla á ítölsku í
fyrra tilfellinu er átt við tréð en í
því síðara fræið. Á portúgölsku er
talað um amêndoa og almendra á
spænsku.
Þýðing latneska ættkvíslar-
heitisins Prunus er óþekkt og talið
að það sé lánsorð úr phrygian sem
er útdautt tungumál sem var talað í
Mið-Asíu og var skylt frumgrísku.
Tegundarheiti dulcis þýðir sætur
ilmur.
Frjóvgun möndlutrjáa
Býflugur sjá um frjóvgun
möndlutrjáa og er frjóvgun trjánna í
Kaliforníu í Norður-Ameríku stærsta
mannstjórnaða ávaxtatrjáafrjóvgun í
heiminum. Í febrúar á hverju ári er
um það bil milljón býflugnabúum
ekið á vörubílum inn á risastóra
möndlutrjáalundi og flugunum
slepp þegar trén eru í blóma. Eftir að
frjóvgun lýkur er ekið með flugurnar
í næsta lund. Býflugnabúin eru í eigu
býflugnahaldara og býflugurnar
leigðar út til að frjóvga trén.
Undanfarin ár hefur sífellt reynst
erfiðara að fá nóg af býflugum til
að frjóvga lundina vegna hruns
býflugnastofna í Bandaríkjunum
og víðar um heim. Það hefur leitt til
hækkandi verðs á möndlum.
Með hjálp kynbóta hefur tekist
að rækta fram sjálffrjóvgandi
möndlutré en enn sem komið er
þykja möndlurnar af þeim ekki eins
bragðgóðar eins og af trjám sem
frjóvgaðar eru með býflugum. Dæmi
um sjálffrjóvgandi yrki er Tuona.
Líkt og í annarri stórræktun
leggjast alls konar pöddur, bakteríur,
sveppir og vírusar á ræktunina og
óværunni iðulega haldið niðri
með mismunandi og mishollum
kokteilum af varnar- og eiturefnum.
Möndlur til lækningar og matar
Möndlur eru sagða ríkar af B- og
E-vítamíni og steinefnum eins og
kalki, járni, magnesíum, mangani,
fosfór og sinki. Þær eru trefjaríkar
og fitan í þeim er ómettuð. Möndlur
eru tiltölulega hitaeiningasnauðar af
hnetum að vera.
Efni sem unnin eru úr bitrum
möndlum hafa, í litlum skömmtum,
verið notuð til lækninga. Í beiskum
möndlum finnst meðal annars
blásýra í litlu magni og hefur hún
leitt til dauða ungra barna í einstaka
tilfellum.
Mandlna er oft neytt eins og þær
koma fyrir af trjánum eða að þær
eru ristaðar og hafðar til íblöndunar
í margs konar rétti. Þær eru fáanlegar
heilar, niðursneiddar, muldar og
malaðar í duft. Úr þeim er unnin olía
og það sem er kallað möndlumjólk.
Möndlur eru íblöndunarefni í
marsípani og núgati. Þær eru í múslí
og þeim er stráð yfir ís og eftirrétti
og notaðar til baksturs og til að
búa til möndlusmjör. Á Ítalíu eru
möndlur notaðar í brauð sem kallast
ricciarelli.
Í Mið-Austurlöndum eru möndlur
vinsælt snakk ásamt döðlum og í Íran
þykir gott að dýfa þeim í sjávarsalt og
þar í landi eru möndlur hefðbundið
snakk í nýársboðum.
Möndlumjólk er unnin úr
mjúkum, bragðmildum og ljósum
afbrigðum mandlna sem búið er að
afhýða.
Möndlur geta valdið ofnæmis-
viðbrögðum hjá fólki sem er
viðkvæmt fyrir slíku.
Möndlur á Íslandi
Í tímaritinu Norðurfara árið 1876
segir í grein sem kallast Yfirlit yfir
landafundi og ferðir vísindamanna
þrjú seinustu árin. „Á hverju ári
gjöra stórþjóðirnar í Evrópu út
menn til að kanna aðrar heimsálfur
í öllum greinum, og gjöra með því
stórmikið gagn eigi aðeins í allri
verzlun og samgöngum, heldur
ryðja braut andlegum menntum,
framförum og góðum siðum meðal
villuþjóða.“ Í greininni segir um
ferðalag jarðfræðingsins Alexander
Petzholt að hann hafi verið á ferð
um Turkestan í boði Rússastjórnar.
„Suðurhluti landsins er hálendi og
sumstaðar syðst og austast eru allt
að 20,000 feta háir jökultindar. Í
fjallendunum er víða trjávöxtur
mikill, en láglendið er mestallt
eyðimerkur trjá- og graslausar,
Það er helzt fram með fljótunum
sem notandi land er, og þar er líka
dýrkað hveiti, bygg, hrísingrjón,
mais, hampur, hör, fíkjur, möndlur,
vín ogfl.“
Ári seinna er svo að finna
auglýsingu frá Apótekinu í
Reykjavík í Ísafold þar sem segir
að til sölu sé hreinsuð pottaska,
hjartarhornssalt, sítrónubörkur,
pommeransbörkur, rósavatn,
vanilla, beiskar möndlur,
sítrónuolía, sætar möndlur, súkkat
og múskatplómur.
Ristaðar möndlur með sítrónu
og rósmaríni
Upplagt er að eiga ristaðar
möndlur í ísskápnum til að grípa
í þegar hungrið segir til sín. Svo
er fljótlegt að útbúa þær. Gott
er að þurrrista möndlur á heitri
pönnu og krydda þær með chili,
rósmarín, salví eða öðru kryddi
sem er við hendina.
Slatti af möndlum, ein teskeið
salt, smá pipar, tvær matskeiðar
rósmarín eða lauf af einni til tveimur
greinum, hálf teskeið múskat,
hálf teskeið sykur, ein matskeið
sítrónusafi og ein matskeið jurtaolía.
Hitið jurtaolíuna, saltið, piparinn,
rósmarínið, múskatið og sykurinn á
miðlungshita á pönnu. Bætið við
sítrónusafa og loks möndlunum.
Veltið í fimm til tíu mínútur á
pönnunni eða þar til möndlurnar
brúnast. Setjið möndlurnar á
smjörpappír og dreifið úr þeim til
að þær þerni lítilega fyrir neyslu.
Möndlum safnað í segl með því að hrista þær af trjánum.
Vinnsla á möndlum.
Bandaríki Norður-Ameríku eru stærsti framleiðandi mandlna í heiminum.
Möndlurækt í Kaliforníu.
Í náttúrulegum heimkynnum sínum
ná möndlutré allt að tíu metra hæð
og með stofni sem er 30 sentímetrar
í þvermál.