Bændablaðið - 20.09.2018, Side 51
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. september 2018 51
skiptir máli fyrir mjólkurframleiðsluna
enda búa þar í dag 81% mannkyns
og 86% mjólkurinnar er framleidd
norðan við miðbaug. Ef þessi hluti
jarðar heldur áfram að hitna mun það
leiða til breyttra ræktunarskilyrða
og aukinnar uppskeru á sumum
landsvæðum en leiða til minni
uppskeru annarsstaðar vegna þurrka.
Þetta gæti gjörbreytt þeirri heimsmynd
sem blasir við í dag þegar horft er til
mjólkurframleiðslu og t.d. er því spáð
að alvarlegur vatnsskortur muni hrjá
stór svæði í Bandaríkjunum og m.a.
þar sem 42% af mjólkinni er framleidd
í dag! Á móti kemur að stór svæði í
norðurhluta Bandaríkjanna, í Kanada
og Rússlandi muni henta mun betur
til mjólkurframleiðslu á komandi
áratugum en þau gera í dag.
Bætt nýting fóðurefna
Nú þegar eru kúabú heimsins farin
að nýta sem fóður fyrir mjólkurkýr
margskonar aukaafurðir annarrar
matvælavinnslu s.s. hrat sem
verður til við sykurgerð, bjór- eða
vínframleiðslu, djúsframleiðslu
og margt fleira mætti tína til. Í
framtíðinni verður þessi nýting að
líkindum enn meiri og betri og mun
það leiða til enn umhverfisvænni
mjólkurframleiðslu en þekkist í dag
þar sem þörf búgreinarinnar fyrir
land mun ekki vaxa í sama hlutfalli
og hin aukna framleiðsla. Þá er talið
ljóst að mjólkurframleiðsla muni
færast meira yfir á þau landsvæði
sem eru grasgæf og land sem hentar
til beinnar matvælaframleiðslu fyrir
mannfólk verði síður notað sem
fóðurframleiðslusvæði kúa.
Stærri og tæknivæddari bú
Mjólkurframleiðslan í framtíð inni mun
þróast í átt að stærri og tæknivæddari
búum en þróunin mun þó ráðast
mikið af afkomunni í greininni. Nýleg
rannsókn frá Írlandi bendir til þess að
þau bú sem hafa mestar meðalafurðir á
hverja kú og mesta mjólkurframleiðslu
af hverjum hektara skili mestum
hagnaði auk þess sem kolefnisfótspor
þessara búa er minna en annarra. Telja
greinarhöfundar að hagnaður kúabúa
framtíðarinnar muni verða í samræmi
við niðurstöður þessarar írsku
rannsóknar, en það verði þó algjörlega
háð þróun afurðastöðvaverðsins, sem
muni þróast í takt við framboð og eftir-
spurn á heimsmarkaðnum.
Öflugri kýr
Þó svo að kýrnar sem notaðar eru
í dag við mjólkurframleiðslu víða í
heiminum séu ágætar til síns brúks
þá er talið að þær muni taka nokkrum
breytingum á komandi árum.
Sérstaklega þegar horft er til endingar
þeirra og hreysti en kynbætur og
aukin tæknileg þekking muni hafa
verulega góð áhrif á þessa eiginleika á
komandi árum og áratugum. Þá muni
dýravelferð hljóta aukið vægi næstu
áratugina og mun það fara saman með
þróun á fjósbyggingum og hönnun á
nærumhverfi nautgripa almennt.
Þróun afurðasemi kúa mun
einnig breytast verulega á komandi
áratugum en áherslan verður frá því
að framleiða mikið magn mjólkur
og yfir í að framleiða aukið magn
af verðefnum mjólkurinnar, þ.e.
auka þurrefnishluta mjólkur með
kynbótum og breyttri fóðrun.
Óvissuþættir
Mjólkurframleiðsla hefur verið tengd
síðustu 360 kynslóðum mannkyns
og er afar ólíklegt annað en að hún
verði einnig nátengd næstu tveimur
kynslóðum þ.e. næstu 50 árin
eða svo. Ör þróun í framleiðslu á
staðgönguvörum mjólkurvara gæti
þó haft einhver áhrif á þetta samspil.
Þá gæti ný tækniþekking, þar sem
sjó er breytt í drykkjarvatn, gjörbreytt
aðstæðum til mjólkurframleiðslu og
stóraukið hana langt umfram þær spár
sem gerðar hafa verið.
Mest óvissa, varðandi framtíðar-
þróun mjólkurframleiðslu, er þó
sú fjarlægð sem hefur myndast
og mun halda áfram að myndast á
milli frumframleiðslu matvæla og
neytenda. Margir neytendur telja
að búfjárrækt spilli meira en hún
gagnist náttúrunni og líta jafnvel
á búfjárframleiðslu sem níð. Með
aukinni tæknivæðingu og bættri
nýtingu aðfanga verður hluta af
þessum áhyggjum eytt en þó ekki að
fullu og þetta skapar ákveðna óvissu
um framtíðina.
Þrátt fyrir og vegna þess sem
hér að framan kemur fram, auk ótal
annarra atriða sem of langt mál væri
að taka fyrir í stuttri grein, telja
greinarhöfundar að framtíðin sé í
raun björt hjá mjólkurframleiðendum.
Mjólkurframleiðslan í framtíðinni
muni verða vistvænnni en kraftmikil
og muni hlú bæði að búfé og
umhverfinu og verða þörf mann-
kyninu með framleiðslu sinni á
mikilvægum næringarefnum.
Heimild: Britt ofl., 2018.
Learning from the future – A
vision for dairy farms and
cows in 1967. Journal of Dairy
Science, 101(5):3.722-3.741.
M
est óvissa, varðandi framtíðar þróun mjólkur-
framleiðslu, er þó sú fjarlægð sem hefur myndast
og mun halda áfram að myndast á milli frum-
framleiðslu matvæla og neytenda. Margir neytendur telja
að búfjárrækt spilli meira en hún gagnist náttúrunni og
líta jafnvel á búfjárframleiðslu sem níð.
A
ð mati SÞ mun 93% af aukningunni næstu 50 árin
verða í Asíu og Afríku en að mannfjöldinn í Evrópu
muni dragast saman. Vegna þessara fyrirséðu
breyt inga, þar sem markaðurinn í Evrópu er talinn muni
dragast saman, er ljóst að eigi kúabúskapur í Evrópu að
halda áfram að vaxa og/eða standa í stað þarf að huga
að enn frekari útflutningi mjólkurvara en nú er gert.
Verkefna-og rannsóknarsjóður
Fljótsdalshrepps og Landsbankans
Verkefna-og rannsóknasjóður Fljótsdalshrepps og
Landsbankans auglýsir eftir umsóknum um styrki úr
sjóðnum árið 2018.
Veittir verða tveir aðalstyrkir kr. 300.000,- og ef stjórn
ákveður svo , verður einnig veittur einn verkefnastyrkur kr.
100.000,-. Sjóðsstjórn getur ákveðið þegar umsóknir liggja
fyrir að eingöngu verði veittir styrkir til aðalverkefna ársins
og hækka þá þær styrkupphæðir í kr. 350.000.
Heimilt er að fella úthlutun ársins niður telji sjóðsstjórn
engar umsóknir hæfar.
Úthlutað er til verkefna sem tengjast Fljótsdalshreppi, eða
verkefna sem sjóðsstjórn telur að nýtast muni sveitarfélaginu.
Háskólanemar með lögheimili í Fljótsdalshreppi, sem sækja
um fyrir verkefni sem metin eru hæf af sjóðsstjórn, hafa
forgang umfram aðra umsækjendur.
Umsóknum skal skila til skrifstofu Fljótsdalshrepps, Végarði,
701 Egilsstaðir, eigi síðar en mánudaginn 1. október 2018,
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf