Bændablaðið - 20.09.2018, Side 53
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. september 2018 53
Á síðasta ári reit ég grein um
vanda sauðfjárræktarinnar
hér í Bændablaðið (www.bbl.is/
frettir/skodun/lesendabasinn/
er-saudfjarbaendum-fyrirmunad-
ad-lifa-i-nutimanum/18151) . Helstu
niður stöður minna vangaveltna
voru að verulega þyrfti að draga
úr framleiðslu svo verð til bænda
hækkaði og að leggja þyrfti
lausagöngu búfjár af á næstu árum
til að land og þjóð gæti um frjálst
höfuð strokið. Ég lét jafnframt
í ljósi vantrú mína á að nokkuð
breyttist, hvorki af hálfu bænda né
stjórnvalda.
Nú ári síðar er því miður svo að
allt er við það sama. Afurðaverð
stendur nánast í stað, fjárfjöldi
einnig og neysla innanlands lítið
breytt. Útflutningsmarkaðir áfram
óhagstæðir. Stjórnvöld skipa nefndir
á nefndir ofan, sauðfjárbændur álykta
um loftslagsmál og erfðabreytt
matvæli (sem er auðvitað ágætt
en kannski ekki mest aðkallandi í
stöðunni) og bændur og stjórnvöld
telja sjálfum sér og öðrum trú um að
það sé um eitthvað að semja.
Gjörbreyttar neysluvenjur
Að mínu mati er nú komið að þeim
tímapunkti að aðilar máls, ekki
síst fulltrúar löggjafarvaldsins,
verði að gera sér grein fyrir að
straumhvörf í sauðfjárrækt á Íslandi
verða ekki umflúin. Fyrir 100-
150 árum urðu straumhvörf þegar
nýting sauðfjárafurða færðist frá
sjálfsþurftarbúskap aldanna frá
landnámi þar sem nýting ullar, gæra,
mjólkur og kjöts var grundvöllur
framfærslu fjölskyldna, yfir í að
vera frumframleiðslugrein þar sem
meginhluti framleiðslunnar var seldur
frá búunum. Lengst af á síðustu öld
vógu ull og gærur töluvert á móti
dilkakjötinu en hin síðari ár hefur
kjötið verið aðal tekjustofninn. Að
auki var dilkakjöt aðalkjöttegundin
á borðum alls almennings lengi
fram eftir öldinni. Stjórnvöld hófu
niðurgreiðslur á dilkakjöti og
mjólkurvörum undir því skyni að um
stuðning við tekjulágan almenning
væri að ræða. Upphaflega var gripið
til þessa í sambandi við aðgerðir hins
opinbera við gerð kjarasamninga en
í áranna rás hefur þessi stuðningur
þróast yfir í beingreiðslur til
bænda og orðið að ígildi e.k.
framleiðsluleyfis/kvóta sem lengst
af hefur gengið kaupum og sölum
milli manna. Því miður hefur þessi
kvótasetning, þó breytt sé, orðið til
þess að framleiðsluaðstæður eins og
húsakostur, mannafli og ræktarland
hafa mun minna vægi en eðlilegt má
telja í framleiðslunni í dag.
Aukin fjölbreytni til sveita
Stjórnmálamenn hafa löngum keypt
þau rök bænda að sauðfjárrækt sé
hornsteinn byggðar í dreifbýli. Ef ekki
væri stundaður sauðfjárbúskapur þá
kæmi til landauðn og eyðibyggðir.
Minna má á að fé í landinu hefur
fækkað um nær helming frá því það var
flest upp úr 1980 án þess eyðibyggðum
hafi fjölgað sem neinu nemur. Ætli
aflagning byggðar á Snæfjallaströnd
við Ísafjarðardjúp á síðustu öld sé ekki
síðasta stóra landsvæðið sem kalla
má að hafi farið úr byggð? Vissulega
hefur búseta breyst en mér virðast
umfangsmiklar samgöngubætur
síðustu áratuga og stórbætt fjarskipti
oft ekki fá sanngjarnt mat þegar
fjallað er um byggðamál hin síðari
ár. Þá hafa orðið róttækar breytingar á
atvinnulífi sveitanna síðustu áratugina
og er þáttur ferðaþjónustu þar einna
stærstur. Vægi sauðfjárræktar til
viðhalds dreifðrar byggðar hefur því
breyst mikið frá síðustu öld.
Löngu úrelt löggjöf
Eins og ég rakti í fyrri grein minni hafa
verið samdir viðamiklir lagabálkar um
sauðfjárhald eins og það er nú stundað,
ekki síst um girðingar og fjallskil.
Grunnstefið í þessari lagasetningu er að
sauðfé skuli hafa frjálsa för um landið,
óháð eignarhaldi, og öðrum sé skylt að
verjast því. Ég lýsti miklum efasemdum
um hvernig þessi lagasetning stæðist
stjórnarskrárákvæðið um friðhelgi
eignarréttarins og fleiri lög. Ég tel að
það sé aðeins tímaspursmál hvenær
kemur til umfangsmikils málareksturs
því fjárlausir landeigendur munu
ekki öllu lengur una því dæmalausa
óréttlæti sem felst í nýtingu annarra
á þeirra eignum. Vonandi sjá
stjórnmálamenn sem kenna sig við
jafnrétti, mannréttindi og opna og
nútímalega stjórnunarhætti að sér í
tíma og breyta lögunum til betri vegar
áður en til hirtingar af hálfu dómstóla
kemur.
Þetta þrennt; stórminnkuð
dilkakjötsneysla innanlands,
gjörbreytingar á atvinnuháttum til
sveita og löngu úrelt löggjöf um
frjálsa för sauðfjár um landið, gerir
það að verkum að stjórnvöld verða
að þora að horfast í augu við breytta
tíma. Það er ekki fallegt að gefa ungu
fólki vonir um að grundvöllur sé til
að lifa af rekstri sauðfjárbúa eingöngu
við óbreyttar aðstæður. Staðreyndin er
að langflestir sem stunda sauðfjárrækt
í dag afla annarra tekna, annaðhvort
með annarri framleiðslu eða þjónustu
á búunum, ellegar stunda vinnu fjarri
heimili.
Þess utan stenst framleiðsla kjöts
af sauðfé engan samanburð við
framleiðslu af svínum og alifuglum.
Meðan vetrarfóðruð kind skilar
kannski tveimur dilkum og 30-40
kg af kjöti skilar gyltan allt að
þrjátíu grísum og vart undir 1500
kg á ári. Sauðfjárrækt verður því
seint talin hagkvæm framleiðsla á
mat. Það er hins vegar ekki þar með
sagt að sauðfjárhald eigi sér ekki
tilverugrundvöll.
En er samt sem áður ekki
kominn tími til að horfast í augu við
tilgangsleysi þessara búskaparhátta?
Að sauðféð þurfi að leggja landið
undir sig í 10 vikur á ári til að
framleiða kjöt sem ekki er nægur
markaður fyrir, með miklum
opinberum fjárstuðningi og þar að
auki meira og minna á annarra landi
er auðvitað ekki í neinu samræmi
við nútíma atvinnuhætti. Helst mætti
líkja þessu háttarlagi við heilagleika
indversku kýrinnar. Reyndar hef ég
orðið þess var að hluti bænda lítur
svo á að sauðfjárbeit á óræktað land sé
nánast greiðasemi við guð og menn.
Að það sé skylda bænda að beita allt
land sem einhverja uppskeru gefur.
Í fyrri grein minni gerði ég grein
fyrir þeim eina tilgangi mínum, með
þessum greinaskrifum um vanda
sauðfjárræktarinnar, að sjá bættum
hag sauðfjárbænda borgið til lengri
framtíðar. Ég trúi því að bann við
lausagöngu sauðfjár sé eina leiðin til
að ná varanlegum árangri til að dragi
úr framleiðslu. Það er miklu meira
en nægt ræktað og ræktanlegt land
á láglendi landsins til að fullnægja
vaxtarþörf þess sauðfjárfjölda sem
þarf vegna innanlandsneyslu á
lambakjöti. Mýtan um fjallalambið
og nýgræðinginn er hins vegar
þrautseig. Túnarollurnar er samt
sem áður löngu búnar að sanna að
fé þrífst ágætlega á láglendisbeit
sumarlangt auk þess sem fé er þegar
víða í heimahögum allan vaxtartíma
lambanna í mörgum sveitum.
Þegar ég segi bann við lausagöngu
sauðfjár er ég fyrst og fremst að kalla
eftir breyttum búskaparháttum. Að
greinin færist nær bóndanum sjálfum
en hann komist ekki upp með að varpa
ábyrgð á framleiðslu sinni á aðra.
Hvorki með beit á annarra land né
við afsetningu afurðanna. Auðvitað
er ekkert að því að sauðfjárbændur
nýti sameiginlega land svo fremi að
um það sé samstaða og samþykki allra
sem hlut eiga að umræddu landi.
Þetta breytta búskaparlag, sem
ég er hér að tala fyrir, þýðir að þeir
einir sem til þess hafa getu og nægt
heimaland halda áfram framleiðslu.
Það er fullreynt að bændur komi sér
saman um stjórn framleiðslunnar
þar sem mönnum er mismunað eftir
búsetu, aldri, annarri atvinnuþátttöku
o.s.frv. Flestar aðgerðir stjórnvalda í
þessa veru hafa litlu skilað. Standi
núverandi sauðfjárbændur hins vegar
frammi fyrir þeim veruleika að t.d.
innan 10 ára taki bann við lausagöngu
sauðfjár gildi, er það þeirra að meta
möguleika sína til áframhaldandi
framleiðslu. Láglendisbeit með
tiltölulega litlar hjarðir og vonandi
verulega hærra afurðaverð en nú er,
er sú framtíð sem ég sé fyrir mér í
sauðfjárræktinni.. Að auki tel ég
að veruleg aukin tækifæri felist í
frekari úrvinnslu afurðanna heima
á býlunum. Ekki má láta endalausa
umræðu um hagræðingu í rekstri
afurðastöðva tefja þá þróun. Samspil
með ferðaþjónustu veitir fjölda
tækifæra við afsetningu margs konar
afurða sem og bein sala til neytenda.
Breytingin gagnvart öðrum
landeigendum verður veruleg.
Menn hætta að þurfa að girða sig
af gagnvart fénu. Umferð um lönd
og lendur verður greiðari. Mun
auðveldara verður að hefja skógrækt
og náttúrulegur skógur og annar
gróður fá aukinn vaxtarfrið. Með
breytingu í þessa veru skapast áður
óþekkt tækifæri til að færa stuðning
ríkisins frá frumframleiðslunni
og til beinnar búsetustyrkingar.
Sauðfjárbændur framtíðarinnar
verða að hætta að hugsa sem
frumframleiðendur og sætta sig við
að sauðfjárrækt verður ekki stunduð
nema sem hlutastarf þar sem aðrar
tekjur verða að vera sú tekjujöfnun
sem tekur yfir sveiflur í framleiðslu
og afurðaverði milli ára. Hvorki er
sanngjarnt né réttlætanlegt að greinin
vísi þessum reikningum endalaust til
ríkisins. Að öðrum kosti er eðlilegast
að stuðningur við sauðfjárrækt
færist til Tryggingastofnunar og
verði þar skilgreindur sem sérstakur
bótaflokkur. Núverandi stuðningur
á fátt sameiginlegt með öðrum
atvinnurekstri!
Stefán Tryggva- og Sigríðarson
Þóroddsstöðum, Svalbarðsströnd
LESENDABÁS
Stefán Tryggva- og Sigríðarson.
Aukaársfundur 2018
Aukaársfundur Lífeyrissjóðs bænda verður haldinn föstudaginn
28. september 2018 kl. 14 að Stórhöfða 23, 4. hæð, Reykjavík.
Dagskrá:
1. Brottfall laga nr. 12/1999 um Lífeyrissjóð bænda.
2. Tillögur að breyttum samþykktum.
Tillögur samþykktabreytinga sem ekki leiða af lögum liggja
frammi á skrifstofu sjóðsins.
Allir sjóðfélagar, jafnt greiðendur sem lífeyrisþegar, eiga rétt
til fundarsetu.
Stjórn Lífeyrissjóðs bænda
Sími 563 1300 - lsb@lsb.is - www.lsb.is
Framleiðnisjóður
landbúnaðarins auglýsir
Framleiðnisjóður landbúnaðarins
Hvanneyri – 311 Borgarnes
Sími 430-4300
Framleiðnisjóður landbúnaðarins auglýsir hér með
eftir umsóknum um styrki til stuðnings við nýsköpun,
vöruþróun kynningar- og markaðsstarf til stuðnings
íslenskri sauðfjárrækt. Sjá nánar inn á heimasíðu sjóðsins
www.fl.is, undir Markaðssjóður/verklagsreglur.
Styrkþegar geta verið einstaklingar, hópar, félög, samtök,
rannsóknarstofnanir, háskólar eða fyrirtæki. Styrkhæf eru
þau verkefni sem talin eru styrkja íslenska sauðfjárrækt og
falla undir það að teljast nýsköpun, vöruþróun, kynningar-
eða markaðsstarf.
Reglur um styrkina og umsóknareyðublöð er að finna á
www. fl.is/markaðssjóður. Aðeins er tekið við umsóknum
á eyðublöðunum sem þar er að finna.
Umsóknum skal skilað til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins,
Hvanneyrargötu 3, 311 Borgarnes, merktum: Markaðssjóður.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu sjóðsins í síma
430 4300 og á netfangið fl@fl.is.
Umsóknarfrestur er til 1. október n.k.
Fullbúin íbúðarhús
Verð frá
kr. 9.600.000
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Gúmmíbelti
- Fyrir smágröfur
Ætla stjórnmálamenn endalaust
að verja sauðfjárræktina á kostnað
lands og þjóðar?
– Ekki fyrir viðkvæma og fortíðarhyggjufólk