Bændablaðið - 20.09.2018, Page 62

Bændablaðið - 20.09.2018, Page 62
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. september 201862 Leiga Bráðvantar geymsluhúsnæði/bílskúr (eða hluta hans) fyrir búslóð í hálft til eitt ár, sæmilega stórt eða allt að 15 fermetrum. Má vera utan höfuðborgar- svæðisins en þó helst ekki mikið lengra en Snæfellsnes eða Hvolsvöllur. Svar óskast í síma 892-0294. upplýsingar eru gefnar í síma 454-5270. Sumarhús Rotþrær og heitir pottar. Rotþrær - - leiðbeiningar um frágang fylgja. Borgarplast.is - sími 561-2211, Mosfellsbæ. Til leigu 100 m2 íbúð við Sogaveg (ofan Skeifu). Nýuppgerð, nýmáluð, baðherbergi nýtt. Strætó stoppar fyrir utan. Uppl. í síma 860-1404. Hesthús, íbúð og hagabeit. Til leigu hesthús með góðri reiðhöll á 60 fm íbúð. Einnig til leigu hagabeit fyrir ca 40 hross fram að áramótum frá sama aðila. Uppl. í s. 892-1355. Þjónusta fá uppl. og tilboð. HP transmission com, Einar G. www.bbl.is Næsta Bændablað kemur út 4. október Hitachi ZX19-5 2 tonna með hraðtengi og þremur skóflum. Hyundai R30Z-9 3 tonna með hraðtengi og þremur skóflum. Hyundai R55-9A 5 tonna með hraðtengi og þremur skóflum. Hyundai HX160LD 19 tonna með tönn, rótortilt og tveimur skóflum. Hyundai HX220L 22 tonna með hraðtengi og tveimur skóflum. Hyundai HL940 14 tonna með hraðtengi og auka vökvalögn. VÉLAR TIL LEIGU Nánari upplýsingar: S: 893-8424 og 694-3700 Facebook: Atvinnutæki ehf. 480 5600 Verð kr. 6.850 Landstólpi - Egilsstöðum Vélaval - Varmahlíð Útsölustaðir: UPPSTOPPUN KRISTJÁN FRÁ GILHAGA SÍMI 892-8154 Drekagili 9 603 Akureyri @simnet.is Frjálsíþróttavöllurinn í Vík liggur undir skemmdum Ragnheiður Högnadóttir, sveitar- stjórnarmaður í Mýrdalshreppi, er ekki sátt við ástandið á íþróttavelli sveitarfélagsins á Vík sem liggur undir skemmdum vegna vanhirðu. „Já, við höfum glæsilegan íþróttavöll með tartan brautum, en því miður þá hefur ekkert verið gert fyrir hann síðan árið 2011. Umf. Katla hefur ítrekað frá árinu 2015 sent erindi til sveitarstjórnar um að komið sé að því að gera eitthvað fyrir völlinn. Mikill mosi hefur fengið að vera óáreittur á hlaupabrautunum og eru þær að byrja að skemmast, einnig er löngu kominn tími á að merkja völlinn upp, þar sem t.d. myndavél tímatökubúnaðar nemur ekki lengur hvar marklínan er,“ segir Ragnheiður. Við fjörukambinn Frjálsíþróttavöllurinn er rétt við fjörukambinn í Vík og þegar mikið sandfok er úr fjörunni þá vill það fjúka inn á völlinn og setjast í tartan brautirnar, eins hefur það þau áhrif að hætta er á að gróður geti tekið sér bólfestu á brautunum. Einnig hefur þetta sandfok þau áhrif að merkingar á brautunum duga skemur en ella. Einar Freyr Elínarson, oddviti Mýrdalshrepps, segir að sveitarstjórn hafa samþykkt í lok apríl sl. að ráðast í hreinsun og merkingar á íþróttavellinum. Þetta var aftur rætt á fundi sveitarstjórnar 5. júlí þar sem sveitarstjóra var falið að vinna að framgangi málsins. „Ég get ekki sagt til um hver kostnaður við verkið er en ég hef heyrt að það geti hlaupið á einhverjum milljónum króna sem getur auðvitað verið þungt fyrir lítið sveitarfélag. Engu að síður er sveitarstjórn einhuga um að sinna íþróttamannvirkjunum vel,“ segir Einar Freyr og bætir við: „Með aðstöðunni sem boðið er upp á í Vík er búið að byggja upp mjög flott íþróttastarf. Það hefur m.a. verið gert á téðum íþróttavelli sem er langt frá því að vera ónýtur. Hann þarfnast hins vegar viðhalds og því verður sinnt.“ /MHH Völlurinn er farinn að rifna og skemmast á nokkrum stöðum sem þykir ekki gott. Frjálsíþróttavöllurinn í Vík er skammt frá sjónum í Vík og hefur fengið á sig töluvert sandfok úr fjörunni síðustu ár sem hefur ekki góð áhrif á tartanið á vellinum. ER ÞITT BÚ ÖRUGGUR OG GÓÐUR VINNUSTAÐUR? ER BRUNAHÆTTA Á ÞÍNUM BÆ? Á hverju ári verða því miður alvarlegir brunar á sveitabæjum. Bæði fólk og búfénaður er í mikilli hættu þegar eldur blossar upp. Með réttum viðbrögðum og undirbúningi má koma í veg fyrir tjón og slys af völdum bruna. PO RT h ön nu n Kynntu þér leiðbeiningaefni um öryggi og vinnuvernd í landbúnaði á bondi.is

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.