Bændablaðið - 29.11.2018, Side 4

Bændablaðið - 29.11.2018, Side 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. nóvember 20184 FRÉTTIR Kokkalandsliðið vann til gullverðlauna á HM með þorsk, lamb og skyr Heimsmeistarakeppnin í matreiðslu var haldin í Lúxemborg um helgina og var íslenska kokkalandsliðið þar meðal þátttakenda. Á sunnudaginn var tilkynnt um að íslenska landsliðið hefði unnið til gullverðlauna fyrir heita matinn, en þau er til marks um fjölda stiga sem liðið vinnur sér inn. Mest er hægt að ná í 100 stig, en þau lið sem fá 91 til 100 stig hljóta gullverðlaun. Gullverðlaunin fengust fyrir heitu réttina þar sem útbúinn var þriggja rétta matseðill með forrétti, aðalrétti og eftirrétti og eldað frá grunni á keppnisstað fyrir 110 gesti. Alíslenskt hráefni Kokkalandsliðið vann með alíslenskar áherslur í gegnum keppnina og lögð var mikil áhersla á sérvalið sígilt íslenskt hráefni þar sem íslenskur þorskur, íslenskt lamb og Ísey skyr var í aðalhlutverki. Í fremstu röð í áratugi Fleiri en ein þjóð geta því fengið gull og svo getur það líka gerst að enginn fái gull. Fyrir 81 til 90 stig fæst silfur og svo þannig koll af kolli. Heildarstigin verða kynnt á næstu dögum og endanleg röð liða. Þá vann Denis Shramko til gullverðlauna í sykurgerðarlist á heimsmeistaramótinu. Landsliðið hefur verið í fremstu röð síðastliðin 30 ár, en heimsmeistaramótið er haldið á fjögurra ára fresti. Á síðasta heimsmeistaramóti náði liðið frábærum árangri þegar það varð í 5. sæti. /smh Þorskur var í forrétt. Lamba-mjaðmasteik í aðalrétt. Ísey skyrréttur í eftirrétt. Íslenska kokkalandsliðið er þannig skipað: Þjálfari er Ylfa Helgadóttir Kopar, aðstoðarþjálfari Jóhannes S. Jóhannesson, Landsvirkjun, Snædís Xyza Jónsdóttir, Ocampo Mímir Hótel Saga, Sigurjón Bragi Geirsson, Garri, Snorri Victor Gylfason, Vox Hilton hótel, Þorsteinn Geir Kristinsson, Fiskfélagið, Fanney Dóra Sigurjónsdóttir ,Marel, Kara Guðmundsdóttir, Fiskfélagið, Denis Grbic, Mímir Hótel Saga, Ari Þór Gunnarsson, Fiskfélagið, Hinrik Lárusson, Luxury Catering. Forseti Klúbbs matreiðslumeistara er Björn Bragi Bragason, Síminn. Myndir / Kokkalandsliðið m r t r r r r r n r r f t a r f r r r d H Uppskeruhátíð í Austur-Húnavatnssýslu: Pía á Brúsastöðum er nythæsta kýrin og knapi ársins er Bergrún Ingólfsdóttir – Vænsta lambið er frá Syðri-Ey, Mugison frá Hæli hlaut Fernisbikarinn og Blöndalsbikarinn fékk Kopar frá Steinanesi Uppskeruhátíð búgreinafélaganna og Hestamannafélagsins Neista í Austur-Húnavatnssýslu var haldin fyrir skömmu og mætti fjöldi manns til að fagna saman. Í Austur-Húnavatnssýslu er öflugur landbúnaður og mörg bú skipa sé í efstu sætin þegar kemur að afurðum á landsvísu. Á uppskeruhátíðinni voru veitt verðlaun fyrir ýmsa flokka innansveitar. Meðal annars þyngsta nautið, hæst dæmda kýrin, kýrin Pía á Brúsastöðum reyndist vera nythæsta kýrin og Brúsastaðir afurðahæsta búið með meðalnyt eftir 49,2 kýr upp á 8,937 kíló. Brúsastaðir voru afurðahæsta búið á landsvísu 2017. Sauðfjárverðlaun Verðmætasta lambið í sýslunni kom frá Syðri-Ey Það var 28,2 kíló og með 7% álagsgreiðslu fengust fyrir það 10. 575 krónur. Hæst dæmda lambið kom frá Stekkjardal með 90,5 stig. Bestu ómælingar gimbra voru í Stekkjadal, Stóra-Búrfelli og Sölvabakka. Í Stekkjardal voru skoðaðar 92 gimbrar og að meðaltali mældist bakvöðvi þeirra 31,9 millimetrar, fita 4,2 millimetrar og lögun 4,1. Besti hrútur í afkvæmarannsóknum var Kitti frá Vindhæli með 125,1 stig. Afurðahæsta sauðfjárbúið var Stekkjardalur. Hestamannafélagði Neisti Knapi ársins hjá hestamanna félaginu Neista er Bergrún Ingólfsdóttir. Af merum hlaut Stikla frá Síðu 7,52 í aðaleinkunn, Krækja frá Sauðanesi 7,89, Kúnst frá Steinnesi 8,23 og Þyrnirós frá Skagaströnd aðaleinkunnina 8,36. Af stóðhestum hlaut Korpur frá Steinsnesi 8,23 í aðaleinkunn og Kleó frá Hofi 8,27. Fernisbikarinn sem veittur er fyrir hæst dæmda kyndómahross sýslunar hlaut Mugison frá Hæli og Blöndalsbikarinn sem veitur er fyrir hæst dæmda fjögura vetra stóðhestinn féll í hlut Kopars frá Steinnesi. Auk þess sem Steinsnes var valið ræktunarbú ársins. /VH Kúabændur. Jón Gíslason, Stóra-Búrfelli, Magnús Björnsson, Syðra Hóli, Gróa Lárusdóttir og Sigurður Ólafsson á Brúsastöðum. Sauðfjárbændur. Erna Högnadóttir, Vindhæli, Magnús Bergmann Guðmannsson, Vindhæli, Gerður Garðarsdóttir, Stekkjardal og Ægir Sigurgeirsson, Stekkjardal. Hrossabændur í Austur-Húnavatnssýslu. Guðrún Rut Hreiðarsdóttir, Efri Mýrum, Þorlákur Sveinsson, Efri Mýrum, Berglind Bjarnadóttir, Steinnesi, Guðrún Jón Kristófer Sigmarsson, Hæli og Gísli Geirsson, Mosfelli, sem tók við verðlaunum fyrir hönd Kagaðarhóls.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.