Bændablaðið - 29.11.2018, Page 7

Bændablaðið - 29.11.2018, Page 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. nóvember 2018 7 LÍF&STARF S íðastliðið laugardagskvöld, 24. nóv., sat ég mikinn afmælisfagnað Gylfa Gunnarssonar, útgerðarmanns og bónda í Grímsey. Gestum bauð Gylfi til veislu í reiðhöll Léttismanna á Akureyri. Mikla bauð hann gestum magafylli, en ekki síður þétta dagskrá gleðiefnis og söngs. Þótt reiðleiðir séu fremur knappar úti í eyju, þá rækir hann hestamennsku sína mikið í landi. Gylfi hefur um langt árabil gengið haustgöngur fyrir bændur á Gunnarsstöðum. Þeir Gunnarsstaðabræður, Steingrímur, Jóhannes og Ragnar, ásamt Pétri Péturssyni, fluttu samkomunni eins konar útdrátt úr gangnakveðskap genginna ára þar sem Gylfi kemur mjög við sögu. Þær vísur sem fylla þennan þátt verða ekki sérstaklega höfundaðar en samt allar ortar af fyrrnefndum félögum. Fyrstu þrjár vísurnar eru nýsmíði, sennilega eftir Pétur, ortar í tilefni afmælisdagsins. Með heiðri og sóma hetja slyng heldur sinni vöku. Því skal Gylfa Grímseying glaður kveða stöku. Sólarmegin salta dröfn sigldu í leiði fínu, og stýrðu alltaf heilu í höfn happafleyi þínu. Eigðu af gæðum öllum nóg, ekkert hafðu að fela. Haltu reiðhest, sæktu sjó og súptu á landapela. Þá koma tilvitnaðar vísur úr göngum með Gunnarsstaðamönnum: Þó lítt oss kæti kuldi og hríð, krap og vætugöngur, var í kofa vistin blíð, vísur, gleði og söngur. Situr djúpt í sálarmal og seiðir hugann löngum, hafir þú í Heljardal hampað fleyg í göngum. Aldrei meiri yl ég fann, eða gleði sanna, en þegar Kaldakvíslin rann um kverkar gangnamanna. Oft í göngum glöggt ég fann að Gylfi leysir vandann, þegar maður hittir hann með hákarlinn og landann. Gæti verið þarfaþing og þjónað smölun betur að láta Gylfa Grímseying gelta fyrir Pétur. Eykst mér stöðugt andagift, artir lágar bönnum. Í góðu veðri er glasi lyft með Gunnarsstaðamönnum. Sólin skein á skallana, skorið fé í hrönnum, en Gylfi bætti upp gallana á Gunnarsstaðamönnum. Inná heiði er ég frjáls, er það létt að skilja. Eru komin upp í háls eistun bæði á Gylfa. Ef í göngur Gylfi fer með glás af áfenginu furðu borubrattur er þó blæði úr rassgatinu. Er á lífi enn um sinn, en aftur fyrir handan get ég séð að Gylfi minn graðgar í sig landann. Upp til heiða sæll ég syng, síðan ríð með flaumi. Læt svo Gylfa Grímseying glamra meðfram straumi. Ekki var af verstu sort vínið góða og söngur. Drukkið mikið, dável ort, dásamlegar göngur! Umsjón: Árni Geirhjörtur Jónsson kotabyggð1@gmail.com MÆLT AF MUNNI FRAM Sigurbjörg Níelsdóttir frá Bústólpa sem gaf verðlaun, þá Atli Már Atlason sem varð í þriðja sæti, Gunnar Halldórsson í öðru sæti og Kristján Elvar Gíslason, Íslandsmeistari í járningu 2018, lengst til hægri er Björn Jóhann Jónsson, formaður Hestamannafélagsins Léttis. Myndir / Sigfús Helgason Kristján Elvar Íslandsmeistari í járningum 2018 Keppnin var spennandi og mjótt á munum. Kristján Elvar Gíslason varð Íslandsmeistari í járningum árið 2018, en mótið fór fram í Léttishöllinni á Akureyri á dögunum. Það var haldið í samstarfi Járningamannafélags Íslands og Hestamannafélagsins Léttis. Keppnin var spennandi og svo mjótt á munum að annar dómarinn, Anton Páll Níelsson, tók sér í munn nýyrði þegar hann sagði að það hefði tæplega slimmfjöður komist á milli þeirra er unnu til verðlauna. Gestur Páll Júlíusson hélt magnaðan fyrirlestur um kynbótajárningar og nýjar áherslur í þeim efnum. Var það samdóma álit manna er á hlýddu að orð hafi þar verið í tíma töluð. Trausti Óskarsson var skráður með fyrirlestur um hælahæð og olnbogaágrip og viðeigandi sýnikennslu, en vegna veðurs var ekki flogið þannig að Trausti ræddi við gesti í gegnum skype. Sýnikennsla var í kynbótatálgun og járningum áður en Íslandsmótið í járningum hófst. Kristján Elvar Gíslason varð í fyrsta sæti og þar með Íslandsmeistari í járningum árið 2018, í öðru sæti var Gunnar Halldórsson og í því þriðja Atli Már Atlason. /MÞÞ Nýkrýndur Íslandsmeistari í járningum, Kristján Elvar Gíslason.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.