Bændablaðið - 29.11.2018, Qupperneq 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. nóvember 201828
Íslendingar þekkja vel afurðir
íslensku sauðkindarinnar og þar
er ullin og lopinn sem úr henni
fæst í hávegum höfð. Færi vita þó
að ull sauðkinda inniheldur líka
önnur efni eins og ullarfitu eða
lanolin, sem er eitthvert albesta
ryð- og tæringarvarnarefni sem
hægt er að fá.
Á landbúnaðarsýningunni
í Laugardalshöll í október var
fyrirtækið „Hjá Smára Hólm“ með
bás þar sem kynntar voru vörur frá
Prolan á Nýja-Sjálandi. Umboðsaðili
Prolan í Evrópu er Denrex ASP í
Danmörku.
Rekur ryðvarnarverkstæði á
Rauðhellu í Hafnarfirði
Smári Hólm Kristófersson, stofnandi
og eigandi fyrirtækisins, hefur
áratuga reynslu af bifreiðaviðgerðum
og viðhaldi. Hann er reyndar
sannkallaður þúsundþjalasmiður
með menntun og reynslu í fjölda
iðngreina og er þar á meðal lærður
kjötiðnaðarmaður. Hann rekur nú
ryðvarnarverkstæði á Rauðhellu 1
í Hafnarfirði.
Í seinni tíð hefur Smári og
fyrirtækið þó í auknum mæli farið
að sérhæfa sig í viðgerðum og
forvörnum á ryðmyndun. Við þá
þróun sem átt hefur sér stað innan
fyrirtækisins hafa starfsmenn þess
leitast eftir nýjum og árangursríkum
leiðum til þess að takast á við hið
hvimleiða vandamál sem ryð getur
leitt af sér.
Hann hefur fundið árangursríka
lausn með notkun efnablöndu frá
nýsjálenska fyrirtækinu Prolan.
Efnið hefur reynst ákaflega
árangursríkt auk þess sem notkun
þess býður oft mun hagkvæmari
lausnir en þær sem þegar eru til
staðar, af þessu leiðir sparnað til
kaupanda auk þess sem efnið er
umhverfisvænt. Samt er þetta efni
upphaflega ekki framleitt sem
ryðvarnarefni heldur sem vistvænt
smurefni í matvælaiðnaði.
Byrjaði með Prolan fyrir 5 árum
„Ég byrjaði að nota Prolan-efni fyrir
fimm árum og prófaði mig síðan
áfram. Ég vildi vera viss um að þetta
væri að virka eins og framleiðandi
sagði og ég vildi að það virkaði.
Enda hafði ég áður brennt mig á
notkun annarra efna sem seld voru
sem ryðvarnarefni og voru bara ekki
að virka vel.
Það var ungur maður sem kynnti
Prolan fyrir mér og endaði það
með því að við fórum í samstarf. Í
framhaldinu óskuðu erlendu birgjar
Prolan eftir því að ég tæki alfarið
við sölu á efnum þeirra á Íslandi.
Síðan fór þetta að rúlla eiginlega af
sjálfu sér.“
Kemur í veg fyrir tæringu af
brennisteinsvetni
„Ég hef ekkert verið að auglýsa, en
menn hafa frétt af gæðum þessa efnis
í gegnum reynslu annarra eins og
rekstraraðila fjallabíla. Ég hef líka
verið að gera tilraunir með virkni
efnisins, m.a. til að verja keðjur,
járn og ál. Ég setti upp rekka við
Hellisheiðarvirkjun til að prófa
hvort Prolan stæðist tæringu af
völdum brennisteinsvetnis sem er
eins og menn geta séð að tæra allar
rafmagnssamstæður í flutningslínum
á Hellisheiði. Ég setti þetta líka á
bíla frá Vöku, Tempra og fleiri
fyrirtækjum og einnig sem botnfarva
á báta. Líka hef ég prófað þetta sem
felgubón og fleira.“
Bændur sjá kosti Prolan sem
viðkennt er fyrir matvælaiðnað
„Nú eru bændur farnir að taka
við sér við að prófa Prolan til að
verja sín tæki. Menn sjá það að
fyrst sýran sem er í loftinu við
Hellisheiðarvirkjun vinnur ekki á
þessu þá vinnur maurasýra og önnur
efni sem notuð eru í landbúnaði
ekki heldur á þessu. Þar fyrir
utan er þetta vottuð NSF vara af
Evrópusambandinu sem vistvænt
smurefni fyrir matvælaiðnaðinn.
Vegna þessa sérstöku skaðleysis-
eiginleika þá hafa íslenskir bændur
sýnt Prolan-efnunum áhuga, þar sem
óhætt er að nota þau sem ryðvörn
á dráttarvélar og önnur tæki án
þess að valda skaða í umhverfinu
eða á framleiðsluvörum bænda,“
sagði Svavar Hólm í samtali við
Bændablaðið.
Lanolin – ullarfeiti
Eins og fyrr segir er lanolin virka
efnið í Prolan. Orðið lanolin er
samsett úr latnesku orðunum
eða olíu. Þetta efni hefur líka verið
nefnt ullarvax eða ullarfeiti og
myndast í fitukirtlum allra dýra
sem hafa ullarfeld. Það er því líka
að finna í ull af íslensku sauðfé,
en þó í tiltölulega litlu magni,
en mun meira í fé sem alið er á
heitari slóðum, eins og í Ástralíu
og á Nýja-Sjálandi. Samkvæmt
upplýsingum Bændablaðsins hefur
ullarverksmiðjan Ístex kannað
möguleika á að framleiða lanolin
úr íslenskri ull, en það ekki talið
borga sig.
Lanolin er sannarlega mikið
undraefni og er m.a. uppistaða
í mörgum snyrtivörum, sem og
sérhæfðum smur- og varnarefnum
fyrir matvælaiðnað og flugvélar.
Hafa lanolinvörur verið framleiddar
undir ýmsum vörumerkjum sem eru
eins ólíkar og merkin eru mörg.
Efni sem nota má í
matvælaiðnaði
Prolan á Nýja-Sjálandi hefur
framleitt nokkrar gerðir af smur-
og ryðvarnarefnum úr ullarfitu
og hafa fengið alþjóðlega
viðurkenningu NSF (Nonfood
Compounds Progarm Listed) og
frá Matvælaöryggiseftirliti Nýja-
Sjálands, eða New Zealand Food
Safety Autority (NZFSA). Það
þýðir að Prolan-efni undir heitunum
Prolan Enduro HG, Prolan Enduro
MG, Prolan Grease, Prolan Heavy,
Prolan Light og Prolan Medium má
nota á vélar og tæki í matvælaiðnaði,
eins og í kjötvinnslum og fiskiðnaði.
Þolir klór og þvott með miklum
vatnsþrýstingi
Til að efnið standist kröfur sem
smurefni í matvælaiðnaði verður
það að þola ætandi efni eins og
klór og sterk sápuefni. Þá verður
það líka að þola vatnsþvott með
háþrýstibyssum. Rannsóknir sýna
að Prolan fer ekki af þó beitt sé
vatnsþrýstingi upp á 170 bör. Þá má
skítur ekki heldur loða við efnið.
Það má heldur ekki skemma gúmmí.
Allar þessar kröfur stenst Prolan
eins og NSF vottunin vísar til.
Vörurnar frá Prolan hafa þannig
verið þrautprófaðar við hinar ýmsu
aðstæður. Þrotlaus vinna hefur farið
í vöruþróun og eru vörurnar í raun í
stöðugri þróun þar sem unnið er að
því að útbúa sérhæfðar lausnir fyrir
krefjandi aðstæður.
Ekki hættulegt fólki eða skepnum
„Prolan er hvorki hættulegt fólki
né skepnum. Bændur geta því að
skaðlausu úðað þessu efni yfir sínar
heyvinnuvélar, dráttarvélar og önnur
tæki á haustin. Þá virkar þetta bæði
sem smurefni og tæringarvörn.
Þegar vélarnar eru svo teknar í
ÍSLENSKUR LANDBÚNAÐUR 2018
Undraefnið Prolan frá Nýja-Sjálandi er byggt á nýtingu á lanolin úr sauðfjárull:
Einhver albestu smur- og ryðvarnarefni
sem þekkjast eru unnin úr ull af sauðfé
– Smári Hólm Kristófersson segir reynslu sína af notkun efnisins á Íslandi vera langt umfram væntingar
Smári Hólm Kristófersson og Niels Bilde í bás Prolan á landbúnaðarsýningunni í Laugardalshöll. Niels var þarna mættur sem fulltrúi Denrex ASP í
Danmörku, sem er umboðsaðili Prolan í Evrópu. Myndir / HKr.
Starfsmaður Smára að sprauta Prolan-efni inn í burðarvirki á nokkurra ára gömlum bíl. Eins og sést er búið að
fjarlægja hlífar og meira að segja brettakanta til að komast að öllum holrúmum.
Það er ekkert skilið eftir svo tæring af völdum salts og vatns nái ekki að
eyðileggja undirvagninn.