Bændablaðið - 29.11.2018, Side 29

Bændablaðið - 29.11.2018, Side 29
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. nóvember 2018 29 notkun á vori er óþarfi að þvo efnið af. Þó þetta fari á bremsudiska á bílum verða þeir ekki bremsulausir. Bremsu- dælur sem hætt er við að ryðga haldast fínar og flottar við að úða á þær Prolani. Þá þarf engar áhyggjur af‘ hafa af gúmmífóðringum, þær skemmast ekki.“ Svavar segir að þegar hann taki bíla í ryðvörn þá láti hann bílinn standa inni yfir nótt til að þurrka hann. Síðan taki hann öll dekk og hlífar undan bílnum og þrífi undirvagn áður en efninu er sprautað á. Þá er efninu líka sprautað inn í sílsa, alla bita og glufur og ef þess þarf eru boruð göt á bitana til að koma efninu inn í þá. Þannig á að vera tryggt að allir krókar og kimar undirvagnsins séu varðir af Prolan- efninu. Klaki festist ekki undir bílum sem úðaðir hafa verið með Prolan Svavar segir að þegar búið er að úða Prolan-efni inn í bretti á bílum og á undirvagn, þá verði klakasöfnun aldrei til vandræða á veturna. „Jeppakarlarnir sem hafa notað þessi efni og eru að ösla í klaka og krapa og uppi á jöklum segja mér að það festist aldrei klaki undir bílana hjá þeim. Það eina sem hefur áhrif á Prolanið undir bílunum er barningur af sandi frá hjólbörðum sem virkar þá eins og sandblástur. Það er ekkert efni sem stenst það og þá er bara að úða þá álagsstaði aftur. Þegar menn lenda í að gera við bíla sem úðaðir hafa verið með Prolan-efni, þá verða aldrei vandræði vegna þess að boltar og skrúfur hafi ryðgað fastar. Enda er þetta smurefni sem smýgur inn í allar glufur og gengjur. Felguhringir á vörubílum sem gjarnir eru á að ryðga fastir verða aldrei til vandræða ef Prolan er borið á þá. Í Danmörku eru vörubílstjórar mikið farnir að nota Prolan af þessum sökum.“ Leysir upp prótein eins og flugur Þótt Prolan sé hannað sem smurefni og tæringavörn, þá er það líka nothæft sem hreinsiefni. Einn af eiginleikum þess er að það leysir upp prótein, eins og frá fiski og flugum sem gjarnan festast framan á bílum á sumrin. Segir Svavar að útgerðarfyrirtæki í Grindavík hafi uppgötvað þennan eiginleika og notað Prolan til að losna við slor á pöllum bíla sinna. Þá hafa menn líka verið að nota þetta efni til að stoppa ryðblettamyndun í lakki bíla og hreinsa ryð, líka af reiðhjólum. Gæðin langt umfram væntingar „Þetta efni er því búið að standa sig svakalega vel að mínu mati. Gæði efnisins og virkni eru langt fram yfir mínar væntingar,“ segir Smári Hólm Kristófersson. /HKr. Lanolin sem unnin er úr ull ástralskra og nýsjálenskra s auðkinda er nú notuð til að ve rja tól og tæki um allan heim fyr ir tæringu. Smári bendir á drifbúnað og ýmis holrúm undir bílnum sem passað er upp á að verði ekki út undan þegar Prolan-efninu er sprautað á undirvagninn. RÝMINGARSALA AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM VERSLUNIN HÆTTIR 50% Ortlieb hjólatöskur, sjópokar og bakpokar Grubs skófatnaður - Coast LED höfuðljós - vasaljós hnífar - Victorinox vasahnífar - eldhúshnífar Sjá nánar á WWW.FJALLI.IS Bæjarlind 6 201 Kópavogi Sími: 578-5050 vild@vild.is Bjarni Harðarson Í GULLHREPPUM Í Gullhreppum segir frá þjóðsagnapersónunni séra Þórði í Reykjadal og hinu mikla veldi Skálholtsstaðar á 18. öld. Morgunblaðið 480 5600480 5600 Verð kr. 13.790 Landstólpi - Egilsstöðum Vélaval - Varmahlíð Útsölustaðir: Auglýsinga- og áskriftarsími Bændablaðsins er 563-0303

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.