Bændablaðið - 29.11.2018, Side 36

Bændablaðið - 29.11.2018, Side 36
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. nóvember 201836 Ferskjur eiga sér langa ræktunarsögu í Kína. Talið er að Alexander mikli hafi haft þær með sér til Evrópu eftir að hann lagði Persíu að velli. Nektarínur eru afbrigði af ferskjum. Framleiðsla á ferskjum og nektarínum hefur aukist hratt undanfarin ár og áætluð heimsframleiðsla á ferskjum og nektarínum árið 2016 er rúm 25 milljón tonn. Framleiðslan er langmest í Asíu, um 17,5 milljón tonn, næstmest er hún í Evrópu, tæp 4,8 milljón tonn. Í Norður- og Suður- Ameríku rúm 2,1 milljón, í Afríku er áætluð ræktun 860 þúsund tonn og 84 þúsund tonn í Eyjaálfunni. Þegar kemur að einstökum löndum er Kína langstærsti framleiðandinn og framleiðir ríflega 13 milljón tonn af ferskjum og nektarínum á ári, sem er 11 milljón tonnum meira en Spánn, sem er annar stærsti framleiðandinn með um tvær milljónir tonna á ári. Ítalía er í þriðja sæti með framleiðslu á um 1,5 milljón tonnum og Bandaríki Norður-Ameríku og Grikkland í fjórða og fimmta sæti og framleiðslu upp á rúm milljón tonn. Eins og gefur augaleið er Kína stærsti útflytjandi ferskja og nektarína í heiminum en þar á eftir koma Spánn og Bandaríki Norður- Ameríku. Stærstu innflutningslöndin eru Þýskaland, Rússland, Hvíta- Rússland og Frakkland. Samkvæmt upplýsingum á vef Hagstofu Íslands voru flutt inn rúm 190 tonn af ferskum ferskjum og nektarínum árið 2017. Mest var flutt inn frá Spáni, rúm 95 tonn, og Ítalíu, tæp 81 tonn. Auk þess sem eitthvað af ferskjum og nektarínum er flutt inn sem þykkni og bragðefni. Ættkvíslin Prunus Um 430 tegundir trjáa og runna, sem eru sígrænir eða lauffellandi, tilheyra ættkvíslinni Prunus sem er af rósaætt. Þar á meðal ferskjur, plómur, kirsuber, perur, apríkósur og möndlur. Ferskjur og nektarínur Ferskjur eru sætir ávextir ferskjutrjáa, Prunus persica. Ferskjutré eru lauffellandi og ná hæglega tíu metra hæði í náttúrulegum heimkynnum sínum í Asíu. Í ræktun eru tré yfirleitt ekki hærri en þrír til fjórir metrar. Stofninn sem vex upp af grunnt liggjandi trefjarót er grannur og sjaldan yfir 15 sentímetrar í þvermál á fullvöxnum trjám. Laufið stakstætt, lensulaga 7 til 16 sentímetra langt og 2 til 3 sentímetrar að breidd. Trén blómstra snemma á vorin fyrir laufgun, blómin bleik 2,5 til 3 sentímetra í þvermál með fimm krónublöðum. Aldinið, steinaldin, rauðbleikt og gult á ytra borði en hvítt gult og jafnvel rautt að innan eftir afbrigðum. Angar vel. Utan um fræið er brúnleitt, hrjúft og egglaga fræhulstur sem er einn til tveir sentímetrar að lengd. Fræið sjálft er hvítt og eilítið minna en fræhulstrið. Þrátt fyrir að til séu hundruð mismunandi ræktunarafbrigði, staðbrigði og landsortir af ferskjum sem eru ólík að stærð, lögun, lit og bragði eftir vaxtarstað, er þeim yfirleitt skipt í tvennt. Annars vegar ferskjur sem eru með flauelskennda húð eða nektarínur, P. persica var. nucipersica eða var. nectarina, sem eru sléttar viðkomu eða eins og nýrakaðar ferskjur. Ferskjur eru yfirleitt stærri, mýkri og safaríkari en nektarínur og fræið í þeim stærra. Uppruni og útbreiðsla Elstu minjar sem minna á ferskjur eins og við þekkjum þær í dag er 2,6 milljóna ára gamall plöntusteingervingur sem fannst í Kunming-héraði í Kína og kallast P. kunmingensis. Talið er að ferskjur hafi fyrst verið ræktaðar í norðvesturhluta Kína. Þaðan barst plantan um Asíu og til Persíu þar sem ferskjur voru í miklu uppáhaldi. Frá Persíu barst hún til Evrópu fyrir ríflega 2.300 árum. Nafnaspeki Grikkir og Rómverjar kölluðu ávöxtinn melon persikon, eða persneskar plómur. Á frönsku varð heitið pêche, á ítölsku pesca og á ensku peach. Þjóðverjar nefna ávöxtinn pfirsich, Pólverkar kalla hann brzoskwinia, Finnar persikka, á galísku er heitið pexego og dönsku fersken og þaðan sem íslenska heitið ferskja er komið. Á ensku er orðið peach slangur- yrði yfir ungar konur eins og svo eftirminnilega kemur fram í texta lagsins Peaches með hljómsveitinni Strangles „Walking on the beaches looking at the peaches“. Þýðing latneska ættkvíslar- heitisins Prunus er óþekkt en talið að það sé lánsorð úr phrygian sem er útdautt tungumál sem var talað í Mið-Asíu og skylt frumgrísku. Tegundaheitið persica þýðir að plantan komi frá Persíu og tengist því að Evrópumenn töldu hana þaðan komna. Saga Þrátt fyrir að latneska tegundaheitið persica bendi til þess að plantan sé upprunnin í Persíu, þar sem nú er Íran, sýna rannsóknir að erfðaefni hennar svo ekki verður um villst að plantan sé upprunnin í Kína. Talið er að ræktun á ferskjum hefjist í Zhejiang-héraði norðan við Sjanghæ Kína 6000 árum fyrir Kristburð. Ferskja er getið í kínverskum ritum frá því á elleftu öld fyrir Krist og sagðar í miklu uppáhaldi hjá keisaranum og hirðinni. Vísbendingar eru um að ferskjur berist til Japan frá Kína á tímabilinu 4700 til 4400 fyrir upphaf okkar tímatals, eða á svokölluðu Jomon- tímabili. Talið er að planta berist til Indlands um 3700 fyrir Krist. HELSTU NYTJAJURTIR HEIMSINS Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.