Bændablaðið - 13.12.2018, Síða 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 201810
FRÉTTIR
„Kynnum kindina“ hlutskarpast í hugmynda samkeppninni Lambaþoni:
Kindur sem aðdráttarafl fyrir ferðamenn
Hugmyndasamkeppnin Lamba þon
var haldin á dögunum. Keppt var
um bestu hugmyndina til að auka
verðmætasköpun í virðiskeðju
sauðfjár. Vinningshugmyndin
ber heitið Kynnum kindina, sem
gengur út á að kynna kindur sem
aðdráttarafl fyrir ferðamenn og
gefa ferðamönnum kost á að
upplifa með auðveldum hætti
ýmis störf til sveita sem tengjast
sauðfé.
Sigurliðið skipuðu Arnþór
Ævarsson, Magnea Jónasdóttir og
Kári Gunnarsson og hlutu þau 200
þúsund í verðlaun.
Bændur setja inn upplýsingar á
matarlandslagid.is
Að sögn Evu Margrétar Jónudóttur,
sem er verkefnastjóri fyrir Lambaþon,
hefur verkefnið Kynnum kindina
fengið enska heitið Sheepadvisor
og er hugmyndin að það verði
tengt vefnum matarlandslagid.is.
„Á svokölluðu dreifnikorti verður
hægt að sjá hvaða bæir eru tengdir
verkefninu og upplýsingum komið á
framfæri um hvar sé hægt að bragða
á réttum úr íslensku sauðkindinni,
hvar vörur úr íslenskri ull eru
seldar og hvar viðburðir tengdir
sauðfjárrækt eru á döfinni. Þeir
bændur sem hefðu áhuga á að tengja
sig við Sheepadvisor ættu að geta
sett inn rafrænt hvað sé í boði, hvort
sem það eru vörur eða þjónusta.
Þeir ættu einnig að geta merkt inn
hvenær hvað er í boði. Þannig geta
þeir í rauninni ráðið vinnutímanum
í ferðaþjónustunni og geta þá merkt
„unavailable“ ef þeir hafa ekki tíma
til þess að sinna ferðaþjónustunni
á tilteknum tíma. Þarna gætu þeir
skipulagt stærri viðburði og þannig
boðið ferðamönnum með í göngur,
réttir, rúning og allt hvað eina
sem þeim dettur í hug,“ segir Eva
Margrét.
Jöfn keppni sex liða
Sex lið kepptu og var keppnin jöfn
þar sem hugmyndaauðgi einkenndi
verkefnin. Mörg þeirra verða í
áframhaldandi þróun.
Að atburðinum stóðu Matís,
Landbúnaðarháskóli Íslands,
Háskólinn á Bifröst, Landgræðslan,
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins,
Matvælastofnun, Landssamtök
sauðfjárbænda, Samtök ungra
bænda, Háskóli Íslands og
Icelandic Lamb. Dómnefnd
skipuðu Guðjón Þorkelsson, sem
var formaður, Arnar Bjarnason,
Bryndís Geirsdóttir, Gunnfríður
Hreiðarsdóttir og Ragnheiður
Héðinsdóttir.
Auglýst var eftir fjórum til
átta manna liðum til þátttöku.
Hugmyndir voru metnar af
dómnefnd samkvæmt eftirfarandi
atriðum:
• Hversu mikið eykst verðmætasköpun
bónda sem hrindir hugmyndinni í
framkvæmd? Hver er ávinningur fyrir
neytendur?
• Felur hugmyndin í sér uppbyggjandi
tillögur um starfsumhverfi bænda?
• Felur hugmyndin í sér jákvæð
umhverfisáhrif?
• Felur hugmyndin í sér þróun nýrra
vara eða þjónustu? Hugmyndir um
markaðssetningu!
• Slær hjarta liðsins með hugmyndinni?
Efnafræðin, orkan og framsetning!
• Hugmyndir mátti setja fram á hvaða formi
sem er og voru þær meðal annars metnar
út frá því hve auðvelt er að miðla þeim til
bænda og almennings á Íslandi. /smh
Gunnar Sæmundsson
GUNNAR Í HRÚTATUNGU
Hér segir frá unglingnum sem var of efnalítill til að komast
í Héraðsskólann á Reykjum. En einnig vormanni í upprisu
sveitanna.
Tvö af þeim þremur sem standa að Kynnum kindina: Magnea Jónasdóttir og
Arnþór Ævarsson á milli þeirra Guðjóns Þorkelssonar, formanns dómnefndar
og Evu Margrétar Jónudóttur frá Matís. Mynd / Kristín Edda Guðmundsdóttir
Opið fyrir umsóknir í viðskiptahraðalinn „Til sjávar og sveita“:
Tækifæri fyrir frumkvöðla í landbúnaði og sjávarútvegi
Viðskiptahraðallinn „Til sjávar
og sveita“ var formlega kynntur í
gær í IKEA í Garðabæ. Tilgangur
hraðalsins er að stuðla að nýsköpun
í landbúnaði og sjávarútvegi með
áherslu á sjálfbærni. Icelandic
Startups stendur fyrir hraðlinum
en hann gengur út á að bjóða
frumkvöðlum og fyrirtækjum að
útfæra viðskiptahugmyndir undir
handleiðslu sérfræðinga.
Á níu vikum er unnið að því
með markvissum hætti að móta ný
virðisaukandi viðskiptatækifæri
fyrir þessar grunnatvinnugreinar
þjóðarinnar. Búið er að opna
fyrir umsóknir á vefnum
tilsjavarogsveita.is en alls verða
tíu teymi valin til þess að taka þátt
í viðskiptahraðlinum.
Ingi Björn Sigurðsson og
Melkorka Sigríður Magnúsdóttir,
starfsmenn Icelandic Startups, segja
að þetta sé fimmtándi hraðallinn
sem sé ræstur undir merkjum
fyrirtækisins og fyrirkomulagið hafi
fyrir löngu sannað gildi sitt.
Ný kynslóð fyrirtækja í
landbúnaði og sjávarútvegi
„Þór Sigfússon, eigandi
Sjávarklasans, kom með þá
hugmynd til okkar í Icelandic
Startups að stofna viðskiptahraðal
með nafninu „Til sjávar og sveita“
þar sem einblínt yrði á sjávarútveg
og landbúnað. Við fórum í þá
vegferð að finna bakhjarla og
fundum að lokum hugrakkt fólk
til þess að vinna með okkur. Innan
raða Icelandic Startups er mikil
reynsla fyrir hendi sem nýtist vel
í framhaldinu. Við ætlum okkur að
búa til næstu kynslóð af fyrirtækjum
í landbúnaði og sjávarútvegi,“
segir Ingi Björn og bætir við að ef
styrkleikar Íslands liggi einhvers
staðar þá sé það í þessum gömlu
og grónu atvinnuvegum.
Hjálpum fyrirtækjum og
hugmyndum að vaxa
Melkorka segir að markmiðið sé
að leita að viðskiptahugmyndum
sem auka verðmætasköpun í
sjávarútvegi og landbúnaði með
áherslu á sjálfbærni. „Við hjá
Icelandic Startups sjáum um að
hjálpa sprotafyrirtækjum á Íslandi
að vaxa og dafna. Hraðlarnir eru ein
af meginstoðunum í okkar starfi.
Þetta er ótrúlega spennandi viðbót
við það sem við höfum áður gert,“
segir hún en Icelandic Startups hafa
meðal annars rekið hraðla á sviði
ferðaþjónustu, tækni og orku.
Melkorka segir að það
sé spennandi að takast á við
sjávarútveg og landbúnað og gera
eitthvað nýtt. „Mig grunar að það
séu ótrúlega margir sem lumi á
nýjum hugmyndum innan þessara
greina. Þegar maður byrjar að skoða
fréttir úr landbúnaði og sjávarútvegi
sér maður að það er mikil gróska
á ferðinni. Okkur langar til að
taka nýjar hugmyndir og hjálpa
frumkvöðlunum að beina þeim í
réttan farveg.“
Sterk umgjörð og níu vikna vinna
Ingi Björn útskýrir vinnuferli
hraðalsins á þá leið að allt miði að því
að koma hugmyndum í framkvæmd.
„Við erum með mjög sterka umgjörð
en starf hraðalsins byggir á því að
taka hugmynd eða viðskiptatækifæri
upp á næsta stall, eins fljótt og
mögulegt er. Viðskiptahraðallinn
tekur alls níu vikur og hann er
haldinn í sjö lotum. Í lotunum er
farið í gegnum allt frá vöruþróun og
yfir í að fá þekkingu frá fagaðilum.
Fyrirtækin eða frumkvöðlarnir fá
aðgang að leiðbeinendum, þ.e.
fólki sem er sérfræðingar eða með
reynslu úr atvinnulífinu. Þannig fá
frumkvöðlarnir tækifæri að læra af
þeim sem hafa kannski gert mistök
eða notið árangurs áður.“
Uppskeruhátíð í lokin
Melkorka segir að unnið sé
samkvæmt alþjóðlegum stöðlum
og aðferðafræðin hafi sannað sig.
„Leiðbeinendurnir gefa endurgjöf
á viðskiptahugmyndina þína og við
hjá Icelandic Startups hjálpum allan
tímann við að móta hugmyndina.
Í lokin er haldinn uppskerudagur
þar sem teymin kynna sína vinnu
fyrir fullum sal af fólki sem gæti
jafnvel haft áhuga á að fjárfesta í
viðskiptahugmyndinni.“
Opið fyrir umsóknir
Eins og fyrr segir var opnað fyrir
umsóknir í gær en stefnt er að
því að hefja hraðalinn í aðsetri
Íslenska Ferðaklasans við Fiskislóð
í Reykjavík 28. mars og ljúka honum
23. maí. Þau Melkorka og Ingi Björn
leggja áherslu á að hraðallinn sé
ekki eingöngu fyrir nýja aðila
eða óstofnuð fyrirtæki heldur
getur þátttaka ekki síður gagnast
rótgrónum fyrirtækjum sem eru með
nýjar og frumlegar hugmyndir.
„Frumkvöðlar eru úr mismunandi
áttum og nýsköpun getur verið á
mörgum sviðum og á ólíkum stigum.
Hún getur falist í því að breyta
einhverri vöru örlítið eða skapa
eitthvað alveg nýtt. Við viljum fá
fólk til að hugsa á þessum nótum og
auðvitað fá sem flesta til að sækja
um,“ segir Melkorka.
Kostnaður þátttakenda er
enginn en viðskiptahraðallinn
er fjármagnaður af nokkrum
bakhjörlum. Þeir eru IKEA,
Matarauður Íslands, HB Grandi og
Landbúnaðarklasinn.
Framkvæmdaaðilar eru Icelandic
Startups og Sjávarklasinn. /TB
Ingi Björn Sigurðsson og Melkorka Sigríður Magnúsdóttir eru starfsmenn Icelandic Startups sem gagnsetja bráðlega
viðskiptahraðal fyrir landbúnað og sjávarútveg. Mynd / TB