Bændablaðið - 13.12.2018, Síða 16
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 201816
Rauðátan er eitt þýðingarmesta
sjávardýrið þótt hún sé ekki
stór. Fyrir hennar tilstilli
höfum við greiðan aðgang að
bráðhollri fitusýru í mataræði
okkar. Einnig hefur verið sýnt
fram á að rauðátan er stórtæk
í því að hreinsa koldíoxíð úr
yfirborðssjónum.
Gróður jarðar er undirstaða
annars lífs á jörðunni, eins og
lesendur Bændablaðsins vita
manna og kvenna best. Gróður
sjávar er sömuleiðis og ekki síður
undirstaða lífs, bæði á sjó og landi.
Svifþörungar í sjónum eru til að
mynda uppspretta omega-3 fitusýra.
Þessi fita er orkugjafi annarra lífvera
beint eða óbeint. Rauðátan er það
sjávardýr sem einkum leggur sér
svifþörungana til munns en hún
er mikilvæg fæða fyrir fjölmarga
nytjafiska. Hollusta fiskmetis okkar
að lýsinu ógleymdu rekur sem sagt
uppruna sinn til frumframleiðni
þörunga í sjónum sem berst til
okkar í gegnum nokkra hlekki í
fæðukeðjunni. Þar gegnir rauðátan
lykilhlutverki og er því ekki úr vegi
að líta nánar á þetta merka sjávardýr.
Annað merkilegt hlutverk
Rauðátan hefur ekki aðeins
gríðarlega þýðingu í lífríkinu sem
orkugjafi en hún gegnir einnig
öðru merkilegu hlutverki. Hún er
afkastamikil í því að flytja kolefni úr
yfirborðsjónum niður í undirdjúpin.
Um þennan þátt var lítið vitað fyrr
en íslenskur líffræðingur, doktor
Sigrún Jónasdóttir, vísindamaður og
kennari við danska tækniháskólann
(DTU), birti grein fyrir þremur
árum í virtu vísindatímariti um
þátt rauðátu í tilflutningi kolefnis
í hafinu, en greinin vakti mikla
athygli í vísindaheiminum.
Niðurstöður úr rannsóknum
Sigrúnar og samstarfsmanna
hennar breyta fyrri hugmyndum
manna um hve mikið magn
af gróðurhúsalofttegundinni
koldíoxíð hreinsast úr yfirborði
sjávar og sekkur í hafdjúpin
þar sem það geymist í aldir eða
árþúsundir. Sigrún réð sig til
dönsku hafrannsóknastofnunarinnar
árið 1993 og hefur starfað
í Danmörku síðan. Danska
hafrannsóknastofnunin var
sameinuð tækniháskólanum. Sigrún
hefur aðallega stundað áturannsóknir
og vistfræðilegar athuganir á
sjó. Hún fór snemma að vinna
að rannsóknum á rauðátu. Meðal
annars hefur hún kannað samspil átu
og stofnstærðar fisktegunda. Einnig
hefur hún rannsakað fæðu átunnar,
sem eru svifþörungarnir í sjónum.
Greinarhöfundur tók viðtal við
Sigrúnu á sínum tíma sem birtist
í Fiskifréttum. Hér verður efni
viðtalsins rifjað upp fyrir nýjan og
stærri lesendahóp og bætt við nýjum
upplýsingum.
Mesti þéttleiki í Noregshafi
Sigrún stundaði rannsóknir á
rauðátunni í nokkur ár á tíunda áratug
síðustu aldar og um aldamótin. Þá
var verið að kortleggja útbreiðslu og
þéttleika rauðátunnar og mæla hve
mikil fita var á mismunandi stöðum.
Mesti þéttleiki átunnar var á tilteknu
svæði í Noregshafi.
Á grundvelli þessara rannsókna
og rannsókna sem gerðar
voru hér við Ísland og
víðar var búið til kort yfir
útbreiðslu og þéttleika
rauðátu í Norður-
Atlantshafi. Ekki liggur
nákvæmlega fyrir hve
mikið magn er af rauðátu
á þessu hafsvæði en ætla
má að það sé vel yfir 10
milljónir tonna.
Nær aðeins eins árs
aldri
Lífsferill rauðátunnar er
um margt sérstakur. Hún
er agnarsmátt krabbadýr
og vart meira en 2 til 4
millimetrar að lengd.
Útbreiðsla hennar er í
Norður-Atlantshafi og
allt norður í Íshafið. Egg
rauðátu klekjast út á vorin
í yfirborðssjónum. Hún er þar yfir
sumarið og safnar sem mestri fitu
sem næringarforða. Fitan er nánast
í fljótandi formi og gagnsæ himna
yfir. Eftir sumarið lítur átan því út
eins og örlítið útbelgt lýsishylki.
Um 50% af þyngd dýrsins eru olía
en olían er um 80% kolefni. Það er
engin furða að fiskurinn sæki í hana
því hver einasti biti er orkusprengja.
Að hausti fer rauðátan síðan
niður í djúpsjóinn og hægir þá á
líkamsstarfsemi sinni. Hún leggst
nánast í dvala eins og björn í hýði
sínu. Rauðátan í Noregshafinu fer
niður á 600 til 1.000 metra dýpi
á veturna og er í sjó sem er 0,5
gráðum fyrir neðan frostmark. Að
vori fer rauðátan upp á yfirborðið
aftur til að hrygna og hringrásin
hefst á ný. Fullorðin rauðáta deyr
fljótlega eftir hrygninguna. Hún nær
því ekki nema eins árs aldri.
Þörungar taka til sín koldíoxíð
Losun koldíoxíðs út í andrúmsloftið
við bruna jarðefnaeldsneytis er
helsta orsök gróðurhúsaáhrifa í
heiminum sem kunnugt er. Frá
tímum iðnbyltingarinnar hefur
sjórinn tekið við um þriðjungi af
öllu koldíoxíði sem losnar út í
andrúmsloftið. Koldíoxíð stuðlar
að súrnun sjávar sem meðal annars
hefur skaðleg áhrif á skeldýr.
Gróður jarðar dregur aðeins úr
magni gróðurhúsalofttegunda því
hann tekur til sín koldíoxíð og býr
um leið til orku með ljóstillífun.
Við þá starfsemi lætur gróðurinn
frá sér súrefni. Þörungar í sjó stunda
ljóstillífun ekki síður en gróður á
landi. Þörungar binda mikið magn
af kolefni úr sjónum og breyta því
meðal annars í fitusýrur.
Haffræðilíkön og ferill kolefnis
Megnið af þörungunum endar
á hafsbotninum þegar þessi
sjávargróður drepst. Þá flyst líka
kolefnið sem er bundið í þeim
niður í undirdjúpin og verður þar
eftir. Mikilvægt er að vita hvað
sjórinn getur tekið við miklu
kolefni þegar verið er að meta áhrif
þess á loftslagsbreytingar. Innan
haffræðinnar hafa verið gerð líkön
til að lýsa ferli kolefnis í sjónum.
Hér er um þrjú skref að ræða: flæði
koldíoxíðs í sjóinn, blöndun þess í
yfirborðssjónum og loks botnfallið,
eða niðurfallið.
Til þessa hafa haffræðilíkön
aðallega gert ráð fyrir botnfalli
koldíoxíðs af völdum þörunga.
Það var ekki fyrr en Sigrún og
samstarfsmenn hennar birtu
niðurstöður sínar að ljóst var hvað
rauðátan og væntanlega aðrar
átutegundir gegna þýðingarmiklu
hlutverki í að losa yfirborðssjóinn
við þetta mengunarefni.
Tvöföldun frá fyrri hugmyndum
Þótt líkamsstarfsemi rauðátunnar
sé hæg í djúpsjónum brennir hún
nokkurri fitu þar og andar frá
sér koldíoxíði. Misjafnt er hvað
rauðátan skilur eftir af koldíoxíði á
hverjum stað. Það fer meðal annars
eftir hitastigi sjávar. Í kalda sjónum
léttist hún um 10 til 20%
en í heitari sjó tapar hún
meiri þyngd. Sigrún komst
að því með útreikningum
sem byggjast á gögnum
úr fyrri rannsóknum
hennar að rauðátan skilar
jafnmiklu af koldíoxíði
niður í sjávardjúpin og
dauðu þörungarnir sem falla
til botns. Með því að sýna
fram á þetta má tvöfalda
það mat sem áður var á því
hvað mikið af koldíoxíði fer
í djúpin. Þessar niðurstöður
skipta mjög miklu máli til
að bæta og auka nákvæmni
þeirra reiknilíkana sem
notuð eru til að segja fyrir
um loftslagsbreytingar.
Sama magn
og Danir losa á einu ári
Það er ótrúlegt hvað rauðátan hefur
mikil áhrif í flutningi koldíoxíðs úr
yfirborðssjónum. Rauðátan tekur
með sér 1 til 4 grömm af kolefni
á ári á hvern fermetra sjávar sem
samsvarar um einni teskeið. Í fljótu
bragði virðist það ekki vera mikið
en útbreiðslusvæðið er stórt og fjöldi
rauðáta mikill. Safnast þegar saman
kemur. Á hverju ári flytur rauðátan í
Norður-Atlantshafi þannig um 1 til
3 milljónir tonna af koldíoxíði niður
í djúpsjóinn.
Til að setja þessa tölu í samhengi
má geta þess að hún er svipuð og
öll kolefnislosun út í andrúmsloftið
við brennslu jarðefnaeldsneytis í
Danmörku ár hvert. Hér er aðeins
um eina tegund átu að ræða á
víðáttumiklu svæði í Norður-
Atlantshafi. Fleiri átutegundir gegna
væntanlega svipuðu hlutverki.
Hæg hringrás á hafsbotni
Koldíoxíð sem fellur niður í
hafdjúpin staðnæmist ekki þar
um aldur og ævi þótt það hafi
vissulega langa viðdvöl. Hringrás
kolefnisins heldur áfram í hafinu
en með hraða snigilsins. Þar eru
að verki botnstraumar sem taka
kolefnið með sér og skila því upp
í yfirborðsjóinn einhvers staðar
annars staðar á hnettinum eftir eitt
til tvö þúsund ár. Koldíoxíð sem
rauðáta í Norðurhöfum losaði sig
við í djúpsjónum fyrir rúmum 1100
árum, þegar Ísland var að byggjast,
er því kannski að skila sér þessa
dagana inn í blandaða yfirborðsjóinn
við Suður-Ameríku!
Kjartan Stefánsson
kjartanst@simnet.is
Algengur siður hér á landi
er að setja upp krans með
fjórum kertum á aðvent-
unni. Á Íslandi er þessi
siður ekki mjög gamall.
Aðventukransar urðu ekki
algengir hér fyrr en um
1970. Talið er að aðventu-
kransar eins og við þekkjum
þá eigi uppruna í Norður-
Þýskalandi.
Orðið aðventa er dregið af
latnesku orðunum Adventus
Domini, sem þýða „koma
Drottins“ og hefst hún á
4. sunnudegi fyrir jóladag.
Þessi árstími var löngum og
er reyndar víða enn kallaður
jólafasta, sem helgast af því
að fyrr á öldum mátti þá ekki
borða hvaða mat sem var, til
dæmis ekki kjöt.
Aðventukransinn er talinn
upprunninn í Þýskalandi á fyrri
hluta 19. aldar. Þaðan barst
hann líklega til Suður-Jótlands
og varð algengur í Danmörku
eftir 1940. Frá Danmörku
barst þessi siður til Íslands.
Í fyrstu var aðventukransinn
aðallega notaður til að skreyta
búðarglugga en á milli 1960
og 1970 fór hann að tíðkast
á íslenskum heimilum og er
nú orðinn ómissandi hluti
þessarar árstíðar.
Hvert kerti aðventukransins
hefur sitt heiti. Kertið sem
kveikt er á fyrsta sunnudaginn í
aðventu kallast spádómakerti,
annað kertið Betlehemskerti,
þriðja hirðakerti og það fjórða
englakerti. Stundum eru
kertin nefnd kerti vonarinnar,
kærleikans, gleðinnar og
friðarins.
Spádómakertið
F y r s t a k e r t i ð á
aðventukransinum er nefnt
eftir fyrirheitum spámanna
Gamla testamentisins, en þeir
höfðu mörgum öldum áður
sagt fyrir um komu frelsarans.
Betlehemskertið
Í Gamla testamentinu segir frá
því að frelsarinn muni fæðast
í bænum Betlehem. Betlehem
– á hebresku Bet Lehem, sem
merkir „brauðhúsið“ – stendur
við jaðar eyðimerkur Júdeu, í
750 metra hæð yfir sjávarmáli
og um 7 kílómetra suðvestur
af Jerúsalem. Betlehem er með
allra elstu bæjum í Palestínu.
Hirðakertið
Í Biblíunni segir að fjárhirðar
hafi fyrstir manna heyrt
tíðindin af fæðingu Jesú.
Starf hirðisins var afar
þýðingarmikið á þeim tíma.
Á morgnana byrjaði hann á að
kalla féð saman, leiddi það svo
í góða haga og að vatni til að
svala þorstanum. Fjárhirðirinn
verndaði hjörðina fyrir
ræningjum og villidýrum,
svo sem bjarndýrum,
hýenum, ljónum, sjakölum
og úlfum. Undir kvöld kom
svo fjárhirðirinn hjörðinni inn
í byrgið eða réttina og gætti
hennar til sólarupprisu.
Englakertið
Engla er getið ríflega 300
sinnum í Biblíunni. Þeir eru
ósýnilegar verur, himnesks
eðlis, þjónar Guðs og vinna í
hans nafni. Þeir voru skapaðir
af honum í upphafi og búnir
skynsemi og frelsi. Lífssvið
þeirra er eilífðin sjálf, ekki
tíminn. Þeir vegsama Guð,
framkvæma boð hans og eru
settir mönnum og dýrum til
verndar.
Gleðileg jól. /VH
STEKKUR
NYTJAR HAFSINS
Doktor Sigrún Jónasdóttir. Mynd / HAG
Rauðátan lítur út eins og örlítið útbelgt lýsishylki eftir
sumarið. Um 50% af þyngd dýrsins eru olía og olían er um
því hver einasti biti er orkusprengja. Mynd / Sigrún Jónasdóttir
Aðventukransinn