Bændablaðið - 13.12.2018, Síða 19
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 2018 19
Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur
harðlega mótmælt boðaðri auka-
gjaldtöku í formi 10% hækkunar á
heildartekjum útgerðar, sem lögð
verði á upp sjávar stofna, umfram
aðrar tegundir sjávarfangs, í
frumvarpi um veiðigjöld sem nú
er í meðförum Alþingis.
„Með því að hækka heildartekjur
um 10% getur reiknistofn veiðigjalds
hækkað allt að 50 til 60% sem þýðir
í raun að skattstofn er í raun milli
46 til 66% á uppsjávartegundir en
ekki 33% eins og boðað er á aðrar
fisktegundir“, segir í bókun sem
samþykkt var á fundi bæjarráðs
Fjarðabyggðar.
Máttarstólpar sem mikið leggja
til samfélagsins
Í Fjarðabyggð starfa þrjú stór og
öflug sjávarútvegsfyrirtæki sem
fjárfest hafa mikið í uppbyggingu
og skipakosti í tengslum við
veiðar á uppsjávarafurðum.
Þessi fyrirtæki eru máttarstólpar
í Fjarðabyggð hvað varðar
atvinnu, tekjur og samfélagslega
uppbyggingu og leggja mikið
til íslensks samfélags í formi
skatta og verðmætasköpunar til
útflutnings.
„Sé það vilji stjórnvalda að
leggja á veiðigjöld þá hlýtur það
að vera skýlaus krafa að jafnræði
sé í slíkri skattlagningu og ekki
tekin út ein grein sjávarútvegs og
lagt á hana aukin gjöld umfram
aðrar að ógleymdu þeirri miklu
óvissu sem nú ríkir varðandi stöðu
loðnu- og makrílstofnsins,“ segir
í bókun bæjarráðs.
Uppbygging í uppsjávariðnaði
mun dragast saman
Telur ráðið að slíkt muni verða
til þess að fjárfestingar og frekari
uppbygging í uppsjávariðnaði
muni dragast saman.
Þá minnir bæjarráð á fyrri
bókanir sínar um veiðigjöld og
þá eðlilegu kröfu að veiðigjöld
séu sanngjörn og í takt við
afkomu sjávarútvegsins hverju
sinni. Einnig ítrekar bæjarráð
þá afstöðu sína að viðkomandi
sjávarútvegssveitarfélög fái
hlutdeild í veiðigjöldum í ljósi
þeirra fjárfestinga sem viðkomandi
sveitarfélög hafa lagt út í og
hvaðan þessi útflutningsverðmæti
koma. /MÞÞ
- VERKIN TALA
KUHN áramótatilboð
gildir til 5. Janúar 2019
FRÉTTIR
Bæjarráð Fjarðabyggðar:
Mótmæli vegna aukagjaldtöku
Þjórsárver:
Tuttugu ára afmæli
skötuveislunnar
Í ár eru 20 ár síðan skötuveisla
var fyrst haldin í Þjórsárveri í
Flóahreppi á Þorláksmessu og
verður því fagnað með gestum
og gangandi á Þorláksmessu, 23.
desember.
Borðhald hefst kl. 12.00 og boðið
verður upp á gæða skötu og saltfisk
ásamt tilheyrandi meðlæti. Kaffi
og konfekt er innifalið í miðaverði.
Fullorðnir greiða 2.500 krónur og
börn 6–12 ára 500 krónur, yngri börn
fá frítt. Skötusveislan er ein stærsta
fjáröflunarsamkoma Umf. Þjótanda.
/MHH
Akranes:
Nýr verkefnastjóri
atvinnumála
Sigríður Steinunn Jónsdóttir
hefur verið ráðin verkefnastjóri
atvinnumála hjá Akraneskaupstað
og hefur störf þann 1. desember
næstkomandi. Alls bárust 27
umsóknir um starfið.
Sigríður Steinunn er rekstrar verk-
fræðingur að mennt frá Danmarks
Tekniske Universitet. Hún vann
á árunum 2014–2017 hjá Uno-x
Smøreolie sem verkefnaráðgjafi.
Þar stýrði hún m.a. lánum til
viðskiptavina ásamt innleiðingu á
rafrænu innheimtukerfi. Síðustu tvö
ár hefur Sigríður starfað hjá Falck
Global Assistance sem verkefnastjóri
og voru verkefni hennar m.a.
bestun alþjóðlegu virðiskeðjunnar
og endurskoðun ferla með áherslu
á kostnað og verðlagningu. Nú
síðast hefur Sigríður starfað í
tímabundnum verkefnum fyrir
Kaupfélag Skagfirðinga um fýsileika
fjárfestingakosta. /MHH