Bændablaðið - 13.12.2018, Side 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 201826
Miðvikudagurinn 28. nóvember
síðastliðinn var stór dagur í sögu
Fjölbrautaskóla Suðurlands á
Selfossi því þann dag var FabLab
smiðja skólans opnuð formlega en
um er að ræða stafrænt verkstæði
í Hamri, verksnámshúsi skólans.
FabLab Selfoss er samstarfs-
verkefni Héraðsnefndar Árnesinga,
Fjölbrautaskóla Suðurlands,
Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga,
Háskólafélags Suðurlands, Atorku –
félags atvinnurekenda á Suðurlandi
og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.
„Samstarfið er einstakt á landsvísu og
vitni um hvað hægt er að gera þegar
ólíkir aðilar taka höndum saman um
þörf verkefni. Með samhentu átaki
framangreindra sex aðila hefur tekist
að byggja upp góða aðstöðu fyrir
nemendur, kaupa tækjabúnað og auk
þess að tryggja rekstur verkstæðisins
til næstu þriggja ára,“ segir Bjarni
Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga.
Hvað er FabLab?
Fyrir þá sem ekki vita þá er
FabLab (Fabrication Laboratory)
stafræn smiðja með tækjum og
tólum til að búa til nánast hvað
sem er. Smiðjurnar, sem eru
átta á Íslandi, gefa ungum sem
öldnum tækifæri til að hanna,
móta og framleiða með aðstoð
stafrænnar tækni og þannig
þjálfa sköpunargáfuna og hrinda
hugmyndum sínum í framkvæmd.
Markmiðið smiðjanna er að
auka þekkingu skólafólks og
almennings á persónumiðaðri
framleiðslu og stafrænum
framleiðsluaðferðum í iðnaði
og nýsköpun. FabLab er líka
ætlað að auka áhuga á verk-
og tækninámi í grunn- og
framhaldsskólum, auka almennt
tæknilæsi og tæknivitund og efla
hæfni til nýsköpunar í námi og
atvinnulífi. /MHH
Dagatal um lífið í Hvammshlíð í Skagabyggð gefið út:
Til fjármögnunar á dráttarvél fyrir bæinn
– Annað upplag er nú uppselt
Caroline Kerstin Mende er fædd
í Þýskalandi, er verkfræðingur
og grafískur hönnuður sem kom
fyrst til Íslands 1989 og réði sig
sem vinnukona á Húsatóftum
á Skeiðum. Hún hefur verið
Íslendingur í hjarta sínu
síðan. Hún keypti eyðijörðina
Hvammshlíð í Skagabyggð í
Austur-Húnavatnssýslu fyrir
nokkrum árum og settist þar að
og er nú þekkt sem Karólína í
Hvammshlíð, en hún bjó áður í
Skagafirði. Hún gaf nýverið út
dagatal um lífið í Hvammshlíð til
að safna fyrir dráttarvélakaupum.
Annað upplag þess er nú uppselt.
Karólína hefur hægt og bítandi
byggt upp bústofn sinn sem telur
nú 50 kindur, fjögur hross og tvo
hunda. Með umsvifameiri búrekstri
– og eftir óvænt fráfall nágrannans –
hefur þörfin á dráttarvél fyrir bæinn
orðið brýn.
Dagatalið er búfjárdagatal –
með alþýðlegum fróðleik um sögu
daganna.
Kynnir íslensk búfjárkyn fyrir
erlendum ferðamönnum
Karólína hefur á undanförnum árum
vakið athygli fyrir bókaútgáfu þar
sem hún kynnir íslensk búfjárkyn
fyrir ensku- og þýskumælandi
ferðamönnum og hvernig daglegt
sveitalíf var í gamla daga á Íslandi.
„Við fráfall besta nágrannans í
heimi, Braga á Þverá, hvarf ekki
bara góður og traustur vinur heldur
núna vantaði allt í einu tæknilega
aðstoð. Það þýddi að ég komst ekki
lengur af án eigin dráttarvélar sem
bjargar mér og skepnunum mínum,“
segir Karólína.
„Hérna uppi í miklum snjó og
vondum veðrum dugar ekkert nema
framdrifsvél í góðu standi, með
ámoksturstækjum og gaddakeðjum.
Því datt mér í hug að gefa út dagatal
á íslensku og þýsku til að fjármagna
dráttarvélina.“
Daglegt líf og gamlir mánuðir
Að sögn Karólínu hafa viðtökur við
dagatalinu verið framar vonum – bæði
á Íslandi og í þýskumælandi löndum.
„Ég gat því keypt Zetor 7245, árgerð
1990, svo ámoksturstæki, rúllugreip,
skóflu og keðjur, auðvitað allt notað
og í ódýrari kantinum. Ég á hins
vegar eftir að fá reikninginn frá
vélaverkstæðinu, þannig að ég vonast
til að selja nokkur eintök í viðbót upp
í hann.
Dagatalið er í stóru broti –
42 sentimetra breitt – og sýnir á
stórum ljósmyndum daglegt líf
hér í Hvammshlíð. Þar fær fólk að
kynnast vel þeim sem munu njóta
góðs af dráttarvélinni. Almanakið
býður ekki bara upp á allar algengar
upplýsingar eins og „venjulegar“
vikutölur, tunglstöðu og auðvitað
rauða daga. Það inniheldur líka gömlu
mánuðina og merkisdaga – ekki síst
gömlu vikutölurnar sem koma oft
fram í gömlum bókum og eru enn
í dag notaðar af eldri kynslóðum.“
Hrærð og þakklát
sveitungum sínum
„Á einni blaðsíðu eru líka myndir
af Matthildi Hjálmarsdóttur á
Hvammstanga og Sigurlaugu
Ólafsdóttur frá Miklabæ. Þessar
tvær vinkonur mínar hafa ásamt vini
mínum, Sigursteini Bjarnasyni í Stafni,
veitt mér sérstaklega mikla aðstoð í
dagatala- og dráttarvélarmálinu. Auk
þess er það hreint út sagt ótrúlegt hvað
ég hef fengið góðar viðtökur úr öllum
áttum, sérstaklega frá sveitungum
mínum. Ég er hrærð og afar þakklát,
það er alls ekki sjálfgefið að búa í
samfélagi sem er svo jákvætt og
uppbyggjandi.
Það er það sem gildir og er í rauninni
enn verðmætara en dráttarvélin sjálf,“
segir Karólína. /smh
Karólína býr ein í Hvammshlíð í Skagabyggð með 56 gripi. Mynd / úr einkasafni Heyannir. Gömlu mánaðarheitin og útskýringar á þeim.
Ábúendurnir í Hvammshlíð, 57 einstaklingar í aldursröð innan tegundar.
Jón Hjartarson
KAMBSMÁLIÐ
Vorið 1953 létu yfirvöld bjóða upp dánarbú bónda á Kambi
í Árneshreppi. Börnunum skyldi ráðstafað og sundrað. En
18 ára stúlka fyrirbýður að nokkurt þeirra fari. Hreppstjór-
inn lúp ast burt og skilur börnin eftir í reiðileysi.
LÍF&STARF
FabLab smiðja opnuð í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi
Það kom í hlut Sigurðar Inga Jóhannssonar ráðherra að opna smiðjuna
formlega með því að ýta á takka. Honum til halds og trausts var Magnús
Stephensen, forstöðumaður smiðjunnar.
Fjöldi gesta mætti við vígslu FabLab smiðjunnar.
Áttunda og nýjasta FabLab smiðjan
er til húsa í Hamri, verknámshúsi
Fjölbrautaskóla Suðurlands á
Selfossi.