Bændablaðið - 13.12.2018, Síða 44
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 201844
Sumarið 2017 og einnig 2018
fóru Sigurður Sigurðarson,
dýralæknir á Selfossi, og Ólöf
Erla Halldórsdóttir, kona hans,
um landið og merktu miltis-
brunagrafir, en þær eru um allt
land. Reynslan hefur sýnt hvað
mikilvægt er að þekkja og merkja
grafirnar.
Árið 2004 drápust þrír hestar á
Vatnsleysuströnd úr miltisbrandi,
en þar var 130 ára gömul gröf sem
ágangur sjávar hafði raskað og smit
borist í bithaga. Sigurður hófst þá
handa við að kortleggja þá staði þar
sem vitað var að miltisbrandsgrafir
voru og jafnframt leita heimilda um
gleymdar grafir.
Getur lifað í jarðvegi nær
endalaust
Sýkillinn sem veldur miltisbrandi
myndar dvalargró og lifir nær
endalaust niðri í jörðinni en virðist
verða hættulítill í yfirborðinu í
grennd við grafirnar eftir fáar vikur
væntanlega fyrir áhrif sólarljóss og
veðrunar. Ef jörð er raskað t.d. við
skurðgröft, ræktun, vegalagningar,
byggingar og flagmyndun sem
verður við nauðbeit hrossa svo að
hræ dýranna eða hlutar þeirra kunna
að koma upp á yfirborðið er hætta á
ferðum. Ef jörðin er látin óhreyfð,
þar sem miltisbrunagrafirnar eru er
engin smithætta. Veikin er þekkt í
flestum suðlægum löndum, sums
staðar er hún skæð og algeng. Á
Spáni finnast um 40–60 ný tilfelli
árlega.
Barst til Íslands með ósútuðum
húðum frá Afríku 1865
Sýkingin barst til Íslands með
innfluttum ósútuðum húðum um
1865, fyrst og fremst frá Afríku.
Veikin kom fyrst upp í Miðdal í
Mosfellssveit. Árið 1866 fórust á
þeim bæ 20 stórgripir (12 hross og 8
nautgripir) og árið eftir 4 hross og 2
naut og auk þess 3 lömb og 2 hundar,
sem snuðruðu í hræjunum. Sagnir
benda til þess að hún hafi líka gert
usla hér á landi á 17. öld (Hamrar í
Grímsnesi).
Síðast fannst
miltisbrandur hér
á landi árið 2004
á Sjónarhóli í
Vatnsleysuströnd.
Þá hafði sjórinn
brotið sjávarkamb
og dreift efni
úr honum yfir
beitiland 4 hrossa,
sem þar voru. Þrjú
hrossanna drápust
skyndilega, en 4.
hrossið veiktist og
var lógað. Sagnir
herma að 130
árum áður hafi
skepna, sem dó
úr miltisbrandi,
verið grafin í sjávarkambinum á
Sjónarhóli.
Næst áður fannst miltisbrandur
40 árum fyrr (1965) á Þórustöðum
í Ölfusi. Þar hafði rask verið gert
á mógrafasvæði við túnið, skurðir
grafnir og jörð plægð vegna
ræktunar á fóðurkáli. Í mógrafirnar á
að hafa verið fleygt hræjum af hjörð,
sem fargað var vegna miltisbrands
um 1900.
Að minnsta kosti 10 manns hafa
látist af miltisbrandi á Íslandi
Smithætta er fyrir flestar
dýrategundir með heitu blóði og
fyrir fólk. Að minnsta kosti 10
manns hafa látist af þeim sökum hér
á landi og margir tugir manna hafa
veikst, sem tekist hefur að lækna.
Áður en menn þekktu veikina og
ráð gegn henni, dóu þúsundir manna
erlendis úr miltisbrandi. Skepnur
sem drápust úr miltisbrandi voru
grafnar djúpt og girt í kringum
grafirnar. Ef jörðin er látin óhreyfð,
á stöðum sem merktir hafa verið,
þá er hættan engin.
Þekktar eru um 150 grafir á um
120 stöðum. Merkingarnar eru nú
varanlegri en áður þ.e. stálplata með
ágröfnu númeri, sem gæti enst í 100
ár og endurskinslímborði, sem gæti
enst í 20 ár. Síðasta merkið rákum
við Ólöf í jörð í haga Neslands á
Seltjarnarnesi í október 2018. Þar
veiktust 15 hross haustið 1870 og
10 þeirra dóu úr miltisbrandi
Merkin eru hvítur sívalur stólpi,
50 cm hár og 7 cm í þvermál á
jarðföstum teini (kambstál).
Fjöldi staða og bæja þar sem
veikin hefur fundist eða má ætla
að hún hafi fundist eru tilgreindir
hér að ofan eftir landsvæðum og
einnig hvernig merkingum hefur
verið háttað á hverju svæði. Fjölda
staða og bæja þarf að taka með
fyrirvara. Bókstafurinn A stendur
fyrir -Anthrax-, sem er hið erlenda
heiti á miltisbrandi.
Varð ljóst að hér á landi voru
miltisbrunagrafir tifandi
tímasprengjur
„Ég fór að undirbúa merkingar á
gröfunum árið 2004. Þá hafði ég
verið á ráðstefnu í Svíþjóð, þar
sem fjallað var um miltisbrand í
villtum dýrum. Þar hitti ég menn
frá Suður-Afríku, sem sögðu
mér að þeir þekktu dæmi þess að
miltisbrunasýking hefði lifað í
200 ár. Mér varð þá ljóst að hér á
landi væri miltisbrunasýking frá
skepnum, sem grafnar hefðu verið
í jörðu um allt land, eins og tifandi
tímasprengjur,“ segir Sigurður
Sigurðarson.
Unnið á eigin kostnað auk
fjölmargra sem lagt hafa
verkefninu lið
„Eftir að ég hætti störfum hjá
SJÚKDÓMAVARNIR&UMHVERFISMÁL
Afar mikilvægt framtak í vörnum gegn „ANTHRAX”-smiti að frumkvæði Sigurðar Sigurðarsonar dýralæknis:
Merkingu á 152 miltisbrunagröfum er lokið
– Ábyrgðin nú í höndum opinberra stofnana að viðhalda vitneskju um grafir dýra sem drepist hafa af miltisbrandi
Merking á miltisbrunagröfum eftir landshlutum
Auðkenni Landshlutar Fjöldi staða Fjöldi grafa
A1 – A100 Suðurland 32 44
A101 – A200 Vesturland og Vestfirðir 31 36
A201 – A300 Norðurland frá Hrútafirði að Jökulsá á Fjöllum 16 21
A301 – A400 Austurland að Hornafjarðarfljótum 41 45
A401 – A500 Suðausturland frá Hornafjarðarfljóti að Markarfljóti 4 6
Alls 124 152
Sigurður að merkja miltisbrunagröf í Meiri-Tungu í Holtum 17. júlí 2017. Númerið er AB1. Bókstafurinn A stendur
fyrir Anthrax, sem er hið erlenda heiti á miltisbrandi. Áletrun er varanlegri en fyrr. Notaðar eru plötur úr ryðfríu stáli,