Bændablaðið - 13.12.2018, Qupperneq 56
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 201856
Flóru Íslands eru gerð góð skil
í samnefndri bók sem Vaka-
Helgafell sendi nýlega frá sér.
Bókin sem er bæði falleg og fróðleg
er í stóru broti og inniheldur
myndir, lýsingar og fróðleik um
allar æðplöntur sem teljast til
íslensku flórunnar.
Hörður Kristinsson, Jón Baldur
Hlíðberg og Þóra Ellen Þórhallsdóttir
eru höfundar að nýútkominni Flóra
Íslands – blómplöntur og byrkningar.
Bókin er stór og yfirgripsmikil og þar
er fjallað um allar 467 æðplöntur í
íslensku flórunni í máli og myndum.
Auk þess sem í inngangi er sagt frá
plöntum sem lífverum, meðal annars
byggingu, lífsferli og þróun þeirra
og rannsóknum á íslenskum gróðri.
Hörður og Þóra eru höfundar textans
en Jón Baldur gerði myndirnar.
Langur aðdragandi
Þóra Ellen Þórhallsdóttir,
grasafræðingur og prófessor við
Háskóla Íslands, segir að hún hafi
komið síðust af þeim þremur að
vinnu bókarinnar. „Satt best að segja
er erfitt að rekja upphafið að tilurð
bókarinnar og kannski má segja að
upphafið sé útgáfa Plöntuhandbókar
Harðar árið 1986. Í þeirri bók er að
finna lýsingar á íslenskum plöntum
og útbreiðslukortum. Lýsingarnar
eru miklu ítarlegri í Flóru Íslands
og þar er mun meira sagt um
plönturnar.“
Jón Baldur Hlíðberg myndlistar-
maður segir ljóst að það hafi verið
unnið að gerð Flóru Íslands af hálfu
grasafræðinga alla tíð þannig séð.
„Mér skilst að hugmyndin að þessari
útgáfu af Flóru Íslands hafi komið
fram fyrir aldamótin 2000 hjá Herði
og Náttúrufræðistofnun. Sjálfur hef
ég gengið með þessa hugmynd í
þrjátíu ár og langað að gera myndir
í fjórar bækur um íslenska náttúru,
spendýr, fiska, fugla og plöntur sem
núna eru allar komnar út. Um 2005
lágu leiðir okkar Harðar saman og þá
fórum við að ræða saman um hvort
við ættum að vinna saman að gerð
bókar um flóru Íslands en áköf og
einbeitt vinna að henni hefur staðið
í tíu ár.“
Íslenskar flórur
Þóra segir að fyrsta Flóra Íslands
hafi komið út 1901 og sé skrifuð af
Stefáni Stefánssyni og endurútgefin
1924 og 1948. „Þegar kemur fram á
seinni helming tuttugustu aldarinnar
setti Hið íslenska náttúrufræðifélag á
laggirnar nefnd sem átti að undirbúa
nýja útgáfu af flórunni, en af því
varð þó ekki. Bók Stefáns er hugsuð
sem handbók sem fólk tekur með
sér og notar til að greina plöntur
úti í náttúrunni og fyrst þegar farið
var að tala um að gefa úr nýja Flóru
Íslands var stefnt að 4. útgáfu af
Flóru Stefáns. Hugmyndin um að
gefa út svona stóra bók er ekki svo
gömul.“
Frá síðustu endurútgáfu á
Flóru Stefáns hafa komið út að
minnsta kosti þrjár flórur eða
plöntugreiningarbækur, Íslensk
ferðaflóra eftir Áskel Löve,
Íslensk flóra með litmyndum eftir
Ágúst M. Bjarnason og Íslenska
plöntuhandbókin eftir Hörð
Kristinsson. Allt eru þetta góðar
handbækur sem ætlað er að hjálpa
fólki við að greina plöntur.
„Flóra landsins er aftur á móti
stórt fyrirbæri,“ segir Jón Baldur,
„sem verður ekki gerð veruleg skil
nema í stórri og ítarlegri bók.“
Vatnslitamyndir unnar eftir
eintökum sem Jón safnaði sjálfur
Jón Baldur segir að þegar farið
var af stað með gerð bókarinnar hafi
hann langað til að finna sjálfur sem
flestar plöntur til að greina og vinna
myndirnar eftir.
„Mér tókst það að mestu leyti
þannig að langflestar myndirnar eru
unnar eftir eintökum sem ég fann og
bar heim í hús. Myndirnar eru allar
vatnslitamyndir og málaðar með
penslum og stærðin á myndunum
er mismunandi. Puntgrösin eru til
dæmis máluð í allt að þrefaldri stærð
til að ná fínleika þeirra, aðrar myndir
eru í hlutföllunum einn á móti einum
en myndir af smærri plöntuhlutum,
hulstrum og hlífum sem dæmi nota
ég víðsjá til að greina smáatriðin og
stækka þau.
Ég var því mikið á ferðinni á
sumrin við að safna plöntum og eins
og fjölskyldan getur staðfest hef ég
ekki farið af landinu yfir sumartímann
í fjölmörg ár. Satt best að segja held
ég að ég eigi það sameiginlegt með
Herði og Þóru að verkefnið átti hug
okkar allan um tíma.“
Að sögn
Þóru Ellenar vann hún bókina
samhliða kennslu við Háskóla
Íslands og öðrum verkefnum, „oft
á kvöldin og um helgar þegar næði
gafst“.
Verkaskipting við vinnslu á texta
Þóra Ellen segir að verkaskipting milli
hennar og Harðar hafi verið þannig
að Hörður skrifar plöntulýsingarnar
og segir frá greiningareinkennum.
Útbreiðslukortin byggja á gagna-
grunni Náttúrufræðistofnunar sem
Hörður hafði lengst af umsjón með.
Mjög margir hafa lagt skráningar
á plöntum inn í gagnagrunninn en
Hörður á þar langdrýgstan skerf.
„Hörður rekur hverjir skráðu
tegundina fyrst og hvar og segir frá
fundarstöðum plantnanna og nytjum
fyrr á tímum. Ég er aftur á móti með
vistfræðina, æxlunarlíffræðina og
afleidd efni og nútíma nytjar.“
Val á plöntum í bókina
Í bókinni er fjallað um allar 467
æðplöntur sem finnast í flóru
landsins. Þóra Ellen segir að
innlendar tegundir séu taldar
þær sem voru ílendar hér á landi
um 1750. Þar er byggt á Íslensku
plöntutali Náttúrufræðistofnunar
Íslands sem Hörður gaf út árið 2008
en í því er skilgreint hvaða tegundir
teljast til hinnar innlendu flóru.
„Tímasetningin miðar við
iðnbyltinguna í Evrópu þegar
flutningar eru miklir og samgöngur
snaraukast og fólk fer að flytjast
milli heimshluta.“
Þóra Ellen segir að auk innlendra
tegunda séu einnig í bókinni algengir
ílendir slæðingar og tegundir eins
og alaskalúpína sem er fyrir löngu
orðin ílend í landinu.“
Jón segir að þrátt fyrir að hann
sé ekki grasafræðingur telji hann
að tegundavalið í bókinni sé mjög
lógískt og gefi góða mynd af flóru
landsins eins og hann kynntist henni
á söfnunarferðum sínum.
Að sögn Þóru Ellenar getur
verið erfitt að átta sig á tegundum í
ritum sem skrifuð eru fyrir tilkomu
tvínafnakerfis Linnes. „Stundum
gengur sama tegundin undir
mörgum nöfnum eða að sama heiti
er notað yfir ólíkar plöntur þannig
að það getur reynst erfitt að greina
plöntur eftir nafngiftum þeirra
í gömlum ritum. Í flóru Stefáns
frá 1901 er komið skikki á nöfn
íslenskra plantna sem í bókinni eru
og þau hafa að mestu haldist óbreytt
síðan þá.“
Skemmtileg og góð samvinna
Þóra Ellen og Jón Baldur segjast
bæði vera afskaplega ánægð með
bókina og hreykin af sínum hlut
í gerð hennar. Bæði segjast þau í
sjálfu sér vera fegin að verkefninu sé
lokið og að það taki önnur verkefni
við.
Jón er búinn að lofa sjálf um sér
því að halda áfram að mála flóruna
með því að mála nýjar tegundir eftir
því sem þær bætast við. „Samvinnan
við Hörð og Þóru Ellen er búin að
vera mjög góð og auðvitað söknuður
í henni.“
Þóra Ellen segir að sér hafi þótt
afskaplega gaman að vinna bókina
og samvinnunni sem henni fylgdi.
„Sérstaklega hafði ég gaman af því
að skrifa almennu kaflana fremst í
bókinni. Þeir eru viðbót sem ég er
mjög glöð yfir að var bætt við en eru
ekki í hefðbundnum flórum.“
Eins og allar stórar bækur var
Flóra Íslands lengi í vinnslu og
margir sem hafa komið að gerð
hennar. Meðal þeirra sem lagði
mikið til bókarinnar er hönnuður
hennar og setjari, Alexandra Buhl,
sem vann að henni frá upphafi og
skilaði afskaplega fallegu verki.
Auk þess sem útgefandinn Vaka-
Helgafell hefur lagt gríðarlegan
metnað í bókina og vandað útgáfu
hennar á allan hátt. /VH
MENNING&BÆKUR
Flóra Íslands – blómplöntur og byrkningar:
Falleg og fróðleg Flóra
Hörður Kristinsson grasa-
fræðingur er annar af tveimur
textahöfundum Flóru Íslands.
Hann skrifar lýsingar á
plöntunum, heldur utan um
útbreiðslukort þeirra og segir
frá plöntunytjum til forna.
Aðspurður segir Hörður erfitt
að segja hversu lengi bókin hafi
verið í vinnslu. „Ætli það hafi
ekki verið þegar ég ákvað fyrst
að læra grasafræði. Ég man
eftir fundi sem ég átti árið 1980
með grasafræðingunum Eyþóri
Einarssyni og Jóhanni Pálssyni
ásamt Jóni Gunnari Ottóssyni
hjá Náttúrufræðistofnun þar
sem við vorum að ræða um
möguleikann á því að koma út
fjórðu útgáfu af Flóru Íslands
efir Stefán Stefánsson. Í framhaldi
af fundinum unnum við lista
um hvaða plöntur ættu að vera
í bókinni en samvinnan um
útgáfuna fór ekki mikið lengra
en það.
Ég gaf út Plöntuhandbókina
1986 og hún dró á vissan hátt úr
þörfinni fyrir endurútgáfu Flóru
Stefáns. Um síðustu aldamót
var ég búinn að safna miklu af
gögnum um útbreiðslu plantna
og stóð til að gefa út bók með
upplýsingum um útbreiðslu
plantna og útbreiðslukortum.
Árið 2005 rötuðum við Jón
Baldur Hlíðberg saman og
fljótlega eftir það fórum við að
vinna, með hléum, að þeirri Flóru
Íslands sem var að koma út.“
Hörður segir að frá upphafi
hafi verið stefnt að því að hafa
myndirnar sem glæsilegastar og
textann á alþýðlegu máli þannig
að bókin mundi gagnast sem
flestum til fróðleiks.
Aðkoma Þóru Ellenar jók enn á
gagnsemi bókarinnar þar sem hún
hefur víðari og aðra sýn á ýmislegt
sem tengist grasafræði og ekki síst
vistfræði hennar,“ segir Hörður
Kristinsson, grasafræðingur og
annar höfundur Flóru Íslands.
/VH
Hörður Kristinsson grasafræðingur:
Langur aðdragandi
Hörður Kristinsson.
Þóra Ellen Þórhallsdóttir.Jón Baldur Hlíðberg.
Snækobbi. Fjallabláklukka.
Gullstör.
Ljósalyng.