Bændablaðið - 13.12.2018, Qupperneq 60
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 201860
Umhverfis Suðurland er
áhersluverkefni á vegum sóknar-
áætlunar Suðurlands og er gjöf
sveitarfélaganna fimmtán á
Suður landi til íbúanna í tilefni af
100 ára fullveldisafmæli Íslands.
Verkefnið gengur út á öflugt
árvekni- og hreinsunarátak þar sem
íbúar, fyrirtæki og sveitarfélög í
landshlutanum eru hvött til enn
meiri flokkunar og endurvinnslu
en nú er, auk þess sem ætlunin
er að ráðast í enn meiri almenna
tiltekt í landshlutanum og stefnan
er sett á að gera Suðurland að
umhverfisvænasta landshlutanum.
Ingunn Jónsdóttir í Flóahreppi
og Kristín Vala Þrastardóttir hjá
Nýheimum á Höfn halda utan um
verkefnið. Þær eru með marga
samstarfsaðila á svæðinu. Ingunn
svaraði nokkrum spurningum um
verkefnið.
– Hvað kemur til að það var
ákveðið að fara út í þetta verkefni?
„Mörg sunnlensk sveitarfélög
hafa staðið framarlega þegar
kemur að umhverfismálum,
byrjuðu snemma að flokka rusl og
almennt látið sig þessi mál varða.
Umhverfismál er STÓRA málið í
dag eins og sést á fjölmiðlaumfjöllun
og á ársþingi Samtaka sunnlenskra
sveitarfélaga haustið 2017 en þá var
ákveðið að fara af stað með verkefni
sem myndi fókusa á umhverfismál.
Formlega fór verkefnið af stað í vor
og stendur að minnsta kosti fram á
vorið 2019 en okkar von er sú að
verkefnið haldi áfram í einhverri
mynd enda ekki hægt að horfa á
umhverfismál sem átaksverkefni
heldur mál sem við verðum að fara
að taka alvarlega alla daga ársins í
allri okkar hegðun.“
Árvekniverkefni
– Hvað hafið þið verið helst að gera
og hvernig hefur gengið?
„Verkefnið er í grunninn svokallað
árvekniverkefni sem gengur út á
almenna fræðslu um umhverfismál
í mjög víðu samhengi og að hvetja
Sunnlendinga til breyttrar og bættrar
hegðunar þegar kemur að þessum
stóra málaflokki. Við settum strax
í loftið vefsíðu þar sem hægt er
að fræðast um umhverfismál, lesa
fréttir og skoða viðburðardagatal og
sú síða tengist að sjálfsögðu einnig
Facebook-síðu með sama nafni.
Við sendum einnig út mánaðarlegt
fréttabréf þar sem við leggjum
áherslu á eitt ákveðið þema fyrir
hvern mánuð og leggjum til
hugmyndir hvernig hægt er að
vinna með þessi þemu og hvetjum
sveitarfélögin, félagasamtök og
íbúagrasrótir til þess að standa fyrir
viðburðum á sínu svæði sem við svo
aðstoðum við að koma á framfæri
og miðla fréttum af,“ segir Ingunn.
– Þið eruð með sérstakt verkefni
í verslunum á svæðinu, út á hvað
gengur það og hvernig viðbrögð
hafið þið fengið við því ?
„Já, við erum endalaust að
reyna að hugsa upp leiðir til þess
að vekja athygli á verkefninu og
hvað það stendur fyrir. Eitt af stóru
umhverfismálunum er að hvetja fólk
til þess að vera meðvitaðir neytendur
og okkur datt í hug að það gæti verið
góð leið til þess að ná til fólks að
setja upp lítil fróðleiksmolaskilti í
verslunum þar sem við t.d. bendum
á að „það þurfi helmingi minna af
þvottaefni en maður heldur“ og að
„brúnir bananar séu bestir í búst“
og fleira í þeim dúr. Þessi skilti
hanga hér og þar um verslanirnar
og vonandi vekja fólk til umhugsunar
um leið og það minnir á verkefnið
sjálft. Það skemmtilega var að
þegar við fórum af stað til þess að
ræða við þær keðjur sem eru með
verslanir á Suðurlandi, kveiktu þær
á hugmyndinni og vildu allar vera
með. Það eitt og sér segir okkur líka
hversu stór umhverfismálin eru þegar
verslanir sjá sér hag í því að taka
þátt.“
Nýtnivika
– Þið eruð líka með skemmtilegt
verkefni núna, „Nýtnivika á
Suðurlandi“, út á hvað gengur það
og hvernig hefur til tekist?
„Þema nóvembermánaðar var
„notað og endurnýtt“ en þar erum
við líka að horfa til annarra viðburða
og verkefna sem verið er að vinna úti
um allan heim í umhverfismálum.
Dagana 17.–25. nóvember var í
gangi „evrópska nýtnivikan“ sem
miðar að því að fólk líti sér nær
og skoði hvað það á nú þegar áður
en það fer að kaupa nýtt. Má laga/
breyta/bæta það sem fyrir er og
draga þannig úr sóun hluta sem enn
eiga inni líftíma. Þessa daga stóð
t.d. starfsmannafélag Fjölheima
á Selfossi fyrir fataskiptimarkaði.
Hann gekk út á það að fólk gat komið
með föt á markaðinn og skilið eftir
og tekið önnur í staðinn, allt ókeypis.
Fólk gat líka komið og fengið föt eða
bara skilið eftir föt, allt eftir því hvað
hentaði og þau föt sem urðu eftir í
lokin voru færð Nytjamarkaðinum
á Selfossi. Á Höfn var haldinn
svokallaður Viðgerðar hittingur en
þá getur fólk komið saman og fengið
aðstoð við að gera við hluti eða
fatnað og lært hvernig á að bera sig
að við slíkt, bæði mjög skemmtileg
verkefni sem tókust vel.“ segir
Ingunn.
– 1. desember var merkilegur
dagur hjá verkefninu, hvað var gert
í tilefni dagsins?
„Það er rétt en 1. desember
er fullveldisafmælið en það er
einmitt kveikjan að þessu verkefni.
Hugmyndin var
að Suðurland
„færi í sparifötin“
fyrir afmælið og
hvöttum við fólk
til þess að hreinsa
til í sínu nánasta
umhverfi. Enn
og aftur þá snýst
okkar þáttur mest
um að kveikja í
öðrum til þess að
fara af stað og við
sjáum ekki betur
en að þó nokkur
félagasamtök og
sveitarfélög hafi
gripið boltann á lofti. Skipulögð var
strandhreinsun í Vík og plokkarar
í gulum vestum sáust meðfram
þjóðvegum og göngustígum.“
Spennandi verkefni á nýju ári
– Er eitthvað meira fram undan
á þessu ári og ertu farin að
skipuleggja eitthvað á nýju ári?
„Við munum halda áfram að
koma með nýtt þema fyrir hvern
mánuð og svo erum við með
eitt mjög spennandi verkefni á
prjónunum sem vonandi fellur
í kramið. Ég vil ekki segja of
mikið en það gengur út á að hjálpa
fólki að stíga sín fyrstu skref við
að verða umhverfisvænni í sínu
daglega lífi … en kannski með
smá tvisti!“
Áhersla á að íbúar
sveitarfélaganna séu meðvitaðir
um þetta verkefni
– Hvernig hefur gengið að fá
sveitarfélögin til að taka þátt
og hvað leggja þau aðallega til
verkefnisins?
„Við leggjum áherslu á að íbúar
sveitarfélaganna séu meðvitaðir
um þetta verkefni og sendum
fréttabréfið á öll sveitarfélög
og formenn umhverfisnefnda
sveitarfélaganna. Við höfum einnig
verið að bjóða sveitarfélögunum
að setja „hnapp“ inn á heimasíður
sínar sem tengist beint á Umhverfis
Suðurland-síðuna og þau eru
nokkur komin með slíkt. Það
er mjög misjafnt hversu virk
sveitarfélögin eru og mörg eru að
gera ýmislegt þó þau láti okkur
ekki alltaf vita af því. En dropinn
holar steininn og því sýnilegri sem
við erum því meiri krafa ætti að
koma frá íbúunum sjálfum um að
þeirra sveitarfélag taki á sínum
umhverfismálum,“ segir Ingunn
enn fremur.
–En hvað er skemmtilegast við
verkefnið?
„Hingað til hefur verið
skemmtilegast að sjá hin ýmsu
félaga- og grasrótar samtök íbúa
um allt Suðurland taka boltann og
skipuleggja alls konar viðburði í
tengs lum við þemun okkar. Þá erum
við að tala um strandhreinsunar-
viðburði og aðra
hreinsunarviðburði
í tengslum við
Alheims hreins-
unar daginn í
september; diskó-
s ú p u v i ð b u r ð i
í tengslum við
matar sóunarþema
í október og núna
fataskiptimarkaði
og viðgerðar-
viðburði í tengslum
við nýtni og
endurný t inga r-
þemað í nóvember.
Fyrir mig persónu-
lega þá hefur þetta verkefni gert
mig meðvitaðri á svo miklu
stærri skala en áður, sem er bæði
skemmtilegt en líka erfitt. Það er
svo auðvelt að pæla bara ekkert
og halda áfram að lifa lífinu eins
og allt sé bara í góðum gír. En
þegar maður veit betur þá er það
ekki lengur hægt,“ segir Ingunn að
endingu. /MHH
LÍF&STARF
Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson
100 ára afmæli fullveldis Íslands:
Sunnlendingar fengu „Umhverfis Suðurland“ í afmælisgjöf