Bændablaðið - 13.12.2018, Síða 64

Bændablaðið - 13.12.2018, Síða 64
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 201864 Laxa-sashimi, gljáð jólaskinka – og perur soðnar í Laxa-sashimi með engifer og soja Það hafa ekki allir tíma til að grafa lax og hér er því hugmynd að sushi- ættuðum laxarétti sem er kryddlagður á nokkrum mínútum og skreyttur með tilbúnu sushi-engifer, kóríander og chili. Hráefni › 1 kíló flökuð og hreinsuð laxflök › Sushi-engifer, þunnt sneiddur (kemur tilbúinn) › Kóríander › Tvær agúrkur, skrældar og rifnar › Þurrkaðar chili-flögur, eftir smekk Engifer- og sojadressing Hráefni › Eitt þriggja sentimetra stykki (15 g) engifer, skrældur og fínt rifinn › 60 ml sojasósa › 2 msk. lime safi › ½ msk. sesamolía › 1 tsk. sykur Aðferð Til að gera engifer- og sojadressingu, setjið engifer, soja, lime -afa og börk, sesam-olíu og sykur í skál og hrærið til að blanda saman. Setjið til hliðar. Skerið laxinn í eins sentimetra þykkar sneiðar með því að nota beittan hníf. Setjið laxinn á borðplötu og toppið með engifer og kóríander. Berið fram með agúrku, chili-flögum og dressingu – einfalt og fljótlegt! Gljáð skinka, sætur trönu- berjagljái og blóðappelsínur Hráefni › Ein svínaskinka án puru, um 1–1,2 kíló › 2 stk. laukur › 2 rif hvítlaukur › 3 sentimetrar ferskur engifer › 5 negulnaglar › 10 svört piparkorn › 1 tsk. stjörnuanís › 1 tsk. kóríander fræ › 100 g hunang › 1½ dl balsamicedik, › 1 l trönuberjasafi › 1 msk. tómaturpuré › ½ lítra kjúklingasoð › 100 g afgangs soðgrænmeti › Auk þess 100 g smjör eða olía til steikingar › sjávarsalt › ferskur pipar › 1 msk. sinnep › ólífuolía Aðferð Takið lauk og hvítlauk og skerið í smáa bita. Afhýðið engifer og saxið. Setjið kryddið í pott ásamt lauk og engifer, með góðri slettu af smjöri eða olíu og steikið létt þar til laukurinn er orðinn mjúkur. Bætið við hunangi, ediki, trönuberjasafa, tómatmauki og kjúklingasoði (vatn og kjötkraftur) og bakið með skinkunni. Kveikið á ofni og stillið á 140 gráður. Bakið í um þrjár og hálfa klukkustund þar til 63 gráðu kjarnhita hefur verið náð. Hellið soðinu stöðugt yfir skinkuna, að minnsta kosti á hálftímafresti. Ef safinn er alveg gufaður upp, er hellt meira vatni yfir skinkuna. Takið smá sinnep og smyrjið yfir skinkuna, ausið leginum yfir og hækkið svo upp í 175 gráður til að brúna kjötið; gera skinkuna gullna og fallega. Svo er allur safinn færður í pott og soðinn niður í ákjósanlega þykkt og framreiddur með kjötinu – sem er bæði gott kalt eða heitt. Ásamt blóðappelsínum (alveg eins og bragðið og venjulegar en eru skornar upp í kringum jól og áramót) eða mandarínum. Kartöflur í steinseljupestói með ristuðum sól blóma- fræjum og geitaosti – fyrir sex manns Hráefni › 1 kíló af kartöflusmælki eða skrældum forsoðnum kartöflum › 100 g steinseljupestó (heimalagað eða í dós blandað við fersk saxaða steinselju) › 20 g af ristuðum sólblómafræum Aðferð Kartöflur eru soðnar í söltu vatni. Kartöflur kældar eða notaðar stofuheitar. Blandað með pestó og stráð yfir með ristuðum sólblómafræjum og rifnum geitaosti. Rauðrófusalat með fennel, og mozzarellaosti Hráefni › 2 kíló rauðrófur › sjávarsalt fyrir suðuvatnið › 9 dl kampavínsedik (eða hvítvíns-/ rauðvínsedik) › 5 dl vatn › 16 g salt › 400 g sykur › 4 stjörnuanís › ½ dl sulta eða berjasafi › 6 svört svört pipar korn › Sex sentimetrar fersk piparrót í sneiðum Skolið rauðrófurnar án þess að skræla þær og setjið í pott með vatni og salti. Látið suðuna koma upp og sjóðið í 20–30 mínútur þar til þær eru mjúkar, en passið líka að sjóða þær ekki of lengi. Gott er að prófa að stinga með litlum hnífi inn í þær til að athuga hvort þær eru soðnar, þær eiga að vera mjúkar en ekki of soðnar. Því er einnig mikilvægt að rauðrófurnar séu af svipaðri stærð svo suðutími sé sá sami. Þegar rauðrófurnar eru orðnar mjúkar eru þær skolaðar undir köldu vatni og þá ætti að vera hægt að nudda hýðið auðveldlega af. Hægt er að nota hanska ef þið viljið ekki að hendurnar verði rauðar. Þegar þær eru orðnar kaldar eru þær settar í krukkur eða í plastílát með loki. Færið allt í löginn í pott, nema piparrót, og látið suðu koma upp. Þá takið af hitanum bætið að svo búnu piparrótinni við í sneiðum (ef piparrótin fær að sjóða kemur biturt bragð). Hellið heitum leginum yfir rauðrófurnar, lokið krukkunni vel og látið liggja í þrjá daga í kæli áður en þær eru borðaðar. Ábending: rauðrófur geta legið í sex mánuði í ísskápnum þegar þær hafa verið meðhöndlaðar með þessum hætti og bragðið batnar bara með tímanum. Gerið svo gott salat með geitaosti – eða jafnvel mozzarellaosti – og hnetum, fersku salati og kryddjurtum. Gott er að byrja jólaundirbúninginn snemma og framreiðið þetta salat með þunnskornu fennel fyrir stökkt anísbragð og ferskleika rétt áður en gesti ber að garði. Rósakál og strengja bauna- salat með sítrónu- og timjandressingu Hráefni fyrir rósakál › 700 g litlir rósakáls hausar › salt fyrir suðuvatnið › 50 g smjör › flögusalt › svartur pipar › 1 msk. hunang › 1 msk. sítrónusafi Hráefni fyrir kryddlög › Safi og ½ lífræn sítróna › 1 dl kaldpressuð góð ólífuolía eða íslensk repjuolía › ½ teskeið hunang › sjávarsalt › ferskur malaður svartur pipar › salat að eigin vali › 1 lítil handfylli fersk steinselja › strengjabaunir › 1 stk. laukur Skolið rósakálið, skerið af neðsta hluta rótarinnar – sem er smá stilkur – og fjarlægðu ytri blöðin (þau eru góð hrá). Geymdu bestu ytri laufin fyrir salat og settu þau í kalt vatn. Fleygðu ljótu laufunum. Setjið kjarnana á pönnu með sjóðandi saltvatni og látið sjóða (sumir vilja skera í minni bita). Sjóðið í eina til tvær mínútur eða þar til þau eru mjúk, en ekki of elduð. Kryddið með smjöri, salti, pipar, hunangi og sítrónusafa. Kælið. B jarni Gunnar matreiðslumeistari er kominn í hátíðarskap og gefur hér lesendum nokkrar girnilegar hugmyndir að réttum og meðlæti sem hentugt er að geta gengið að um hátíðirnar sem fara nú í hönd. JÓLAMATURINN BJARNI GUNNAR KRISTINSSON MATREIÐSLUMEISTARI
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.