Bændablaðið - 13.12.2018, Side 79
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 2018 79
Fyrir flestum eru jólin stærsta
hátíð ársins, en því miður er of
algengt að heyra í fréttum af
bruna í aðdraganda jóla og um
jól. Þess vegna ættu allir að huga
að hlutum sem of oft vilja gleymast
í nútíma hraðaþjóðfélagi.
Slökkvitækin yfirfarin
Á öllum slökkvitækjum eru
dagsetningar um hvenær á að yfirfara
þau og hvenær þau voru yfirfarin
síðast. Þó er ein ráðlegging frá
mér, að vissulega kostar að yfirfara
hvert slökkvitæki, en miðað við þau
slökkvitæki sem eru ansi víða til sölu
þá er hugsanlegt að það borgi sig
hreinlega að kaupa nýtt tæki í stað
þess að yfirfara gamla slökkvitækið.
Svo er það annað að ný eða nýleg
slökkvitæki geta bilað eða staðið
á sér þegar á að fara að nota þau.
Annað sem þarf að athuga sem oft
vill gleymast er hvort auðvelt er að
nálgast slökkvitækið og að festing
sé ekki föst eða að öryggispinninn
sé auðlosanlegur.
Reykskynjarar hafa bjargað
mörgum
Í flestum húsum eru reykskynjarar,
einn eða fleiri, og hafa þeir
bjargað mörgum heimilunum og
mannslífum. Reykskynjarar eru
gagnslausir ef þeir eru bilaðir eða
rafhlaðan tóm.
Árlega á að skipta um rafhlöðu
í reykskynjurum og margir
hafa þann sið á að það sé gert á
Þorláksmessudag. Dagurinn skiptir
ekki máli svo lengi sem það sé
öruggt að skipt sé um rafhlöðuna
og þegar ný rafhlaða er komin í er
best að prófa, ýmist með því að ýta
á prufutakkann eða að sannprófa
reykskynjarann með reyk.
Sjúkrakassinn eða
skyndihjálparpakkinn
Á flestum heimilum eru til
sjúkrakassar, en þá þarf að yfirfara
rétt eins og slökkvitækin og
reykskynjarana. Stóra sjúkrakassann
sem margir eiga er best að fara með
á þann stað sem hann var keyptur
og láta uppfæra (í mínu tilfelli hjá
björgunarsveitinni), hins vegar getur
verið ódýrara að kaupa nýjan, rétt
eins og slökkvitækið.
Litlu sjúkrapakkarnir (þessir
sem oft eru í verkfæratöskunni
eða bakpokanum) eru almennt svo
ódýrir að best er að kaupa nýja, en
ef þeir eru ónotaðir er það besta mál
og óþarfi að gera neitt annað en að
skoða í þá og gá hvort allt sé í lagi.
Það sem komið hefur fyrir mig
getur komið fyrir hjá þér
Í sumar sem leið var ég staddur á
bensínstöð þegar þangað kom maður
hlaupandi og sagði vörubíl vera að
brenna 50 metra frá bensínstöðinni.
Ég stökk að slökkvitæki við eina
bensíndæluna og hugðist vera
fljótur að bjarga því sem hægt væri
að bjarga. Báðir öryggispinnarnir í
lokunum á skáp tækisins voru svo
ryðgaðir að það þurfti mikil átök að
ná þeim út og eftir smá átök við að
opna skápinn náðist tækið út.
Á hlaupunum að brunanum var
svo öryggispinninn tekin úr, en hann
var líka ryðgaður fastur og á þessu
fimmtíu metra hlaupi rétt náðist að
jugga pinnanum úr.
Sem betur fer dugði eitt tæki til
að slökkva eldinn og forða frekara
tjóni, þó að eldurinn hafi verið mikill
var tjón það lítið að bíllinn náði að
keyra burtu undir eigin vélarafli eftir
kælingu.
Í hinu tilfellinu skar
samstarfsmaður minn sig frekar
illa og þurfti plástur, þegar farið
var í sjúkrakassann var þar enginn
plástur, fyrr á árinu hafði annar
samstarfsmaður þurft plástur og
afgangurinn ekki settur á sinn
stað svo að það þurfti að fara
með manninn blæðandi á næsta
sjúkrakassa til að plástra. Fyrir
vikið varð þetta til þess að skoðaðir
voru allir staðir á vinnustaðnum þar
sem á að vera plástur sem reyndust í
lagi og tilviljun að eini plásturslausi
sjúkrakassinn var sá sem fyrst var
farið í.
ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Það er að mörgu að hyggja við undirbúning jóla
Á leiðinni í ársskoðun hjá Securitas.
Sviðinn vörubíllinn keyrði burt eftir kælingu, en þarna kom slökkvitæki sér vel.
Verð 1.449.000,-
Án vsk. 1.168.548,-
Á GAMLA
GENGINU!
- CFORCE 550
Mótorar og varahlutir á lager
Hröð og góð þjónusta
Dreifingaraðili BRIGGS & STRATTON
á ÍSLANDI
MHG Verslun ehf | | 20 Kópavogi
Sími 544-4656 | www.mhg.is
480 5600480 5600
Verð kr. 4.884
Landstólpi - Egilsstöðum
Vélaval - Varmahlíð
Útsölustaðir:
Næsta
Bændablað
kemur út
17. janúar
Við erum stoltir umboðsaðilar SnowEx á Íslandi.
Sand- og saltdreifarar, stórir sem smáir.
Fyrir lyftara, bíla, traktora og ýmis tæki.
Einnig snjótennur á pallbíla.