Bændablaðið - 09.05.2018, Side 24

Bændablaðið - 09.05.2018, Side 24
24 Bændablaðið | Miðvikudagur 9. maí 2018 „Krafa okkar skógarbænda er fyrst og fremst sú að ríkið standi við gerða samninga við bændur og að í fjárlögum ársins 2018 sem og í næstu fjármálaáætlunum til 5 ára verði gert ráð fyrir auknum framlögum til skógræktar. Við leggjum líka áherslu á að gróðursetningu verði haldið áfram í samræmi við samninga og að hægt verði að fara í fyrstu grisjun skóg- anna innan eðlilegra tímamarka,“ segir Jóhann F. Þórhallsson, gjaldkeri Félags skógarbænda á Austurlandi. Frumkvöðlar í skógrækt Skógarbændur á Austurlandi fögn uðu nýlega 30 ára afmæli félagsins, en það var stofnað 3. maí árið 1988. Félagið hefur alla tíð síðan verið í fararbroddi við uppbyggingu og hagsmunagæslu varðandi bændaskógrækt. Um 180 samningar um skógrækt eru í gildi í fjórðungnum upp á um 18 þúsund hektara lands og er búið að gróðursetja um 28 milljón plöntur í alls 11 þúsund hektara „Bændur á Austurlandi eru stoltir af framlagi sínu við að byggja upp skógarauðlindina og að vera frum- kvöðlar í skógrækt á Íslandi,“ segir Jóhann, en bændur eystra voru þeir fyrstu sem stofnuðu með sér félags- skap um sína skógrækt og er félag þeirra því það elsta sinnar tegundar hér á landi. Hugmyndin fæddist þegar erfiðleikar voru í landbúnaði Þó nokkur undirbúningur lá að baki stofnun félags skógarbænda fyrir þremur áratugum. Erfiðleikar voru í landbúnaði á þeim tíma. Gripið var til allsherjar niðurskurðar sauðfjár á Héraði vegna riðu þannig að ekki blés byrlega fyrir austfirskum sauð- fjárbændum, en þeir þurftu að vera fjárlausir í tvö til þrjú næstu ár á eftir. Til tals hafði komið á ráðstefnu um atvinnumál að eitthvað yrði að gera í málefnum landbúnaðarins og nefnt var að ef til vill væru sóknarfæri í skógræktinni. Fæddist sú hugmynd að fá ríkið til liðs svo greiða mætti úr þeim erfiðleikum sem bændur stóðu frammi fyrir og náðist það markmið með stofnun Héraðsskóga. Tilgangur þess félags var fyrst og fremst að rækta nytjaskóg á Fljótsdalshéraði, sinna umhirðu þess skóglendis sem fyrir var og treysta með því byggð og efla atvinnulíf á Héraði. Í þá daga voru einungis örfá- ir birkiskógar til staðar auk ræktaðra skóga á stöku stað. Héraðsskógar höfðu starfað um sjö ára skeið þegar Suðurlandsskógar urðu til og síðan fylgdu önnur sams konar félög í kjölfarið í öðrum fjórðungum landsins. Landssamtök skógareigenda voru síðan stofnuð á Hallormsstað sumarið 1997, en þau halda m.a. utan um hagsmunamál skógarbænda og hafa hægt og bítandi gert sig meira gildandi í umræðunni. Jóhann segir að verulega vanti upp á að staðið sé við samninga sem ríkið hefur gert við bændur, skortur sé á fjárveitingum til skóg- ræktar á lögbýlum. Frá árinu 2008 hefur framlag til skógræktar dregist saman um meira en 40% og bend- ir hann á að samdrátturinn sé enn meiri þegar að Austurlandi kemur. Heildargróðursetning skógarbænda SKÓGRÆKT&LANDGRÆÐSLA Skógarbændur útskrifaðir af Græniskógum I vorið 2006. Efri röð frá vinstri; Björgvin Eggertsson, Jóhann F. Þórhallsson, Jóhann Gísli Jóhannsson, Halldór Sigurðsson, Björn Ármann Ólafsson, Ellendersen, Sigrún Erla Ólafsdóttir og Kolbrún Sigurðardóttir. Myndir frá Skógargerði, þá fyrstu tók Skúli Björn árið 1995 og Jóhann tók hinar, þá fyrri árið 2005 og hinar síðari árið 2010. Margrét Þóra Þórsdóttir mth@bondi.is Félag skógarbænda á Austurlandi 30 ára: Hafa gróðursett um 28 milljón plöntur í 11 þúsund hektara

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.