Bændablaðið - 09.05.2018, Blaðsíða 26

Bændablaðið - 09.05.2018, Blaðsíða 26
26 Bændablaðið | Miðvikudagur 9. maí 2018 Búnaðarsamband Eyjafjarðar veitir árlega viðurkenningu fyrir sérstakt framtak tengt landbúnaði og eða úrvinnslu landbúnaðarafurða sem stuttlega var greint frá í síðasta Bændablaði. Miklar vangaveltur voru um hver skyldi hljóta hvatningarverðlaun Búnaðarsambands Eyjafjarðar þetta árið og varð niðurstaðan sú að viðurkenningin féll í skaut fyrirtækinu Búvís sem er til húsa í Grímseyjargötu 1 á Akureyri. Viðurkenningin getur verið fyrir vel unnin störf, athyglisverða nýjung eða einstakan árangur. Viðurkenninguna geta einstaklingar, félög, fyrirtæki og stofnanir hlotið. Verð á áburði lækkaði Búvís var stofnað 2006 en í um það bil 2 ár áður höfðu eigendur þess verið að flytja inn og selja vörur til bænda undir nafninu Lambás sem var fyrirtæki sem Gunnar Guðmundsson í Sveinungsvík í Þistilfirði var með fyrir sinn búrekstur, en ásamt honum er Einar bróðir hans eigandi Búvís. Búvís hefur selt áburð frá árinu 2009 og ljóst er að með innkomu þeirra á þann markað hafi verð á áburði til bænda lækkað og þeir verið leiðandi á markaðnum í að reyna að halda áburðarverði lágu. Byggðu nýtt hús undir starfsemina Árið 2012 var núverandi húsnæði félagsins byggt undir starfsemina að Grímseyjargötu 1 en áður hafði hún verið í bílskúrnum hjá Einari og í Sveinungsvík. Segja má að upp úr því hafi fyrirtækið tekið talsvert stökk og orðið mun sýnilegra og meira áberandi á markaði. Allar götur síðan hafa þeir verið að auka umsvif í vörum til nota í landbúnaði, gróflega áætlað skiptast söluþættir í þrjá hluta, þar sem áburður er stærstur, þá rúlluplast og síðan ýmiss konar vélar og tæki ásamt margháttaðri smávöru. Alls starfa 6 manns hjá Búvís, en á álagstímum er starfsfólki fjölgað. Þá eru 22 söluaðilar eða lagerhaldarar á rúlluplasti víða um land. Augljós áhrif „Þeir bræður stofnuðu þetta norðlenska fyrirtæki frá núllpunkti og hafa komið því í sterka stöðu á rúmlega áratug og ein aðalástæða þess að þeir hljóta Hvatningarverðlaun BSE er að augljós eru þau áhrif sem innkoma þeirra á landbúnaðarvörumarkað hefur haft á verð til bænda,“ sagði Sigurgeir Hreinsson, framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Eyjafjarðar, við afhendingu viðurkenningarinnar. /MÞÞ Búvís hlaut Hvatningarverðlaun Búnaðarsambands Eyjafjarðar – Innkoma á markað hefur lækkað verð til bænda Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Óseyrarbraut 12 | 220 Hafnarfirði Hafðu samband 568 0100 www.stolpigamar.is Gámurinn er þarfaþing  Þurrgámar  Hitastýrðir gámar  Geymslugámar  Einangraðir gámar  Fleti og tankgámar  Gámar með hliðaropnun Til leigu eða sölu:  Gámahús og salernishús  Færanleg starfsmannaðstaða  Bos gámar og skemmur Nautgriparæktarverðlaun BSE: Bændur á Hóli í Svarfaðardal hlutu viðurkenningu Nautgr iparæktarverðlaun Búnaðar sambands Eyjafjarðar (BSE) voru afhent í 15. skipti á aðalfundi sambandsins á dögunum. Þau fá þeir bændur sem hafa skarað fram úr í sem flestum þáttum búskapar. Þar er helst litið til afurðasemi búsins og þá gjarnan til lengri tíma en eins árs. Umhirðu og snyrtimennsku ásamt því hvort búið hafi lagt gripi til sameiginlegs ræktunarstarfs. „Oft hefur vafist fyrir hver helstur skuli fá verðlaun af þeim mörgu góðu búum sem hér eru rekin,“ sagði Sigurgeir Hreinsson, framkvæmdastjóri sambandsins, á aðalfundinum. Að þessu sinni lágu línur nokkuð ljósar þó aldrei hafi fleiri bú í héraðinu verið meðal efstu búa landsins. Á Hóli í Svarfaðardal búa Karl Ingi Atlason, heimaalinn, og kona hans, Erla Hrönn Sigurðardóttir. Þau tóku við búskap af foreldrum Karls Inga árið 2016 en þá höfðu þau starfað um árabil við búið. Atli Friðbjörnsson og Halla Soffía Karlsdóttir höfðu þá rekið búið í aldarþriðjung og þar á undan foreldrar Atla og þannig hefur það verið koll af kolli síðan einhvern tímann á 19. öld. Ljóst er samt að miðað við búskaparsögu á Hóli eiga fyrri ábúendur mikinn hlut í þessum verðlaunum því svo lengi sem menn muna hefur þar verið rekið afar myndarlegt bú þar sem snyrtimennska hefur verið í hávegum höfð og einstakt heim að líta. Nýtt 860 fm fjós með mjaltaþjóni og rúmri og góðri vinnuaðstöðu var tekið í notkun árið 2014 sem annálað er fyrir góða umgengni og skepnuhirðingu. Eftir að flutt var í nýja fjósið fóru afurðir búsins ört vaxandi og á síðasta ári voru 50,7 árskýr með 8.356 kg af mjólk eftir hverja kú sem dugði til að vera efst í röð búa í Eyjafirði og í öðru sæti á landsvísu. Árið 2016 var búið í 5. sæti í héraðinu með 7.740 kg á kú. /MÞÞ Karl Ingi Atlason, bóndi á Hóli í Svarfaðardal, tekur hér við naut- griparæktarverðlaunum BSE úr hendi Gunnhildar Gylfadóttur. Frá veitingu viðurkenninga Búnaðarsambands Eyjafjarðar. Valgeir Anton Þórisson hjá Búvís, Karl Ingi Atlason, bóndi á Hóli, Stefán Lárus Karlsson, bóndi á Yri-Bægisá og Gunnhildur Gylfadóttir, formaður BSE. Sauðfjárræktarverðlaun BSE fyrir árið 2017: Vel staðið að búskap á Ytri-Bægisá 2 Sauðfjárræktarverðlaun BSE komu að þessu sinni í hlut hjónanna á Ytri-Bægisá 2, þeirra Stefáns Lárusar Karlssonar og Elisabeth Jóhanna Zitterbart, sem þar búa ásamt fjórum börnum sínum. Verðlaunin voru nú veitt í 15. sinn samkvæmt nánast sömu reglum og áður. Byggt er á niðurstöðum skýrsluhalds hjá þeim búum sem hafa eitt hundrað eða fleiri fullorðnar ær á skýrslum. Tekið er tillit til þriggja þátta, reiknaðs kjötþunga eftir fullorðna kind, gerðarmats og hlutfalls milli vöðva- og fitueinkunnar. Einnig er litið til þess að búið sé á lista yfir úrvalsbú samkvæmt reglum RML þar um. Stefán Lárus hóf búskap á Ytri- Bægisá árið 1987 ásamt Hermanni bróður sínum sem bjó með honum til 1992, en þá kom Elísabeth og gerðist frú á bænum. Hjá þeim er afar snyrtilegt heim að líta og vel staðið að búskap. Auk fjárbúskapar eru þau með nokkra ferðaþjónustu og kýr til heimilisnota. Einnig er frúin afkastamikil hannyrða- og listakona og selur handverk. Á Ytri-Bægisá 2 voru á síðasta vetri 303 vetrarfóðraðar ær sem skiluðu að meðaltali 31,2 kg af kjöti. Fædd lömb eftir hveja á voru 1,94 og til nytja 1,83. Fallþungi 16,8 kg og gerðarmat 10,27, fita 6,23 sem gerir að hlutfall gerðar og fitu er einstaklega hátt, eða 1,65. Aldur lamba við slátrun er lágur, eða 128, og vöxtur lífþunga í grömmum á dag er 307. 72 veturgamlar ær skiluðu 15,7 kg og þar er ær með lambi að skila 18,7 kg. „Allar þessar tölur eru til fyrirmyndar og skila þeim hjónum á Ytri-Bægisá 2 efsta sæti á þeim lista sem ræður úrslitum við þessa verðlaunaveitingu,“ sagði Sigurgeir Hreinsson, framkvæmdastjóri BSE við afhendingu sauðfjárræktarverðlauna BSE fyrir árið 2017. /MÞÞ Lárus Karlsson, bóndi á Ytri-Bæg- isá tekur við sauðfjáræktarverð- launum BSE úr hendi Gunnhildar Gylfa dóttur. Höfði í Mývatnssveit fær góðan styrk til endurbóta Framkvæmdasjóður ferðamanna- staða hefur samþykkt styrk að upphæð ríflega 9 milljónir króna til Skútustaðahrepps vegna verkefnisins „Gönguleið og fræðsluskilti í Höfða í Mývatnssveit: aðgengi fyrir alla“. Mótframlag sveitarfélagsins í verkefnið er 20%. Í greinargerð framkvæmda- sjóðsins segir að styrkurinn sé til að endurgera og bæta ferðamannastaðinn Höfða í Mývatnssveit. Tilgangurinn er að efla áningarstaðinn með aðgengi fyrir alla og sjálfbærni að leiðarljósi, auka aðdráttarafl utan háannatíma og létta á nærliggjandi ferðamannastöðum. Verkefnið snúi einnig að náttúruvernd og öryggismálum á fornfrægum ferðamannastað. Jafnframt sótti sveitarfélagið um styrk í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða vegna fyrsta áfanga göngu- og hjólreiðastígs umhverfis Mývatn en umsókninni var hafnað. Það segir sveitarstjóri í pistli á heimasíðu hreppsins að séu mikil vonbrigði þar sem um brýnt umferðaröryggismál sé að ræða. Sveitarstjórn mun halda áfram að sækja um styrk til þessa verkefnis til Vegagerðarinnar. /MÞÞ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.