Bændablaðið - 09.05.2018, Side 34

Bændablaðið - 09.05.2018, Side 34
34 Bændablaðið | Miðvikudagur 9. maí 2018 Stofnandi í talska dráttarvélaframleiðslu- fyrirtækisins Bubba hóf afskipti sín af landbúnaði skömmu fyrir lok þarsíðustu aldar með því að taka að sér að þreskja kornakra fyrir bændur í norðursveitum Ítalíu. Seinna bættust við ýmiss konar vélaviðgerðarverkefni. Árið 1886 stofnaði Pietro Bubba, ásamt sonum sínum þremur, fyrirtæki sem framleiddi þreskivélar og vélar til að brjóta hnetur. Næstu árin þróuðu feðgarnir tækin sem þeir framleiddu og á öðrum áratug tuttugustu aldarinnar voru þau samkeppnishæf við þau bestu á markaði á þeim tíma. Á þeim tíma hafði framleiðslan aukist og fyrirtækið stækkað talsvert og komið með formlegt nafn, Pietro Budda & Co. Fyrsta dráttarvélin Bubba & Co hófu hönnun á fyrstu dráttarvélinni um 1920 og byggðist hönnunin á þeim traktorum sem höfðu komið best út við plægingar á dráttarvélasýningum á árunum milli 1915 og 1920. Bubbafeðgar lögðu mikið upp úr því að dráttarvélarnar yrðu auðveldar í notkun og að viðhald yrði sem minnst. Árið 1923 settu þeir á markað eins strokks dísildráttarvél með glóðarhaus. Bubba- fyrirtækið smíðaði mótorinn fyrstu árin en yfirbyggingin var frá Case þar til 1926 þegar Bubba hóf framleiðslu á eigin yfirbyggingum og framleiddi 100% sinn eigin traktor. Næstu árin fylgdu svo fleiri týpur í kjölfarið sem fengu heitin UTC 3 til UTC 6. UTC var 25 til 30 hestöfl og urðu dráttarvélarnar öflugri eftir því sem týpunúmerið hækkaði. Í umfjöllun staðhæfði framleiðandinn að UTC6, sem var þrír gírar áfram og einn aftur á bak, að dráttarvélin gengi jafnt fyrir olíu úr leirseti, svartolíu eða tjörueimi. Slíkt er mögulegt þar sem glóðarhausavélar ganga á hlutfallslega lágum snúningshraða og litlu innsprautunarþrýstingi og geta því brennt þungu eldsneyti hægt. Kreppa og fjárhagserfiðleikar Pietro Bubba lést 1927 og tveimur árum seinna skall heimkreppan á. Í kjölfarið lenti það í fjármálakröggum og árið 1930 tók fyrirtæki sem hét Bubba S.A. það yfir. Nýju eigendurnir héldu áfram framleiðslu á dráttarvélum undir heitinu Bubba um tíma. Árið 1938 setti Bubba S.A. á markað dráttarvél sem fékk heitið Ariete og var 37 til 47 hestöfl. Þróunin hélt áfram og 1943 kom Ariete D42 fram á sjónarsviðið en í kjölfar heimsstyrjaldarinnar seldist sú vél illa. Fyrirtækið var þrátt fyrir mótbyr ekki af baki dottið og hóf framleiðslu á beltavélum sem kölluðust Centauro og voru 45 til 55 hestöfl. Árið 1948 setti Bubba A.S. á markað fyrstu ítölsku sjálfknúnu þreskivélina. 1950 kom á markað frá Bubba A.S. dráttarvél sem kallaðist LO5 og var það sú síðasta sem fyrirtækið framleiddi með glóðarhaus. Sama ár framleiddi fyrirtækið frumtýpu af LO6 en sá traktor fór aldrei í framleiðslu. Áhersla á þreskivélar Við upphaf sjötta áratugar síðustu aldar lagði fyrirtækið sífellt meiri áherslu á framleiðslu þreskivéla. Nafni fyrirtækisins var breytt í Arbos-Bubba skömmu efir lok heimsstyrjaldarinnar síðari og árið 1954 var Bubba heitið fellt út og hét fyrirtækið eftir það Arbos sem var heiti á reiðhjólaverksmiðju sem eigendur Arbos-Bubba áttu á þeim tíma. /VH Bubba dráttarvélar Rússland flytur út meira af hveiti á yfirstandandi tímabili 2017- 2018 en nokkur önnur þjóð hefur gert í 25 ár samkvæmt tölum markaðsfrétta Bloomberg. Er búist við að hveitiútflutningurinn á yfirstandandi tímabili muni nema 36,6 milljónum tonna. Engin önnur þjóð hefur náð að flytja út jafn mikið af hveiti síðan Bandaríkin slógu síðast met á tímabilinu 1992 til 1993 með 36,8 milljónum tonna. Það var þó mun lægra en mesti hveitiútflutningur Bandaríkjamanna í sögunni. Það var á árunum upp úr 1980 þegar þeir fluttu út 48,2 milljónir tonna af hveiti á einu uppskerutímabili. Mikill útflutningur Bandaríkjamanna á hveiti á þeim árum byggði að verulegum hluta á mikilli innflutningsþörf gömlu Sovétríkjanna. Þar hefur dæmið algjörlega snúist við eftir fall þeirrar ríkjasamsteypu og áætlunar um að Rússar verði sjálfum sér nægir með landbúnaðarvörur. Auk mikils hveitiútflutnings hafa Rússar verið að flytja út umtalsvert af korni sem hefur lækkað verð í framvirkum viðskiptum um 50% síðan á miðju ári 2012. Hafa Rússar verið að ná sífellt stærri markaðshlutdeild af Bandaríkjamönnum og Kanada- mönnum. Samkvæmt tölum bandaríska landbúnaðarráðuneytisins er gert ráð fyrir að hveitiútflutningur Bandaríkjamanna á yfirstandandi tímabili muni verða litlu minni en Rússa, eða 35 milljónir tonna. /HKr. Rússar hrintu af stað heljarmiklum áformum um að verða sjálfum sér nægir um landbúnaðarvörur fyrir 2020. Var það gert í kjölfar viðskiptabanns sem ESB og ýmis ríki innan NATO kynntu gegn Rússlandi 2014. Þóttu orð Pútíns í þessa veru ansi djörf, en ekki er annað að sjá en að áform Rússa séu að ganga upp og jafnvel fyrr en áætlað var. Þannig er nú orðin offramboð á svínakjöti. Hafa rússnesk yfirvöld því ákveðið að hætta lánveitingum á lágum vöxtum til uppbyggingar í svínaræktinni að því er fram kom á vefsíðu Pig Progress í febrúar. Í raun hafa engin svokölluð „mjúk lán“ verið veitt af hálfu ríkisbanka til svínaræktar í landinu frá því á árinu 2016. Uppbyggingin hefur þó ekki alveg verið vandræðalaus því upp hafa komið ítrekuð tilfelli um svínapest í landinu á liðnum misserum. Þrátt fyrir að það horfi fram á ofmettun markaðarins hafa Rússar fram til þessa verið að flytja inn um 300.000 tonn af svínakjöti á ári. Með því að hætta þessum innflutningi felast aukin tækifæri fyrir svínaræktina í Rússlandi. Virðist því ljóst að erlendir bændur komi til með að finna verulega fyrir allt að 300.000 tonna samdrætti í innkaupum Rússa á svínakjöti þegar frá líður. Bætist það ofan á mikinn skaða sem bændur í löndum Evrópusambandsins hafa orðið fyrir vegna afleiðinga af viðskiptabanni þeirra eigin stjórnvalda. Hefur það m.a. haft veruleg áhrif á danska bændur. Þessi mikla svínakjötsframleiðsla rússnesrar bænda er þegar farin að hafa áhrif á verðlag svínakjöts í landinu. Þannig lækkaði kílóverð á svínakjöti á Leningrad-svæðinu á tveim mánuðum síðastliðið haust úr 110 rúblum (1,57 evrum) í 90 rúblur (1,28 evrur). Danir misstu svínakjötsmarkað en fjárfesta nú í rússneskum landbúnaði Það sérkennilega í þessu öllu saman er að í kjölfar þess að danskir fram- leiðendur töpuðu drjúgum hluta af sínum markaði í Rússlandi, þá er danska fyrirtækið Idavang nú farið að fjárfesta grimmt í rússneskri svínarækt. Idavang er ekki heimilt að kaupa svínarækt í rekstri í Rússlandi og hafa menn því farið þá leið sem eignarhaldsfélag að leggja stórfé í uppbyggingu á nýju svínabúi frá grunni. Þannig hefur Idavang safnað 3 milljörðum rúblna (um 85 milljónum evra) í formi skuldabréfa Eruobonds. Þá er haft eftir Tatiana Sharinguna, rússneskum framkvæmdastjóra Idavang Agro JSC, í dagblaðinu Delovoi Peterburg, að fyrirtækið hafi einnig útvegað venjuleg lán hjá rússneskum banka upp á 1 milljarð rúblna, eða sem nemur 15 milljónum evra. Hyggst Idavang með þessum fjármunum reisa nýjan svínabúgarð á Leningrad-svæðinu, eða í Luga sem er um 150 km suður af Pétursborg. Eiga framkvæmdir að hefjast á þessu ári. Að mestu í eigu Dana Idavang er að 80% hlut í eigu Jast Holding A/S í Danmörku en fjárfestingafélag Alþjóðabankans, (The World Bank - International Corporate Finance - IFC) á 20% hlut í fyrirtækinu. Stjórnin er öll skipuð Dönum, þ.e. Niels Hermansen, sem er formaður, Jytte Rosenmaj, varaformaður, auk Claus Baltsersen, Ole Bjerremand Hansen og Carsten Lund Thomsen. Hóf að fjárfesta í landbúnaði 1999 Fyrirtækið hóf að fjárfesta í landbúnaði 1999 með 800.000 evra eigið fé í vasanum. Var fyrsta bújörðin keypt það sama ár eða það sem þeir skilgreina sem „Brown fields“, en það er þegar þeir kaupa bújörð í rekstri með húð og hári, eða með beinum eignarhlut. Í Rússlandi eru slík kaup útlendinga á bújörðum í rekstri ekki leyfð. Því er þar farin sú leið að byggja upp búrekstur frá grunni eða það sem þeir kalla „Green fields“. Til þess verða menn að hafa aðgang að jarðnæði til að losna við allan svínaskítinn í áburð sem til fellur af starfseminni. Á nýja rússneska svínabúinu þyrfti að öllu jöfnu 6.000 hektara land til að dreifa öllum svínaskítnum sem þar mun falla til. Til að minnka landþörfina hefur fyrirtækið fengið leyfi til að forvinna skítinn í sérstakri umhverfisverksmiðju (Environmental Processing Plan - EPP) sem byggð er á tækni Nutriflow. Er fosfór og köfnunarefni þá unnið úr skítnum til að minnka áburðarinnihaldið í fastaefninu sem eftir er. Þannig dugar þeim 600 hektara land til að losna við sinn svínaskít án þess að fara yfir leyfileg mörk sem sett eru vegna mengunar grunnvatns. Hefur starfsemin vaxið ört frá 2011 og er Idavang nú leiðandi framleiðandi á svínakjöti í Litháen og stefnir hátt í Rússlandi. Árið 2011 tryggði Alþjóðabankinn uppbyggingaráform fyrirtækisins í Rússlandi með því að gerast 20% hluthafi. Mestum nettótekjum náði fyrirtækið 2014, eða 18,8 milljónum evra, en þá var veltan 115,3 milljónir evra. Á árinu 2016 var veltan 95,1 milljón, en nettótekjurnar 14,2 milljónir evra. Miðað við það hlýtur fjárfesting nú upp á 100 milljónir evra í Rússlandi að teljast ansi mikil. /HKr. Viðskiptabann ESB og NATO hefur stóreflt rússneskan landbúnað: Ofgnótt orðið af svínakjöti á Rússlandsmarkaði – Danskt fyrirtæki fjárfestir fyrir 100 milljónir evra í rússneskri svínarækt Rússar með mesta hveitiútflutning nokkurrar þjóðar frá 1993 – Búist er við að heildarútflutningur nú muni nema 36,6 milljónum tonna UTAN ÚR HEIMI Eitt af svínabúum Idavang í Litháen.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.