Bændablaðið - 09.05.2018, Page 39
39Bændablaðið | Miðvikudagur 9. maí 2018
þar væri mikið um að vera því Elín,
nýja húsmóðirin mín, var að sjóða
hval í þvottapottinum sem kyntur
var með mó. Á þessum árum fór
hvalbíll frá Hvalstöðinni í Hvalfirði
um héruð og seldi bændum hval.
Hvalbíllinn hafði farið um daginn
áður en ég kom. Ég gleymi aldrei
fýlunni af hvalsuðunni, hélt að svona
yrði lyktin alltaf í bænum.
Samskiptin við mömmu og pabba
voru bréfleiðis. Ég skrifaði tvö til
þrjú bréf yfir sumarið og fékk senda
pakka með smá sælgæti, stundum
ávöxtum, og teiknimyndablöðum,
ásamt bréfi. Aldrei var hringt, enda
rándýrt, nema þegar leið að hausti
og verið var að skipuleggja ferð til
að sækja mig í sveitina, sem var
heilmikið ferðalag. Pabbi átti ekki
bíl en fékk lánaða bíla hjá vinum
sínum. Oftast var það bíll sem
Guðmundur Jónasson rútubílstjóri
átti, en þeir voru ævivinir.
Vinnuframlag
Þar sem ég var eina barnið á bænum
var ekki um neina verkaskiptingu
að ræða. Öll störfin voru jafngild
hvað mig varðaði. Hins vegar
var verkaskipting milli hjónanna
skýr. Jóhannes tók engan þátt í
innanhússverkum og fór aldrei í
fjósið. Elín vann og stjórnaði öllu
innanstokks og vann sum verk
utanhúss, tók í hrífu þegar heyannir
voru mestar, mjólkaði nær alltaf og
tók þátt í dúnhreinsuninni. Hún
vann aldrei verk utan heimatúnsins.
Bergur gekk hins vegar í flest verk
foreldra sinna.
Ég vaknaði venjulega um svipað
leyti og annað heimafólk, man ekki
til þess að ég væri vakinn, líklega
var ég frekar morgunsprækur. Ég
get ekki sagt að mér fyndist ég þurfa
að vinna mikið, þótti yfirleitt gaman
að taka þátt í verkunum með öðru
heimilisfólki eftir því sem getan
leyfði. Ég minnist þess ekki að hafa
þurft að vinna meira en góðu hófi
gegndi.
Mitt fyrsta verk var að reka kýrnar
á morgnana eftir mjaltir. Ég þurfti
aldrei að sækja þær á morgnana
þær voru alltaf við túnhliðið og þar
voru þær mjólkaðar nema veður væri
mjög vont.
Kúahjörðin var ekki stór.
Forustukýrin Hryggja gamla og
Svört ásamt kvígunum Lukku og
Ljómalind, einum veturgömlum
tudda og tveim kálfum.
Kúareksturinn var alltaf mjög
auðveldur því Hryggja gamla, sem
stjórnaði hjörðinni, var oftast á
leiðinni eða komin heim til að láta
mjólka sig á réttum tíma á kvöldin.
Eftir að Hryggju var lógað tók
Ljómalind við forustunni. Kúasvipa
fylgdi kúrekaembættinu. Bergur
tálgaði til bút úr hrífuskafti, skar í
hann fangamarkið mitt og á fremri
endann var borað gat og í það bund-
inn reipisspotti. Með svipunni var
hægt að gera hvin til að hvetja kýrnar
áfram. Einnig var mér kennt að nota
skaftið til að ýta á síðuna á kúnum
og þá beygðu þær í þá átt sem kúa-
smalinn vildi.
Kýrnar voru aldrei barðar með
svipunni, enda voru þær vinkonur
mínar og söng ég oft fyrir þær.
Einnig var mér trúað fyrir því
ábyrgðarmikla verkefni að þvo
skilvinduna á morgnana, en því
hafði öðrum krökkum á mínum
aldri ekki verið trúað fyrir og þótti
mér það mikill heiður og vandaði
mig mjög við uppvaskið. Meðan á
uppvaskinu stóð söng ég stundum
nýjustu dægurlögin, en textarnir
voru oft birtir í Tímanum og lærði ég
þá þar. Ég kann þá flesta ennþá. Ég
hafði það einnig til siðs að hella smá
kaffitári í rjómahólf skilvindunnar
og drekka rjómablandið.
Stundum fékk ég að skilja
mjólkina, en til þess þurfti maður
að geta haldið réttum hraða
á snúningnum, sem gat verið
vandasamt. Smjör var strokkað við
og við. Ég fékk að prófa að strokka
síðasta sumarið mitt, en það þótti of
þungt verk fyrir krakka. Stundum
dældi ég vatni úr heimabrunninum í
stóra vatnstunnu sem hékk hátt uppi
í þvottahúsinu.
Skemmtilegt var þegar kaffibaun-
ir voru brenndar. Þá ilmaði bærinn
og síðan var ég stundum látinn
mala nýbrenndar baunirnar í lítill
handkvörn, sem gat verið erfitt fyrir
litlar hendur. Til að drýgja kaffið
var ávallt notaður kaffibætir, svo-
kallað export, hálf tafla í hverja
uppáhellingu. Einnig tilheyrði að
sópa eldhúsgólfið og ganginn út á
hlað við og við, en það gerðu Ella
og Bergur líka.
Ég hafði eitt hlutverk sem mér
finnst í dag allmerkilegt, þó ég færi
létt með það. Ég var notaður sem
minnisvél, einkum af Ellu. Hún
sagði oft: „Kristbjörn minn, minntu
mig nú á að brenna kaffibaunir eftir
hádegi á morgun“, eða „... að hringja
í Lóu systur á laugardaginn“, eða „...
sækja saltkjöt eða fisk til útvötnunar
seinna í dag“.
Þegar heimalningar voru eða
ungir kálfar sá ég um að gefa þeim
nýmjólk og eldri kálfum eða vetr-
ungum færði ég stundum kálfsullið,
sem var sambland af kaffikorgi,
brauðleifum og síldarmjöli með lýsi
út á. Stundum gaf ég fjóskettinum
mjólk og fisk sem sett var í fjós-
gluggann. Hvorki hundar né kettir
fengu að vera inni í bæ, enda var
hlutverk þeirra annað og meira en
að vera gæludýr. Ég gaf hænun-
um oft, þótti það mjög gaman, og
safnaði eggjunum. Stundum var ég
látinn hakka þang í gamalli hakka-
vél sem var á borði utan við gamla
bæinn og blanda við það mjöli til
að gefa hænunum. Þangið þótti gera
eggjarauðuna rauðari. Öll hænuegg
voru seld út í Stykkishólm. Heima
voru einungis etin æðaregg, kríuegg
og svartbaksegg.
Um sláttinn var ég oft sendur
heim í bæ til að sækja drukk fyrir
sláttumennina, en það var mysan oft
kölluð, sem er afbragðsgóð til að
slökkva þorsta ásamt því að vera
næringarrík. Ef mysan var búin að
standa lengi í kerinu og farin að
súrna var hún þynnt með vatni.
Á seinni árum mínum tók ég
virkan þátt í dúntekjunni. Ég fór
þá með Bergi og tíndi dún í Efri
- Langey, einkum þegar farin var
hroðaleitin, sem var seinni leitin
eftir að allar kollurnar höfðu leitt
út, þ.e. yfirgefið hreiðrið og komið
ungunum til sjávar. Jóhannes sá um
varpið í Langeyjarnesi en ég fór
aldrei með honum í það [...].
Mér finnst merkilegt, þegar ég lít
til baka, hversu vel var hugsað um
öryggi mitt á bænum, þó ég áttaði
mig ekki á því þá. Ég fékk aldrei
að fara með á minkaveiðar, en þar
voru notuð skotvopn, og ég fékk
aldrei að skjóta af byssu. Ég fékk
ekki að slá með orfi og ljá, nema
aðeins að prófa undir eftirliti þegar
ég var á tólfta ári. Ég fékk heldur
ekki að fara með þegar vitjað var
um selanet. Ég fór heldur aldrei
einn að sækja vatn í brunninn. Þá
var ég aldrei sendur einn út í Efri-
Langey, þó að ég rataði leiðina vel,
en þangað var hægt að ganga á fjöru.
Ástæðan var sú að þegar byrjaði að
falla að varð straumurinn í Pokarifi
eða Þröskuldunum sterkur og vaðið
dýpkaði fljótt.
Búskaparhættir
Búskaparhættir voru að mestu leyti
eins og þeir voru stundaðir á 19. öld
og á fyrri hluta 20. aldar. Heimatúnið
var lítið og mishæðótt. Búið var að
slétta það mestallt, en skákirnar voru
fremur litlar og sumar varla véltækar.
Allar skákirnar höfðu sitt nafn.
Dæmi: Hlaðvarpinn, Sjónarhóll,
Hesthúsbali og Fjárhúsflöt. Hluti
túnsins var í lægðum þar sem hafði
verið mýri og var hún ræst fram með
handgröfnum skurðum, sem bæði
voru mjóir og grunnir, en dugðu þó.
Snemmsumars skartaði hófsóleyin
gulum blómum í sumum skurðanna,
en hvítur kollur klófífunnar gladdi
augað í ágúst.
Á vorin, oftast áður en ég
kom vestur, var borinn kúaskítur
og stundum sauðatað á hluta
túnsins, einkum harðbala, t.d. við
Bæjarhólinn. Ég man að eitt vorið
sáum við Elín um að raka skítinn
af túninu, eftir að það hafði verið
slóðadregið. Ekki þótti gott að láta
skít blandast við heyið. Þetta var kalt
vor og við kappklædd við verkið, en
karlarnir voru að veiða mink og nutu
aðstoðar hundsins Hjeppa.
Fyrsta sumarið mitt var engin
dráttarvél á bænum. Þá fékk
Jóhannes Gest á Ormsstöðum eða
Ólaf Kristjánsson, bónda á Melum,
sem var næsti bær, til að slá það
sem véltækt var af túninu. Annað
var slegið með orfi. Ólafur á Melum,
en hann var mágur Elínar, brá búi
haustið 1961 og þá keypti Jóhannes
gráa Fergusoninn af honum og
dráttavélaöldin hóf innreið sína í
Langeyjarnes. Bergur sá alveg um
traktorinn. Jóhannes kom aldrei
nálægt honum. Jóhannes bar hins
vegar ábyrgð á ljósavélinni og mátti
enginn annar þar nálægt koma.
Ljósavélarskúrinn var ávallt læstur
og geymdi húsbóndinn lykilinn.
Jóhannes sló með orfi mest af
heimatúninu sem ekki var véltækt,
en Bergur sló allt túnið í Efri-
Langey einn, með orfi, enda ekki
hægt að koma dráttarvél út í eyjuna.
Fyrsti sláttur var alltaf á flötinni milli
bæjarhlaðsins og sjávar. Reynt var
að byrja slátt þegar von var á þurrki
og ég held að reynt hafi verið að
byrja hann á laugardegi til lukku.
Síðan var nýslegnu grasinu dreift
úr sláttumúgunum og búnir til
flekkir. Töðunni var síðan snúið og
flekkurinn rifjaður með hrífum.
Þurrt heyið var síðan tekið
saman. Það var saxað í fang og borið
upp í litla galta. Hæra úr striga, eða
gömlum strigapokum, var sett á topp
galtanna. Í horn hærunnar var bundið
snæri og á festir steinar til að koma
í veg fyrir að hæran fyki. Galtarnir
voru látnir standa nokkurn tíma á
túninu, til að síga og þéttast, en þegar
færi gafst var kaðall lagður
kringum galtann og dráttarvél dró
hann heim í fjóshlöðu.
Heyið úr Efri-Langey var bundið
í sátur. Notuð voru hefðbundin
reipi, annaðhvort úr kaðli eða
hrosshárum, ásamt töglum og
högldum. Síðsumars voru sáturnar
fluttar heim með bátum og heyið
sett í fjárhúshlöðuna, en fjárhúsin
voru nálægt lendingunni.
Oft var há slegin á hluta
heimatúnsins eftir miðjan ágúst. Þá
var stundum farið og slegið brok
(klófífa) og gulstör í Grafarflóa.
Útheyið var sett ofan á góðu töðuna
í fjóshlöðunni til hlífðar.
Elín Elimundardóttir mjólkar
Ljómalind utan við túnhliðið
í Lang eyjarnesi í ágúst 1965.
Kýrin gæðir sér á fóðurbæti. Elín
við mjaltirnar: mjaltapilsi og
mjaltatreyju, og ber skuplu.
Mynd / Egill Kristbjörnsson,
Elín Elimundardóttir mjólkar Ljómalind utan við túnhliðið í Langeyjarnesi í
ágúst 1960. Mynd / Egill Kristbjörnsson,
Jóhannes Jónsson brýnir vasahníf
framan við Hvíta húsið í Efri-Langey
í ágúst 1965. Mynd / Egill Kristbjörnsson
Elín Elimundardóttir í sínu fínasta
pússi á bæjarhólnum í Langeyjarnesi
í ágúst 1959. Gamli bærinn í baksýn.
Mynd /Kristbjörn Egilsson
Flekkur rifjaður framan við gamla bæinn í Langeyjarnesi í ágúst 1969. Frá vinstri Kristbjörn Egilsson, Sara Krist-
jánsdóttir, Ingigerður Jónsdóttir, Logi Egilsson og Jóhannes Jónsson bóndi. Spýtt selskinn er á bæjarþili. Gamalt
refabúr er við bæjarvegginn t.h. Mynd / Egill Kristbjörnsson
Feðgarnir Bergur og Jóhannes slá há í Langeyjarnesi í ágúst 1969. Fjár-
húshlöðuþakið ber við himin. Jóhannes klæðist vaðmálsbuxum, þæfðri
lopapeysu og er með „hreppstjórahúfu“. Bergur er í vinnuslopp.
Mynd / Egill Kristbjörnsson
Kristbjörn Egilsson (11 ára) með
Hryggju gömlu í Langeyjarnesi í
ágúst 1960. Ljómalind var undan
Hryggju. Klofningsfjall og Hnúkur í
baksýn. Mynd / Egill Kristbjörnsson,
Mynd /Kristbjörn Egilsson