Bændablaðið - 09.05.2018, Side 47
47Bændablaðið | Miðvikudagur 9. maí 2018
Við smurolíuskipti er nánast undan-
tekningarlaust skipt um loftsíu. Þó að
loftsían virðist ekki vera eins slæm
og „smyrjarinn“ segir þá er fljótt
að borga sig í eldsneytissparnaði að
skipta um loftsíuna.
Ef vatn hefur komist í loftsíuna
skemmist hún og nær ekki að taka það
loft sem henni er ætlað að taka fyrir
brunann í vélinni.
Merki um að vélin fái ekki nægilega
mikið loft má oft sjá með því að
setja puttann upp í pústið. Ef mikil
sótmyndun er í pústi er líklegasta
orsökin ekki nægilega mikið loft á
móti eldsneyti sem oft má rekja til
lélegrar loftsíu. Afleiðingarnar geta
verið margar ef pústið nær að sóta sig
mikið t.d. kviknar ljós í mælaborði um
að það þurfi að athuga vél. Oftast eru
þetta skynjararnir sem eru inni í pústinu
og eru orðnir óhreinir af sóti.
Frjókornasíur safna í sig ýmsum
lífverum
Í flestum bílum sem eru innan við
15 ára og í mörgum dráttarvélum
er frjókornasía. Í ótrúlega mörgum
bílum 5–15 ára sem ég hef skoðað
er upprunalega frjókornasían enn
í bílnum. Þessi sía er oftast fyrir
innan hanskahólfið farþegamegin.
Frjókornasía á að sjá til þess að hreint
loft sé inni í farþegarýminu.
Svolítið vesen er að skipta um síuna
í mörgum bílum, en oft mjög gott að
skipta um í dráttarvélum. Oftar hefur
mátt rekja óþef inni í bílnum til þess að
mikil óhreinindi eru í frjókornasíunni,
en þess eru dæmi um dauðan smáfugl,
mús og allar rifur fullar af skordýrum
og myglu. Næst þegar þú lætur smyrja
bílinn spurðu um hvort smurmaðurinn
geti ekki skoðað frjókornasíuna í
leiðinni.
Smursíur
Smurolíurnar eru almennt góðar,
en ekki gildir sama um smursíur,
framþróun og tækni við smursíur er
hægari en í olíum. Margar smursíur
eru með ventil sem opnast þegar sían
er orðin stífluð af óhreinindum sem
koma úr vélinni og fer þá öll smur-
olía ósíuð um smurgang vélarinnar.
Það getur verið erfitt að verða
þess áskynja að smursían er orðin
það skítug að hún gerir ekki það
sem henni er ætlað. Ef vél byrjar
skyndilega að brenna smurolíu getur
verið nóg að skipta um smursíu.
Ástæðan, hugsanlega óhreinindi
séu það mikil að smurolían kemst
inn í brunahólf véla (t.d. með
ventlafóðringum og ventlum sem
eru óhrein).
Ekki er óalgengt að þeir sem eiga
vél sem brennir olíu séu að bæta
reglulega á vélina og fara fram yfir
smurtíma trúandi því að með því
að vera alltaf að bæta nýrri olíu á
vélina sé óhætt að fara fram yfir á
olíuskiptum. Ódýrari lausn getur í
mörgum tilfellum verið að skipta
um smursíu þá hreinsast vélin og
smurolíubruninn hættir. Smursía er
oft ódýrari en lítri af smurolíu og í
flestum tilfellum auðvelt að skipta
um.
Vinnuvélar og drif
Í mörgum dráttarvélum (og öðrum
vinnuvélum) er mikið magn af
smurolíu sem í sumum tilfellum á
að þola allt að 500 vinnustundir.
Persónulega finnst mér þetta full
langur tími fyrir smursíuna og mæli
ég með að á u.þ.b. miðju tímabili sé
skipt um síu.
Verði menn varir við að
viðvörunarljós um olíuþrýsting sé
lengi að slokkna við ræsingu eða
sjáist í hægagangi þegar vélin er heit
sé vert að skoða hvort ekki sé tími
fyrir smursíuskipti.
Drif eru varasöm á flestum
tækjum ef verið er í vatnasulli. Oftast
er öndunartappi ofarlega á drifinu og
ef farið er það djúpt í vatn að öndunin
fer í kaf myndast sog af vatni inn
á drifið þar sem að drifið er að
kólna frá kulda vatnsins og myndar
þannig sog inn í drifhúsið. Auðvelt
er í flestum tilfellum að skoða olíu
á drifi á flestum vinnuvélum og
jeppum með því að taka tappann úr
og skoða olíu og ef olían er ljósbrún
þarf að skipta á drifinu.
Nauðsynlegt viðhald allra ökutækja sem margir trassa:
Hreinar síur eru afar mikilvægar fyrir gangverk véla
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
KROSSGÁTA Bændablaðsins
Lausn á krossgátu í síðasta blaði
ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
MESSÍAS RYKKUR IÐN VAPP NÆRÐAR SKORDÝR FOR
SÓSJÁLF-RÁTT J Á L F K R A F A
NPLANTA E T L A ÓSKIPTUTRÉ Ö L L U
ÍKÆLA S A G E L D U R
Ú K A STRENGURGEGNA S T A G STIKK-PRUFA
ÓNENNA
STÍGANDI
MERGÐ R I S VERKURHJARA T A K
FLJÓT-
FÆRNI
URGUR R A S
TVEIR
EINSBETLAR
KÖRNAVÍN
VANAÐUR
FRUMEIND
F L Ú O R DRYKKURROLA T Ó N I K ÆTA ÞÁTT-TAKANDI ÝFRUMEFNI
R E I M MATSAÐ BAKI D Ó M S ÁNSLEPPA U T A NÞVENGUR
A T SKORDÝRSTALLUR M A U R EINRÆÐIPRÍL A L R Æ Ð IBARDAGI
M I S REKALDSIGTAST F L A K KK NAFNSKELDÝR O R R I LEIKNISKJÖN
S HLEYPAÓSKERTA Y S T A RÓTLEYSIKOSNING L O S MJÖGÞEFJA A L L
T A L Í A SKRÆLNA V I S N A
RÓMVERSK
TALA
GOGG I IBLÖKK
A L L A N KVÖLDSAMTÖK A F T A N N Á FÆTI SHEILAN
F
N
L
A
A
U
S
T
SÍLL
N
A
A
L
ORKA
U
R
R
A
SPENDÝR
F
G
A
E
F
I
L
TASI
YNDIS
82
FARNAST ÁRS-GAMALL HNUSA SKAR
FÍFLA-
GANGUR TÆLA SPRIKL
DRUNGI
AFGANGAR
AÐSTOÐ
FRÍA
TÁL MATAR-ÍLÁT
RJÚFA
SKEL
GROBB
RÓTA
KLAFI
MATJURT
STEFNA
TVEIR
EINSDÆLD
ÖLDURHÚS
TOGVINDA
SUNNAN
LEIKUR
SVIF
STJÓRNA
DVALDIST
TALA MATGJÖFDREITILL
SKAMMA
GRÓÐI
KERALDI
ÆTÍÐ
SAGGI
ÞYKJAST
HLUTI
HÁLFGRAS
BEYGÐU
TVÍHLJÓÐI
MÆLI-
EINING
SKJÁLFA
DRYKKUR
RÚMT
KAPPSAMT
PESTNEÐAN
SÓÐA
LÝÐ
HALLI
UMFRAM
STUNDA
HNAPPUR
UPPTÖK
ÁTT
LYKT
UPPSKRIFT
LÚÐULAKI
Í RÖÐ
GATAFKOM-ANDI
OFNEYSLA
TRAÐK
SKREFHLÝJA
FJANDI
83
www.VBL.is REYKJAVÍK
Krókháls 5F
110 Reykjavík
Sími: 414-0000
AKUREYRI
Baldursnes 2
603 Akureyri
Sími: 464-8600
DRIFSKÖFT OG DRIFSKAFTAEFNI
VANDAÐIR KROSSAR
ERU ÖRYGGISMÁLIN Í LAGI Á ÞÍNUM BÆ?
GOTT ÚRVAL AF ÖRYGGISHLÍFUM - HAGSTÆTT VERÐ
HÆGT ER AÐ KAUPA STAKA HLUTI Í
DRIFSKAFTAHLÍFAR OG KÚPLINGARAlgeng sjón hjá smurþjónustumönnum að eigendur trassa að færa ökutæki
í olíuskipti og skipta um allar síur.