Bændablaðið - 09.05.2018, Page 49
49 Bændablaðið | Miðvikudagur 9. maí 2018
Værð ungbarnateppi
Ungbarnateppi eru alltaf
skemmtileg að prjóna og svo
notalegt að eiga alla vega eitt
stykki fyrir krílið sitt.
Þetta teppi er í tveimur stærðum
og sú minni er kjörin stærð til að
hafa í ungbarnabílstólum sem flest
börn eru í í dag.
Drops Supersale er í maímánuði
sem þýðir að allt ullargarn er á 35
prósenta afslætti, netverslunin alltaf
opin og við sendum um allt land.
Mál: Breidd ca (42) 64 sm. Hæð ca (50) 80 sm.
Garn: DROPS Baby Merino færst hjá
Handverkskúnst, www.garn.is.
Prjónar: Hringprjónn 60-80 sm langur nr 3,5mm
eða sú stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34
umferðir með sléttu prjóni verði 10 sm á breidd
og 10 sm á hæð.
Upplýsingar fyrir mynstur: Garðaprjón
(prjónað fram og til baka): slétt í öllum
umferðum.
Mynstur: Sjá mynsturteikningar A.1 til A3.
Teppi: Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp (133) 203 lykkjur á hringprjón 3,5 með
Baby Merino. Prjónið 6 umferðir garðaprjón – sjá
útskýringu að ofan. Næsta umferð er prjónuð
frá réttu þannig: Prjónið 3 kantlykkjur með
garðaprjóni, prjónið mynstur A.1 þar til 4 lykkjur
eru eftir á prjóni (= (9) 14 mynstureiningar með
14 lykkjum), prjónið 1 lykkju slétt og endið á 3
kantlykkjum með garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1
hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru (97) 147
lykkjur íá prjóninum og stykkið mælist ca 10 sm.
Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið
3 kantlykkjur með garðaprjóni, prjónið mynstur
A.2 þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóninum (=
(9) 14 mynstureiningar með 10 lykkjum),
prjónið muntur A.3 yfir næstu lykkju og endið
á 3 kantlykkjum með garðaprjóni. Haldið svona
áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist (49)
79 sm, prjónið 6 umferðir garðaprjón yfir allar
lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum.
Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki
stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari
prjónum.
Prjónakveðja,
mæðgurnar í Handverkskúnst
www.garn.is
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
3 7 6 8 4
1 2 7 8 6
9 8 3 1 7
7 9 1 6
2 3 6
5 4 7 3
8 3 2 5 6
5 1 8 9 4
4 9 5 3 7
Þyngst
6 4 3 2 5
1 9 8 5 6
5 2 9
9 1 4
7 3 1 8
8 2 5
1 3 8
3 5 7 1 2
9 6 4 7 3
6 5 4 9
9 7
1 4
5 2 7
8 1 4 3 2 7
1 3 6
2 3
5 1
4 9 5 8
6
1 6 4
4 7 8
2 5 8
6 3 7 5
9 1 2
3 4 5
7 3 9
5
Fótboltinn er
aðaláhugamálið
Tinna Marlis er glaðvær og afar
dugleg stúlka og ávallt tilbúin að
taka þátt í hverju sem er.
Fótboltinn er aðaláhugamál
hennar og auðvitað er skemmtilegast
að skora mörk. Tinnu finnst einnig
gaman að fara í útreiðartúra.
Nafn: Tinna Marlis.
Aldur: Er að verða 9 ára í lok maí.
Stjörnumerki: Ég er meyja.
Búseta: Á Fjallalækjarseli í Þistilfirði.
Skóli: Er að klára 3. bekk í
grunnskólanum á Þórshöfn.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Mér finnst skemmtilegast
í íþróttum, sundi og stærðfræði.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Hundar, hestar og kengúrur.
Uppáhaldsmatur: Pylsur.
Uppáhaldshljómsveit: Pollapönk.
Uppáhaldskvikmynd: „Racing
stripes“ þar sem sebradýr gerist
kapphestur.
Fyrsta minning þín? Þegar ég strauk
kindunum okkar fyrst.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Ég æfi fótbolta og frjálsar
íþróttir og læri á blokkflautu.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Ég vil vera í landsliðinu
í fótbolta.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Að busla og synda í
gruggugu vatni.
Hvað ætlarðu að gera skemmtilegt í
sumar? Ég verð í Þýskalandi í fimm
vikur, fyrst hjá frænda mínum og svo
hjá afa, en hér heima ætla ég að vera
mest í fótbolta og á hestbaki.
Næst » Tinna Marlis skorar á Kjartan Kurt
Gunnarsson bróður sinn að svara næst.
HANNYRÐAHORNIÐ
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500
Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
Vogue
bíður uppá alhl iðalausn fyr i r
hótelherbergið eða gist iheimi l ið.
fyr ir heimil ið