Bændablaðið - 31.01.2019, Qupperneq 4

Bændablaðið - 31.01.2019, Qupperneq 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 31. janúar 20194 Samkvæmt lesendakönnun Gallup um lestur á prentmiðlum á síðasta ársfjórðungi 2018 er Bændablaðið mest lesni prentmiðillinn á landsbyggðinni. Hefur svo verið öll þau fimm ár sem blaðið hefur tekið þátt í þessari könnun. Þá er blaðið næstmest lesni prentmiðillinn yfir landið í heild og í þriðja sæti á höfuðborgarsvæðinu. Á landsbyggðinni hefur meðallestur á Bændablaðinu aukist um 2,5 prósentustig á milli ára, eða úr 43,1% árið 2017 í 45,6% árið 2018. Er Bændablaðið jafnframt eini prentmiðillinn sem þátttakandi var í könnun Gallup sem bætir markvert við sig í lestri á landsbyggðinni, fyrir utan Morgunblaðið, sem bætti við sig 0,1% meðan aðrir dragast saman. Í þessari könnun Gallup var kannaður lestur á Bændablaðinu, Fréttablaðinu, Morgunblaðinu, Stundinni, DV og Viðskiptablaðinu yfir þriggja mánaða tímabil. Á landsbyggðinni mældist Bændablaðið með mestan meðallestur, eða 45,6%. Þá kom Fréttablaðið með 24,6%, Morgunblaðið með 22,1%, DV með 10,8%, Stundin með 9,1% og Viðskiptablaðið með 5,1%. Þegar skoðaður var meðallestur á landinu öllu var Fréttablaðið með 39,7% lestur og Bændablaðið var með 29,5% lestur. Hafa ber í huga að sá reginmunur er á þessum miðlum að Fréttablaðið er dagblað sem dreift er frítt í 90 þúsund eintökum (yfir 32 milljónum eintaka á ári) og er borið til nær allra heimila á höfuðborgarsvæðinu. Þar kemst fólk því vart hjá því að berja blaðið augum sem hlýtur að hafa ákveðið vægi í skoðanakönnun sem þessari. Bændablaðið kemur hins vegar út að jafnaði hálfs mánaðarlega, eða 24 sinnum á ári, og er dreift í 32 þúsund eintökum (nær 800 þúsund eintökum á ári) á ríflega 400 dreifingarstaði um allt land og á höfuðborgarsvæðinu. Auk þess sem það fer á öll lögbýli landsins og í póstdreifingu til þeirra sem þess óska. Fólk þarf því að hafa fyrir því að sækja sér eintak af Bændablaðinu en fær það ekki óumbeðið inn um bréfalúguna. Það segir mikið um áhuga fólks á miðlinum. Enda er líftími Bændablaðsins á borðum lesenda sem sækja það af einskærum áhuga mjög langur. Lýsir það sér vel í góðu gengi í könnunum Gallup. Í þriðja sæti í meðallestri yfir landið allt er Morgunblaðið með 24,5% og kemur út daglega. Það er, líkt og Bændablaðið, einungis lesið af fólki sem hefur áhuga á því og í raun athyglisverð staða í ljósi þess að fólk þarf auk þess að borga fyrir hvert eintak, eða að fá það í áskrift. Í fjórða sæti er DV með 10,6% lestur, Stundin í fimmta sæti með 10,5% og Viðskiptablaðið er í sjötta sæti með 9,8%. Vart er hægt að tala um marktækan mun í lestri á þrem síðasttöldu prentmiðlunum. Ef eingöngu er litið á tölur um meðallestur á höfuðborgarsvæðinu er Fréttablaðið eðlilega með yfirburðastöðu, 48,1%, sökum mikillar frídreifingar inn á hvert heimili. Morgunblaðið er þar í öðru sæti með 25,8% meðallestur. Þá kemur Bændablaðið í þriðja sæti með 20,4% lestur. Viðskiptablaðið er þar í fjórða sæti með 12,4% lestur og sína miklu sérhæfingu í viðskiptaumfjöllun. Þar á eftir kemur Stundin í fimmta sæti með 11,3% lestur og DV er svo í sjötta sæti með 10,5%. /HKr. FRÉTTIR Bændablaðið mest lesni prentmiðillinn á landsbyggðinni síðastliðin fimm ár – Er næststærst yfir landið allt og þriðji mest lesni prentmiðillinn á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt könnun Gallup Dagana 11.–18. febrúar 2019 munu Bændasamtök Íslands láta fara fram atkvæðagreiðslu meðal mjólkurframleiðenda um hvort kvótakerfi í mjólkurframleiðslu skuli afnumið frá og með 1. janúar 2021, í samræmi við 14. gr. samnings um starfsskilyrði nautgriparæktar. Kosið verður rafrænt og er framkvæmd kosningarinnar kynnt á síðu 8 hér í blaðinu. Með það að leiðarljósi að bændur geti tekið afstöðu í málinu hafa hér verið tekin saman aðalatriði þess hvaða þýðingu það hefur annars vegar að afnema kvótakerfið og hins vegar að því verði haldið. Verði niðurstaðan sú að afnema skuli kvótakerfið mun samningur um starfsskilyrði nautgriparæktar ganga að stórum hluta áfram í þeirri mynd sem hann er skrifaður. Verði niðurstaðan sú að halda kvótakerfinu mun framhaldið byggjast á grunni fyrra kerfis. Síðastliðið haust sömdu Bænda- samtök Íslands og Lands samband kúabænda við Rannsóknarmiðstöð Háskólans á Akureyri um að vinna greiningu á mismunandi kerfum um viðskipti með kvóta til undirbúnings fyrir atkvæðagreiðsluna. Eru eftirfarandi sviðsmyndir meðal annars unnar út frá niðurstöðu þeirrar greiningar: Tekið skal fram að í kjölfar at kvæða greiðslunnar munu samninga viðræður milli Bænda- samtaka Íslands og stjórnvalda hefjast, þar sem samninganefnd bænda mun leggja fram sínar áherslur. Þær sviðsmyndir sem hér birtast gætu tekið einhverjum breytingum í samningaferlinu. Sviðsmynd 1: Kvótakerfið kosið af Verði kvótakerfið kosið af mun núgildandi samningur um starfsskilyrði í nautgriparækt halda áfram gildi sínu í stórum dráttum. • Gert er ráð fyrir að greiðslu markið fjari út á samningstímanum, bæði sem viðmiðun fyrir beingreiðslur og kvóti sem tryggir forgang að innanlandsmarkaði. • Heildargreiðslumark félli niður 1. janúar 2021 og framleiðsla mjólkur yrði ekki takmörkuð af opinberum aðila. • Greiðslumark einstakra lögbýla héldi gildi sínu, með áorðnum breytingum, sem viðmið fyrir beingreiðslur (áður A-greiðslur) til 31. desember 2025. • Greiðslur út á greiðslumark myndu fjara út á samningstímanum og færast yfir á greiðslur á alla innvegna mjólk eða aðra liði samningsins. • Ríkið hefði innlausnarskyldu á greiðslumarki gagnvart þeim sem óska eftir henni fram að síðasta innlausnardegi árið 2019. Frá þeim tíma væri ekki hægt að óska eftir innlausn. • Innlausn fer fram með þeim hætti að greiðslumarkshafi fær greitt tvöfalt núvirt andvirði greiðslna út á greiðslumark (áður A-greiðslna) sem eftir eru. • Komi til þess að innleyst greiðslumark seljist ekki þannig að ekki verði jöfnuður á innlausn og sölu greiðslumarks skal því mætt með skerðingu á öðrum liðum samningsins samkvæmt ákvörðun f r a m k v æ m d a n e f n d a r búvörusamninga. • Greiðslumark framleiðenda þar sem engin framleiðsla fer fram í a.m.k. heilt verðlagsár innleysir ríkið án þess að bætur komi fyrir. • Semja þarf um fyrirkomulag á verðlagningu mjólkur en gildistöku þess fyrirkomulags sem kveðið er á um í 12. grein núverandi samnings var frestað. Þar er gengið út frá því að lágmarksverð til framleiðenda fyrir mjólk innan greiðslumarks, ákveðið af opinberum aðila, falli niður 1. janúar 2021. Þá verði afurðastöðvum heimilað að verðleggja mjólk til framleiðenda og ákvarða heildsöluverð á mjólkurafurðum innan ákveðinna tekjumarka sett af opinberum aðila. • Í 6. gr. samnings um starfsskilyrði nautgriparæktar er kveðið á um fjármuni sem skal ráðstafa ef bregðast þarf við breytingum í framboði og eftirspurn á markaði. Árlegar fjárhæðir eru 92–99 milljónir króna út samningstímann. Eru þeir fjármunir ætlaðir til eflingu á markaðsfærslu nautgripaafurða, greiðslu á sérstökum uppbótum fyrir slátrun kálfa og kúa, tilfærslu í aðra framleiðslu á kúabúum eða tímabundnar býlisgreiðslur óháðar framleiðslu. • Heimilt er að færa allt að 20% árlega af upphæð milli einstakra liða samningsins, öðrum en greiðslum út á greiðslumark. Slík ákvörðun er í höndum framkvæmdanefndar búvörusamninga hverju sinni. Sviðsmynd 2: Kvótakerfið kosið áfram Verði kvótakerfið kosið áfram þarf samningur um starfsskilyrði í nautgriparækt að taka töluverðum breytingum, með hliðsjón af eftirfarandi: • Greiðslumarkið héldi sér sem kvóti sem tryggir forgang að innanlandsmarkaði. • Heildargreiðslumark yrði áfram gefið út fyrir hvert ár. • Niðurtröppun á beingreiðslum út á greiðslumark samkvæmt samningi um starfsskilyrði nautgr iparæktar yrði endurskoðuð ásamt annarri skiptingu greiðslna á liði samningsins. • Lögð verður áhersla á að lágmarksverð til bænda verði áfram ákveðið af opinberum aðila. • Viðskipti með greiðslumark myndu fara í gegnum miðlægan markað í umsjón MAST. Nokkrar leiðir kæmu til greina: a) Tilboðsmarkaður/kvóta- markaður með fyrirfram ákveðnu verði. b) Tilboðsmarkaður/kvótamark- aður þar sem verð ræðst af framboði og eftirspurn hverju sinni og jafnvægisverð fundið. Skoðaður verður sá kostur að setja hámarksverð á hvern lítra mjólkur á kvótamarkaði. • Áfram yrði heimilt er að færa allt að 20% árlega af upphæð milli einstakra liða samningsins, öðrum en greiðslum út á greiðslumark. Slík ákvörðun er í höndum framkvæmdanefndar búvörusamninga hverju sinni. • Semja þarf um fyrirkomulag á verðlagningu mjólkur en gildistöku þess fyrirkomulags sem kveðið er á um í 12. grein núverandi samnings var frestað og hefur verðlagsnefnd áfram ákveðið lágmarksverð til framleiðenda og heildsöluverð á mjólkurafurðum. • Endanlegar útfærslur sviðsmyndar 2 eru eðlilega með fyrirvara um að samningar um þær náist við ríkið, en fulltrúar bænda munu halda ofangreindum áherslum fram. Í framhaldi af atkvæðagreiðslunni mun fara fram skoðanakönnun meðal kúabænda sem eru félagsmenn BÍ og LK. Þar gefst tækifæri á að svara nokkrum spurningum sem snúa að nánari útfærslum samnings um starfsskilyrði nautgriparæktar og mun varpa frekara ljósi á vilja bænda við endurskoðun búvörusamninga. Tekið saman af Bændasamtökum Íslands og Landssambandi kúabænda. Atkvæðagreiðsla meðal mjólkurframleiðenda – Snýst um hvort kvótakerfi í mjólkurframleiðslu skuli afnumið frá og með 1. janúar 2021 eða ekki

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.