Bændablaðið - 31.01.2019, Síða 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 31. janúar 2019 7
„Mér varð ekki meint af, fékk smávegis vatn
ofan í annað stígvélið, annað var það nú
ekki,“ segir Páll Þórðarson, bóndi á Sauða-
nesi, sem lenti í því að missa dráttarvél sem
hann ók eftir Svínavatni niður um ísinn.
Páll kveðst áður hafa ekið eftir vatninu
nokkrar ferðir og þá verið í lagi með ísinn,
en af einhverjum ástæðum hefði hann verið
veikari fyrir á þessum stað en annars staðar.
„Það var frekar grunnt á þessum slóðum og ég
met það ekki svo að ég hafi verið hætt kominn,
þetta er bara óhapp sem ég komst óskaddaður
frá,“ segir hann. Páll náði að koma sér út um
afturrúðuna áður en vélin sökk.
Björgunarsveitin Blanda á Blönduósi var
kölluð út og fór vaskur hópur félaga með tæki
og tól á staðinn og hóf aðgerðir til að bjarga
vélinni upp úr vatninu. Vélin var um það bil 20
metra frá landi og stóð um það bil helmingur
hússins upp úr vatninu.
Beltagrafa braut sér leið að vélinni
Brugðið var á það ráð, eftir að aðstæður höfðu
verið metnar, að fá lánaða beltagröfu sem er í
eigu Steypustöðvar Skagafjarðar ehf. og stóð
við Laxárvirkjun. Án hennar hefði aðgerðin
tekið mun lengri tíma með keðjusögum og
öðrum verkfærum. Beltagrafan braut sér leið
í gegnum ísinn að vélinni og var hún að því
búnu dregin að landi.
„Þetta fór allt eins vel og það gat farið og
er dráttarvélin nú komin inn á verkstæði í
afvötnun og þurrkun,“ segir í Facebook-færslu
Björgunarsveitarinnar Blöndu.
Páll hefur fengið vélina í hendur á ný en
kveðst ekki vita enn um tjón, enn sé óljóst
hvort rafkerfið hafi þolað að blotna. /MÞÞ
LÍF&STARF
Á sjálfan bóndadaginn, álpaðist ég til að senda Birni Ingólfssyni á Grenivík smá myndskeið
þar sem ég var að dreifa viðarkurli
undir varphænurnar í eggjabúinu í
Sveinbjarnargerði. Lét ég þess enn fremur
getið að þrír hanar hefðu slæðst með
nýjum varphænum sem teknar voru inn
í búið. Þar sem þeirra var engin þörf, þá
gista þeir nú hel. Björn var fréttinni feginn
og sendi hana til baka háttbundna með
sínum smekklega hætti:
Árni til verka virðist snar,
en válegar eru fréttirnar;
hanana myrðir án miskunnar
en mylur svo undir hænurnar.
Þær hrynja hringhendurnar úr hugtúni
Ingólfs Ómars Ármannssonar. Þessi
þorravísa er hans:
Þorri kallinn krenkir jörð,
klökkna fjallastrýtur.
Klæðir hjalla hlíð og skörð
hjúpur mjallahvítur.
Jóhann Ólafsson orti líka hringhent á
sinni tíð:
Skáldavald og dægradvöl
dýr á spjaldið skráist.
Gegnum alda blíðu og böl,
blóm, sem aldrei máist.
Þorranum fylgja jafnan nautnir nægar
í mat og drykk. Eftir Sigurð „skurð“
Jóhannsson er þessi vísa sögð:
Ögn í staupi ætíð þigg,
ef að mér er gefið.
Ögn ég reyki, ögn ég tygg,
ögn ég tek í nefið.
Næstu tvær nýársvísur orti Páll Ólafsson:
Undarlega er undir mér
orðið hart á kvöldin,
seld því undirsængin er
í sýslu- og hreppagjöldin.
Byrjar stríð með ári enn,
ævin líður svona.
Einhvers bíða allir menn,
óska, kvíða og vona.
Indíana Albertsdóttir orti næstu tvær
vísur, þá búsett á Sauðárkróki:
Æskan heit af orku og þrá
ærsla þreytir kliðinn.
Hljóður leitar hugur þá
heim í sveitafriðinn.
Stundir leiðar löngum á,
lífs er meiður kalinn,
enn mig seiðir æsku þrá
upp í heiðardalinn.
Senn líður að skilum á skattframtölum.
Bjarni frá Gröf kvað þessar tvær stökur:
Guði skattinn greiða ber
gæfuna þó bresti.
Fyrir lífið fengum vér
feigð í veganesti.
Í framtölum að segja satt
sumum þykir mikið,
en greiða heimi hinsta skatt
hafa þeir ekki svikið.
Höfunda og tildrög næstu vísna hef ég ekki
grun um. Vænt væri það að vita:
Þreyta hvarf og þungi úr fasi,
þegar ég sjónir á þér festi.
Sólskinsveig úr gullnu glasi
gefðu mér í veganesti.
Og svarvísan:
Þegar ég vinur bað þig bljúgur
um blöndu fyrir sjálfan mig,
varst þú býsna dropadrjúgur.
Drottinn góður blessi þig.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
MÆLT AF
MUNNI FRAM
Björgunaraðgerðir hafnar. Sjá má opinn afturrúðuna á dráttarvélinni sem Páll Þórðarson bóndi
skreið út um eftir að dráttarvélin fór niður um ísinn.
Dráttarvél fór niður um ís og bóndinn
skreið út um afturrúðuna
– Vélin send í afvötnun og þurrkun
Dráttarvél Páls Þórðarsonar, bónda á Sauðanesi, í vökinni og búin að tylla hjólunum á botn Svínavatns. Myndir / Björgunarfélagið Blanda.
Björgunarsveitarmenn mættir á svæðið með beltagröfu Steypustöðvar Skagafjarðar ehf.
Björgunarsveitarmenn sem komu Páli bónda
til aðstoðar.