Bændablaðið - 31.01.2019, Page 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 31. janúar 201910
FRÉTTIR
Íbúar á Íslandi orðnir 357.050:
Viðsnúningur í þróun
byggðar á Vestfjörðum
– Íbúafjöldi þessa landshluta er kominn yfir 7000 í fyrsta sinn síðan 2012
Um síðustu áramót voru íbúar
Íslands samtals 357.050 og hafði
þá fjölgað um 8.600 á árinu.
Þar af voru 182.870 karlar og
174.180 konur, samkvæmt tölum
Hagstofu Íslands.
Íbúum landsins hefur fjölgað um
84.669 á 20 árum, frá 1998, eða um
ríflega 31%.
Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu
228.260 manns í árslok 2018, en
128.780 utan þess. Í lok fjórða
ársfjórðungs bjuggu 44.310 erlendir
ríkisborgarar á Íslandi, eða 12,4%
af heildarmannfjölda samkvæmt
tölum Hagstofu Íslands.
Íbúaþróun að snúast við á
Vestfjörðum
Íbúaþróun á Vestfjörðum fyrir utan
Strandasýslu hefur verið að snúast
við eftir stöðuga fólksfækkun
áratugum saman. Má leiða líkum
að því að uppbygging í fiskeldi og
væntingar um frekari uppbyggingu
í þeirri grein sem og í vinnslu á
þörungum af hafsbotni séu að valda
þessum breytingum. Þannig virðist
trú manna vera að eflast í að þessi
landshluti geti verið vænlegur til
búsetu. Þá hafa hátæknifyrirtæki
líka verið að festa sig í sessi,
eins og Kerecis, sem framleiðir
græðandi sáraumbúðir úr fiskroði.
Eins binda Vestfirðingar miklar
vonir við að loks hilli undir
alvöru samgönguúrbætur með
heilsársvegtengingum milli allra
byggðarlaga í fjórðungnum og til
annarra landshluta eftir áratuga bið.
Íbúar Ísafjarðarbæjar komnir
yfir 3.800
Íbúar í Ísafjarðarbæ, þ.e. Ísafirði,
Hnífsdal, Suðureyri, Flateyri og
Þingeyri og sveitum þar í kring,
eru nú komnir yfir 3.800 í fyrsta
sinn síðan 2010. Þá eru íbúar í
Bolungarvík orðnir 950 og hafa
ekki verið fleiri síðan 2010.
Sömu sögu er að segja af íbúum
í Súðavíkurhreppi þar sem íbúar
eru nú 200 og hafa ekki verið fleiri
síðan 2014. Vesturbyggð hefur líka
státað af hærri íbúatölu undanfarin
þrjú ár en í fjölda ára þar á undan.
Þar búa nú 1.000 manns.
Vestfirðingar hafa ekki verið
fleiri síðan 2012
Vestfirðir mega þó muna sinn fífil
fegurri hvað íbúafjölda varðar. Sem
dæmi töldust íbúar fjórðungsins
vera 11.300 árið 1950 og 10.479
árið 1980. Fór íbúum fjórðungsins
svo stöðugt fækkandi allt þar til
í árslok 2014 þegar íbúatalan var
komin niður í 6.480, en þá hófst
viðsnúningur. Í árslok 2015 voru
íbúar Vestfjarða orðnir 6.870 og
6.995 í árslok 2017. Nú í árslok
2018 voru þeir orðnir 7.060 og eru
40 fleiri en árið 2012 þegar íbúarnir
voru síðast fleiri en 7.000. /HKr.
Mynd / HKr.
Lífrænt vottað lambakjöt til útflutnings
– Mest öll framleiðslan úr næstu sláturtíð verður seld til Þýskalands
Sauðfjárbændur með lífræna
vottun hafa lítið borið úr býtum á
undanförnum árum umfram aðra
sauðfjárbændur hvað afurðaverð
snertir. Markaðssetning og sala á
þessum afurðum hefur ekki gengið
nægilega vel og nú er svo komið að
ekki hefur verið talið þess virði að
flokka þær sérstaklega frá öðrum
og markaðssetja. Nú hillir undir
að hagur þessara bænda muni
vænkast nokkuð á næstu misserum
þar sem í undirbúningi er að senda
allt lífrænt vottað lambakjöt á
Þýskalandsmarkað eftir næstu
sláturtíð.
Sex íslenskir sauðfjárbændur hafa
lífræna vottun fyrir sitt fé. Sem fyrr
segir hefur lítill virðisauki fengist
af vottuninni fram að þessu, ekkert
álag var greitt í síðustu sláturtíð en
tíu prósent árið 2017. Einhverjir
þeirra haft eitthvað upp úr krafsinu
með sölu beint frá býli – eða með
því að upprunamerkja vörurnar
sínar og selja á sveitamörkuðum
og í sælkeraverslunum. Sláturhús
SAH Afurða á Blönduósi er eina
sláturhúsið með slíka vottun, en það
er í eigu Kjarnafæðis.
Verðið 15–20 prósent hærra
Andrés Vilhjálmsson, útflutnings-
stjóri Icelandic Lamb ehf., hefur átt
í samskiptum við þýska kaupendur
sem hafa áhuga á þessari vöru og segir
hann að málið sé í góðum farvegi.
Ekki sé hægt að ráðast að fullu í þessa
sölu strax, meðal annars af því að
kjötið hafi ekki sérstaklega verið
flokkað í afurðastöðinni. Þó ætti að
vera hægt að senda fljótlega nokkur
tonn til að byrja með. „Eftir næstu
sláturtíð er svo stefnan að senda mest
allt lífrænt lambakjöt sem framleitt
er hér á landi, líklega í kringum 20
tonn, og er talað um 15–20 prósent
hærra verð en fæst á slíkum markaði
fyrir venjulegt lambakjöt. Stór hluti
af þessari hækkun færi þá beint til
bóndans. Skrokkarnir fara þá út
með evrópsku upprunavottuninni
og lífrænt vottuðum stimpli frá
Evrópusambandinu,“ segir Andrés.
Halla Steinólfsdóttir, sauð-
fjárbóndi í Ytri-Fagradal á
Skarðsströnd í Dölum, segir að um
miklar gleðifréttir sé að ræða. „Þetta
er gríðarlega mikilvægt fyrir alla
en auðvitað sérstaklega fyrir okkur
þessa örfáu með vottun. Þrjóskan
okkar og tiltrúin á þennan lífsstíl
er að borga sig,“ segir Halla. Hún
segir að það skipti miklu máli að fá
meira fyrir afurðirnar og hún hafi
aðallega verið móðguð yfir því að
þessu úrvalshráefni hafi ekki verið
sýnd tilhlýðileg virðing og metin
að verðleikum. Stjórnvöld og
samtök bænda ættu að fara að gefa
sauðfjárafurðum með lífræna vottun
meiri gaum í sinni stefnumótun og
markaðssetningu.
Vottunin hér á pari við
evrópska laufblaðið
„Það er mjög skemmtilegt að það
verði hægt að rekja kjötið beint
á íslenska sveitabæinn þar sem
lambakjötið er upprunnið. Vottunin
hjá Túni er á pari við evrópska
laufblaðið. Það er vel þekkt og
neytendur treysta því. Þar liggur
tækifærið. Andrés Vilhjálmsson hjá
Icelandic Lamb var heima í þessum
fræðum og ég þakka fyrir það,“ segir
Halla. /smh
Afl Sultartangavirkjunar í
Skeiða- og Gnúpverjahreppi
verður aukið um 8 megawött
en aukið afl verður fyrst og
fremst fengið með breytingu á
vélbúnaði.
Þetta kom fram á fundi
sveitarstjórnar fyrir skömmu þar
sem Albert Guðmundsson og
Sveinn Kári Valdimarsson frá
Landsvirkjun komu og kynntu
framkvæmdina. Í dag hefur
Sultartangavirkjun leyfi fyrir 125
megawött en fyrirhuguð aflaukning
kallar á breytt virkjunarleyfi.
Þá kom fram á fundinum hjá
Landsvirkjunarmönnunum að
fyrirtækið hefur ákveðið að byggja
nýjan veg að Hjálparfossi en það
verk verður unnið í vor. /MHH
Skeiða- og Gnúpverjahreppur:
Afl Sultartangavirkjunar
aukið um 8 megawött
Grafningsréttir fluttar
Sveitarstjórn Grímsnes- og
Grafnings hrepps tók fyrir á
síðasta fundi sínum málefni
Grafn ingsrétta en fyrir liggur að
núverandi réttir á Selflötum (í
landi Úlfljótsvatns) eru komnar
á það stig að það mun þurfa að
eyða talsverðum fjármunum í þær
til að hægt sé að rétta í þeim að ári.
Vegna ónýtra fjallgirðinga í
landi Króks og Villingavatns hafa
smalaleiðir breyst svo um munar,
smalasvæði hefur stækkað og nær
niður að Grafningsvegi og því væri
hentugast fyrir féð, smala og bændur
að réttirnar yrðu fluttar niður undir
Grafningsveg. Fjallskilanefnd hefur
lagt til við sveitarstjórn að hafnar
verði viðræður við landeigendur
Úlfljótsvatns hvort hægt sé að
flytja réttirnar niður undir veg við
ristahlið á mörkum Úlfljótsvatns og
Villingavatns. Réttirnar yrðu þá enn
í landi Úlfljótsvatns. Sveitarstjórn
hefur samþykkt samhljóða að verða
við beiðni fjallskilanefndar. /MHH
Fyrsti kynningarfundur viðskipta-
hraðalsins „Til sjávar og sveita“
fór fram á Selfossi þann 29. janúar
síðastliðinn. Fundurinn var vel
sóttur og greinilega mikill hugur
í fólki, að sögn skipuleggjenda hjá
Icelandic Startups.
Markmið viðskiptahraðalsins
er að gefa þátttakendum kost á að
þróa hugmyndir sínar að vörum eða
þjónustu og að koma þeim á markað.
Búið er að opna fyrir umsóknir
í hraðalinn en fyrst og fremst er
verið að leita að nýjum lausnum sem
stuðla að sjálfbærri verðmætasköpun
í landbúnaði og sjávarútvegi. Fjöldi
fagfólks í landbúnaði, sjávarútvegi
og viðskiptalífinu mun leggja
frumkvöðlum lið í vinnunni sem er
fram undan.
Auk þess að kynna hraðalinn hittu
verkefnastjórar Icelandic Startups
efnilega frumkvöðla sem hafa hug
á að taka þátt í hraðlinum. Sjö til
tíu teymi verða valin til þátttöku í
viðskiptahraðlinum sem hefst 28.
mars og stendur yfir í níu vikur.
Fundir víðar um land
Næstu fundir verða þann 31. janúar á
Sauðárkróki og Akureyri, 5. febrúar
á Hvanneyri og 7. febrúar í Granda
mathöll í Reykjavík.
Nánari upplýsingar um verkefnið
má finna á Facebook-síðu þess og
vefsíðunni tilsjavarogsveita.is.
Viðskiptahraðallinn „Til sjávar og sveita“:
Ert þú með góða
viðskiptahugmynd?